Morgunblaðið - 03.07.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt nokkuð gusti um þig núna
skaltu ekki láta það slá þig út af laginu.
Fall er fararheill.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er hætt við því að þú farir í
taugarnar á einhverjum í dag. Þig skortir
ekki sjálfstraustið og þú hoppar út í
djúpu laugina á atvinnumálunum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú leitar lausnar á vandamáli
en finnur hana ekki strax. Notaðu daginn
fyrir þig, gerðu hluti sem færa þér innri
frið og aukna vellíðan.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Óvæntur kaupauki eða greiði
mun gera lífið auðveldara. Gríptu tæki-
færið og kauptu þér eitthvað fallegt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Dugleysi annarra fer afskaplega í
taugarnar á þér. Þú ert alin/n upp við
vinnusemi og leti er eitur í þínum bein-
um.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Veldu þér samstarfsmenn af kost-
gæfni ef þú átt þess kost. Settu þér tak-
mark og ákveddu hversu langan tíma þú
ætlar þér til að ná því.
23. sept. - 22. okt.
Vog Taktu höndum saman með öðrum til
þess að láta hjólin snúast. Maður er
manns gaman og þú hefur mikið að gefa
öðrum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Fólk dáist að því af hve mik-
illi kurteisi þú kemur fram við ókurteist
fólk. Eitthvað óvænt gæti gerst í peninga-
málum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú færð tækifæri til að kom-
ast að einhverju nýju varðandi fortíð
þína. Láttu ekki aðra hafa of mikil áhrif á
þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert að gera einmitt það
sem þér finnst skemmtilegast: að láta þig
dreyma og hugsa hvaða skref þú eigir að
taka næst. Líttu fram hjá göllum annarra
og reyndu að sjá kostina.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Dagurinn í dag er fullkominn
til að bregða á leik með ástvinum. Mundu
að oft er flagð undir fögru skinni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér er óhætt að láta hugboð þitt
ráða, því oftar en ekki dettur þú ofan á
réttu lausnina svona fyrirhafnarlaust.
Spáðu í það hvert þig langar að stefna.
Erlendur (1818-1894) hét sonurGottskálks á Fjöllum Pálssonar,
en Gottskálksætt er mikil ætt og
merk norður í Kelduhverfi. Erlendur
var skáld gott en ætlaðist ekki til að
ljóð hans kæmu nokkru sinni fyrir al-
menningssjónir, því að hann lét
brenna, áður en hann dó, allstórt
ljóðasafn er hann átti í handriti. Eftir
hann liggur því ekki annað en
geymst hefur í minni manna og dag-
blöðum frá fyrri árum. Erlendur var
22 ár bóndi í Austur-Görðum, var tví-
kvændur og eignaðist 18 börn, á
hann hlóðust opinber störf, var m.a.
hreppstjóri og oddviti sveitar sinnar.
Erlendi var nauðugt að flytja frá
Garði og olli því vélráð að hann varð
að fara þaðan. Í Garði er kirkja og
kirkjugarður, sem síðasta vísuorðið
bendir á:
Yfir Garð ég auga brá,
á það varð ég hyggja:
Þó ég Garði fari frá
fæ ég í garði að liggja.
Erlendur segir í bréfi til konu sinn-
ar:
Meðan himinn lætur líf
leika í æðum mínum
lofaðu mér að vera, víf,
vin í armi þínum.
Þessa vísu yrkir Erlendur við
kvæðalag sitt:
Raun er að koma í ráðaþrot,
ragna flæktur böndum,
lífið allt er boðabrot
borið að heljarströndum.
Um Sölva Helgason:
Sölva fagur gáfnaglans
gyllir alheims veldi,
logar stjarna hugar hans
heims á dimmu kveldi.
Um Guðmund Bjarnason orti Er-
lendur:
Út á Tjörnes arka vann
ógnarlegt með ferðavés;
viku rétta var heiman,
vappaði kringum allt Tjörnes.
