Morgunblaðið - 07.07.2018, Qupperneq 25
MESSUR 25Á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033
Flottir í fötum
ÚTSALAN
hefst í dag
laugardag – opið 11-17
30-50% afsláttur
ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarhelgistund kl.
11. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar.
Kristín Jóhannesdóttir er organisti og félagar
úr kór Árbæjarkirkju leiða sönginn. Kaffi og
spjall eftir stundina.
ÁSKIRKJA | Áskirkja verður lokuð til júl-
íloka vegna sumarleyfa sóknarprests og
starfsfólks kirkjunnar. Ekkert helgihald verð-
ur í kirkjunni fyrr en eftir verslunarmanna-
helgi.
BÚSTAÐAKIRKJA | Morgunmessa kl. 11.
Kór Bústaðakirkju og kantor Jónas Þórir.
Messuþjónar aðstoða. Sr. Pálmi Matthías-
son. Hressing í safnaðarheimili eftir messu.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl.
10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18
á ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og
fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er
vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Séra Hjálmar Jónsson pré-
dikar og þjónar við messu kl. 11. Félagar úr
Dómkórnum syngja og Douglas A. Brotchie
er organisti. Minnum á bílastæðin við Al-
þingi.
GARÐAKIRKJA | Sameiginleg guðsþjón-
usta Garða- og Bessastaðasókna í Garða-
kirkju kl. 11. Organisti Ástvaldur Traustason
og prestur Hans Guðberg Alfreðsson.
GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffihúsamessa
með djassívafi kl. 11. Séra Grétar Halldór
Gunnarsson þjónar. Organisti er Hákon
Leifsson og forsöngvari leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Grensáskirkja er lokuð
vegna sumarleyfa, næst verður messað 12.
ágúst.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Kvöld-
guðsþjónusta kl. 20. Prestur er Karl V. Matt-
híasson, organisti er Hrönn Helgadóttir og
kór Guðríðarkirkju syngur. Kirkjuvörður er
Lovísa Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Ekki verður
messa í Hafnarfjarðarkirkju en farið verður í
messuheimsókn í Garðakirkju kl. 11.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Dr.
Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Félagar
úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Org-
anisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir. Alþjóð-
legt orgelsumar. Tónleikar laugard. kl. 12 og
sunnud. kl. 17. Winfried Bönig organisti
Kölnardómkirkju í Þýskalandi leikur. Fyrir-
bænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10:30. Ár-
degismessa miðvikud. kl. 8 og hádegistón-
leikar Schola cantorum miðvikud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Organisti
er Kristján Hrannar Pálsson. Prestur er Eirík-
ur Jóhannsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Skírnarguð-
sþjónusta verður í Hjallakirkju 8. júlí kl. 11.
Prestur er Sunna Dóra Möller. Organisti er
Guðný Einarsdóttir.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Púttmessa sunnu-
dag kl. 13 á púttvellinum við Mánagötu í
beinu framhaldi verður efnt til púttmóts.
Verðlaunaafhending fer fram í Kirkjulundi en
samtímis verður boðið upp á kaffi og með-
læti. Félagar úr Harmonikkufélagi Suð-
urnesja leika á púttvelli sem og í Kirkjulundi.
LÁGAFELLSKIRKJA | Kyrrðar- og bæna-
stund í Lágafellskirkju kl. 11.
Organisti er Hrönn Helgadóttir og sr. Arndís
G. Bernhardsdóttir Linn þjónar fyrir altari.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr Kór
Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er
Steingrímur Þórhallsson. Prestur er Skúli S.
Ólafsson. Kaffisopi á Torginu eftir messu.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða
söng. Organisti er Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Allt helgihald
fellur niður í júlímánuði og fram til 12. ágúst
vegna sumarleyfa starfsfólks.
ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Org-
anisti er Guðmundur Vilhjálmsson, prestur
er Kristján Valur Ingólfsson.
ORÐ DAGSINS: Sjá, ég
er með yður.
Morgunblaðið/Ómar
Hvalfjörður Hallgrímskirkja.
(Matt. 28)
Vatnajökuls-
þjóðgarður er tíu ára
um þessa mundir og
því má segja að hann
hafi slitið barnsskónum
og framundan séu ung-
lingsárin. Þjóðgarður-
inn, sem er einn sá
stærsti í Evrópu,
spannar tæp 14% af
flatarmáli Íslands og
nær yfir Vatnajökul og
stór svæði í nágrenni hans, þar á
meðal þjóðgarðana sem fyrir voru í
Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum.
Á framangreindum tímamótun
hefur umræðan og umfjöllun fjöl-
miðla um Vatnajökulsþjóðgarð því
miður aðallega snúist um tímabundna
erfiðleika í rekstri sem tengjast m.a.
gríðarlegri fjölgun ferðamanna en lít-
ið hefur farið fyrir umfjöllun um það
mikilvæga starf sem unnið er af
starfsmönnum þjóðgarðsins á hverj-
um degi. Einnig má minna á að
Vatnajökulsþjóðgarður var í byrjun
þessa árs tilnefndur af íslenskum
stjórnvöldum á heimsminjaskrá Sam-
einuðu þjóðanna (UNESCO).
Hjá Vatnajökulsþjóðgarði starfa
um 20 starfsmenn á heilsárgrundvelli
og við þann hóp bætast nokkrir tugir
landvarða og annarra starfsmanna á
álagstímum. Þessi hópur býr yfir
mikilli þekkingu á rekstri þjóðgarða
við erfiðar aðstæður og því er ekki of-
mælt að starfsmenn stofnunarinnar
séu dýrmæt auðlind. Starfsmennirnir
hafa það að meginmarkmiði að gestir
Vatnajökulsþjóðgarðs geti notið já-
kvæðrar upplifunar í
náttúru Íslands og fái
góða þjónustu á stóru og
fjölbreytilegu svæði.
Auk þess hafa þeir það
meginhlutverk að
standa vörð um náttúr-
una og að fræða gesti og
gangandi. Þetta er ögr-
andi verkefni fyrir fáa
starfsmenn í þjóðgarði
sem nær bæði yfir víð-
áttumikil og torfær
svæði sem og fjölsótta
ferðamannastaði. Í
þessu samhengi má geta þess að á
árinu 2017 sótti um ein milljón gesta
þjóðgarðinn heim og hefur þeim
fjölgað mjög hratt frá því
Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður
árið 2008.
Framundan eru spennandi tímar
hjá Vatnajökulsþjóðgarði og hjá öll-
um sem unna íslenskri náttúru m.a.
vegna þess að sú ríkisstjórn sem nú
er við stjórnvölin hefur sett sér metn-
aðarfull markmið á sviði náttúru-
verndar. Gleymum því samt aldrei að
lykillinn að því að ná metnaðarfullum
markmiðum er fólk með þekkingu og
dýrmæta reynslu.
Vatnajökulsþjóð-
garður á tímamótum
Eftir Magnús
Guðmundsson
Magnús Guðmundsson
» Framundan eru
spennandi tímar hjá
Vatnajökulsþjóðgarði
og hjá öllum sem unna
íslenskri náttúru.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Vatnajökulsþjóðgarðs.