Morgunblaðið - 17.07.2018, Side 25

Morgunblaðið - 17.07.2018, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018 25 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Lok á heita potta og hitaveitu- skeljar Stærðir í cm: 200x200, 210x210, 220x220, 235x235, 235x217, 217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000 kg jafnaðarþunga af snjó. Vel ein- angruð og koma með 10 cm svuntu. Sterkustu lokin á markaðnum. Litir: Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að auðvelda opnun á loki. www.heitirpottar.is Sími 777 2000 Haffi og 777 2001 Grétar Bókhald NP Þjónusta Býð fram liðveislu við bókanir, reikn- ingsfærslur o.fl. Hafið samband í síma 649-6134. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Opið fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Bridge og Kanasta kl. 13.00 Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar. Hádegisverður frá 11:30-12:30 og kaffisala alla virka daga frá 14:30- 15:30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi í júlí og ágúst. Úti boccia völlur verður á torginu í sumar og við minnum á skemmtilega viðburði í hverfinu, Qigong á Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga kl. 11 og Sund dans í Sundhöllinni alla miðvikudaga í júlí kl. 13. Vitatorg sími: 411-9450 Gjábakki Kl. 9.00 Handavinna, 13.30 Alkort. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi, morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, bridge í handavinnustofu kl. 13, gönguferð um hverfið kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl.9-16, brids kl.13, enskunámskeið tal kl.13, bókabíll kl.14.30, bónusbíll 14.55, síðdegiskaffi kl. 14.30 allir velkomnir óháð aldri nánari í síma 411-2790. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi Sundlaug kl. 7:15, kaffispjall í króknum kl. 10:30, Pútt á golfvellinum kl. 13:30, Bridge í Eiðismýri kl. 10:30, ganga frá skólabraut kl 14:30. Minnum á Nikkuballið sem verður á morgun miðvikudag milli 16:00 og 18:00. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Nú í morgunsár- ið voru liðin 60 ár frá því strákurinn hann faðir minn Þorsteinn Jónsson varð fyrir slysi við byggingu Síldar- vinnslunnar, SVN, og lést. Mikið kapp hafði verið í mönnum að koma þessu nýja fyrirtæki áfram og síldarverk- smiðjunni í gang, þar sem stutt var eftir af síldarvertíðinni og sumarið senn á enda. Uppúr miðnætti var byrjað að landa síld úr fyrsta bátnum, nýbyggð þró sem síldinni var safnað í þoldi ekki þungann og sprakk. Pabbi var að vinna við að koma færibandi saman sem flytja átti síldina inn í verksmiðju, að ég best veit var hann með rafsuðu- hjálm fyrir andlitinu og að raf- sjóða við færibandið þegar þró- arveggurinn féll yfir hann og síldin í þrónni þar á eftir. Tals- verðan tíma tók að finna hann, moka síld, jafnvel í sjóinn, svo hægt væri að athafna sig og lyfta veggnum ofan af honum. Þessi dagur 17. júlí 1958 hef- Þorsteinn Jónsson ✝ Þorsteinn Jóns-son fæddist 27. ágúst 1934. Hann lést 17. júlí 1958. ur verið talinn fyrsti starfsdagur Síldarvinnslunar og því ekki hægt að minnast á þennan gleðidag hvað fyr- irtækið varðar án þess að hafa slysið og þar með sorg- ardaginn með í þeirri umræðu. Ég leyfi mér að segja strákurinn þar sem hann fékk ekki nema 23 ár hér á jörð, þrátt fyrir fá ár tókst hon- um að framkvæma ótrúlega margt. Hann var mikill fjölskyldu- maður, vann mikið til þess að koma sér og sínum áfram, þurfti að eiga fyrir því sem hann keypti, var mikill útivistar- og náttúruunnandi, gekk á fjöll sumar sem vetur. Hann var mikill skíðamaður og varð m.a. Austurlandsmeistari á skíðum 1950 þá 15 ára gamall. Hann var mikill hagleiksmaður og smíðaði ásamt félaga sínum Bjarna (Banna) Björgvinssyni indíána- kanó, báturinn er úr eikargrind klæddur segldúk. Að beygja eik er ekki auðvelt, til þess þurftu þeir fyrst að smíða sér gufu- stokk til þess að hita eikarlist- ana með vatnsgufu, steinolíu- prímusar voru notaðir til þess að hita vatnið inni í stokknum svo af yrði gufa, þegar eikarlist- arnir voru svo nægilega heitir var hægt að beygja þá til í rétt form. Ýmsar siglingar var svo farið í á kanónum, t.d. um Mý- vatn. Þessi kanó er enn til og hangir uppi í bílskúrnum hjá mér, mín bíður svo það verkefni að pússa hann upp og lakka að nýju. Mamma og pabbi hófu bú- skap í húsi móðurafa og ömmu að Urðarteigi 21 á Norðfirði, þau innréttuðu sér íbúð í útenda hússins sem þá var nýlega byggt og ekki fullklárað, eins og títt var á þeim árum. Pabbi var þá að ljúka námi í vélvirkjun og hugði á frekara nám í vélafræð- um. Á þessum árum var ekki alltaf auðvelt að fá allt sem þurfti, hann smíðaði því m.a. olíukynta ketilinn sem hitaði bæði vatnið sem rann um ofnana sem hituðu húsið og neysluvatn- ið. Eðlilega man ég ekki mikið eftir pabba enda var ég bara tveggja ára þegar hann dó, ég