Morgunblaðið - 10.07.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.07.2018, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018 upphafið að því að gera það sem í rauninni skiptir mestu máli; að rækta samskipti sín við fólkið sem stendur manni næst. Einhvern tíma verðum við bara bein og seinna ekki einu sinni bein. Ég fór mjög ungur að velta fyrir mér tilgangi lífsins og af hverju við erum hérna. Þótt ég hafi töluvert kynnt mér trúmál, trúi ég ekki neinu nema ég hafi einhvers konar upplifun af því.“ Að þessu sögðu má velta fyrir sér hvort tilvistarpælingar hafi ver- ið innblástur skapara Mannabeina. Sjálfur segir hann fatalínuna vera afrakstur af sjálfskoðunarferli sínu og leit hans að sátt við stöðu sína í heiminum; að finna samhljóm á milli ytri og innri raunveruleika. Torfi Fannar segir fagurfræðina og ýmsar skírskotanir og tengingar hafa smátt og smátt birst í mynstr- um og sniðum. Hann nefnir villta vestrið, austurlenskt myndmál, suð- urameríska plöntulækna og svarta- galdur meðal annars til sögunnar. Kjólar og ponsjó flaggskipin Torfa Fannari finnst góður tími til hugleiðslu þegar hann situr við prjónavélina og keyrir sleðann fram og til baka með höndunum, eftir að hafa forritað mynstrin í tölvuna. Hann stundar jóga sér til heilsubót- ar, en jafnframt til að fá ekki í bak- ið af einhæfum hreyfingum. Raf- knúna prjónavél segir hann ekki raunhæfan kost fyrr en Mannabein hafa fest sig í sessi. Fyrsta línan samanstendur af fimm gerðum af alklæðnaði úr mjúku, fíngerðu bómullargarni; kjólum eða ponsjóum, peysum og pilsum eða buxum, ásamt fylgi- hlutum í stíl, sem eru treflar, sjöl, mittisbönd við kjólana og bönd á tvær gerðir af höttum, sem Torfi Fannar flytur inn frá Perú. „Íslendingar eru dálítið feimnir við að nota hatta, þótt um og fyrir miðja síðustu öld hafi varla nokkur maður farið út úr húsi án þess að vera með höfuðfat. Hattar geta ver- ið óskaplega fallegir, en mér finnst þeir fara sérstaklega vel við Mannabein, bæði kjólana og ponsjóin sem eru flaggskip lín- unnar.“ Teflir saman andstæðum Torfi Fannar segir myndlistar- námið klárlega áhrifavald í prjóna- hönnun sinni, enda skipti máli að hafa lært og eytt miklum tíma í að blanda liti og fást við alls konar form í málverkinu. Einna skemmti- legast finnst honum að tefla saman andstæðum í mynstri og litum í prjónaskapnum; brjóta hefðbundna samsetningu. „Möguleikar prjóna- vélarinnar varðandi mynstur eru þó takmörkunum háð, til dæmis er erf- itt og kemur reyndar ekki vel út að nota meira en tvo liti í hverja rönd, en fyrir vikið verður mynstrið og flíkin sjálf stílhrein.“ Aðspurður segir Torfi Fannar að Mannabein höfði einkum til fólks yfir þrítugt, sem vill klæðast vönd- uðum, handgerðum og sígildum flíkum. Miðað við viðbrögðin sem hann hefur fengið hjá gestum Hönnunarsafnsins er hann bjart- sýnn á að fatalínan eigi framtíð fyr- ir sér. Mannabein Fyrsta fatalínan samanstendur af fimm gerðum af alklæðnaði úr mjúku, fíngerðu bómullargarni; kjólum, ponsjóum, peysum og pilsum eða buxum, ásamt fylgihlutum í stíl, sem eru treflar, sjöl, bönd til að hafa við kjólana og bönd á hatta sem Torfi Fannar flytur inn frá Perú. » „Líklega var ég einistrákurinn í bekkn- um, sem fannst gaman að prjóna, en ég man eftir að hafa prjónað einfalda hluti eins og trefla og þvottapoka.“ Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Mikil dramatík einkennir tónleikana Draumur um ást sem fluttir verða í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld klukkan hálfníu. Lilja Guð- mundsdóttir sópran og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari munu flytja þar síðrómantíska ljóðatónlist eftir Sibelius, Tsjækofskíj og Schön- berg. „Tónlist Sibeliusar og Tsjæ- kofskíjs er hádramatísk en svo ljúk- um við tónleikunum á tónlist Schönebergs sem er full af húmor. Hans lög eru létt og skemmtileg ka- barett-lög sem létta svolítið stemmninguna eftir afar mikla dramatík frá Sibeliusi og Tsjækof- skíj,“ segir Lilja. Hún bendir á að þótt ljóð Schöne- bergs séu glettnari en tónverk hinna tveggja sé yrkisefnið það sama, ást- in og draumar um hana. „Í raun yrkja öll tónskáldin um það sama. Ljóð rómantíska tímabils- ins eru gjarnan ort undir rós og það er eitt af einkennum tímabilsins. Ljóð Schönebergs eru greinilega ort undir rós. Þau eru svolítið klúr og hægt er að túlka þau á ýmsan máta. Það er gaman að ljúka tónleikunum með hans ljóðum, léttum og skemmtilegum.