Morgunblaðið - 07.07.2018, Page 33

Morgunblaðið - 07.07.2018, Page 33
hefur birt um 100 greinar í alþjóð- legum vísindatímaritum auk bókar- kafla. Níu bækur eru til eftir Rögn- vald; þær síðustu eru „The Privatization of the Oceans“, „Eco- fundamentalism“, og „Debt, Demo- cracy and the Welfare State“. „Ég skrifa stundum í norsk blöð og var um tíma spaltisti í netblaðinu „e24“. Áhugamál mín eru hagfræði, nátt- úrlega, en ekki bara fiskihagfræði heldur einnig olíu- og orkuhagfræði og þjóðhagfræði ekki síst. Ég hef alltaf haft áhuga á stjórnmálum, og á það til að skipta um skoðun í þeim efnum, og saga, náttúrlega. Stjórn- mál eru saga, í þeim verður hún til, en það spillir ekki að horfa svolítið lengra aftur í tímann. Ég hef einnig alltaf haft áhuga á tungumálum, en er fyrir löngu búinn að gera mér grein fyrir að manni endist ekki lífið til að læra mörg svo til hlítar að hafa nokkurn veginn fullt vald yfir þeim bæði í ræðu og riti. Ég kalla mig stundum „illiterate in three languages (and possibly more)“. Ég held móðurmálinu svona nokkurn veginn við. Hér um daginn datt mér í hug eftirfarandi vísukorn: Það er enginn sem veit hvenær fellurðu frá, ferðastu meðan þú getur. Það kemur sá dagur þú kemst ekki á stjá og ert kyrrsettur sumar sem vetur. Ég kalla þetta „Heilræði til aldr- aðra“. Á yngri árum hefði ég ekki ort í þessum dúr.“ Fjölskylda Sambýliskona Rögnvaldar er As- laug Johannessen, f. 9.9. 1941, hjúkr- unarkona. Fyrri eiginkona Rögn- valdar var Katrín Friðjónsdóttir, f. 25.6. 1945, d. 2.12. 1990, félagsfræð- ingur, var búsett og starfaði í Sví- þjóð. Foreldrar hennar voru Friðjón Stefánsson, skrifstofumaður hjá STEF og kaupfélagsstjóri, og María Þorsteinsdóttir, virk baráttukona í Sósíalistaflokknum. Seinni eiginkona Rögnvaldar var Birgitta Ramnefalk, f. 13.11. 1943, vann á söfnum í Berg- en og Sarpsborg í Noregi. Barn frá fyrsta hjónabandi: Sigur- jón Þorsteinn, f. 26.11. 1963, prófess- or og vararektor við Háskólann í Halmstad, Svíþjóð. Maki: Lena Kar- in Erlandsson, var til mars í ár pró- fessor í endurhæfingu við Háskólann í Lundi, Svíþjóð, en flutti sig þá að Háskólanum í Halmstad. Börn þeirra: Valdemar Erlandsson og Hannes Erlandsson, tvíburar, f. 12.6. 1997. Börn úr öðru hjónabandi: Elisa Hannesson (ættleidd frá Kóreu), f. 17.4. 1976, býr í Stokkhólmi og vinn- ur hjá fyrirtæki sem selur gleraugu; Magnus Ramnefalk, f. 9.5. 1977, býr í Bergen og vinnur hjá innheimtufyr- irtæki; Thorleif Ramnefalk, f. 19.7. 1981, býr í Drammen og vinnur hjá tölvufyrirtæki í Ósló. Dóttir hans með sambýliskonu sinni er Mathilde, f. 16.2. 2016, og önnur dóttir er vænt- anleg í ágúst. Systir Rögnvaldar er Aðalheiður Sigríður, f. 18.11. 1946, vann við af- greiðslu í kaupfélaginu á Höfn í Hornafirði, þar sem hún býr enn. Foreldrar Rögnvaldar voru hjónin Hannes Erasmusson, f. 13.3. 1915, d. 7.8. 2007, sjómaður, síðar kjötiðn- aðarmaður, og Sigurbjörg Þorleifs- dóttir, f. 5.10. 1918, d. 12.10. 