Morgunblaðið - 03.07.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.07.2018, Blaðsíða 23
fólki og það var heiður að vinna með honum. Blessuð sé minn- ing hans. Stefán Kristmannsson. Góður vinur og félagi, Sig- urður Arnór Hreiðarsson, hefur lokið lífsgöngu sinni. Eigi má sköpum renna. Komið er að kveðjustund. Hann kvaddi á bjartasta tíma ársins enda ein- kenndu glaðværð og góð- mennska fas hans og háttsemi. Ljúfur og lítillátur en ávallt tilbúinn að stíga fram og rétta öðrum hjálparhönd. Sigurður var trúaður krist- inn maður og var annt um að rækta með sér heiðarleika og samfélagsábyrgð. Til að styrkja sinn innri mann tók hann virk- an þátt í margvíslegri mann- bætandi starfsemi. Alls staðar ávann Sigurður sér virðingu og vinsældir. Sigurður var trúr hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Við vorum samstarfsmenn í for- sætisráðuneytinu og bundumst einnig bræðraböndum í Reglu Musterisriddara. Þá tengdi Hólmurinn okkur saman. Sjald- an hittumst við án þess að Hólminn og sögur honum tengdar bæri á góma. Af hans fundi fór maður alltaf með bros á vör og gleði í hjarta. Ég á eft- ir að sakna samvista við Sigurð. Sigurður átti góða og dug- mikla fjölskyldu sem hann var afar stoltur af og þakklátur fyr- ir. Fjölskyldu sem studdi hann og stóð með honum í hvívetna. Bjartar og glaðværar minning- ar um ástkæran föður og afa munu vísa þeim veginn fram á við. Ég votta þeim samúð mína. Ég þakka Sigurði vini mínum allt sem hann var mér og bið honum blessunar Guðs á nýrri vegferð. Halldór Árnason. Lífsstíll Sigga afa var ein- faldur í fágun sinni og áhersl- urnar voru fáar en flottar; Mercedes Benz, Hugo Boss- herrailmur, vel snyrtar hendur og klippingin ekki eldri en fjög- urra vikna. Sjálfsaginn og naumhyggjan var okkur inn- blástur. Afi var blíður og ljúfur á manninn, var handlaginn og haukur í horni þegar kom að viðhaldi og stússi. Afi hafði gott nef fyrir fallegum klæðnaði. Börnin voru augasteinar hans og hann var stuðningsmaður þeirra sérstaklega þegar mót- bárurnar risu hátt; hann bar hag þeirra fyrir brjósti og var stoltur af þeim. Afi var aflamikill skipstjóri sem fyrrverandi samstarfsfólk er enn að lofa fyrir vönduð störf. Hann átti glæstan skip- stjóraferil og þræddi Breiða- fjörðinn og heimshöfin með við- komu á Grænhöfðaeyjum, Namibíu og stuttu stoppi í Jap- an. Eitt sinn gaukaði hann að mér að hann hefði helst viljað feta í fótspor föður síns Hreið- ars sem var flottasti klæðsker- inn í Reykjavík á sínum tíma og málverkasafnari. Þetta fannst mér merkilegt. Þessi hetja hafsins hefði að eigin sögn unað sér betur við vinnu sem krafð- ist annars en sjómennskan, þ.e. hans fáguðu eiginleika. Að þessu leyti var hann nútíma- legur og hvatti okkur til að elta drauminn. Það höfum við af- komendurnir öll gert. Við minnumst afa með þakk- læti í hjarta fyrir innblásturinn og stuðninginn. Takk fyrir ynd- islegu kjötsúpurnar og súkku- laðirúsínurnar. Okkur hlýnar við að hugsa um þær ótal fjöl- skyldustundir sem við áttum hjá þér þar sem þröngt var set- ið og hátt var hlegið í Dalaland- inu. Þú hlóst alltaf hæst. Hvíl í friði, elsku afi. Fyrir hönd barnabarnanna, Jökull Sólberg Auðunsson. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018 ✝ Anna Pálsdóttirfæddist í Reykjavík 26. júlí 1939. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sólvangi 12. júní 2018. Foreldrar henn- ar voru Ingibjörg Jónsdóttir, f. 22.11. 