Morgunblaðið - 03.07.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018
Björn Bjarnason gerir að umtals-efni á heimasíðu sinni að jafn-
aðarmannaflokkar á Ítalíu, í Frakk-
landi, Þýskalandi og víðar séu ekki
nema svipur hjá sjón um þessar
mundir og megi
meðal annars rekja
það til veikburða
stefnu þeirra í út-
lendingamálum.
Jafnaðarmenn í
Danmörku hafi þó
sótt í sig veðrið und-
ir forustu Mette
Frederiksen með harðri afstöðu í
útlendingamálum og nú leiðbeini
hún formönnum annarra jafnaðar-
mannaflokka í Evrópu um mótun
útlendingastefnu. Niðurstaða fund-
ar hennar með leiðtogum flokk-
anna í Hollandi, Belgíu, Austurríki
og Ítalíu hafi verið „að banna ætti
hælisleitendum að fara á milli Evr-
ópulanda með umsóknir sínar, þeir
ættu að fara í búðir utan Evrópu og
sækja um hæli þaðan. Mette Frede-
riksen segir að í þessu felist þátta-
skil í stefnumótun forystumanna
jafnaðarmanna“.
Björn bætir við: „Hér náðist ásínum tíma sátt allra þing-
flokka um útlendingastefnu og lög
sem voru svo „nútímaleg“ að það
þótti sérstakur gæðastimpill að
orðið „hælisleitandi“ var afmáð úr
lagasafninu! Nú sækja menn ekki
um hæli á Íslandi heldur „alþjóð-
lega vernd“. Milljörðum króna er
varið til að standa undir kostnaði
við dvöl hundraða eða þúsunda
hælisleitenda sem fá aldrei jákvæða
afgreiðslu á umsóknum sínum sé
lögum og reglum fylgt. Alþingis-
menn leggja lykkju á leið sína við
veitingu ríkisborgararéttar til fólks
sem embættismenn neituðu um
hæli.“
Pistlinum lýkur Björn með þarfriábendingu: „Þessi mál hafa
ekki orðið að sérstöku átakaefni í
íslenskum stjórnmálum. Reynslan
frá meginlandi Evrópu sýnir að
pólitísku áhrifin eru síðbúin.“
Björn Bjarnason
Hin síðbúnu
pólitísku áhrif
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 2.7., kl. 18.00
Reykjavík 8 súld
Bolungarvík 11 skýjað
Akureyri 12 alskýjað
Nuuk 5 skýjað
Þórshöfn 11 skúrir
Ósló 24 heiðskírt
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 17 heiðskírt
Helsinki 15 skúrir
Lúxemborg 26 heiðskírt
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 22 léttskýjað
Glasgow 19 heiðskírt
London 26 léttskýjað
París 29 heiðskírt
Amsterdam 24 heiðskírt
Hamborg 24 heiðskírt
Berlín 24 heiðskírt
Vín 22 heiðskírt
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 27 léttskýjað
Barcelona 28 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 28 léttskýjað
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 21 léttskýjað
Montreal 30 léttskýjað
New York 25 þoka
Chicago 24 léttskýjað
Orlando 27 þoka
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:11 23:55
ÍSAFJÖRÐUR 2:04 25:11
SIGLUFJÖRÐUR 1:39 25:02
DJÚPIVOGUR 2:27 23:37
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
Bandarískur
ferðamaður sem
fannst illa slas-
aður í Lækjar-
götu aðfaranótt
laugardags lést á
sjúkrahúsi. Talið
er að ferðamað-
urinn hafi fallið
af húsþaki í göt-
unni og þannig
beðið bana. Veg-
farendur á svæðinu heyrðu dynk,
komu auga á manninn í slæmu
ásigkomulagi á götunni og hringdu
bæði í sjúkrabíl og á lögregluna.
Enginn varð vitni að atvikinu og
maðurinn var einn á ferð.
Jóhann Karl Þórisson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn staðfesti at-
burðarásina í samtali við mbl.is og
sagði einnig að lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu hefði málið til
rannsóknar.
Fáar upplýsingar hafa verið
gefnar um hinn látna. Ekki er vit-
að hvað maðurinn var að gera á
þaki hússins þaðan sem hann datt.
Maðurinn fæddist árið 1992 og
hefur því verið á bilinu 25-26 ára
gamall þegar hann lést.
Látinn
eftir fall af
húsþaki
Hinn látni 25 ára
Bandaríkjamaður
Fall Maður fannst
látinn á götunni.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Þriggja ára samningaviðræðum milli
Íslands, Grænlands og Noregs lauk í
síðustu viku með undirritun nýs
samnings um hlutdeild í loðnukvóta
milli ríkjanna. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Nær
engin loðna er lengur veidd nema í
lögsögu Íslands og ekki hefur hún
verið veidd að sumri í mörg ár. Sam-
kvæmt samningnum fær Ísland 80%
loðnukvótans, Grænland 15% og
Noregur 5%. Að flestu leyti er nýi
samningurinn, sem byrjað var að
semja um 2016, áþekkur hinum
fyrri. Engar breytingar verða á
magni kvótans sem Grænlendingum
og Norðmönnum er úthlutað í heim-
ildinni frá eldri samningi sem gerður
var árið 2003. Grænlendingar fá þó
nú leyfi til að veiða með þremur
vinnsluskipum innan íslenskrar lög-
sögu í stað tveggja. Samkvæmt til-
kynningunni ríkir samstaða milli
landanna þriggja um að fara að ráð-
gjöf og stunda ábyrgar veiðar. Al-
þjóðahafrannsóknaráðið (ICES)
staðfesti að núverandi aflaregla
stæðist kröfur um sjálfbærnismark-
mið og varúðarsjónarmið.
Samningurinn er ekki bundinn
neinum tímamörkum en aðildarríkin
geta sagt honum upp með einnar
vertíðar fyrirvara.
Samið um skiptingu loðnukvóta
Ísland fær 80% loðnukvótans, Grænland 15% og Noregur fimm prósent
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Kvóti Loðnuflokkun á Seyðisfirði