2006, verkakona. Þau bjuggu lengst af á Höfn í Hornafirði. Rögnvaldur Hannesson Gróa Sigurðardóttir húsfr. á Bæ Guðmudur Guðmundsson b. á Bæ í Lóni Ragnhildur Guðmundsdóttir húsfr. og ljósm. á Svínhólum Þorleifur Bjarnason bóndi á Svínhólum í Lóni Sigurbjörg Þorleifsdóttir verkakona á Höfn Guðrún Þorleifsdóttir húsfr. á Hvalnesi Bjarni Bjarnason bóndi á Hvalnesi í Lóni Þorleifur Jónsson hrepp- stj., sýslum. og alþm. á Hólum í Hornafirði Þórunn Þorleifs- dóttir húsfr. á Hólum í Hornafirði Þorbjörg Eiríksdóttir húsfr. á Sandfelli, langafabarn Guðnýjar Jónsdóttur á Kálfafelli, dóttur Jóns Steingrímssonar eldprests og prófasts á Prestbakka á Síðu Þorsteinn Þorsteinsson b. á Sandfelli í Öræfum Sigríður Þorsteinsdóttir lengst af vinnukona á Stafafelli Erasmus Halldórsson lengi vinnum. á Stafafelli í Lóni Ingibjörg Sverrisdóttir húsfr. á Syðri-Fljótum Halldór Hannesson b. á Syðri-Fljótum í Meðallandi Úr frændgarði Rögnvaldar Hannessonar Hannes Erasmusson sjóm. og síðar kjötiðnaðarm. á Höfn Prófessorinn Rögnvaldur. ÍSLENDINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018 Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt Ú T S A L A N Í F U L L U M G A N G I afsláttur af öllum útsöluvörum40% Bryndís Zoëga fæddist 7. júlí1917 í Reykjavík. Foreldrarhennar voru hjónin Geir G. Zoëga vegamálastjóri, f. 28.9. 1885, d. 4.1. 1959, og Hólmfríður Zoëga húsmóðir, f. 5.5. 1894, d. 8.7. 1982. Foreldrar Geirs voru hjónin Geir T. Zoëga, rektor í Reykjavík, og Bryn- dís Sigurðardóttir, og foreldrar Hólmfríðar voru hjónin Geir Zoëga, kaupmaður og útgerðarmaður í Reykjavík, og Helga Jónsdóttir. Systkini Bryndísar voru Helga tvíburasystir hennar, d. 10.9. 1932, Geir Agnar framkvæmdastjóri f. 1919, d. 2013, Gunnar endurskoð- andi, f. 1923, d. 2017, Áslaug ritari, f. 1926, d. 2018, Ingleif Sigríður kenn- ari, f. 1927, d. 2001. Bryndís var ógift og barnlaus. Bryndís lauk leikskólakennara- prófi frá Fröbel Höjskole í Kaup- mannahöfn vorið 1939. Hún var fyrsta stúlkan á Íslandi sem lauk þeirri menntun. Hún var forstöðukona á vistheim- ilinu Vesturborg 1939-1940 og rak leikskóla í Reykjavík 1941-1942 og veitti forstöðu sumardvalarheimili Rauða krossins í Stykkishólmi tvö sumur á stríðsárunum. Hún starfaði á ýmsum leikskólum Barnavina- félagsins Sumargjafar í Reykjavík frá 1942-1950 og var forstöðukona í Drafnarborg 1950-1992, þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Bryndís var frumkvöðull á mörg- um sviðum innan leikskólastarfsins og fór sínar eigin leiðir í anda Fröbels-stefnunnar. Leikföng og ýmis efniviður í leikskólanum henn- ar var svokallaður „opinn efniviður“ og ætlaður börnunum til skapandi starfa. Á fundi hjá fóstrum árið 1957 vakti Bryndís athygli fundarkvenna á því að til væri fyrirbæri sem hétu lífeyrissjóðir og hvort ekki væri til vinnandi að huga að þeim málum. Bryndís var virkur þátttakandi í starfi KFUK. Hún var sæmd ridd- arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1994. Bryndís lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 2. september 2000. Merkir Íslendingar Bryndís Zoëga Laugardagur 95 ára Sigrún Jónsdóttir 90 ára Björgvin Sigurbjörnsson Pétur Guðmundsson 85 ára Guðjón Sigurbjörnsson 80 ára Einar Þorbjörnsson Gylfi Ísaksson Ingibjörg Gunnarsdóttir Sæunn Eiríksdóttir Valgerður Ragnarsdóttir 75 ára Alda Jónsdóttir Baldur Aðalsteinsson Brynhildur E. Árnadóttir Einar Már Einarsson