1917, d. 8.1. 1989, og Páll Guðmunds- son, f. 13.2. 1918, d. 17.1. 2003. Systkini Önnu eru Guðrún, f. 1943, Rúnar, f. 1945, Reynir, f. 1945, d. 2009, og Elín, f. 1949. Anna giftist 24.12. 1958 Sig- ursteini Húbertssyni, f. 1.6. 1932, d. 16.9. 2013. Þau skildu. Börn Önnu og Sigursteins eru: 1) Ingibjörg, f. 1.7. 1959, hún á tvær dætur; Önnu Rut Pálma- dóttur, f. 1980, gift Þorgils Ragnarssyni, f. 1976, börn þeirra eru Dagný, f. 2008, og Vignir, f. 2011, og Ölmu Rún Pálmadóttir, f. 1985, í sambúð með Antoni Stefánssyni, f. 1983, börn þeirra eru Arnar Emil, f. 2012, Anna Emilía, f. 2015, og Aníta, dóttir Antons af fyrra sambandi. 2) Hafdís, f. 16.11. 1967, maki Gísli Þór Sigurbergs- son, f. 1965, dætur þeirra eru Ingi- björg, f. 1993, Magdalena, f. 1998, og Kamilla, f. 2004. 3) Húbert, f. 19.5. 1970, sonur hans og Bjarndísar er Sigursteinn Bjarni, f. 1990, unnusta hans er Elísabet Þóra, dætur Húberts og Valdísar eru Snjólaug Harpa, f. 1999, dóttir hennar og Róberts er Alexandra Fanney, f. 30.8. 2017, og Ísabella Anna, f. 2001. Anna var í sambúð með Eiði Hilmarssyni, f. 1937, þau slitu samvistum. Anna starfaði lengst af á Sól- vangi þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Útför Önnu fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði í dag, 3. júlí 2018, kl. 13. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Ástarkveðja til þín elsku mamma, amma og tengdó, Hafdís, Gísli, Ingibjörg, Magdalena og Kamilla. Elsku Anna systir mín, það er svo skrítið að geta ekki rennt upp á Sólvang og knúsað þig. Þú varst alltaf svo kát og glöð þegar ég kom og við dönsuðum oft út allan ganginn. Þannig man ég þig, alltaf kát og góð við alla. Þú hafðir svo góða nærveru elsku Anna. Þú varst stóra systir mín og ég litla systir. Ég veit að bæði þú, Gugga og bræður okkar þurftuð oft að passa litla varginn mig en þið voruð alltaf svo góð við mig öll saman. Það var alla tíð mjög gott sam- band á milli okkar Önnu. Það var sárt að sjá hvernig sjúkdómurinn tók þig frá okkur en viku fyrir andlát þitt þekktirðu mig enn og sagðir svo fallega „Ella mín“ sem gladdi mig mikið. Elsku Anna mín, við sjáumst þegar minn tími kemur. Ég votta börnum, barnabörn- um, langömmubörnum og öllum ættingjum okkar samúð. Elín Pálsdóttir. Anna Pálsdóttir ✝ Finnur Bald-ursson fæddist á Húsavík 10. júní 1952. Hann lést 25. júní 2018. Hann var sonur hjónanna Helgu Finnsdóttur, f. 15.7. 1916, d. 13.4. 1996, og Baldurs Sigurðssonar, f. 31.7. 1916, d. 29.1. 1990. Bróðir Finns er Sigurður Baldursson, f. 15.2. 1956. Fyrrverandi sam- býliskona Finns er Ingibjörg Þorleifsdóttir, synir þeirra eru: 1) Hilmar, f. 11.10. 1974. 2) Garðar, f. 5.7. 1979, sam- býliskona hans er Valerija Kiskurno. Börn þeirra eru Eld- ey Gerda og Dreki Lars. Finnur ólst upp í Mývatns- sveit og bjó þar alla sína ævi að frátöldum tveimur árum þegar hann bjó á Akureyri. Finnur gekk í Skútustaðaskóla og síðar í Fram- haldsskólann á Laugum. Hann var starfsmaður Kís- iliðjunnar hf. í yfir 30 ár en auk þess starfaði hann sem atvinnubílstjóri, bæði í aukastarfi og í aðalstarfi. Undanfarin ár starfaði hann hjá Reykhúsinu Geiteyjarströnd. Félagsmál áttu hug hans allan og hann var félagsmaður í Kiwanis- klúbbnum Herðubreið um langt árabil. Hann var einn stofnenda Golfklúbbs Mývatns- sveitar og undanfarin ár vann hann ötullega fyrir Félag eldri Mývetninga. Útför Finns fór fram frá Reykjahlíðarkirkju 2. júlí 