Morgunblaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 1
Vinnur meðlíkamanum
8. JÚLÍ 2018NNUDAGUR
Fær ekki nóg afárnkarlinum
SU
Jón SigurðurGunnarssontekur sirkuslistirog fimleika framyfir níu til fimmvinnu áskrifstofu
16
j
Kramin hjörtuRonaldo og Messi eru í góðum félagsskap frækinna
sparkenda sem aldrei hafa unnið HM í knattspyrnu 12 Líf Birnu Írisar Jónsdóttursnýst um hreyfingu 24L A U G A R D A G U R 7. J Ú L Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 158. tölublað 106. árgangur
SPILAÐI MEÐ
ELVIS OG FLEIRI
STJÖRNUM
STÚLKUR Í
MEIRIHLUTA Í
YNGRI FLOKKUM
RÓSA BIRNA 14JERRY SCHEFF Á ÍSLANDI 36
Morgunblaðið/Hari
Ófrísk Birta Jónsdóttir á von á
barni sínu á allra næstu dögum.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Kjaradeila ljósmæðra og íslenska
ríkisins veldur Birtu Jónsdóttur,
verðandi móður, miklum áhyggjum
enda eigi hún von á barni sínu á
allra næstu dögum. Er hún gengin
rúmlega 38 vikur með sitt fyrsta
barn.
Næsti fundur í deilunni verður
haldinn á miðvikudag, en ástæða
þess að ekki er fundað fyrr er fjöldi
sumarleyfa að því er fram kemur í
máli Gunnars Björnssonar, for-
manns samninganefndar ríkisins.
Birta segir útspil fjármálaráðu-
neytisins nú í vikunni hafa verið
villandi. „Mér fannst þetta fáránleg
framsetning og í raun gert til að
gera lítið úr ljósmæðrum. Mitt mat
er bara það að ríkið þarf að gyrða
sig í brók og klára þetta mál. Það
er óskiljanlegt að þetta taki svona
langan tíma,“ segir hún.
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, for-
maður samninganefndar ljósmæðra,
gagnrýnir einnig hve langt mun líða
á milli funda í deilunni. »4
Hefur
miklar
áhyggjur
Gengin yfir 38 vik-
ur með fyrsta barn
Ljósmynd/Úr einkasafni
Bóndi Sveinn Sigurjónsson fer yfir
ísilagða Þverá til að komast heim.
Eyrún Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
Tæplega áttræður Reykvíkingur,
Sveinn Sigurjónsson múrarameist-
ari, þarf að leggja bíl sínum í eins
kílómetra fjarlægð frá heimili sínu
og vaða eða ganga á ótraustum ís yf-
ir á til að komast heim á veturna. Þó
býr hann í 116 Reykjavík.
Vegurinn að bæ hans Þverárkoti,
upp við rætur Esju, liggur yfir ána
Þverá á vaði og er óskráður. Vega-
gerðin segist geta lagfært veginn og
tekið inn á vegaskrá að nýju en skil-
yrðið er að Sveinn greiði helming
kostnaðar, rúmar sex milljónir
króna hið minnsta, úr eigin vasa.
16 kílómetrar á grenndarstöð
Margt hangir á þessari vegafram-
kvæmd því ekki er mokað í átt að
bænum meðan vegurinn er óskráður
og Reykjavíkurborg sækir heldur
ekki sorp á bæinn því ruslabílar
komast ekki yfir ána.
Heilbrigðisnefnd borgarinnar
komst að þeirri niðurstöðu á fundi
sínum í maí að Sveinn skuli aka
rúma 16 kílómetra til að koma sorpi
sínu í tunnur, eða að næstu grennd-
arstöð, sem væri við Barðastaði í
Grafarvogi.
Ættingjar og vinir segja aðstæður
hans óviðunandi og vilja að borgin
taki þátt í að bæta samgöngur að
bænum.
