Morgunblaðið - 07.07.2018, Síða 36

Morgunblaðið - 07.07.2018, Síða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Iben West og Else Ploug Isaksen – Augnhljóð í Myndasal Nanna Bisp Büchert – Annarskonar fjölskyldumyndir á Vegg Prýðileg reiðtygi í Bogasal Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið alla daga 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið alla daga 10-17 ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018 FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign – 7.4.2017 - 31.12.2019 BÓKFELL Eftir Steinu í Vasulka-stofu 18.5 - 31.12 2018 SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON 21.10.2017 - 7.10.2018 Opið alla daga frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR 15.5. - 15.9.2018 Opið alla daga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is getur hann fundið þau aftur með staðsetningartækni. „Án þeirra væri ég ekki hérna,“ segir Scheff bros- andi. Hann rifjar upp skemmtilega sögu frá þeim árum þegar heyrnin var farin að gefa sig. Á jólatónleik- um sem hann hélt með John Denver og hljómsveit var barnakór og segist Scheff hafa komið auga á stúlku sem var í gifsi á öðrum fæti. Hann spurði móður stúlkunnar hvað amaði og barninu og móðirin svaraði að bragði: „Krabbamein“. Scheff segist hafa orðið miður sín og sagt píanó- leikara hljómsveitarinnar, Glen D. Hardin, frá þessu að lokinni hljóð- prufu. „Glen D. horfði á mig og sagði: „Jerry, hún sagði fótbolti,“,“ rifjar Scheff upp og hlær innilega að þessum ruglingi á orðunum „cancer“ og „soccer“ . Gott að búa í Svíþjóð Scheff segir tónleikana á morgun ekki þá fyrstu sem hann haldi til styrktar krabbameinsfélögum. Hann hafi sjálfur glímt við ristil- krabba fyrir 27 árum en bróðir hans hvatti hann til að fara í skoðun eftir að hafa greinst með slíkt mein. Scheff segir að sem betur fer hafi krabbameinið greinst snemma hjá honum og hægt að eyða því með skurðaðgerð og stuttri lyfjameðferð. „Ég nýt þess að leika á tónleikum til VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sá sem heilsar bandaríska bassa- leikaranum Jerry Scheff er einu handabandi frá mörgum frægustu tónlistarmönnum síðustu aldar því Scheff hefur starfað með Elvis Pres- ley, Jim Morrison og félögum í The Doors, Bob Dylan, Johnny Cash, Elvis Costello, John Denver og þannig mætti áfram telja. Scheff er staddur hér á landi með hljómsveit- inni The Cadillac Band sem skipuð er sænskum tónlistarmönnum og var stofnuð af DJ Fontana, fyrrver- andi trommuleikara Elvis Presley, en sænski trommuleikarinn Ulf Nilsson tók síðar við keflinu sem for- sprakki sveitarinnar þó Fontana héldi áfram að leika með henni. The Cadillac Band heldur rokk- tónleika í Gamla bíói annað kvöld, 8. júlí kl. 19, til styrktar Krabbameins- félagi Íslands og kemur Scheff fram með hljómsveitinni ásamt enska gít- arleikaranum Terry Wayne og ís- lenskum gestasöngvurum, þeim Bjarna Arasyni og Friðriki Ómari og Eggerti Jóhannssyni. Verður þar rokkað líkt og enginn sé morgun- dagurinn, sígildir rokkslagarar flutt- ir auk þess sem haldið verður upp- boð á hlutum í eigu tónlistarmanna sem leikið hafa með Presley og Scheff mun auk þess segja sögur. Heyrnin fer versnandi Scheff er orðinn 77 ára en segist enn iðinn við lagasmíðar og upp- tökur og njóta þess að koma fram á tónleikum. Heyrnin hefur versnað með hverju árinu, að sögn þessa glaðlega bassaleikara sem fræðir blaðamann um heyrnartæki sem hann styðst við og eru, samkvæmt lýsingu hans, sannkölluð undratæki, hægt að stilla þau á margvíslegan hátt og stýra með snjallsíma. Og ef Scheff gleymir þeim einhvers