2018. Við viljum í þessum orðum minnast félaga okkar og vinar, Finns Baldurssonar. Finnur var sannur kiwanismaður og vakinn og sofinn yfir velferð klúbbsins okkar hér í Mývatnssveit. Sam- verustundir okkar voru ætíð skemmtilegar og mikið skrafað og hlegið. Finnur bakaði stundum með kaffinu. Þetta voru góðar stundir sem geymast í minningunni. Svo var laumað einni og einni vísu með auk brandara. Alltaf var Finnur boðinn og búinn að gera vel fyrir samfélag sitt hér í Mý- vatnssveit ef þess var nokkur kostur. Við klúbbfélagar kveðjur góð- an vin okkar með kiwanis-kveðju og söknum hans sárlega. Við vottum aðstandendum hans okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd félaga í Kiwanis- klúbbnum Herðubreið í Mý- vatnssveit, Örnólfur Jóhannes Ólafsson. Kveðja frá Lauga- mönnum 1967-69 Okkar ágæti skólabróðir og vinur, Finnur Baldursson, er fallinn frá. Það er alltaf sorgar- fregn þegar góðir vinir yfirgefa óvænt þennan heim langt fyrir aldur fram. Á skólaárunum í Héraðsskól- anum á Laugum var Finnur okk- ur strax minnisstæður fyrir gott viðmót við skólafélagana. Hann hafði góða tónlistarhæfileika og spilaði á bassa í skólahljómsveit- inni, sem nefndist því hógværa nafni Zero. Eftir skólavistina á Laugum dreifðist útskriftarhópurinn víða, Finnur settist að í Mývatnssveit, sinni heimasveit, þar sem hann, auk starfa sinna þar, var virkur í félagsmálum og framfaramálum fyrir byggðarlagið. Hann starfaði m.a. í mörg ár innan Kiwanis-hreyfingarinnar af einstakri alúð og fórnfýsi. Finnur hélt góðum tengslum við skólasystkini sín. Hann lagði á sig að ferðast, stundum um langan veg, til að hitta gömlu skólafélagana og var ólatur við að keyra þá sem höfðu ekki far á þessar samkomur. Á samverustundum með skólafélögunum var Finnur hrókur alls fagnaðar og gladdi hópinn gjarnan með gamansöm- um og góðlátlegum vísum sem hæfðu tilefninu og sagði skemmtilegar sögur frá heima- byggðinni. Jafnframt voru honum hug- leikin framfaramál sinnar sveitar og var jafnan fróðlegt að ræða við hann um mál sem brunnu á Mývetningum, s.s. náttúrvernd og uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu. Við skólafélagarnir frá Laug- um viljum þakka Finni fyrir allar ánægjulegu samverustundirnar og þann vinskap sem hann auð- sýndi okkur. Við sendum að- standendum hans okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Þorsteinn Gunnarsson. Við Finnur vorum jafnaldrar og fermingarsystkini. Ég minnist heimsókna í æsku í litlu fallegu íbúðina sem for- eldrar hans bjuggu í þá, en það var mikil vinátta milli mæðra okkar sem báðar voru söngelsk- ar og sungu í kirkjukórnum. Helga Finns var fagurkeri og glæsileg kona með hjartað á rétt- um stað. Hún miðlaði því áfram til drengjanna sinna og á fullorðins- árum var vinátta og hlýhugur Finns einkennandi fyrir líf hans og viðmót við samferðafólkið. Við Finnur áttum alltaf gott spjall þegar við hittumst í sveit- inni og það var hann sem minnti á það á vordögum fyrir tveimur árum að nú ættum við 50 ára fermingarafmæli. Um haustið gerði árgangurinn sér glaðan dag af þessu tilefni, en í millitíðinni hafði sá fyrsti okkar kvatt þetta líf. Samveran þennan dag var yndisleg og við ákváðum að hittast árlega og njóta þess að eiga þetta vináttusamband. Finnur mætti með gjöf handa öllum; hópmynd frá fermingar- árinu sem hann hafði útbúið handa okkur og var efni í kátínu og margar sögur. Síðasta haust var svo annar dýrðardagur