Afdalabóndi í borginni
Vegurinn ekki ruddur og ruslið ekki hirt í 116 Reykjavík
MSunnudagur »18
Ungir sem aldnir sátu í brekkunni við reiðvöllinn
í Víðidal í gærkvöldi þegar ræktunarbússýning-
ar fóru fram á Landsmóti hestamanna. Sýningar
ræktunarbúa hafa skipað heiðurssess á lands-
mótum í gegnum tíðina og var engin breyting á
því í Víðidal. Að sýningum loknum tóku við
kántrítónleikar í Reiðhöllinni, þar sem m.a.
Helgi Björns og Reiðmenn vindanna léku fyrir
dansi. Landsmótinu lýkur á morgun. »14 og 21
Líf og fjör á sýningum hrossaræktunarbúa
Morgunblaðið/Eggert
Ellefu ræktunarbú sýndu hrossin sín á Landsmóti hestamanna í Víðidal í gærkvöldi
Skipulags- og samgönguráð Reykja-
víkur samþykkti í vikunni að minnka
hámarkshraða úr 50 km/klst. í 30
km/klst. á nokkrum götum miðborg-
arinnar. Til stendur að minnka há-
markshraðann á Kalkofnsvegi frá
Geirsgötu að Hverfisgötu, á Geirs-
götu frá gangbrautarljósum vestan
Steinbryggju/Austurbakka að Kalk-
ofnsvegi. Í Lækjargötu frá Hverfis-
götu að gangbraut við norðvestur-
horn Miðbæjarskóla og á
Hverfisgötu frá Ingólfsstræti að
Lækjargötu.
„Mér finnst þetta hið besta mál,“
sagði Heiða Lára Aðalsteinsdóttir,
formaður Miðbæjarfélagsins og
kaupmaður í Boutique Bellu við
Skólavörðustíg. „Við höfum talað
fyrir því í staðinn fyrir að loka fyrir
umferð um miðbæinn að minnka
frekar hámarkshraðann þannig að
allir komist leiðar sinnar en ekki
bara sumir.“
Heiða er með verslun sína á Skóla-
vörðustíg 8 en þar er gatan lokuð bíl-
um. Hún segist finna mikið fyrir
áhrifum lokunarinnar. Íslendingar
komi ekki í bæinn ef þeir fá ekki bíla-
stæði. »11
Minni hámarkshraði
verður í miðborginni
Ætla mætti að sú vætutíð sem hefur
ríkt sunnan- og vestanlands í sumar
væri góð fyrir stangveiðimenn sem
beita maðki, en ánamaðkar leita
jafnan upp á yfirborðið í kjölfar
rigninga. Það hefur hins vegar ekki
verið raunin vegna þess að veðrið
hefur verið of kalt og maðkarnir ná
því ekki að færa sig upp í gegnum
kaldan jarðveginn.
„Það er bara ekki neitt,“ segir Jó-
hann Halldórsson hjá versluninni
Veiðiportinu um framboð á maðki til
sölu hjá versluninni. „Þetta hefur
bara verið hrikalegt í allt sumar og
við höfum aðeins fengið maðk til
okkar í nokkur skipti,“ segir Jóhann
að auki. Í þau fáu skipti sem maðkar
fyrir stangveiði hafa verið í boði hjá
versluninni hafa þeir rokselst. „Eitt
sinn fengum við 1.700 stykki og þau
hurfu á einum og hálfum tíma,“ segir
Jóhann.
Að sögn Jóhanns er maðkurinn af-
ar vinsæll til beitu hjá stangveiði-
mönnum, sem og í vatnaveiði hjá
fjölskyldufólki. Segist hann vona að
tíðin fari að batna en þangað til
verða menn einfaldlega að vera dug-
legri í fluguveiðinni. axel@mbl.is
Of kalt fyrir ánamaðkana
Lítið sem ekkert framboð er á möðkum fyrir stangveiði
Morgunblaðið/Golli
Veiði Maðkar rokseljast í þau fáu
skipti sem þeir standa til boða.