Guðbjartur Gunnarsson Guðjón Stefán Guðbergss. Guðrún Rúrí Magnúsdóttir Hallgrímur Óskarsson Hanna Jónsdóttir Hreinn Valtýsson Rannveig Lilja Ólafsdóttir Samson Jóhannsson Steinunn Ingólfsdóttir 70 ára Eva Kaaber Guðmundur Sigurjónsson Gunnar Sigurðsson Helga Þ. Einarsdóttir Helgi Magnús Hilmarsson Hrafnhildur Svavarsdóttir Ólafur Örn Pétursson Ragnheiður Sigurðardóttir Svanur A. Ingimundarson 60 ára Arnór Elínar Friðþjófsson Árni Þór Elfar Ásgeir Sigurvaldason Dagbjört Hrafnkelsdóttir Georg Eggertsson Guðrún G. Halldórsdóttir Helga Leifsdóttir Jón Kristinn Guðjónsson Mohammed Zahawi Rafn Elfar Svanbergsson Sigrún Guðmundardóttir Sigurður Atli Atlason Vigdís Rafnsdóttir 50 ára Alda Snæbjört Kristinsd. Elísabet Guðmundsdóttir Jun Yu Wallerstein Margrét Steiney Guðnad. Óskar Gíslason Sigurjón Valgarðsson Stefán Hrafnkelsson 40 ára Bjarni Snæbjörnsson Elmar Eggertsson Fríða Hrönn Elmarsdóttir Guðný Elísabet Leifsdóttir Hallgrímur Jónas Ómarss. Hanene B. H Braham Aref Jódís Kolbrún Jónsdóttir Margrét Sara Oddsdóttir Ómar Guðjónsson Sigurður Þór Sigurðarson Soffía Elín Sigurðardóttir 30 ára Alexandra Jóhannesdóttir Baldur Jónsson Bjarni Kristinn Ólafsson Heiðar Már Arnarsson Jóhann Óskar Ragnarsson Kristín Anna Hermannsd. Kristín Björg Arnardóttir Kristján Andri Jóhannsson Svanhildur Ó. Sigurfinnsd. Theodór Magnús Kristinss. Unnar Bjarki Egilsson Sunnudagur 95 ára Þorgerður Gunnarsdóttir 90 ára Aðalheiður Sigurjónsdóttir Bjarni Bragi Jónsson Jastrid Ólína Pétursdóttir Lilja Magnúsdóttir Sigfús Brynjólfsson 85 ára Einar Gunnlaugsson Erna Þórarinsdóttir Halldóra Edda Jónsdóttir Hulda Jónsdóttir Ragnheiður Dóra Árnad. 80 ára Arndís Jónasdóttir Ragnar Arnalds Þorgeir Guðmundsson 75 ára Elín Jóhannsdóttir Guðbjörg Hjaltadóttir Guðrún Lóa Leonardsdóttir Guðrún Þorsteinsdóttir Halldór K. Kjartansson Hersteinn Tryggvason Kolbrún Jónsdóttir Steindór Bjarnason Vigdís Unnur Gunnarsdóttir 70 ára Anna Hjaltadóttir Áslaug Eva Árnadóttir Björn Runólfur Stefánsson Guðrún H. Finnsdóttir Gunnar Gunnarsson Kolbrún Kristinsdóttir Sigþóra Oddsdóttir Þórður Gíslason 60 ára Arna Sigríður Brynjólfsd. Hallfríður Ólafsdóttir Helena Björk Gunnarsdóttir Jóhanna Hallgrímsdóttir Kristín Arnarsdóttir Njáll Hafsteinn Jóhannsson Sigrún Kjartansdóttir Valdimar Smári Gunnarss. 50 ára Alina M. A-Karczewicz Atli Einarsson Ásthildur Albertsdóttir Einar Sigurður Karlsson Gunnhildur Ósk Sæbjörnsd. Jóna Ósk Lárusdóttir Karl Kristinsson Krystyna Januszewicz Lúðvík Örn Steinarsson Sigurbjörn H. Gestsson Sigurlaug K. Guðmundsd. Valdimar Óskar Jónasson 40 ára Ástbjörg Rut Jónsdóttir Borgar Páll Bragason Brynjar Karl Guðmundsson Ester Campagnari Hjörtur Harðarson Karl Magnús Gústafsson Kristinn Ágústsson Sigríður Jónsdóttir 30 ára Daníel Þór Midgley Einar Örlygsson Elvar Bragi Kristjónsson Guðlaug Ösp Hafsteinsd. Guðmundur Ólafsson Guðni Freyr Pétursson Gunnar Örn Magnússon Gunnhildur Ægisdóttir Gunnlaugur Óli Leósson Liga Liepina Sigríður Sunna Gunnarsd. Sigurður G. Þorsteinsson Sigurður Ólafsson Sigurður Ragnar Sigurðss. Skarphéðinn Kjartansson Snorri Þórðarson Vilmundur Þór Jónasson Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.