Morgunblaðið - 10.07.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018
Páll Vilhjálmsson greinir stöð-una í forysturíki ESB með eft-
irtektarverðum hætti:
Angela MerkelÞýskalands-
kanslari tók vinstri-
beygju í málefnum
flóttamanna og tap-
aði íhaldssömu bak-
landi.
Merkel verðurað víkja ef
Evrópusambandið á
að lifa. Þetta skrifar
dálkahöfundur New
York Times, Bret
Stephens. Grein
hans er tekin af alvöru í Þýska-
landi, Die Welt endursegir rök-
færsluna.
Opingáttarstefna Merkel í við-töku flóttamanna er ástæðan
fyrir því að kjósendur íhaldssamra
flokka hverfa í unnvörpum frá
þeim og leita til stjórnmálaflokka
með harðari stefnu í málaflokkn-
um.
Þetta gildir ekki aðeins umÞýskaland, segir Stephens,
heldur Austurríki, Ítalíu og Sví-
þjóð. Bretar kusu Brexit til að loka
á opingáttarstefnu Merkel.
Stephens rekur raunasögu Evr-ópusambandsins á þessari öld:
evru-kreppan, flóttamannakreppan
og úrsögn Breta, Brexit. Af 18 ár-
um aldarinnar er Merkel við völd í
13 ár. Nóg er komið, segir sá
bandaríski.
Staða Merkel í Þýskalandi ætti aðvera tilefni miðhægriflokka á
Íslandi til að staldra við og spyrja
sig: erum við á vinstrileið Merkel
þar sem íhaldssamir kjósendur yfir-
gefa okkur og leita annað?“
Angela Merkel
Opingáttaður
foringi
STAKSTEINAR
Páll Vilhjálmsson
Veður víða um heim 9.7., kl. 18.00
Reykjavík 9 alskýjað
Bolungarvík 11 alskýjað
Akureyri 17 skýjað
Nuuk 4 skýjað
Þórshöfn 11 þoka
Ósló 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 19 heiðskírt
Stokkhólmur 23 heiðskírt
Helsinki 21 skýjað
Lúxemborg 22 heiðskírt
Brussel 23 léttskýjað
Dublin 20 skýjað
Glasgow 19 heiðskírt
London 27 alskýjað
París 25 heiðskírt
Amsterdam 18 skýjað
Hamborg 16 skýjað
Berlín 23 skýjað
Vín 26 léttskýjað
Moskva 19 léttskýjað
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 33 heiðskírt
Barcelona 31 léttskýjað
Mallorca 30 heiðskírt
Róm 28 léttskýjað
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 23 léttskýjað
Montreal 28 léttskýjað
New York 25 heiðskírt
Chicago 27 léttskýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:28 23:40
ÍSAFJÖRÐUR 2:44 24:33
SIGLUFJÖRÐUR 2:25 24:18
DJÚPIVOGUR 2:47 23:19
Ný sveitarstjórn Blönduósbæjar
ákvað á síðasta fundi að taka ekki
sumarfrí á þessu ári vegna aðkall-
andi verkefna sem liggja fyrir.
„Mikil endurnýjun er á kjörnum
fulltrúum bæjarins og allir bæjar-
fulltrúar samþykktu samróma að
fara ekki í sumarfrí,“ segir Rannveig
Lena Gísladóttir, nýkjörinn forseti
bæjarstjórnar Blönduósbæjar.
Bæjarstjórnin samþykkti á fyrsta
fundi sínum að ráða sveitarstjóra í
bæjarfélaginu og sóttu átta um.
„Á síðasta kjörtímabili var utan-
aðkomandi sveitarstjóri ekki ráðinn
en við ákváðum strax á fyrsta fundi
að ráða bæjarstjóra og við reiknum
með að klára það á næsta fundi bæj-
arstjórnar á fimmtudaginn,“ bætir
Rannveig Lena við.
Þessi átta sóttu um: Auðunn
Steinn Sigurðsson, Gunnar Rúnar
Kristjánsson, Gunnólfur Lárusson,
Hjörleifur Hallgrímur Herbertsson,
Kristín Á. Blöndal, Linda Björk
Hávarðardóttir og Valdimar O. Her-
mannsson.
Ekkert frí
á Blönduósi
Mikill áhugi er á sýningarrétti
ítölsku knattspyrnunnar hér á landi í
vetur, muni félagsskipti portúgalska
knattspyrnumannsins Cristiano Ro-
naldo til ítalska úrvalsdeildarliðsins
Juventus ganga í gegn. Þrálátur orð-
rómur hefur verið uppi um félags-
skipti leikmannsins frá spænska
stórliðinu Real Madríd nú í sumar en
Ronaldo er af mörgum talinn einn
besti knattspyrnumaður heims.
Þessi þráláti orðrómur hefur vakið
áhuga hjá íslenskum sjónvarps-
stöðvum um kaup á sýningarrétti
knattspyrnunnar á Ítalíu. Magnús
Ragnarsson, framkvæmdastjóri
sölusviðs hjá Símanum, segir að eng-
ar ákvarðanir hafi verið teknar en
fyrirtækið hafi áhuga muni skiptin
ganga í gegn. „Við munum að sjálf-
sögðu skoða þetta en það hafa engar
ákvarðanir verið teknar. Hið sanna
svar er hins vegar að þetta er erfið
vara að eignast,“ segir Magnús.
Spurður um hvers vegna erfitt sé
að eignast sýningarréttinn segir
Magnús það vera vegna fjölda samn-
inga. „Stóru liðin selja sína leiki sjálf
og þess vegna þarf að gera ansi
marga samninga til að ná öllum
leikjunum,“ segir Magnús.
Svipað er uppi á teningnum hjá
samkeppnisaðila Símans, Vodafone.
Þar er mikill áhugi á sýningarrétt-
inum verði af skiptum Ronaldo.
aronthordur@mbl.is
Ítalska knattspyrnan orðin eftirsótt
Íslenskar sjónvarpsstöðvar áhugasamar vegna hugsanlegra skipta Ronaldo
AFP
Ronaldo Hann gæti farið til Ítalíu.
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
RITZENHOFF
Bjórglös og krúsir
Verð frá 2.150,-
ALESSI ANNA G
Vínupptakari – fleiri litir
Verð frá 6.950,-
RITZENHOFF
Vínglös
Verð frá 2.550,-
NUANCE
Vatnskanna – fleiri litir
Verð 13.790,-
Glæsileg gjafavara
KABUKI
Standlampi – fleiri litir
Verð 129.000,-
SKAGERAK DANIA
Skurðarbretti 50x27 cm tekk
Verð 11.500,-ROBERT WELCH
Hurricane kertastjaki
Verð frá 5.490,-
IITTALA KASTEHELMI
Kökudiskur 24cm
Verð 7.800,-
KARTELL BATTERY
Borðlampi – fleiri litir
Verð frá 19.900,-
KAY BOJESEN
Ástarfuglar
Verð 14.650,-
IITTALA TOIKKA WHOOPER
Verð 68.900,-
Ranglega var ritað í undirfyrirsögn
á bls. 4 í blaðinu í gær að Icelandair
Group hefði lækkað afkomuspá sína
um 50-70 milljarða dollara.
Þar átti að sjálfsögðu að standa 50-
70 milljónir dollara. Beðist er vel-
virðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
Milljónir dollara