fermingarbarnanna og ákveðið að halda uppteknum hætti. Í haust munum við sakna vin- ar í stað og fyrir hönd ferming- arsystkinanna votta ég fjöl- skyldu Finns samúð okkar og bið Guð að blessa hann og varðveita allar þær góðu minningar sem hann skilur eftir sig. Margrét Bóasdóttir. Elsku Finnur. Það er engin leið að vera viðbúinn þegar kallið kemur svo skjótt. Síðustu dagar hafa tekið virkilega á og það verður erfitt að venjast því að hafa þig ekki sem fastan punkt í tilverunni. Finnur frændi minn var svo sannarlega traustur og góður maður. Ávallt glaður og tilbúinn að gera allt fyrir fjölskyldu sína og vini. Mér þótti ákaflega vænt um hann og hafði svo gaman af því að hitta hann, hvort sem það var í fjölskylduhittingi eða á förnum vegi hér í sveitinni. Hann sinnti félagsmálum af krafti og hafði yndi af því að vera með fólki. Barnabörnin áttu hug hans allan og það er ógleymanlegt hvernig hann ljómaði þegar hann var með þau. Hann hafði unun af að ferðast og fara á tónleika og nýtti hvert einasta tækifæri til þess. Hann kunni svo sannarlega að njóta lífsins. Elsku frændi, ég á eftir að sakna þess að heyra fótatakið þitt þegar þú gengur upp stigann í Reykjahlíð 4, sakna þess að fá sérprentað afmæliskort með vísu, sakna þess að spila Trivial með þér í Lynghrauninu um jól- in, sakna þess að fá þig til okkar í jólaboð, sakna þess að horfa með þér á áramótaskaupið, sakna þess að sitja með þér til borðs á þorrablótinu, sakna þess að fara með þér í varp, sakna þess að spjalla í gufunni og sakna þess að heyra þig bjóða glaðlega „góða kvöldið“ úti í Lóni. En þó að söknuðurinn grafi um sig í hjart- anu þá er dýrmætt að eiga marg- ar góðar minningar að ylja sér við. Strákarnir þínir, Valerija og barnabörnin, sem þér þótti svo vænt um, hafa staðið sig eins og hetjur á þessum erfiðu tímum og saman munum við halda minn- ingu þinni á lofti. Hvíldu í friði, elsku frændi. Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug sál mín lyftist upp í mót, til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur. Og ég, þó látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höf. óþekktur.) Elísabet Sigurðardóttir. Finnur Baldursson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA MARGRÉT STEFÁNSDÓTTIR, Eyrarvegi 14, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands mánudaginn 18. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands fyrir einstaka umönnun og kærleika. Axel Ragnar Ström Sigrún Linda Ström Lúðvík Magnús Ólason Halldóra Björg Ström Hilmar Þór Hannesson Stefán Ásgeir Ström Helga Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, UNNUR ÞÓRÐARDÓTTIR, lést föstudaginn 29. júní á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Steinn Jónsson Jónína B. Jónsdóttir Jónína G. Jónsdóttir Guðmundur Ragnarsson Elskulegur bróðir minn, mágur og frændi, GUÐBRANDUR BJÖRNSSON, bóndi á Smáhömrum, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 27. júní. Karl Þór Björnsson Helga Halldórsdóttir Þórdís Karlsdóttir Kolbrún Ýr Karlsdóttir Inga Matthildur Karlsdóttir Minn kæri eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI BRAGI JÓNSSON, hagfræðingur, lést á hjúkrunarheimilinu Grund að morgni sunnudagsins 1. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Rósa Guðmundsdóttir Ólöf Erla Bjarnadóttir Sigurður Axel Benediktsson Guðmundur Jens Bjarnason Ásta Hrönn Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.