Morgunblaðið - 10.07.2018, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 10.07.2018, Qupperneq 27
ásamt Bergþóri Pálssyni á Borginni árið 2000 og kölluðu þeir sig Strák- arnir á Borginni og kom út plata með þeim sama ár. Helgi og Reið- menn vindanna slógu rækilega í gegn árið 2008 og næstu fjögur árin voru þeir ein allra vinsælasta hljómsveitin á landinu og héldu fjölda tónleika um allt land og komu m.a. fram á Landsmóti hesta- manna. Helgi stóð fyrir fyrstu popptónleikunum sem haldnir voru í Hörpu árið 2011, þar sem hann söng íslenskar dægurperlur með fleiri flytjendum og hélt tvenna slíka tónleika. Helgi var einnig með Caparet Swing Orchestra, 2013 þar sem sungin voru lög Hauks Mort- hens. Á 30 ára söngafmæli Helga 2014 fór hann í hringferð um landið og hélt 30 tónleika á 35 dögum. Í tilefni stórafmælisins heldur Helgi risatónleika í september í Laugardalshöll. „Þar verður öllu tjaldað til og algjört havarí,“ en um svipað leyti kemur út ný sólóplata frá Helga með frumsömdu efni eftir hann. Í dag verður fyrsta lagið af plötunni sett í spilun á útvarps- stöðvunum og heitir það Dansað á húsþökum. „Mín áhugamál eru hesta- mennska en við hjónin höfum verið að rækta hesta upp á síðkastið. Svo finnst mér gaman að kynnast heim- inum og við ferðumst mikið. Ég tefldi mikið þegar ég var yngri, ég var 14 ára þegar Fischer og Spasskí tefldu hérna og var á fullu í skákinni á þessum tíma.“ Helgi gerði jafntefli við fyrrverandi heimsmeistarann Vassilí Smyslov í fjöltefli á Ísafirði árið 1977. „Það verður mjög gott að hafa skákina þegar hægir á líkamsstarfseminni.“ Fjölskylda Eiginkona Helga er Vilborg Hall- dórsdóttir, f. 18.6. 1957, leikkona. Foreldrar Vilborgar: Hjónin Hall- dór Magnússon, f. 1922, d. 2011, forstöðumaður framkvæmdadeildar hjá Skeljungi, og Jóhanna Guð- mundsdóttir, f. 1926, fyrrv. fram- haldsskólakennari, bús. í Reykjavík. Börn Helga og Vilborgar eru 1) Orri, f. 5.3. 1979, framkvæmdastjóri hjá Hyper Island, bús. í Singapúr. Kona hans er Kristín Mariella Frið- jónsdóttir, f. 1989, og börn þeirra eru Ylfa Orradóttir, f. 2013 og Breki Orrason, f. 2017; 2) Björn Halldór, f. 16.3. 1984, tónsmiður og forritari, bús. í Kópavogi. Sambýlis- kona hans er Kristína Aðalsteins- dóttir, f. 1987, og dóttir þeirra er Lilja, f. 2018; 3) Hanna Alexandra Helgadóttir, f. 8.6. 1993, nemi í HÍ, bús. í Reykjavík. Sambýlismaður hennar er Ivan Meda De Los Rios, f. 1990. Hálfsystir Helga er Guðbjörg Björnsdóttir, f. 1955, þroskaþjálfi, bús. í Hafnarfirði. Alsystur Helga eru Katrín Björnsdóttir, f. 1.2. 1961, grunnskólakennari á Ísafirði; Harpa Björnsdóttir, f. 31.3. 1965, skrifstofumaður á Ísafirði; Ólöf Björnsdóttir, f. 20.3. 1970, íþrótta- þjálfari í Hafnarfirði, og Auður Björnsdóttir, f. 10.7. 1971, hunda- þjálfari, bús. í Reykjavík. Foreldrar Helga eru hjónin Björn Helgason, f. 24.9. 1935, fyrrv. íþróttafulltrúi og fyrrv. landsliðs- maður í knattspyrnu, og María Gísladóttir, f. 4.6. 