Morgunblaðið - 17.07.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018
Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® vinnur gegn
stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra.
Með þér í liði
Alfreð Finnbogason
Landsliðsmaðu attspyrnu
„Tækifærið er núna.“
r í kn
Registered trademark
licensed by Bioiberica
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
40-60%
Buxur á útsölu
afsláttur
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Landssamband ungmennafélaga
(LUF) hefur kært ákvörðun Ríkis-
skattstjóra, um að synja stjórn fé-
lagsins um skráningu í fyrirtækja-
skrá, til atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytisins. Ástæða synjun-
arinnar er að einn stjórnarmanna
hafi ekki verið lögráða, en hann var
kjörinn á sambandsþingi LUF í
febrúar.
Tilkynningarskylda um breytta
stjórn er bundin í lög, en LUF telur
synjunina brjóta
gegn stjórnar-
skrárvörðum og
lögbundnum rétti
ungmenna til
þátttöku í félög-
um. Þar sem eng-
in lög kveði á um
lágmarksaldur
stjórnarmanna í
almennum félög-
um eigi sam-
þykktir slíkra fé-
laga að ráða.
Í samþykktum LUF segir að allir
félagsmenn aðildarfélaga sambands-
ins á aldrinum 16 til 35 ára séu kjör-
gengir til stjórnar. Formaður, vara-
formaður, alþjóðafulltrúi og gjald-
keri skuli þó hafa náð 18 ára aldri.
Meðal aðildarfélaga LUF eru Sam-
band íslenskra framhaldsskólanema
(SÍF), Stúdentaráð Háskóla Íslands,
Ungar athafnakonur og ungliða-
hreyfingar ýmissa stjórnmálaflokka.
Samþykktir LUF skuli gilda
„Skilaboðin til okkar frá Ríkis-
skattstjóra voru að við þyrftum að
halda annað sambandsþing og kjósa
nýja stjórn,“ segir Sigurður Helgi
Birgisson, formaður LUF. Hann
bendir á að málið sé í eðli sínu ekki
aðeins hagsmunamál fyrir LUF,
heldur félög ungmenna almennt.
„Það er lagatóm um stjórnarmenn
í almennum félögum að því er varðar
aldur stjórnarmanna. Ríkisskatt-
stjóri vísar þarna í óskráða meg-
inreglu félagaréttar og hæfisskilyrði
um stjórnir félaga í atvinnurekstri í
lögum um hlutafélög og einkahluta-
félög m.a.,“ segir hann. „Þetta er
ekki sambærilegt og það er ekki
hægt að lögjafna þarna á milli,“ seg-
ir hann. Fyrst engin lög eigi við
skuli samþykktir félagsins ráða.
„Samþykktirnar okkar standast
lög og eru skráðar hjá fyrirtækja-
skrá. Þær eiga að ráða og fyrir-
tækjaskrá hefur ekkert með það að
ákveða hvernig félög haga innri
málum sínum. Þarna hefur einstak-
lingur lýðræðislegt umboð fé-
lagsmanna og nýtur trausts þeirra,
en fyrirtækjaskrá meinar honum að
gegna embættinu,“ segir Sigurður
Helgi.
Skoruðu sameiginlega á RSK
Í niðurstöðunni vísaði RSK einnig
til þess að ákvörðun um synjun
skráningar bryti ekki gegn félaga-
frelsisákvæði stjórnarskrár, þar
sem ákvæðið tæki aðeins til stofn-
unar félaga. Taldi RSK enn fremur
að jafnræðisregla stjórnarskrár
væri ekki sjálfkrafa brotin, þar sem
málefnalegar ástæður lægju að baki
takmörkun á réttindum ólögráða
einstaklinga að þessu leyti. Þar sem
ólögráða einstaklingar teldust ekki
bærir til að taka ákvarðanir um eig-
in fjárhag nema að takmörkuðu leyti
væri ótækt að þeir teldust til þess
bærir að taka fjárhagslega ákvarð-
anir er vörðuðu lögaðila.
Undir rekstri málsins sendu
LUF, Barnaheill, Mannréttinda-
skrifstofa Íslands, Umboðsmaður
barna og UNICEF á Íslandi áskor-
un til RSK um að „virða sjálfstæð
réttindi barna og falla frá ólögmæt-
um verkferlum svo félagasamtök [...]
