Morgunblaðið - 17.07.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018
Neytendastofa hefur lagt sölu- og
afhendingarbann á sex tegundir
skotelda frá þremur söluaðilum.
Við hefðbundið eftirlit um ára-
mótin kom í ljós að CE-merki vant-
aði á skotelda og einnig vantaði
aðrar upplýsingar.
Um er að ræða skoteldapakka
sem heitir „Úrvals pakkinn“ frá
Púðurkerlingunni, skoteldana „Fly-
ing Butterfly Rocket“ og „Jumping
Cracker“ frá Stjörnuljósum og
„Silfurbombuna“, „Bom Bing
Plane“ og „Crackling“ frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg. Auk
þess var ofangreindum gert að
eyða öllum eintökum fyrrgreindra
skotelda sem enn voru til á lager.
Sölubann sett
á sex tegundir
skotelda
Vinnueftirlitið hefur sektað tvö fyr-
irtæki fyrir að tilkynna ekki vinnu-
slys.
Fram kemur í úrskurðum stofn-
unarinnar að fyrirtækin tvö sendu
tilkynningar til Sjúkratrygginga Ís-
lands um slysin en ekki til Vinnueft-
irlitsins eins og lög mæla fyrir um.
Mikilvægt sé að atvinnurekendur
sinni skyldum sínum við tilkynn-
ingu á slysum og óhöppum svo að
unnt sé að gera viðunandi úrbætur í
því skyni að koma í veg fyrir að slys
endurtaki sig.
Lagðar voru 10 þúsund króna
dagsektir á fyrirtækin en bæði
brugðust við ábendingunni og hafa
nú tilkynnt Vinnueftirlitinu um
slysin.
Sekt fyrir að til-
kynna ekki
vinnuslys
Samfylkingin - jafnaðarmanna-
flokkur Íslands hefur auglýst starf
framkvæmdastjóra flokksins laust
til umsóknar. Í auglýsingu frá
Samfylkingunni segir að leitað sé
að lausnamiðuðum einstaklingi
sem sé „fljótur að setja sig inn í
verkefni og leiða saman ólíka
krafta“.
Meðal verkefna þess sem ráð-
in/n verður er að sinna daglegum
rekstri flokksins og fjárreiðum
hans, bera ábyrgð á starfsmanna-
málum, framkvæma ákvarðanir
stjórnar og framkvæmdastjórnar
flokksins í samráði við formann
framkvæmdastjórnar og hafa um-
sjón með kynningarstarfi og sam-
skiptum við fjölmiðla.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til
að sækja um og umsóknarfrestur
er til og með 20. ágúst.
Samfylkingin aug-
lýsir eftir fram-
kvæmdastjóra
Hundurinn Þoka lauk nú um
helgina tæplega tíu ára ferli sínum
sem fíkniefnahundur í lögreglunni.
Steinar Gunnarsson, eigandi Þoku,
segir að það hafi verið vel við hæfi
að Þoka hafi endað ferilinn á sama
stað og hann hófst, í Neskaupstað.
„Hún er nýbúin að ljúka sinni síð-
ustu vakt sem fíkniefnahundur.
Þoka hefur staðið sig alveg frábær-
lega í þessu starfi en hún er nú orð-
in ellefu ára gömul. Ferill hennar í
lögreglunni spannar því nánast allt
hennar æviskeið,“ segir Steinar og
bætir við að nú, að löngum starfs-
ferli loknum, taki við tími afslöpp-
unar og dekurs hjá Þoku.
Hann segir að á sama tíma og
hann gleðjist yfir starfslokum Þoku
hafi hann áhyggjur af stöðu fíkni-
efnahunda hérlendis. „Það hefur
lítil áhersla verið lögð á þennan
málaflokk þrátt fyrir að þessir
hundar hafi reynst ótrúlega öflugt
vopn í baráttunni gegn fíkniefnum.
