Morgunblaðið - 10.07.2018, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 10.07.2018, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is „Ég hafði hugsað mér að læra að prjóna og nota kunnáttuna í mynd- verk til að hengja upp á vegg, en ekki til þess að prjóna fatnað,“ seg- ir Torfi Fannar Gunnarsson um þá ákvörðun sína að sækja tíma í text- íldeild Gerrit Rietveld-akademíunn- ar í Amsterdam á sama tíma og hann stundaði þar myndlistarnám á árunum 2008 til 2012. En margt fer öðruvísi en ætlað er því núna, sex árum síðar, hefur hann komið sér þægilega fyrir við prjónavélina sína í anddyri Hönnunarsafns Íslands og bætir sífellt við Mannabein, fyrstu fatalínuna sem hann sendir frá sér og frumsýnd var í safninu í síðasta mánuði. Þar á bæ hafa um nokkurt skeið verið haldnar lifandi sýningar þar sem áhugasamir geta fylgst með hönnuðum að störfum – og keypt af þeim ef þeim hugnast svo. „Amma kenndi mér að prjóna þegar ég var krakki og eitthvað lærði ég líka í handmennt í grunn- skóla. Líklega var ég eini strákur- inn í bekknum, sem fannst gaman að prjóna, en ég man eftir að hafa prjónað einfalda hluti eins og trefla og þvottapoka,“ rifjar Torfi Fannar upp. Prjónaskapur átti þó fjarri því hug hans allan á þessum árum. Leiðin lá í Verslunarskóla Íslands, en síðan ýtti listagyðjan við honum og leiddi hann í myndlistardeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti og loks til Hollands eins og áður sagði. Gekk skrefinu lengra Upphaf prjónaferilsins rekur hann til þess að einhverju sinni þar ytra fékk hann fyrir tilviljun mynstraða og marglita peysu upp í hendurnar. „Þótt ég grandskoðaði peysuna, botnaði ég ekkert í hvern- ig hægt væri að búa til svona flókna flík. Mig langaði að finna út hvernig það væri gert,“ segir Torfi Fannar og hafði veggmyndir enn í huga þegar þarna var komið sögu. „Síðan fannst mér sniðugt að ganga skref- inu lengra og læra að sníða og prjóna fatnað, því margir sýndu áhuga og virtust hrifnir af prjóna- skapnum hjá mér. Árið sem ég út- skrifaðist frá myndlistardeildinni voru fáir í fatahönnun og því hálf- partinn plataði rektor mig til að hanna og sýna fatalínu á útskrift- arsýningu skólans ásamt myndlist- arverkum.“ Smám saman sneri Torfi Fannar sér í auknum mæli að prjónaskap. Eftir BA-námið var hann í hálft ár á Íslandi, vann á Bæjarins beztu og sinnti ýmsum hugðarefnum, til dæmis raftónlist sem hann mixaði á plötuspilara og spilaði sem skífu- þeytir hér og þar – eins og hann gerir reyndar ennþá, en í minna mæli en áður. Samkvæmt staðal- ímyndinni líkist listamaðurinn með sitt síða hár óneitanlega meira raf- tónlistarmanni en manni sem situr við prjónavél daginn langan. Starfsnám hjá Henrik Vibskov Torfi Fannar var í starfsnámi hjá danska fatahönnuðinum Henrik Vibskov í Kaupmannahöfn árið 2014, en Vibskov er að hans sögn eini fatahönnuðurinn á Norður- löndum í stjórn Tískuvikunnar í París og býsna frægur í tískuheim- inum. Reynslunni ríkari kom Torfi Fannar heim, löngu búinn að átta sig á að hann væri á réttri hillu hvað prjónaskapinn áhrærði. „Ég lærði líka að vefa í skólanum, en fannst skemmtilegra að prjóna. Auk þess hefur prjónlesið þann kost umfram vefnaðinn að engin só- un verður á efninu því hægt er að sníða það jafnóðum með því að fækka eða fjölga lykkjum alveg eins og í handprjóni. Aftur á móti þarf að vefa heila stranga og sníða úr þeim eftir á og þá fer mikið efni til spillis.