þurfi ekki að sækja rétt sinn annað.“
Að auki var kærð neitun á breyt-
ingu á nafni LUF úr Landssamband
æskulýðsfélaga. UMFÍ sendi Ríkis-
skattstjóra erindi vegna málsins og
taldi að ruglingshætta gæti stafað af
nafnabreytingunni sem brotið gæti í
bága við landslög og réttindi UMFÍ.
Ákvörðun RSK brjóti gegn
rétti ungmenna í félögum
Skráningu synjað vegna ólögráða stjórnarmanns LUF kærir ákvörðun RSK
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
LUF Frá sambandsþingi LUF í febrúar. Sambandið hefur kært ákvörðun Ríkisskattstjóra, um synjun á skráningu
nýrrar stjórnar, til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Ólögráða stjórnarmaður var ástæða synjunarinnar.
Sigurður Helgi
Birgisson
Leyfilegt hámarksmagn vínanda í
blóði ökumanns verður lækkað úr
0,5 prómillum í 0,2 prómill sam-
kvæmt nýju frumvarpi til umferð-
arlaga. Er þar einnig kveðið á um
bann við að afhenda eða selja öku-
manni eldsneyti sé hann undir áhrif-
um áfengis eða ávana- eða fíkniefna.
Margar breytingar verða á gild-
andi umferðarlögum verði nýtt
frumvarp þess efnis samþykkt og
miða ákvæði hinna nýju laga að því
að herða reglur og tryggja skýrari
ákvæði. Breytingarnar eru rök-
studdar í greinargerð og er þar vís-
að til mannlegs tjóns sem hlýst af
umferðarslysum, ásamt því að 1-5%
af þjóðarframleiðslu glatist vegna
slíkra slysa. Þá verður einnig, sam-
kvæmt hinum nýju lögum, heimilt að
láta eiganda ökutækis sæta refsi-
ábyrgð ef tekin er mynd af ökutæki
hans í hraðamyndavél þó svo að ekki
sé hægt að sýna fram á að eigandinn
hafi verið undir stýri. Þetta gæti
gert það að verkum að bílaleigur
myndu bera ábyrgð á þeim sektum
sem verða við brot leigjanda.
Harðari
löggjöf í
smíðum
Leyfilegt magn
áfengis í blóði lækkað
Björgunarsveitir Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar á Vesturlandi og
þyrlusveit Landhelgisgæslu Íslands
voru kallaðar út um klukkan 16 í
gær vegna konu sem fallið hafði af
hestbaki. Var konan í reiðtúr við
Löngufjörur á sunnanverðu Snæ-
fellsnesi þegar slysið átti sér stað.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti
konuna á sjúkrahús í Reykjavík, en
samkvæmt upplýsingum frá björg-
unarsveitum er hún ekki lífs-
hættulega slösuð. Hún er þó sögð
vera með falláverka.
Björgunarmenn komu víða að,
meðal annars sveitir frá Akranesi og
Snæfellsnesi.
Hestamaður
fluttur slasaður
með þyrlu LHG
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
Jarðvegurinn í grennd við fjallið
Loðmund, sem er meðal tinda í
Kerlingarfjöllum, þar sem tveir
franskir ferðamenn óku utan vega
á dögunum, mun seint jafna sig.
Þetta segir Páll Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Fannborgar ehf. sem
rekur ferðaþjónustuna í Kerling-
arfjöllum, í samtali við mbl.is.
Þurftu ferðamennirnir hvor um sig
að greiða 200 þúsund krónur í sekt,
samtals 400 þúsund krónur, vegna
utanvegaakstursins.
„Hann er rennandi blautur vegna
þess að fyrir neðan hann er snjó-
skafl. Þetta mun verða mjög lengi
að jafna sig, áratugi,“ útskýrir Páll.
Er akstur bannaður á svæðinu
vegna bleytu. Á svipuðum slóðum
við þær þar sem bílar frönsku
ferðamannanna sátu fastir eru önn-
ur hjólför, sem hafa verið þar í um
50 ár. Nokkuð er um að fólk virði
ekki lokanir á fjallvegum á sumrin
og kveðst Páll vera orðinn þreyttur
á utanvegaakstri á svæðinu við
Kerlingarfjöll með tilheyrandi nátt-
úruspjöllum.
Mun seint jafna sig
400 þúsund
króna sekt lögð
á ferðamennina
Ljósmynd/Páll Gíslason
Utanvegakstur Bílarnir tveir pikk-
fastir í aurbleytu við Loðmund.