Svo heim kom í sinni grár,
sínum poka af sér hratt,
var í orðum furðu flár,
fráleitur að tala satt.
Ort við andlátsfregn Guðmundar:
Guðmundur Bjarnabur
burt er nú sofnaður
fépyngju frá.
Andaðist andrammur,
upprís hann freknóttur,
hann stýrir harðráður
hundunum þá.
Erlendur var svikinn um hestlán:
Fótgangandi flækjast má,
féll oft styttan reista.
Það er djöfull aðra á
eitthvað þurfa að treysta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Erlendi Gottskálkssyni
„MÁ ÉG SETJA ÞIG Á BIÐ? ÉG ER MEÐ
ANNAÐ SÍMTAL.“
„KANÍNURNAR ERU AÐ ÉTA ALLAR
GULRÆTURNAR HANS.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að muna alltaf
hvernig þú lítur út í
dag.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
AF HVERJU ER MÚS AÐ SENDA
ÞÉR DAPURLEGAN BROSKALL?
OSTURINN
ER BÚINN
ÉG ER MEÐ TILBOÐ FRÁ
KÓNGINUM!
AFHENTU HELMING EIGNA ÞINNA OG ÞÚ
MÁTT EIGA HINN HELMINGINN!
Margir gera sér að leik að spá fyr-ir um úrslit í heimsmeistara-
keppninni í fótbolta. Víkverji spáði
því til dæmis eftir að Ísland gerði
jafntefli við Argentínu í upphafi móts
að úrslit leiksins yrðu stökkpallur
Suður-Ameríkuliðsins að heims-
meistaratitlinum líkt og jafntefli
Portúgals við Ísland á EM fyrir
tveimur árum. Víkverji reyndist ekki
spámannlega vaxinn. Vefmiðill
Guardian tók saman spár ýmissa
fjármálafyrirtækja fyrir mótið. Þau
reyndust engu sannspárri en Vík-
verji, en reyndu hins vegar að klæða
spár sínar í sýnu vísindalegri búning.
x x x
Commerzbank sagðist hafa notaðfjármála- og gagnagreining-
artæki sín til að gera tíu þúsund
slembihermilíkön og niðurstaðan
hefði verið afgerandi. Þjóðverjar
yrðu heimsmeistarar.
x x x
Goldman Sachs notaði „námugröfteftir upplýsingum, vélrænt
sjálfsnám og hagtölur“ til að gera
milljón líkön og veðjaði á að Þýska-
land kæmist í úrslit og Saudi-Arabía
kæmi á óvart.
x x x
Danske Bank greindi „mörg þús-und gagnalíkön og gerði ráð fyr-
ir hagfræðilegum breytum“ og nið-
urstaðan yrði sú að Þjóðverjar
kæmust í úrslit.
x x x
UBS kvaðst nota sömu „hagrein-ingartæki og auðstjórn-
unardeild UBS beitti til að velja
hlutabréf fyrir viðskiptavini“ og
barði sér á brjóst fyrir að hafa búið
til „líkan með mikilli nákvæmni“.
Bankinn hefði framkvæmt „10.000
sýndarmót“ og komist að þeirri nið-
urstöðu að Þjóðverjar myndu sigra í
úrslitaleiknum eftir „auðvelda byrj-
un“ á mótinu.
x x x
Nú er vitaskuld ljóst að Þjóðverjarkomust ekki einu sinni upp úr
sínum riðli og sýnir þetta kannski
best hversu erfitt er að spá – sér-
staklega um framtíðina.
vikverji@mbl.is
Víkverji
En Guð auðsýnir kærleika sinn til
okkar í því að Kristur dó fyrir okkur
þegar við vorum enn syndarar.
(Rómverjabréfið 5.8)
Fallegar vörur fyrir falleg heimili
Opið virka daga frá 10-18, laugardag 11-15.
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi