Morgunblaðið - 07.07.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 07.07.2018, Qupperneq 18
BAKSVIÐ Steingrímur Eyjólfsson steingrimur@mbl.is Bandaríska stórfyrirtækið Google til- kynnti nýverið að appið Mussila, sem framleitt er af íslenska fyrirtækinu Rosamosa, hafi verið valið til þess að vera kynnt í sérstöku fjölskyldurými (e. Family link) sem Google var að opna. Fjölskyldurýmið er öruggt svæði fyrir börn til þess að vafra á netinu. Foreldrar geta fylgst með vefnotkun barna sinna og sérstök áhersla er lögð á að efnið sem er í boði innan rýmisins sé bæði fjölskylduvænt og fræðandi. Mussila-leikurinn, sem kennir börn- um grunnatriði í tónlist í gegnum skapandi leik og áskoranir, verður efstur á síðu Google-fjölskyldurýmis- ins og mælir Google sérstaklega með leiknum fyrir foreldra til að kynna börnum sínum. Fjölskyldurýmið er komið til 33 landa, en Ísland er ekki enn þar á meðal. Mikil viðurkenning „Family link“ er svæði sem Google opnaði í fyrra, þar sem börn geta verið með Google-reikning sem er alveg ritskoðaður,“ segir Margrét Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnenda Mussila. „Ein- ungis eru valin inn öpp sem ætluð eru ákveðnum aldurshópi. „Google Play-store“ er tiltölulega óritskoð- aður vettvangur, en núna er komið svæði þar sem foreldrar geta opnað reikning fyrir börnin sín og vitað að þau geta treyst þeim öppum sem er þarna að finna.“ Google-fjölskyldurýmið er ekki opið í öllum löndum, en Margrét segir að aukin markaðssetning sé á næsta leiti. „Google er að fara að markaðs- setja rýmið meira, þeir hafa ekki haft mjög hátt um þetta á meðan þeir eru að fínpússa og láta þetta virka full- komlega. Núna ætla þeir að fara að leggja meiri áherslu á þetta rými og ætla að taka nokkur vel valin öpp og auglýsa þau sérstaklega. Við erum eitt af þeim öppum.“ Fóru í gegnum margar síur Mussila-appinu verður haldið fram- arlega innan fjölskyldurýmisins í nokkrar vikur í röð og svo með reglu- legum hætti eftir það, segir Margrét. „Við erum búin að fara í gegnum nokkrar síur, fyrst þar sem leitarvél þeirra finnur okkur vegna góðrar ein- kunnar sem appið okkar er með í app- versluninni. Svo er Google með sitt kennarateymi sem valdi úr þeim öpp- um sem komust í gegnum fyrstu síuna. Svo síðast var það lögfræðisía til þess að skoða hvort það væri ekki allt í sóm- anum á því sviði.“ Mjög góð auglýsing „Þetta er mjög góð auglýsing fyrir okkur en við eigum eftir að sjá hvað þetta skilar miklu. Fjölskyldurýmið er ekki orðið mjög stórt ennþá, en við sjáum til hvað verður. Ég hef mikla trú á því að þetta eigi eftir að vaxa mikið. Þetta er fyrst og fremst viðurkenn- ing, að vera valin þarna inn. Þetta er ótrúlega stórt.“ Google velur íslenska appið Mussila í fjölskyldurými sitt  „Mikil viðurkenning að vera valin af Google,“ segir framkvæmdastjóri Mussila Mussila Margrét Sigurðardóttir telur fjölskyldurýmið eiga eftir af vaxa mikið. Ljósmynd/Mussila 7. júlí 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 106.38 106.88 106.63 Sterlingspund 140.72 141.4 141.06 Kanadadalur 80.89 81.37 81.13 Dönsk króna 16.698 16.796 16.747 Norsk króna 13.183 13.261 13.222 Sænsk króna 12.095 12.165 12.13 Svissn. franki 107.08 107.68 107.38 Japanskt jen 0.9606 0.9662 0.9634 SDR 149.83 150.73 150.28 Evra 124.45 125.15 124.