Morgunblaðið - 17.07.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna
gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá
dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga
til og með 16. júlí 2018, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. júlí 2018 og
önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 16. júlí
2018, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti
í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á
skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi,
gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi
af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir,
fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra,
ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis,
veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald,
gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á
ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt
álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki,
jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 2.000 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt,
búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum
þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega
búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin
hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 17. júlí 2018
Tollstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
„Þetta var mikið útgerðartengt dót,
toghlutar, kaðlar og netadræsur.
Ruslið virðist koma víða að, eins og
t.d. frá Kanada, Grænlandi, Noregi,
Rússlandi og Bretlandi. Það virtist
mest drasl sem gæti týnst í óhappi
en líka hlutir sem menn missa ekk-
ert „óvart“ útbyrðis eins og færi-
bandakeðjur o.þ.h. Ég held að ís-
lenskir sjómenn gangi almennt séð
mjög vel um hafið. Við fundum líka
rusl sem er að fjúka af landi, t.d.
plastflöskur, samlokuumbúðir, skó-
par, sem er óvenjulegt, spákúlu og
tómatsósuflösku frá Noregi með sós-
unni í,“ segir Gauti Geirsson, for-
svarsmaður Hreinni Hornstranda, í
samtali við Morgunblaðið, en sam-
tökin hafa skipulagt tínsluna undan-
farin fimm ár í samvinnu við Land-
helgisgæsluna, Ísafjarðarbæ,
ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu,
Vesturverk og Umhverfisstofnun.
„Við auglýsum eftir sjálfboða-
liðum og finnum fyrir vaxandi
áhuga, m.a. komu tvær konur frá
Berlín, en færri komust að en vildu
að þessu sinni. Við tíndum í fimmta
skiptið nú í ár og tókum nú fyrir Bol-
ungarvík á Hornströndum, en áður
höfum við hreinsað Aðalvík, Horn-
vík, Hlöðuvík, Furufjörð og Reka-
víkur tvær,“ segir Gauti, en Gáma-
þjónusta Vestfjarða fargar ruslinu.
„Hreinsunin nú var í tveimur hlut-
um. Við fórum fyrst 36 sjálfboðaliðar
22.-25. júní til að tína rusl og koma
því í skip, því það er eina leiðin til að
losna við það á þessum stað. Það
gekk vel en við urðum að skilja rusl-
ið eftir því varðskip Landhelgis-
gæslunnar varð að fara í önnur verk-
efni. Við urðum því að fara aftur á
föstudaginn til að sækja það, níu og
hálft tonn af rusli, sem er met, því
við höfum tínt mest um fimm tonn
fram að þessu. Næst á dagskrá er
svo að byrja aftur, því eflaust hefur
eitthvað safnast í víkunum sem við
hreinsuðum fyrst.“ ernayr@mbl.is
Ljósmynd/Hreinni Hornstrandir
Ruslatínsla á Hornströndum Margar hendur vinna létt verk, en vaxandi áhugi er á þátttöku.
Ljósmynd/Hreinni Hornstrandir
Beðið eftir fari Ruslið bíður í fjörunni eftir að varðskip Landhelgisgæslunnar sæki það.
Norsk tómatsósa fannst á Hornströndum
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Ísafjarðarbær hefur birt auglýsingu
þar sem leitað er að starfsmönnum
fyrir leikskólann Sólborg. Í auglýs-
ingunni er því lofað að starfsmönn-
um verði boðinn afsláttur af leik-
skólagjöldum og er þeim einnig
lofað að börn þeirra fái forgang í
vist við skólann. Um mikla mann-
eklu er að ræða og hefur ítrekað
verið auglýst eftir starfsfólki á leik-
skólann með litlum sem engum ár-
angri, að því er fram kemur á
heimasíðu Ísafjarðarbæjar. Þar seg-
ir einnig að leikskólastjórinn hafi
horft sérstaklega til þess sem
Reykjavíkurborg væri að bjóða sín-
um starfsmönnum.
Að sögn Sigurðar Sigurjónssonar,
formanns Félags stjórnenda leik-
skóla, hefur slíkt tíðkast í gegnum
tíðina, þ.e. að óhefðbundnum leiðum
sé beitt við að laða að starfsmenn í
leikskólana. Hann segist vel skilja
forsendurnar að baki slíkum boðum.
„Ég skil vel að sveitarfélög sem
eru í vanda með að ráða til sín fólk
bjóði því hærri laun eða tryggja því
pláss í leikskóla fyrir börn þess,“
segir Sigurður.
Ýmislegt verið reynt áður
Eva Marín Hlynsdóttir, lektor í
stjórnmálafræði, segir einnig að
ýmislegt hafi verið reynt í gegnum
tíðina til að fá starfsfólk á leik-
skólana. „Þetta er meðal þess sem
hefur verið reynt og er enn gert,
það er verið að útvega starfsmönn-
um húsnæði og svo framvegis. Það
er þekkt í leikskólum almennt að
starfsfólkið fær forgang með börnin
inn á leikskóla, svo að ég er ekki
viss um að þetta sé óeðlilegt. Þeir
verða auðvitað að hafa starfsfólk,“
segir hún.
Morgunblaðið/Kristinn
Ísafjörður Mikil mannekla hefur verið á leikskólanum Sólborg og hefur nú
verið gripið til þess ráðs að bjóða fólki ýmis fríðindi hefji það vinnu.
Börn starfsmanna
fái forgang og afslátt
Leikskólar reyna nú að lokka til sín
starfsfólk með ýmsum leiðum