Morgunblaðið - 03.07.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 03.07.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018 Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is „Það er mjög ánægjulegt að nú eru fleiri farnir að útskrifast úr fram- haldsskóla. Við þurfum að fjölga þeim sem útskrifast og erum að sjá jákvæða tölu hvað það varðar,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, en í nýlegri úttekt Hagstofu kemur fram að hlutfall nemenda sem klár- uðu framhalds- skóla á fjórum árum var 52% árið 2016, sem er aukning frá fyrri árum. Lilja segir markmiðið að hækka hlutfallið upp í 60%. Þá kemur fram hjá Hag- stofu að hlutfall innflytjenda sem útskrifast á fjórum árum sé um 29%. Lilja bendir á að hlutfall brautskráðra innflytjenda sé tölu- vert hærra nú en á síðastliðnum árum. Hlutfallið sé 29% núna en það hafi verið 16% árið 2007. Það sé um 80% aukning á níu árum. „Við viljum að öll börn sem sækja nám á Íslandi hafi jöfn tæki- færi. Þess vegna hafa þeir nem- endur sem eru líklegir til að hverfa frá námi á framhaldsskólastiginu verið að fá aukna aðstoð núna í ár,“ segir Lilja. Aukafjármagn var sett í stærðfræði- og íslensku- kennslu til að styðja betur við nemendur í brotthvarfshættu, að sögn Lilju. Þróunarstyrkjum úthlutað „Þeir sem þurfa að bæta sig í stærðfræði og íslensku eru líklegri til að hverfa frá námi á framhalds- skólastigi, það er ákveðið forspár- gildi þar. Þess vegna var fjármun- um sérstaklega beint þangað.“ Þá var þróunarstyrkjum úthlut- að til framhaldsskólanna til þess að þróa aðgerðir sem miða að því að draga úr brotthvarfinu, að sögn Lilju. Síðasta úthlutunin fyrir þessa þróunarstyrki, þar sem ein- blínt er á brotthvarfið, hafi verið fyrir árin 2018 og 2019. Menntamálastofnun vann grein- ingu í febrúar sl. um þarfir nem- enda með íslensku sem annað tungumál og meðal þess sem fram kom í henni voru tillögur til úrbóta á íslenskukennslu sem annað mál. Þá var lagt til að starfshópur sem sinnti þeim málum sérstaklega yrði skipaður. Lilja segir að starfshópur hafi verið skipaður í menntamálaráðu- neytinu sem vinni nú að því að greina brotthvarf úr framhalds- skólum, helstu ástæðum þess og hvernig megi enn frekar vinna að því að draga úr brotthvarfi úr framhaldsskólum. Stefnt á að 60% brautskráist á réttum tíma  Brotthvarf úr framhaldsskólum fer minnkandi  Menntamálaráðuneytið skipar starfshóp til að meta stöðuna Lilja Alfreðsdóttir Nýstúdentar Útskriftarathöfn MR fór fram fyrir rúmum mánuði. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon „Ég held að þetta sé örugglega ekki oftalið. Þetta er semsagt sú tala sem ég geymi fyrir sjálf- an mig,“ segir Þórarinn Sig- þórsson tann- læknir, betur þekktur sem Tóti tönn, m.a. í viðtali í nýjasta hefti Sportveiðiblaðsins. Eggert Skúlason ræðir við Tóta, sem varð áttræður í byrjun þessa árs. Fram kemur í viðtalinu að Tóti sé samkvæmt eigin bókhaldi búinn að veiða 20.511 laxa um ævina. Hann segist halda eigið bókhald sem hann uppfæri í lok hvers veiði- tímabils. Árið 2001 stóð talan í um 16 þúsund löxum. Tóti veiðir ekki lax aðeins í ís- lenskum ám. Hann hefur heimsótt lönd á borð við Rússland, Noreg og Skotland, svo dæmi séu nefnd. Af öðru efni í Sportveiðiblaðinu, sem Gunnar Bender ritstýrir að vanda, má nefna viðtal við stór- söngvarann Kristján Jóhannsson, sem er forfallinn veiðimaður. Einnig er viðtal við Jón Þór Ólafsson, nýjan formann Stanga- veiðifélagsins Reykjavíkur, og Höskuldur Birkir Erlingsson lýsir reynslu sinni við maríulaxinn. Tóti tönn búinn að landa meira en 20.500 löxum Útsalan hafin 40-50% afsláttur Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is RayBan 3025 sólgleraugu kr. 24.900,- Sumarið er hér Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af umgjörðum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Tvíhliða samskipti Íslands og Danmerkur, öryggismál og leið- togafundur Atlantshafsbandalags- ins í næstu viku voru meðal um- ræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Anders Samuelsens, utanríkis- ráðherra Danmerkur, sem fram fór á öryggissvæðinu á Keflavík- urflugvelli í gær. Málefni norðurslóða og fyrir- huguð formennska Íslands í norð- urskautsráðinu og Brexit voru ennfremur á dagskrá fundar, en Samuelsen er staddur hér á landi í vinnuheimsókn og mun meðal ann- ars kynna sér varnartengda starf- semi Landhelgisgæslunnar. „Samstarf Íslands og Danmerk- ur er einkar náið og nær yfir flest svið utanríkismálanna. Þannig hef- ur það verið og mun verða áfram, og ánægjulegt að taka á móti ut- anríkisráðherra Danmerkur á 100 ára afmælisári fullveldis Íslands sem dönsk stjórnvöld taka þátt í með ýmsum hætti,“ er haft eftir Guðlaugi Þór í frétt frá ráðuneyt- inu. Í gærmorgun átti Guðlaugur Þór ennfremur fund með Zhang Qingli, varaforseta kínverska ráð- gjafaþingsins, sem er staddur hér á landi. Ráðherra ræddi samskipti ríkjanna við Zhang, þ.m.t. verslun og viðskipti, væntanlega for- mennsku Íslands í norðurskauts- ráðinu, hugmyndir um beint flug milli landanna og fleira. Einnig var rætt um málefni Norður- Kóreu og áætlun Kínverja um belti og braut (e. Belt and Road Initiative). Ræddu tvíhliða samskipti  Utanríkisráðherra Dana fundaði með Guðlaugi Þór

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.