Morgunblaðið - 03.07.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018
Nú finnur þú það
sem þú leitar að á
FINNA.is
Hildur Loftsdóttir
hilo@mbl.is
Það er meira er nóg að gera hjá Pétri
Oddbergi Heimissyni og félögum
hans í Olga Vocal Ensemble.
Í fyrrakvöld sungu þeir á alþjóð-
legu kóramóti til minningar um Nel-
son Mandela í Kennedy Center í
Washington DC. Í dag mæta þeir til
Íslands og hefja tveggja vikna tón-
leikaferðalag um landið með tón-
leikum annað kvöld í Bláu kirkjunni á
Seyðisfirði klukkan 20.30.
Mættu á femínistafundi
Á tónleikunum mun söngkvintett-
inn m.a. kynna þriðju og nýjustu
plötuna sína, It’s a Woman’s World.
Auk Péturs, sem er bassbaritón, er
hann skipaður Jonathan Ploeg tenór
og Philip Barkhudarov bassa, en þeir
kynntust allir í Utrecht í Hollandi
þar sem þeir voru í söngnámi hjá
Jóni Þorsteinssyni. Á síðasta ári
bættust Arjan Lienaerts baritón og
Matthew Smith tenór í hópinn eftir
að hafa sungið fyrir og verið valdir
inn.
Eins og titill plötunnar bendir til
er efni hennar sótt í heim konunnar
og segjast þeir félagar hafa viljað
kanna femínisma á þessari plötu.
„Ég man ekki alveg hvernig hug-
myndin varð til, en eftir það varð
ekki aftur snúið,“ segir Pétur Odd-
bergur. „Okkur leist svo vel á þetta
þema, en á seinustu plötu vorum við
með víkingaþema sem er mjög ólíkt.
Við höfum mikinn áhuga á femínisma
og því sem hann stendur fyrir og fór-
um strax að pæla í hvernig við gæt-
um tengt saman lög í efnisskrá og á
plötu. Við mættum líka á alls konar
fundi um femínisma og vorum yfir-
leitt einu strákarnir á staðnum.“
Pétur Oddbergur segir að lögin á
plötunni séu blanda af lögum fluttum
af konum, eftir konur og um reynslu-
heim kvenna.
„Við erum með nokkra kvenkyns-
tónlistarmenn sem hafa skarað fram
úr og fólk þekkir. Við vildum heiðra
þær og svo erum við líka að kynna
fyrir mörgum miðaldatónskáld eins
og Hildegard von Bingen og Barböru
Strozzi. Við fengum kventónskáld til
semja fyrir okkur lög, þar á meðal
Báru Grímsdóttur, en einnig tvær
hollenskar konur og eina eistneska,
þannig að það eru fjögur lög á plöt-
uninni sérsamin fyrir okkur.
Löng leið fyrir höndum
Ef ég tala fyrir sjálfan mig þá hef
ég lært mjög mikið á að kanna fem-
ínisma. Ég pæli mikið í orðræðunni
og passa mig á hvernig ég orða hlut-
ina og reyni að vera meira meðvit-
aður um það sem maður ætti ekki að
segja. Þótt við séum alltaf að ná
meira og meira jafnrétti er samt enn
löng leið fyrir höndum og við erum
bara lítill sönghópur sem vill vekja
athygli á því,“ segir Pétur Odd-
bergur.
„Á prógramminu erum við t.d. líka
með aríu Dons Giovannis eftir Moz-
art og förum svo beint yfir í Mambo
No. 5, og þá erum við í rauninni að
tala um kvenfyrirlitningu og hvernig
þeir telja upp allar konurnar sem
þeir hafa sofið hjá. Við reynum að
gera þetta eins létt og hægt er, en
það er alvarlegur undirtónn í efnis-
skránni. Þannig að ef fólk kemur á
tónleikana mun það skemmta sér
mjög vel, en vonandi fær dagskráin
það til að hugsa aðeins,“ segir Pétur
Oddbergur söngvari að lokum.
Samhljómur Jonathan, Philip, Pétur Oddbergur, Matthew og Arjan ætla að syngja fyrir landann.
Heimur kvenna kannaður
Olga Vocal Ensemble að hefja tónleikaröð um landið
Létt og feminísk tónlist með alvarlegum undirtóni
4. júlí kl. 20:30 – Bláa kirkjan á
Seyðisfirði
5. júlí kl. 20 – Vinaminni, Akranesi
6. júlí kl. 18 – Flateyjarkirkja
8. júlí kl. 17 – Egilsstaðakirkja
9. júlí kl. 21 – Havarí á Karls-
stöðum, Djúpavogi
10. júlí kl. 20:00 – Tjarnarborg,
Ólafsfirði
13. júlí kl. 20 – Hafnarborg
15. júlí kl. 17 – Akureyrarkirkja
Nú er hásumar og tími alls kyns
tónlistarhátíða víða um lönd. Ein
þeirra er TRNSMT-hátíðin sem
haldin er yfir tvær helgar á Glas-
gow Green í Skotlandi. Fyrri hlut-
inn var nú um liðna helgi og verður
leik síðan haldið áfram um þá
næstu. Nú um helgina komu meðal
annars fram sveitirnar Stereophon-
ics, The Lafontaines, The Arctic
Monkeys – sem var kynnt sem að-
algestur hátíðarinnar – og Nothing
But Thieves, og Liam Gallagher,
Jessie J og Sigrid. Um næstu helgi
koma meðal annars fram The
Temperance Movement, The Dark-
ness, Texas, The Killers og heima-
mennirnir í Franz Ferdinand.
Samkvæmt fréttasíðu BBC er
TRNSMT fjölsóttasta tónlistarhátíð
sem haldin er í Skotlandi í ár en
hún var haldin í fyrsta skipti í
fyrrasumar. Þúsundir manna sóttu
hátíðina í blíðskaparveðri um liðna
helgi og fór dagskráin vel fram,
fyrir utan að lögreglan í Glasgow
handtók nokkra vegna meintra
fíkniefnabrota.
Glasgow-tónlistarhátíðin TRNSMT
sú fjölsóttasta í Skotlandi í ár
Skemmtan Hátíðargestir skemmtu sér vel í blíðunni
undir leik hljómsveitarinnar Nothing But Thieves á
aðalsviði hátíðarinnar á sunnudaginn var.
Ljósmyndir/AFP
Rísandi stjarna Norska tónlistarkonan Sigrid hefur vakið mikla og sívax-
andi eftirtekt úti um löndin síðustu misserin og hefur unnið til virtra verð-
launa. Hún var einn listamannanna sem komu fram á lokadegi TRNSMT.
Tónaflóð Paul Banks
leiddi hljómsveitina
Interpol á TRNSMT-
hátíðinni, sem er nú
haldin í annað sinn.
Vinsælir Hljómsveitin The Arctic Monkeys lauk dag-
skránni á aðalsviði hátíðarinnar á sunnudag. Var mikil
þröng við sviðið enda hljómsveitin eftirlæti margra.