Morgunblaðið - 03.07.2018, Síða 19

Morgunblaðið - 03.07.2018, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018 Vinir í bæjarferð Vel hærðir félagar á göngu á verslunargötu í miðbæ Reykjavíkur þar sem mannlífið er oftast nær fjölskrúðugt þótt veðrið geti verið grámóskulegt, jafnvel um hásumarið. Eggert Til þess að ná ár- angri í knattspyrnu þarf góða liðsheild, aga, leikskipulag, vinnusemi, stolt og leikgleði. Íslenska knattspyrnulandsliðið hefur farið eftir þess- ari formúlu og náð framúrskarandi og eftirtektarverðum ár- angri. Íslenska karla- landsliðið er nú komið heim eftir þátttöku í heimsmeist- aramótinu í knattspyrnu í Rúss- landi. Þetta er frábær árangur sem er einstakur í sinni röð og fer á spjöld sögunnar sem einn af merkustu atburðum á þessari öld. Mikilvægt er að stjórnmálamenn og embættismenn landsins taki upp þessa vinningsformúlu sem gæti bætt verulega rekstur ríkis og sveitarfélaga. Ísland er einstakt land vegna legu sinnar, menningar, íslenskrar tungu, ómengaðar náttúru, nátt- úruauðlinda og hæfileikaríkra Ís- lendinga á mörgum sviðum. Styrk- leikar landsins felast einnig í smæð landsins, íbúafjölda og vel- menntuðum Íslendingum á fjöl- mörgum sviðum. Einnig hefur árangur landsliða Íslands í íþróttum karla og kvenna vakið mikla eftirtekt um allan heim. Ísland er ríkulega búið náttúru- auðlindum sem eiga eftir að margfaldast í verðmætum á þessari öld, s.s. vatn, end- urnýjanleg orka, hreinar fiskafurðir, lífrænn landbúnaður og hreint loft. Náttúra landsins er einstök en íslensk víðerni og óvið- jafnaleg náttúrufegurð munu leiða til óendanlegrar eftirspurnar sem verður að stjórna með stefnu- mörkun til lengri tíma með hags- muni landsins að leiðarljósi. Sókn- arfæri landsins eru óendanleg í verðmætasköpun á næstu áratug- um vegna legu landsins og auð- linda sem eru eftirsóknarverð í heimi þar sem neyslan er stjórn- laus á kostnað náttúrunnar og landgæða. Af þessari upptalningu má ráða að fjársjóður Íslands er mikill horft til framtíðar og með skýrri framtíðarsýn og leiðtoga- færni getum við náð árangri á heimsmælikvarða. Skýr framtíðarsýn og leið- togafærni býr til vinningslið Mikilvægustu þættir í rekstri fyrirtækja og stofnana á næstu áratugum eru skýr framtíðarsýn og leiðtogafærni þeirra sem stjórna. Verulegur skortur er á þessum hæfileikum hjá ýmsum stjórnmálamönnum og embætt- ismönnum ríkis og sveitarfélaga. Þetta leiðir til þess að á hverju ári er fjármunum eytt stjórnlaust án nokkurrar vitrænnar hugsunar. Hámarksnýtingu á meðferð fjár- muna sem skattgreiðendur lands- ins greiða til samfélagsins þarf að umgangast með meiri virðingu. Yfirskrift greinarinnar, sem gefur til kynna að góð sending á slakan leikmann sé slök sending, er ekk- ert ólík stjórnmálunum þar sem fjársjóður Íslands virðist ekki vera nýttur á sem bestan hátt vegna skorts á stefnumörkun og framtíðarsýn. Á næstu árum mun krafa almennings og skattgreið- anda um betri meðferð almanna- fjár og betri nýtingu á fjármunum að hætti hinnar hagsýnu hús- móður aukast. Mikilvægt er að þekking á stefnumörkun til langs tíma og leiðtogafærni sé hjá stjórnmálamönnum og embættis- mönnum. Í mikilvægustu mála- flokkunum menntamálum, heilbrigðismálum og samgöngu- málum virðist skorta framtíðarsýn og alla stefnumörkun til langs tíma. Þessir þrír málaflokkar nema samtals um 65% af ríkisút- gjöldum sem nema um 818 ma.kr. Mjög mikilvægt er að ná góðum tökum á þessum málaflokkum með hagræðingu og skarpri framtíð- arsýn. Í ljósi þess sem er að ger- ast hjá Reykjavíkurborg, sem er skuldsett fyrir ofan öll lögleg við- mið, þyrfti að setja skorður við að sami einstaklingur geti verið borgarstjóri lengur en í átta ár. Þrátt fyrir stórtap forystunnar í Reykjavíkurborg er samt reynt að halda völdum þrátt fyrir stórsigur annarra stjórnmálaflokka. Opinber stjórnsýsla á Íslandi þarf að búa til öflugt vinningslið með meiri árangri og betri með- ferð fjármuna. Opinber stjórnsýsla á Íslandi þarf að fara í gegnum mikla endurskipulagningu og hagræð- ingu á næstu árum vegna aukinna krafna skattgreiðenda og almenn- ings um meiri árangur og betri meðferð fjármuna. Íslensk stjórn- sýsla þarf að fara í allsherjar- naflaskoðun í breyttu umhverfi með hagræðingu, skýrri framtíð- arsýn og aukinni leiðtogafærni. Í stafrænni veröld er hægt að ná mun meiri árangri, en einstakar opinberar stofnanir hafa náð fram- úrskarandi árangri á því sviði. Með skýrri framtíðarsýn og leið- togafærni er hægt að ná mikilli hagræðingu og aukinni verðmæta- sköpun í opinberum rekstri á mörgum sviðum. Vonandi munu allir slakir leikmenn í opinberri stjórnsýslu taka ofangreint til sín og bæta sig þannig að góð sending verði góð sending á góðan leik- mann en þannig næst árangur til lengri tíma og til verður öflug liðs- heild og vinningslið sem getur lækkað ríkisútgjöld og skatta. Eftir Albert Þór Jónsson » Í mikilvægustu málaflokkunum menntamálum, heil- brigðismálum og samgöngumálum virðist skorta framtíð- arsýn og alla stefnu- mörkun til langs tíma. Albert Þór Jónsson Höfundur er viðskiptafræðingur með MCF í fjármálum fyrirtækja og 30 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði. Góð sending á slakan leikmann er slök sending

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.