Morgunblaðið - 17.07.2018, Page 8

Morgunblaðið - 17.07.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Viðskiptablaðið vitnar til galgopa-legra fullyrðinga hæstarétt- arlögmanns í Fréttablaðinu þar sem hann „bar saman skipan dómara í Landsrétt við uppnám í Póllandi og Tyrklandi, þar sem framkvæmdar- valdið leitast við að ryðja dómstóla landsins.    Samanburðurinn er tilhæfulaus ogfráleitur …“    Síðarsegir: „Hitt er hins vegar afleitt, að lesa það haft eftir Ingi- björgu Þorsteinsdóttur, formanni Dómarafélags Íslands, að hún taki undir þetta, að þar með séu „auðvit- að viss líkindi, sérstaklega með Pól- landi, sem vekja með manni ákveðin hugrenningatengsl“.    Það bendir óneitanlega til alvar-legs dómgreindarskorts, hugar- æsings eða vísvitandi rangfærslna, sem engum dómara er sæmandi.“    Viðskiptablaðið segir svo:    Þessi vandræði með dómara-skipan á Íslandi eru orðin frek- ar þreytandi og ekki til þess fallin að styrkja dómsvaldið.    Ekki síst vegna frekju dómarannaum að fá að hafa sinn fína klúbb í friði, þar sem lítil klíka fær öllu ráðið.    Það eitt gefur mjög ákveðna vís-bendingu um að þeir séu óhæfir til þess að gæta laga og réttlætis, vera hinsta vörn borgarans gegn órétti.“    Þarna er full mikið sagt, en þóekki alveg að tilefnislausu. Galgopalegt tuð STAKSTEINAR Veður víða um heim 16.7., kl. 18.00 Reykjavík 13 léttskýjað Bolungarvík 11 heiðskírt Akureyri 8 rigning Nuuk 8 rigning Þórshöfn 12 léttskýjað Ósló 24 heiðskírt Kaupmannahöfn 26 heiðskírt Stokkhólmur 30 heiðskírt Helsinki 29 heiðskírt Lúxemborg 27 heiðskírt Brussel 29 léttskýjað Dublin 18 skýjað Glasgow 19 léttskýjað London 27 alskýjað París 30 heiðskírt Amsterdam 27 heiðskírt Hamborg 26 heiðskírt Berlín 28 heiðskírt Vín 23 skúrir Moskva 26 léttskýjað Algarve 24 heiðskírt Madríd 28 léttskýjað Barcelona 28 léttskýjað Mallorca 31 léttskýjað Róm 27 léttskýjað Aþena 31 heiðskírt Winnipeg 19 skýjað Montreal 29 skýjað New York 31 heiðskírt Chicago 29 léttskýjað Orlando 28 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 17. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:48 23:21 ÍSAFJÖRÐUR 3:17 24:02 SIGLUFJÖRÐUR 2:58 23:46 DJÚPIVOGUR 3:09 22:59 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Við höfum undanfarin ár verið með hálendisgæslu á sumrin, mismikla en reynum að vera sem mest. Við erum með aðstöðu í Dreka, sem er upp við Öskju þar sem bækistöðv- arnar voru á meðan gosið í Holu- hrauni stóð yfir. Við erum á veg- unum þar í kring sem ná allt austan Sprengisandsleiðar og norðan Vatnajökuls,“ segir Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri hjá lögregl- unni á Norðurlandi eystra, sem að- setur hefur á Akureyri. Hermann segir gott og náið sam- starf vera við björgunarsveitir sem sinna hálendisgæslu, landverði og starfsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs. „Lögreglumenn eru á hálendinu nokkra daga í einu og eru ánægðir með tilbreytingu frá hefðbundnum verkefnum. Hálendiseftirlit kallar á óhefðbundin verkefni og óhefð- bundnar lausnir. Lögreglumenn hafa meðal annars þurft að sjóða í undirvagna fyrir fólk sem hefur keyrt undan bílum sínum og ferða- hýsum,“ segir Hermann og bætir við að viss hópur ferðamanna hafi ekki raunsæja mynd af þeim að- stæðum sem þeir glími við. Þar séu erlendir ferðamenn í meirihluta. „Það er líka töluvert um það að bílar festist úti í á og sitji þar fastir þegar vatn fer inn á vélina. Góðir og öflugir bílar sitja fastir vegna kunn- áttuleysis sem leiðir til þess að bíl- stjórarnir stressast upp og fara allt of hratt yfir ána með fyrrgreindum afleiðingum, “ segir Hermann. Kunnáttuleysi oft ástæða tjóns  Lögreglumenn takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í hálendisgæslu Ljósmynd/Lögreglan Klandur Ökumaður þessarar bifreiðar réði ekki við aðstæður á ferð sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.