Morgunblaðið - 07.07.2018, Qupperneq 21
21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018
Kúnstir Hægt er að kenna hestum hverskonar kúnstir og á Landsmóti hestamanna í gær var þessi leikur leikinn, þegar ræktunarbúið Vesturkot sýndi hross sem þaðan koma.
Eggert
Benedikt Bogason
lögfræðingur gegnir
embætti hæstaréttar-
dómara. Í bók minni
Með lognið í fangið lét
ég í ljósi þá rökstuddu
skoðun að nota mætti
orðið „dómsmorð“ um
dóm Hæstaréttar í
máli ákæruvaldsins
gegn Baldri Guðlaugs-
syni. Bókin kom út á
fimmtudegi. Næsta mánudag á eftir
gekk lögmaður BB frá stefnu á
hendur mér fyrir að hafa notað
þetta orð um dóminn. BB hafði set-
ið í málinu og átt aðild að meiri-
hlutaatkvæði sem sakfelldi Baldur.
Var gerð krafa um ómerkingu um-
mæla minna og um greiðslu miska-
bóta stefnandanum til handa.
Mér er nær að halda að BB og
lögmaður hans hafi rokið í þessa
málssókn án þess að kynna sér það
réttarsvið sem hér reyndi á. Dóma-
framkvæmd á Íslandi og raunar
einnig við Mannrétt-
indadómstól Evrópu
benti fremur afdrátt-
arlaust til þess að
málssókn BB væri
högg sem myndi geiga
eða svokallað klám-
högg. Sakleysisleg
ummæli mín um þenn-
an óforsvaranlega
dóm voru miklu mild-
ari en margvísleg um-
mæli um dóma sem á
hefur reynt í réttar-
framkvæmdinni og
ræðumönnum verið
talið heimilt að viðhafa.
Lögmaður minn Gestur Jónsson
tefldi fram öflugum vörnum sem
tóku af öll tvímæli um þetta. Rök-
semdir hans voru svo að efni til
teknar upp í forsendur dómsins,
sem sýknaði mig af kröfum hæsta-
réttardómarans.
Hinn yfirvegaði hæstaréttardóm-
ari hrapaði þegar í stað að þeirri
ákvörðun að áfrýja dóminum. Til-
kynnti hann það í viðtölum við fjöl-
miðla sama daginn og dómurinn
gekk. Kannski hann hafi ekki einu
sinni verið búinn að lesa dóminn?
Við fyrstu sýn virðist dómarinn
bara vera einfaldur gönuhlaupari,
sem hefur litla sem enga stjórn á
sér. Það er varla sæmandi fyrir
dómara við Hæstarétt að sýna af
sér slíkt jafnvægisleysi og þessi
maður gerir. Kannski hann hafi
verið jafn skotglaður, þegar dómur-
inn yfir Baldri var ákveðinn?
En sé málið skoðað svolítið nánar
má sjá að hann telur sig kannski
eiga von til þess að Landsréttur
muni dæma með honum. Hann er
nefnilega formaður dómstólasýsl-
unnar, en það er ný stjórnsýslu-
stofnun sem tók til starfa um síð-
ustu áramót. Verkefni hennar er að
fjalla um og taka ákvarðanir um
margvísleg hagsmunamál dómstóla,
m.a. Landsréttar. Stofnunin hefur
m.a. það hlutverk að leggja mat á
og gera tillögu til ráðherra um
nauðsynlegar fjárveitingar til dóm-
stólanna, veita dómurum leyfi og
skipuleggja símenntun dómara og
annarra starfsmanna dómstólanna
svo dæmi séu tekin. Kannski áfrýj-
andinn telji dómara í Landsrétti
líklega til að víkja lögfræðinni sinni
svolítið til hliðar í þágu valds-
mannsins sem hefur svo afdrifarík
áhrif á málefni Landsréttarins?
Svo er annað. Hæstiréttur hefur
á nýliðnu vormisseri kallað inn lík-
lega 13 af 15 dómurum Landsréttar
til að taka sæti sem varadómarar í
Hæstarétti. Þar hafa þeir sumir
setið í mörgum málum og sjálfsagt
verið strokið blíðlega af dómur-
unum sem þar sitja á fleti fyrir,
þ.m.t. Benedikt.
Það hlýtur að teljast fullkomlega
óeðlilegt að Hæstiréttur kalli inn
dómara Landsréttar til starfa sem
varadómarar. Það er vegna þess að
Hæstiréttur mun í framtíðinni fyrst
og fremst fjalla um dóma Lands-
réttar. Viljum við að þarna sé búið
að koma á kunningjasamfélagi, þar
sem hver strýkur öðrum?
Nú mun ég fá þrjá þessara dóm-
ara til að fjalla um mál Benedikts
Bogasonar hæstaréttardómara og
formanns dómstólasýslunnar á
hendur mér. Benedikt hafur líklega
metið stöðu sína í málinu svo að
hann ætti miklu meiri von um hag-
stæðan dóm heldur en lagaregl-
urnar kveða á um. Jafnvel hann,
svo laus sem hann er við yfirvegun
og jafnvægi, hefði varla tekið
ákvörðun um að áfrýja þessum
dómi nema telja sig eiga sigurvonir
vegna valdastöðu sinnar og vin-
fengis við einstaka dómara Lands-
réttar.
Það verður forvitnilegt að fylgj-
ast vel með framvindunni í þessu
leikriti sem Benedikt lögspekingur
hefur sviðsett. Ég hef enn þá trú að
dómarar við Landsrétt séu líklegir
til að standa þetta af sér. Við sjáum
til.
Einfaldur gönuhlaupari?
Eftir Jón Steinar
Gunnlaugsson
(hinn stefnda)
»Kannski áfrýjandinn
telji dómara í
Landsrétti líklega til að
víkja lögfræðinni sinni
svolítið til hliðar í þágu
valdsmannsins sem hef-
ur svo afdrifarík áhrif á
málefni Landsréttar-
ins?
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Höfundur er lögmaður.