Morgunblaðið - 10.07.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
KOLEOS
Sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn
og sparneytinn.
Renault Koleos, verð frá: 5.490.000 kr.
Staðalbúnaður í Koleos erm.a.: Virkur neyðarhemlunarbúnaður,Akreinavari, umferðarskiltaskynjunmeð viðvörun, aðalljós sembeygja um leið og beygt er,
LED stöðuljósmeð„FollowMeHome“búnaði, leiðsögukerfimeð Íslandskorti, R-Linkmargmiðlunarkerfi,Apple CarPlay™ogAndroidAuto™.
Verið velkomin í reynsluakstur.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
8
0
8
6
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Áætlað er að Ísland taki sæti í
mannréttindaráði Sameinuðu þjóð-
anna næsta föstudag þegar atkvæði
verða greidd um það á allsherjar-
þingi stofnunarinnar. Sætið tilheyrir
hópi Vestur-Evrópu og annarra
ríkja (WEOG) og var skilið eftir autt
þegar Bandaríkjamenn sögðu sig
með þjósti úr ráðinu í síðasta mán-
uði vegna ósættis um áherslur þess,
sér í lagi meinta fordóma gegn Ísr-
aelsríki.
Nikki Haley, sendiherra Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum,
lét þau orð falla að ráðið væri „for-
arpyttur pólitískrar hlutdrægni“
þegar hún tilkynnti úrsögn Banda-
ríkjanna úr því. Vert er að líta þenn-
an téða forarpytt nánari augum nú
þegar Ísland hyggst taka sér þar
sæti og ljúka þeim 18 mánuðum sem
eftir eru af kjörtímabili Bandaríkja-
manna.
Ekki sóst eftir endurkjöri
Mannréttindaráðið í núverandi
mynd var stofnsett árið 2006 en það
á sér fyrirmynd í eldra ráði sem
varð til árið 1946 og lagði meðal
annars drög að mannréttindayfir-
lýsingu sem kom út 1948. Eldra
mannréttindaráðið hafði lengi sætt
gagnrýni, meðal annars vegna aðild-
arríkja sem þóttu ekki hafa staðið
sig vel í verndun mannréttinda.
Meðal breytinga sem gerðar voru
við stofnun nýja ráðsins var að að-
ildarríki eru nýkjörin á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna en ekki
valin á lokuðum fundum eins og
forðum var gert. Jafnframt fundar
nýrra mannréttindaráðið allt árið en
ekki aðeins einu sinni í sex vikur
eins og forðum. Á fundum ráðsins
eru mannréttindabrot rædd og
rannsökuð og fyrirbyggjandi að-
gerðir skipulagðar þegar vísbend-
ingar eru á lofti um að stórfelld
mannréttindabrot séu yfirvofandi.
Ráðið hefur unnið að skrásetningu
alþjóðlegra mannréttindastaðla og
að gerð regluverka til að fylgjast
með því að þeim sé fylgt.
Guðlaugur Þór Þórðarsson utan-
ríkisráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið að ánægjulegt væri
að samstaða hefði náðst í Vestur-
Evrópuhópnum um aðild Íslands að
mannréttindaráðinu. „Fastanefndin
okkar er staðsett í Genf og hún mun
halda utan um þetta áfram ef við
göngum inn í ráðið sjálft.“
Guðlaugur segir Ísland hafa
áunnið sér traust innan Sameinuðu
þjóðanna meðal annars sem áheyrn-
araðili hjá mannréttindaráðinu.
„Þetta er ekki eins og öryggisráð-
ið, þar sem við vorum í framboði í
mörg, mörg ár og eyddum um 400
milljónum í framboðið,“ sagði Guð-
laugur. „Það hefur enginn kostnað-
ur lagst til vegna þessa. Þessi staða
kom upp vegna þeirra starfa sem
við höfum sinnt á alþjóðavettvangi.
Við höfum gefið út að við ætlum
ekki að sækjast eftir endurkjöri.“
„Tilbúin að axla ábyrgð“
Aðspurður hvort hann telji að
deilumál við Filippseyinga í fyrra,
þar sem Filippseyingar svöruðu
gagnrýni Íslendinga um mannrétt-
indamál með því að gagnrýna Ís-
lendinga á móti fyrir tíðni fóstur-
eyðinga hér í landi, gæti varpað
neikvæðu ljósi á aðild Íslands að
ráðinu svaraði Guðlaugur neitandi.
„Ég held að sú gagnrýni hafi verið á
misskilningi byggð. Margir héldu að
þetta væri einhvers konar skylda
eða opinber stefna til að eyða
Downs-heilkenni á Íslandi, sem er
auðvitað ekki rétt. Við höfum reynt
að leiðrétta þann misskilning og ég
held að það hafi tekist vel.“
„Það sem við höfum sérstaklega
tekið fyrir eru jafnréttismál og mál-
efni hinsegin fólks,“ sagði Guðlaug-
ur um störf Íslendinga sem áheyrn-
araðila ráðsins. „Aukin ábyrgð felst
þó í því að sitja í ráðinu og við erum
tilbúin að axla hana.“
Guðlaugur segir að Íslendingar
séu sammála Bandaríkjamönnum
um ósanngirni þess að fastur liður
sé í fundum ráðsins þar sem mann-
réttindabrot Ísraels eru sérstaklega
tekin fyrir. „Við höfum verið gagn-
rýnin á mannréttindabrot í Ísrael
eins og annars staðar, en það er í
sjálfu sér mikið ójafnvægi þarna á
ferðinni og það gerir ekki annað en
að draga úr málefnalegri gagnrýni.
Norðurlöndin og þau lönd sem við
berum okkur saman við eru sam-
mála Bandaríkjunum um þetta.“
Hlaupið í skarð fyrir Bandaríkin
Ísland stefnir á að taka sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna „Aukin ábyrgð sem felst í
því að sitja í ráðinu,“ segir utanríkisráðherra Óttast ekki að vera gagnrýnd á móti um mannréttindi
AFP
Nefndir Fundarsalur mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf. Líklegt er að Ísland taki sæti í mannréttinda-
ráðinu á föstudaginn næstkomandi eftir atkvæðagreiðslu og ljúki kjörtímabili Bandaríkjamanna.