Það er vonandi að menn átti sig á
því og staðið verði betur að málum
fíkniefnahunda á næstu árum,“
segir Steinar.
aronthordur@mbl.is
Ljósmynd/Steinar Gunnarsson
Þoka Fíkniefnahundurinn Þoka lét af störfum um helgina. Hún er nú orð-
in ellefu ára gömul en starfsferill hennar í lögreglunni spannar um 10 ár.
Hætt störfum eftir tíu
ár sem fíkniefnahundur
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Þessi mál hafa verið í talsverðu
rugli í nokkur ár,“ segir Heiðar
Hinriksson, lögreglumaður og um-
sjónarmaður fíkniefnahunds emb-
ættis lögreglunnar í Vestmanna-
eyjum. Hann segir aðgerðaleysi
vera í málefnum fíkniefnahunda
lögreglunnar hér
á landi.
Hann segir að
engin skýr
stefna hafi verið
mótuð í mála-
flokknum sem
hafi verið í al-
gjörum ólestri
undanfarin ár. „Í
dag er engin
formleg eða
sameiginleg
þjálfun sem fer fram. Það er í raun
bara hver hundamaður sem þjálfar
sinn hund og því geta hundarnir
verið misvel þjálfaðir,“ segir Heið-
ar og bætir við að áður hafi fíkni-
efnahundar og annað þeim tengt
verið á snærum ríkislögreglu-
stjóra. Því hafi hins vegar verið
breytt fyrir um fjórum árum.
Yfirhundaþjálfarinn rekinn
„Það var alltaf yfirhundaþjálfari
sem heyrði undir ríkislögreglu-
stjóra. Hann sá um öll mál er við-
komu hundunum, hvort sem það
var þjálfunin eða aðstoð þegar upp
komu vandamál. Þess utan passaði
hann upp á að allir hundarnir
stæðust ákveðnar kröfur. Ríkislög-
reglustjóri hætti hins vegar með
þetta kerfi fyrir nokkrum árum og
sagði yfirhundaþjálfaranum upp,“
segir Heiðar.
Aðeins fimm fíkniefnahundar
hérlendis
Að sögn Heiðars hefur lítið verið
gert til að fjölga eða þjálfa fleiri
fíkniefnahunda frá því að yfir-
hundaþjálfaranum var sagt upp.
Því megi segja að fíkniefnahundar
séu í útrýmingarhættu, en und-
anfarin ár hefur fækkað í þeirra
hópi og samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins eru fíkniefna-
hundar hér á landi nú fimm tals-
ins.
Spurður um hvað hægt sé að
gera til að sporna við þróuninni
segir Heiðar að bregðast þurfi við
af festu og ákveðni. „Nú hefur
þetta verið að þróast í þessa átt í
nokkurn tíma. Ég held að það sé
mikilvægt að reyna að koma þess-
um málum sem fyrst í almennilegt
horf. Þar skiptir mestu máli að fá
almennilega umgjörð í kringum
þetta,“ segir Heiðar og bætir við
að síðustu ár hafi lögreglan oft og
tíðum haft beint samband við um-
sjónarmenn fíkniefnahunda þegar
óskað er eftir hundum í verkefni.
„Það er annaðhvort haft samband
við embættin sem eiga hunda eða
þá bara beint við hundaeigendur.
Áður en kerfi ríkislögreglustjóra
var lagt niður sá yfirhundaþjálf-
arinn um að setja hunda í verk-
efni,“ segir Heiðar.
Engin svör fengust frá embætti
ríkislögreglustjóra þegar eftir því
var sóst í gær.
Fíkniefnahundum hefur far-
ið fækkandi á síðustu árum
Málaflokkurinn hefur verið í algjörum ólestri Fimm fíkniefnahundar á landinu
Morgunblaðið/Jim Smart
Fíkniefnaleit Fíkniefnahundum hefur farið mjög svo fækkandi hér á landi á síðustu árum. Að sögn lögreglumanns
og umsjónarmanns fíkniefnahunds í Vestmannaeyjum hefur lítið verið gert til að sporna við þróuninni.
Heiðar
Hinriksson