“ Eftir heimkomuna var Torfi Fannar með ýmsar hugmyndir á prjónunum, til dæmis tók hann þátt í verkefni sem snerist um að fram- leiða föt í Nepal og selja á Íslandi samkvæmt viðskiptamódelinu „kauptu eina vöru, gefðu aðra“, eða „Buy-One Give-One“ eins og það kallast á ensku. „Mig langaði til að gera hugmyndina að veruleika þannig að hluti ágóðans færi til góðgerðarmála í framleiðslulandinu. Á einhverjum tíma sá ég að hug- myndin gekk einfaldlega ekki upp og þá fór ég að velta raunverulega fyrir mér hvernig ég ætti að fara að því að gera það sem mig langaði til að gera – sem var náttúrlega að hanna og prjóna. Til þess þurfti ég að safna fyrir prjónavél og gefa mér góðan tíma til að skapa mína eigin fatalínu, sem síðar varð Mannabein.“ Frá Bæjarins beztu í meistaranám Torfi Fannar gerði reyndar meira á þessum tíma en að hugsa bara um og prjóna föt því hann hef- ur verið aðstoðarrekstrarstjóri Bæjarins beztu og mun gegna starfanum til haustsins. „Þá fer ég í meistaranám í hönnun í Listahá- skóla Íslands, aðallega til þess að læra um markaðssetningu, fram- leiðsluferli og önnur hagnýt atriði,“ upplýsir hann. Mannabeinum fylgir nefnilega heilmikið umstang ef vel á að takast til. Spurður af hverju hann nefni fatalínu sína Mannabein, svarar hann: „Í mínum huga er tengingin sú staðreynd að einhvern tímann munum við öll deyja. Mig langar til að vekja athygli á að lykillinn að því að sjá heiminn í réttu ljósi er að sætta sig við að tíminn er af skorn- um skammti. Núna getur verið Með Mannabein á prjónunum  Torfi Fannar Gunnarsson lærði að prjóna í fatahönnunardeild Gerrit Rietveld-akademíunnar í Amsterdam þar sem hann nam myndlist  Hann hefur sent frá sér prjónafatalínuna Mannabein Morgunblaði/Arnþór Birkisson Myndlistarmaður og prjónahönnuður Torfi Fannar segir myndlistarnámið klárlega hafa haft áhrif á prjónahönn- un sína, enda skipti máli að hafa lært og eytt miklum tíma í að blanda liti og fást við alls konar form í málverkinu. Bandaríska leikkonan Robin Wright segist lítil samskipti hafa átt við leik- arann Kevin Spacey þegar þau léku hjón í þáttunum House of Cards eða Spilaborg eins og þættirnir heita í ís- lenskri þýðingu. Wright segist að- eins hafa kynnst Spacey við tökur, á milli þess sem hrópað var „action“ og „cut“. Frá þessu greindi hún í við- tali í morgunþætti NBC-sjónvarps- stöðvarinnar, Today. Wright og Spacey léku forseta- hjónin Claire og Frank Underwood í þáttunum, en upp komst um kyn- ferðisbrot og kynferðislega áreitni Spacey í garð samstarfsmanna og fleiri. Hann hefur neitað allri sök. Wright sagðist í viðtalinu ekki hafa þekkt manninn, Spacey, en telja hann ótrúlegan í sínu fagi. Ásakanir á hendur Spacey komust í kastljósið í október í fyrra þegar Anthony Rapp sagði hann hafa áreitt sig fyrir þremur áratugum en þá var Rapp aðeins 14 ára. Nokkru síðar höfðu tugir ásakana bæst við og fjölgar enn því fréttir bárust í síðustu viku af því að þrjú ný mál gegn Spacey væru til rannsóknar hjá bresku lög- reglunni en alls hafa fleiri en 30 karl- menn sakað Spacey um kynferðis- lega áreitni eða ofbeldi. Samstarfsmenn Spacey og Wright í einum þátta Spilaborgar. Segist lítið sem ekk- ert þekkja Spacey Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.