staðar styrktar krabbameinsfélögum og á Skotlandi hef ég styrkt Marie Curie samtökin,“ segir Scheff en samtökin styrkja sjúklinga með banvæna sjúkdóma. Scheff bjó í Skotlandi í mörg ár, allt þar til hann fluttist til Svíþjóðar þar sem hann býr nú, nánar tiltekið í bænum Floda. Það var sænskur vin- ur hans og einn liðsmanna The Cad- illac Band, trommarinn Ulf Nilsson, sem sannfærði hann um ágæti lands síns og þjóðar og segist Scheff ekki sjá eftir því að hafa flutt þangað. Hann hafi allt til alls í Floda, stutt í allar verslanir , þjónustu og hljóðver og auk þess taki enga stund að skreppa með lest til Gautaborgar. Lestarstöðin sé steinsnar frá heimili hans og bærinn og nágrenni hans undurfallegur. Kunni ekki að meta Presley Af öllum þeim heimsfrægu tónlist- armönnum sem Scheff hefur unnið með er Elvis Presley líklega fræg- astur en með honum starfaði Scheff á árunum 1969-1977. Á YouTube má m.a. finna myndband frá tónleikum (dagsetningu þeirra vantar) þar sem Presley er klæddur einum af sínum víðfrægu heilgöllum og Scheff kragastórri skyrtu í svipuðum stíl. Presley gengur að Scheff og spyr Lærði að meta Elvis  Bassaleikarinn Jerry Scheff leikur til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Hildur Guðnadóttir á langan og giska litskrúðugan feril að baki í tónlistinni. Ég man fyrst eftir henni í nýrokksveitinni Woofer, hún lék þá seinna með Rúnk og hefur þá spilað með múm. Árið 2006 gaf hún út plöt- una Mount A sem Lost in Hildurness og upp úr því fóru að koma út fleiri sólóverk – ásamt því að hún fór að vinna með mektarsveitum á borð við Throbbing Gristle, Pan Sonic, Ani- mal Collective og Sunn O))) svo fátt eitt sé nefnt. Hún hefur þá samið mikið af tónlist fyrir stutt- og heim- ildarmyndir og samstarf hennar við Jóhann heitinn Jóhannsson var þá mikið og ríkt. Undanfarin ár hefur svo hlaupið allverulega á snærið hjá henni. Hún á t.d. tónlistina í heimild- armyndinni Strong Island (2017), sem fjallar um þeldökkan mann sem var myrtur án þess að morðinginn þyrfti að svara til saka. Hildur vann tónlistina náið með leikstjóranum, bróður þess myrta, þegar Black Li- ves Matter hreyfingin var á gríðar- siglingu. Myndin var tilnefnd til Ósk- arsverðlauna, vann til verðlauna á Sundance-hátíðinni og hefur fengið fjöldann allan af öðrum verðlaunum. Tónlist eftir Hildi heyrist þá í þátt- unum vinsælu Handmaid‘s Tale. Púðrið í þessari grein spara ég þó fyrir tvær nýlegar kvikmyndir, báðar ættaðar úr draumaverksmiðj- unni Hollywod, hvar Hildur semur tónlist og langar mig að fara aðeins í saumana á þeim. Í Mary Magdalene (Rooney Mara, Joaquin Phoenix, Chiwetel Ejiofor) semur hún tónlist- ina ásamt Jóhanni Jóhannssyni en í myndinni Sicario 2: Soldado, á hún tónlistina ein (en Jóhann samdi tón- listina fyrir fyrri myndina, Sicario, og fékk mikið lof fyrir). Tónlistin við Mary Magdalene er falleg, það verður bara að segjast. En líka hrikaleg (í skilningnum hrollvekjandi). Ljós og skuggar tak- ast á; blæbrigðarík, sefandi fegurð- arstef víkja skyndilega fyrir ógn- vekjandi drunum og kalt vatn rennur ógnarhratt milli skinns og hörunds. Maður heyrir í Jóa í opn- unarstefinu, „Cana“ (nú komst ég við) og hann er þarna á milli hljóð- rásanna. Myndin er smekklega stað- færð, tónlistarlega og bjöllur og sál- mastef dýrka upp miðaldarlegar Tónspor Hildar Kvikmyndatónlist Hildar Guðnadóttur hefur vakið athygli að undanförnu en nýverið kom út tónlist hennar við Mary Magdalene og Sicario 2. Félagar Elvis Presley og Jerry Scheff í stuði á tónleikum. Stilla úr myndbandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.