man þó eftir nokkrum punktum, einn er þegar hann var að hjálpa vini sínum Gísla á Hólum að laga Willysinn hans sem var með rauðum upplituðum brett- um. Þetta var á góðviðrisdegi rétt fyrir slysið, litli strákurinn fékk verkefni, sem var að mála brettin, þau urðu skærrauð og falleg, en það stóð ekki lengi, brettin urðu fljótt eins upplituð aftur, enda málningin bara vatn. Hlífar Þorsteinsson. Við erum sem tré það vex og það dafnar það myndast á því sprotar sem vaxa og verða að greinum á þær koma blóm sem blómstra sem síðan fölna og falla. Pabbi, afi, afilang var okkar tré, hann var traustur og með yf- irsýn og hélt verndarhendi yfir okkur öllum smáum sem stórum. Hans minning mun lýsa í okk- ar lífi. Hrefna (Bíbí), Bára og fjölskyldur. Trausti „stóri“ bróðir lést að kvöldi 1. júní og vantaði þá um 80 mínútur í að ná 86 árum. Sig- urður Trausti hét hann fullu nafni. Margs er að minnast við tíma- mót sem þessi. Eftir barnaskóla var Trausti á Reykjaskóla þrjá vetur, svo einn vetur í MA. Vann við sitthvað á sumrin, sem krakki „kúarektor“, við heyskap, fisk- veiðar, flutninga girðingarstaura frá Ströndum, við bryggjusmíði og í vegavinnu í V.-Hún. og Borg- arfirði. Vorið 1952 fór hann að vinna hjá bandaríska hernum á Keflavíkurflugvelli, fyrst á Hótel De Gink á Nikkelsvæðinu, svo á hótelinu við gömlu flugstöðina. Við þetta var Trausti vel á annað ár. Fór svo yfir í verslun varn- arliðsins, Post Exchange, PX-ið, og var ráðinn til að sjá um lag- erinn og er í því tvö ár. Þá var Trausti ráðinn framkvæmda- stjóri yfir PX-inu. Við komu sjó- hersins varð til Navy Exchange. Trausti var í þessu starfi þar til hann hætti störfum nokkru áður en herinn hvarf úr landi. Hann hafði mikinn áhuga á að koma íslenskum vörum á markað á Vellinum. Það gekk vel og Trausti S. Björnsson ✝ Trausti S.Björnsson fæddist 2. júní 1932. Hann lést 1. júní 2018. Útförin fór fram 15. júní 2018. þarna má segja að hafist fyrir alvöru „útflutningur“ á vörum úr lopa, leir o.fl. til Bandaríkj- anna. Trausti leitaði til ótalmargra fram- leiðenda íslenskra vara sem hann keypti af. Glit og Rammagerðin voru stórir birgjar sem hann átti í viðskipt- um við með vörur sem „Kanarn- ir“ keyptu í mjög miklu magni og sendu heim, fluttu út. Trausti naut sín vel í þessu starfi og yf- irmenn hersins á hverjum tíma sýndu honum mikið traust. Hann var ráðinn innkaupastjóri fyrir allar verslanir Bandaríkjahers í Evrópu. Hann var því oftlega á ferð starfsins vegna og fór víða, bæði innan Evrópu og Banda- ríkjanna. Aðalbirgðastöðvar fyrir verslanir Bandaríkjahers í Evr- ópu voru í Frankfurt og var vörum dreift þaðan um Evrópu. Trausti var margverðlaunaður fyrir best reknu verslun Banda- ríkjahers á heimsvísu, þessa á Keflavíkurflugvelli. Eðli málsins samkvæmt var bróðir minn afar fámáll um þessi störf sín fyrir herinn, bæði hér heima og í Evr- ópu, en hann var sem slíkur æðsti íslenski starfsmaður hers- ins. Eftir að vinnu lauk á vellinum var Trausti kjörinn formaður Fé- lags eldri borgara á Suðurnesj- um, sem hann sinnti í nokkur ár af alúð, þótti vænt um það starf. Trausti var með „græna fing- ur“, eins og sagt er stundum. Hann hafði mjög gaman af garð- yrkju og þau hjón, Áslaug og hann, fengu þrisvar sinnum verð- laun fyrir fallegasta garðinn í Keflavík að Smáratúni 40. Hann byrjaði í janúar að sá fyrir blóm- um, sem hann gerði alla tíð. Hann var í fiskaðgerð í kvöld- vinnu hjá útgerð einni í Keflavík í tvær vertíðir meðan á byggingu hússins að Smáratúninu stóð. Ár- ið 1960 keyptum við saman land austur í Þrastaskógi, nokkuð á annan hektara. Fallegt land þak- ið birkikjarri. Það er nú Finn- heiðarvegur nr. 2. Minn part seldi ég honum síðar. Þetta er nú mikill skógur orðinn. Þarna stunduðu þeir, Trausti og Héðinn stórvinur hans, eigandi lands við hliðina, skógrækt sem nú er fal- legt svæði með stígum og rjóðr- um. Um leið og bróðir er kært kvaddur og beðið blessunar Guðs sendi ég öllu hans fólki mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ólafur Steinar Björnsson. Við systur erum heppnar að hafa fengið að alast upp í næsta húsi við afa og ömmu. Afi var í alla staði frábær maður. Hann var svo góður og skemmtilegur, og það var alltaf stutt í grínið hjá honum. Hann tók lífinu fagnandi og elskaði sveitina Guðjón Gunnarsson ✝ GuðjónGunnarsson fæddist 17. júní 1922. Hann lést 24. júní 2018. Útför Guðjóns fór fram frá Skál- holtskirkju 16. júlí 2018. sína. Hann fór í gönguferð á hverj- um degi og þá sáum við að hann stansaði stundum og horfði yfir landið, eins og hann væri að dást að því sem hann hafði. Hann og amma voru svo yndisleg saman. Við sjáum mikið eftir afa en huggum okkur við það að nú eru þau sameinuð á ný, mjög líklega í reiðtúr. Hvíldu í friði, elsku afi. Kveðja, Harpa og Nína.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.