1936, fyrrv. leik- skólakennari. Þau eru búsett á Ísafirði. Helgi Björnsson Katrín Jónsdóttir húsfreyja á Setbergi Jón Friðrik Guðmundsson b. á Setbergi í Fellum, N-Múl. Bergrín Jónsdóttir húsfreyja á Ísafirði Gísli Jónsson skipstjóri á Fagranesinu á Ísafirði María Gísladóttir fv. leikskólakennari á Ísafirði Ólöf Guðrún Gísladóttir húsfr. á Hyrningsstöðum Júlíus Þórðarson b. á Hyrningsstöðum í Reykhólasveit Kristján Freyr Hall- dórsson rokkstjóri Aldrei fór ég suður og tónlistarm. Gísli Halldór Halldórsson fv. bæjarstjóri á Ísafirði Halldór Kristinn Helgason sjóm., iðnaðarm. og bóndi í Hnífsdal og á Ísafirði Katrín Gísladóttir skrifstofum. á Ísafirði Viðar Halldórsson fv. formaður Fáks og eigandi Gúmmívinnustofunnar Lára Gísladóttir fv. eigandi Bókhlöðunnar á Ísafirði Halldór Björnsson stofnandi Gúmmívinnustofunnar ehf. Karítas Elísabet Kristjánsdóttir húsfr. í Hnífsdal og Tröð Jónas Sigurðsson bjó í Hnífsdal og Tröð í Súðavík Kristjana Jónasdóttir húsfreyja í Hnífsdal Helgi Björnsson verkamaður og verkalýðsforingi í Hnífsdal Halldóra Kristín Helgadóttir húsfreyja í Hvítarhlíð Björn Guðlaugsson bóndi í Hvítarhlíð í Bitrufirði, Strand. Úr frændgarði Helga Björnssonar Björn Helgason fv. íþróttafulltrúi á Ísafirði Söngvarinn Helgi Björns á tón- leikum með SSÓL í fyrra. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018 Guðrún Benediktsdóttir fædd-ist 10. júlí á Efra-Núpi í Mið-firði, Húnaþingi vestra, og ólst þar upp í átta systkina hóp. For- eldrar hennar voru hjónin Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 4.10. 1907, d. 19.7. 1993, og Benedikt H. Líndal, hreppstjóri og bóndi á Efra- Núpi, f. 1.12. 1892, d. 31.10. 1967. Ingibjörg var systir Skúla Guð- mundssonar, alþingismanns og ráð- herra. Guðrún giftist 26.1. 1950 Aðalbirni Benediktssyni, héraðsráðunaut og bónda, f. 23.7. 1925, d. 13.8. 2008. Foreldrar hans voru hjónin Ólöf Sig- fúsdóttir húsfreyja á Aðalbóli í Mið- firði og Benedikt Jónsson bóndi á Aðalbóli. Dætur Guðrúnar og Aðal- bjarnar eru: Sigrún, f. 1949, Inga Hjördís, f. 1951, og Aldís, f. 1952. Guðrún og Aðalbjörn hófu sambúð sína á Hvanneyri í Borgarfirði þar sem Aðalbjörn var nautgriparæktar- ráðunautur árin 1949-51. Árið 1951 gerðust þau bændur á Aðalbóli í sam- býli við tengdaforeldra hennar. Vorið 1953 fluttu hjónin með dætur sínar að Reykjaskóla, þar sem Aðalbjörn hóf störf hjá Búnaðarsambandi V-Hún. og var ári síðar ráðinn sem héraðs- ráðunautur. Fjölskyldan flutti 1956 að Laugarbakka í Miðfirði og bjó þar til 1964 er þau hjón byggðu nýbýlið Grundarás. Hin síðari ár bjuggu Guðrún og Aðalbjörn í Reykjavík. Guðrún lauk stúdentsprófi frá Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð 1976 og kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands 1981. Hún stundaði kennslu við grunnskóla um árabil allt frá 19 ára aldri. Hún var í mörg ár farkennari bæði í Fremri- Torfustaðahreppi í Miðfirði og í Hrútafirði, en börnin gistu á bónda- bæjum þar sem kennslan fór fram. Síðast kenndi Guðrún við Grunnskól- ann á Hvammstanga. Þau hjónin stunduðu jafnframt fjárbúskap allt til aldamóta. Guðrún lét sig ýmis þjóðmál