“ Snýst allt um ást Titill tónleikanna Draumur um ást vísar til yrkisefnis síðróm- antískra skálda. „Það snýst allt um ást og svik í síðrómantísku stefn- unni. Mikið er ort um ástarsorg, löngun og sanna ást. Lögin sem við munum flytja fjalla ýmist um það að vilja verða ástfanginn eða að hafa verið mjög illa svikinn í ástum.“ Spurð að því hvernig staðið hafi verið að lagavali segir Lilja: „Við völdum í sameiningu verk sem höfða mikið til okkar. Báðar erum við rosalega hrifnar af þessari tónlistar- stefnu sem er mjög dramatísk með áhrifamiklum ljóðum og laglínum.“ Lilja og Eva hafa unnið saman í um það bil sex ár og eru þær góðar vinkonur. Þær hafa þó ekki flutt er- lend lög áður í sameiningu. „Við höfum starfað saman í mörg ár en höfum alltaf flutt íslenska tón- list þegar við flytjum tónlist saman. Við höfum til dæmis flutt tónlist fyr- ir ferðamenn í Hörpu. Þar höfum við haldið fjölmarga tónleika saman og sömuleiðis í skemmtiferðaskipum.“ Í kvöld flytja tónlistarkonurnar í fyrsta skipti ljóðatónlist í samein- ingu. „Við höfum aldrei áður flutt ljóðatónlist saman en hlökkum mik- ið til að gera það á morgun.“ Eva segir samstarfið ganga vel og tón- listarsmekkinn svipaðan. „Við kynntumst í gegnum tónlistina, í tónleikaröðinni Pearls of Icelandic Songs sem við spiluðum báðar í. Svo erum við líka vinkonur utan tónlist- arinnar og nágrannar í Garða- bænum.“ Mikil nánd við áhorfendur Listasafnið Sigurjóns Ólafssonar hýsir höggmyndir og teikningar eft- ir Sigurjón Ólafsson myndhöggvara ásamt heimildum um listamanninn. Yfir sumartímann eru vikulega haldnir tónleikar á safninu. Tónleik- arnir Draumur um ást eru hluti af sumartónleikaröð listasafnsins. Bæði Lilja og Eva hafa tekið þátt í tónleikaröðinni áður en þá sitt í hvoru lagi. Eva segir listasafnið afar góðan tónleikastað. „Það er frábær hljómburður þarna og virkilega mik- il nánd við áhorfendur. Safnið er líka á svo fallegum stað með útsýni yfir sjóinn.“ Kaffihúsið á safninu er alltaf opið eftir tónleika og tónleikagestum gefst kostur á að hitta flytjendur þar þegar tónleikum lýkur. „Þetta verða tónleikar í styttra lagi, svona rétt tæplega klukkustundar langir,“ segir Lilja. Hámenntaðar tónlistarkonur Verkin sem Lilja og Eva flytja á tónleikunum Draumur um ást eru fimm sönglög Ópus 37 eftir Jean Sibelius, kaflar úr Rómönsum, ópus 47 eftir Pyotr Tsjækofsíj og Brettl Lieder eftir Arnold Schönberg. Tón- listarkonurnar sem flytja verkin eru hámenntaðar í tónlist. Eva Þyri fékk hæstu einkunn í mastersnámi í ein- leik við Royal Academy of Music í Lundúnum. Hún hefur meðal ann- ars haldið einleikstónleika, tekið þátt í frumflutningi sönglaga Áskels Mássonar og Atla Heimis Sveins- sonar og The Melancholy Stream eftir Oliver Kentish. Lilja Guð- mundsdóttir hefur stundað söngnám í Tónlistarskólanum á Akureyri, við Söngskóla Sigurðar Demetz og í Konservatorium Wien í Vínarborg. Hún hefur meðal annars sungið hlutverk Donnu Elviru úr Don Giovanni með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Frasquitu í Carm- en hjá Íslensku óperunni. Samspil hádrama- tíkur og húmors  Síðrómantísk ljóðatónlist flutt í safni Vinkonur Eva Þyri (t.h) og Lilja (t.v) hafa unnið saman í um það bil sex ár. ///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// ///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.