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.352 Hrávöruverð Gull 1252.5 ($/únsa) Ál 2126.0 ($/tonn) LME Hráolía 78.14 ($/fatið) Brent ● Sýslumaðurinn á höfuðborgar- svæðinu hefur hafnað kyrrsetn- ingarkröfu Data- cell og Sunshine Press Productions (SSP) á eignum Valitor, að því er kemur fram í til- kynningu Valitor. Þetta er í annað sinn sem sýslumaður hafnar kyrrsetningarkröfu sömu aðila, auk þess sem héraðsdómur hefur staðfest þá niðurstöðu. Ástæðu kyrrsetningarkröfunnar má rekja til þess þegar Valitor rifti samn- ingi um greiðslugátt sem Datacell og SSP önnuðust fyrir Wikileaks árið 2011. Niðurstaða Hæstaréttar var sú að riftun samningsins hefði verið ólög- mæt. steingrimur@mbl.is Sýslumaður hafnar kröfu um kyrrsetningu Valitor Kröfu SSP og Datacell hafnað. Fjöldi starfandi fólks á íslenskum vinnumarkaði hefur aðeins einu sinni mælst jafn mikill og í maí síðastliðn- um, en það var í júní í fyrra. Starf- andi fólki hafði fjölgað um 8 þúsund manns frá því í maí 2017. Þetta kem- ur fram í Hagsjá Hagfræðideildar Landsbankans. Fjöldi starfandi fólks var rúmlega 201 þúsund í maí sem er það sama og í júní í fyrra. Sé litið á meðaltal síð- ustu 12 mánaða hafa tæplega 195 þúsund manns verið starfandi á ís- lenskum vinnumarkaði. Dregið úr atvinnuþátttöku Í maí síðastliðnum var 83,4% at- vinnuþátttaka og af þeim voru 201 þúsund starfandi en 8 þúsund án vinnu og í atvinnuleit. Ef litið er á 12 mánaða meðaltal jókst atvinnuþátttaka stöðugt frá byrjun árs 2015 fram til vorsins 2017. Frá maí í fyrra hefur hins veg- ar dregið úr atvinnuþátttöku um 1,7 prósentustig ef miðað er við 12 mán- aða hlaupandi meðaltal. Atvinnu- þátttaka er nú svipuð og vorið 2015, ef litið er á þann mælikvarða. Hagsveiflan náð hámarki Vinnutími var svipaður í maí síð- astliðnum og mánuðina þar á undan, en hann var 0,7 stundum styttri en í sama mánuði í fyrra. Vinnutími styttist um 4,8% milli maí 2017 og 2018 á meðan starfandi fólki fjölgaði um 4,2%. Heildarvinnu- stundum fækkaði því um 0,6% milli maímánaða. Hagfræðideild Lands- bankans segir að sú niðurstaða rími nokkuð vel við þá umræðu að hag- sveiflan hafi náð hámarki. Samkvæmt 12 mánaða hlaupandi meðaltali hefur atvinnuleysi verið nær óbreytt lengi. Meðalatvinnu- leysi síðustu 12 mánaði var 2,8% í maí miðað við mælingar Hagstof- unnar. steingrimur@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Vinna Tólf mánaða meðaltal atvinnuleysis hefur verið nær óbreytt lengi. Fjöldi starfandi fólks nær hámarki  Spenna á vinnumarkaði fer minnk- andi, samkvæmt Hagsjá Landsbankans 18 FRÉTTIRViðskipti|Athafnalíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018 STUTT Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á RAFVÖRUR ehf Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Hita- kútar rafvorur.is Amerísk gæðaframleiðsla Vogir sem sýna verð á vörum eftir þyngd Löggiltar fyrir Ísland og tilbúnar til notkunar ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum VERSLUNAR- VOGIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.