varða, var í miðstjórn Framsóknarflokksins og sat á Alþingi á árunum 1974-78 sem varaþingmaður. Guðrún lést 22. nóvember 2015. Merkir Íslendingar Guðrún Benediktsdóttir 90 ára Guðríður Pálsdóttir Sigurbjörg Sæmundsdóttir 85 ára Elín Methúsalemsdóttir Níels Jakob Erlingsson 80 ára Jóhann Heiðar Sigtryggsson Ragna Björgvinsdóttir Þorgerður Guðrún Sigurðardóttir 75 ára Einar Bragason Hugrún Valný Guðjónsd. Ingunn Anna Ingólfsdóttir Ragna Steina Helgadóttir Þorgerður Ína Gissurard. 70 ára Arndís Birgisdóttir Auður Ingibjörg Jóhannesd. Bára Fjóla Friðfinnsdóttir Esther R. Guðmundsdóttir Garðar Björnsson Ingibjörg Eyfells Kolbeinn H. Brynjólfsson Kolbrún Sveinsdóttir Steinunn Mýrdal Einarsd. Steinunn R. Hjartardóttir 60 ára Albert Oddsson Áslaug Guðný Jóhannsd. Edda Guðrún Jónsdóttir Guðmundur H. Þorgilsson Helgi Björnsson Hólmfríður St Björnsdóttir Ingibjörg Kristjánsdóttir Lýður Pálmi Viktorsson Margrét Hallbjörnsdóttir Ragnar Pétur Hannesson Sigríður Gunnarsdóttir Stefán Hrafnkelsson Steinar Gíslason Unnur Aðalbjörg Hauksd. 50 ára Ásdís Rögnvaldsdóttir Bjarni Óskarsson Dariusz Jan Duda Elínborg María Tryggvad. Guðm. Kr. Guðmundsson Gunnar Þorri Þorleifsson Helga Magnúsdóttir Hildur Ómarsdóttir Lina Matuleviciené Lovísa Guðbjörg Sigurjóns Magnús Ingi Guðmundsson Piotr Cieplinski Reynir Vikar Sverrir H. Geirmundsson 40 ára Aniela Barbara Jastrzebska Anna Felinczak Guðmundur F. Þórðarson Helgi Örn Jóhannsson Hrefna Jóhannsdóttir Ilona Magdalena Roszak Inga Jóna Ingimundardóttir Ingþór Guðmundsson Jón Hákon Halldórsson Katrín Laufdal Guðlaugsd. Leonora Morina Magnús Hallgrímsson Rolf Hákon Arnarson Rósa Ásgeirsdóttir Sesselja Thorberg Vera K.V. Kristjánsdóttir Þórhildur Júlíusdóttir 30 ára Damian Pawlowski Hannes Guðmundsson Jakob Reynisson Michette M.C. Pereboom Patryk Martyn Sólveig Helgadóttir Tryggvi Freyr Torfason Til hamingju með daginn 40 ára Hrefna er Reyk- víkingur en býr á Ásbrú og vinnur saumastofunni Icewear. Hún er þroska- þjálfi að mennt. Maki: Marteinn Bergþór Skúlason, f. 1971, lager- maður hjá Iceland. Börn: Viktor og Sara, f. 2008 og létust sama dag, og Viktor Ingi, f. 2012. Foreldrar: Jóhann Frið- björnsson, f. 1959, og Bára Garðarsdóttir, f. 1959. Hrefna Jó- hannsdóttir 40 ára Sesselja er Reyk- víkingur, hún er innanhús- hönnuður og rekur fyrir- tækið Fröken Fix – hönn- unarstúdíó. Maki: Magnús Sævar Magnússon, f. 1976, útfar- arstjóri hjá Útfararstofu Kirkjugarðanna. Börn: Lára Theodóra, f. 1995, Ísak, 1995, og Matt- hías, f. 2009. Foreldrar: Sigurður Brynj- ólfsson, f. 1949, og Edith Thorberg, f. 1953, d. 2014. Sesselja Thorberg 30 ára Tryggvi er Hver- gerðingur en býr í Reykja- vík. Hann er leikari. Maki: Árný Sigurbjörg Guðjónsdóttir, f. 1985, lögmaður hjá Land lög- mönnum. Foreldrar: Torfi Smári Traustason, f. 1958, múr- ari með eigið fyrirtæki, og Sigfríður Sigurgeirsdóttir, f. 1958, kennari í Sunnu- lækjarskóla á Selfossi. Þau eru búsett í Hvera- gerði. Tryggvi Freyr Torfason R GUNA GÓÐAR I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.