Morgunblaðið - 17.07.2018, Qupperneq 27
nefndum Alþingis og sat auk þess í
Íslandsdeild þingmannanefndar
EFTA 1999-2003. Síðasta kjör-
tímabilið sem hann sat á þingi
gegndi hann formennsku í Stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis
og var fulltrúi á þingi Evrópuráðs-
ins í Strassborg og er þar nú
heiðursfélagi auk þess að eiga sæti í
ECRI-nefnd Evrópuráðsins sem
fjallar um kynþáttaofbeldi og
hatursorðræðu.
„Það má nú eiginlega segja að
hús mitt sé að jafnaði opið öllum.
En á tíu ára fresti er það opnara en
endranær því þá held ég upp á af-
mæli mitt með veislu í götunni þar
sem ég bý, Grímshaganum, og þá
undir tjaldhimni ef ekki bláhimni
sem er náttúrlega ákjósanlegast.
Þar eru vinir mínir og samferða-
menn velkomnir klukkan fimm í
dag.
Að þessu sinni efni ég líka til
málstofu í Norræna húsinu sem
fjöldi erlendra gesta mun sækja.
Þess vegna verður þar töluð enska
og leitað svara við þeirri áleitnu
spurningu hvort búið sé að veikja
innviði velferðarsamfélagsins svo
mjög að við þurfum að byrja upp á
nýtt: Málstofan Do we need to rein-
vent society? verður klukkan tvö og
stendur til fjögur. Áður ætla ég að
hlusta á þau Judith Ingólfsson fiðlu-
meistara og Vladimir Stoupel píanó-
snilling leika í Hörpu á einum þess-
ara hálftíma örkonserta. Þetta er
hálf eitt til eitt. Ég ætla að leyfa
mér að hvetja sem flesta til að
koma þangað til að hlýða á þetta
frábæra listafólk. Þannig að dag-
urinn verður fullur af tónlist, pólitík
og gleði!“
Fjölskylda
Ögmundur kvæntist 2.8. 1974
Valgerði Andrésdóttur, f. 12.1. 1949,
erfðafræðingi á Tilraunastöð HÍ á
Keldum. Foreldrar Valgerðar voru
Andrés Björnsson, fyrrv. útvarps-
stjóri, og k.h., Margrét Helga Vil-
hjálmsdóttir húsmóðir.
Börn Ögmundar og Valgerðar
eru Andrés, f. 14.6. 1974, verkfræð-
ingur hjá Völku; Guðrún, f. 17.3.
1979, hagfræðingur hjá Seðlabank-
anum, maki: Jón Óskar Hallgríms-
son; Margrét Helga, f. 24.1. 1981,
líffræðingur og stundar rannsóknir
við HÍ, maki: Þorvarður Sveinsson.
Barnabörn eru sex.
Systkini Ögmundar eru Jón
Torfi, f. 9.6. 1947, prófessor
emeritus við HÍ, kvæntur Bryndísi
Ísaksdóttur bókasafnsfræðingi;
Ingibjörg, f. 12.11. 1950, fyrrver-
andi kennari og fræðslustjóri, en
hennar maður er Guðmundur Gísla-
son, fyrrv. framkvæmdastjóri;
Björn, f. 20.6. 1954, útgefandi,
kvæntur Elísabetu Guðbjörnsdóttur
lögfræðingi.
Foreldrar Ögmundar voru Jónas
B. Jónsson, f. 8.4. 1908, d. 1.4. 2005,
fyrrv. fræðslustjóri í Reykjavík, og
Guðrún Ö. Stephensen, f. 30.10.
1914, húsmóðir, d. 11.1. 2011
Ögmundur
Jónasson
Sigríður Magnúsdóttir
húsfr., frá Ánanaustum
í Rvík
Þorsteinn Pétursson
b. á Högnastöðum í Þverárhlíð, móðurbróðir
Þorsteins var Sigvaldi, afi Sigvalda Kaldalóns
Ingibjörg Þorsteinsdóttir
húsfr. að Hurðarbaki og Hólabrekku
Ögmundur H. Stephensen
b. að Hurðarbaki í Kjós og Hólabrekku í Rvík
Guðrún Ö. Stephensen
húsmóðir í Rvík
Guðrún Ögmundsdóttir
húsfr., frá Hlemmiskeiði
Hans Stephensen
b. á Hlemmiskeiði á Skeiðum, síðar að Hurðarbaki, móður-
systir Hans var Þuríður, langamma Vigdísar Finnbogadóttur
Sigríður
Stefánsdóttir
réttarfélagsfr.
í Rvík
Torfi Jónsson b. á Torfalæk
Helgi Áss Grétarsson
dósent í HÍ og núv.
Ísl.meistari í skák
Hálfdan Guðjónsson vígslubiskup
Valur Ingi-
mundarson
prófessor
í HÍ
Stefán Ögmunds-
son prentari og
form.Hins ísl.
Prentarafélags
Guðmundur Jónsson skólastj. á Hvanneyri
Guðfríður Lilja Grétars-
dóttir fv. þingmaður
Hannes
Pétursson
skáld
Ingimundur
Sigfússon
forstjóri og
sendiherra
Þorsteinn Stephensen leikari
Grétar
Áss
Sigurðs-
son við-
skiptafr.
í Rvík
Sigríður Guð-
rún Sigtryggs-
dóttir húsfr. á
Sauðárkróki
Sigfús B.
Bjarnason
stofnandi
Heklu
Jón Torfason
íslenskufræðingur
og skákmaður
Sigurður
Björns-
son
brúar-
smiður í
Rvík
Guðrún Guðjónsdóttir
húsfr. á Blönduósi
Margrét I. Sig-
fúsdóttir húsfr. á
Neðri-Svertings-
stöðum, V-Hún.
Sigríður Stephensen
húsfr. í Saurbæ í Eyjaf.
Sigfús
Bergmann
Guðmundsson
b. á Uppsölum í
Miðfirði
Drífa Snæ-
dal frkvstj.
Starfs-
greinasam-
bandsins
Helgi Hálfdanar-
son þýðandi
Þorbjörg Helgadóttir
húsfr. og ljósmóðir á Marðarnúpi
Björn Guðmundsson
b. á Marðarnúpi í
Vatnsdal
Ingibjörg Björnsdóttir
húsfr. á Torfalæk
Jón Guðmundsson
b. á Torfalæk á Ásum
Sigurlaug Jónsdóttir
húsfr., frá Sauðanesi
Guðmundur Guðmundsson
b. á Torfalæk
Úr frændgarði Ögmundar Jónassonar
Jónas B. Jónsson
fræðslustjóri í Rvík
Stefán „sterki“ Stephensen prestur
Einar Stephensen form. Landssamb. vörubifreiðastj.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018
SKECHERS FLEX APPEAL 2.0 DÖMUSKÓR MEÐ
MEMORY FOAM INNLEGGI. STÆRÐIR 36-41
DÖMUSKÓR
KRINGLU OG SMÁRALIND
7.797
VERÐ ÁÐUR 12.995
40%
AFSLÁTTUR
Ingvar Jónadab Guðjónssonfæddist 17. júlí 1888 að Neðra-Vatnshorni á Vatnsnesi, V-Hún.
Foreldrar hans voru hjónin Guðjón
Helgason, f. 1864, d. 1940, bóndi, síð-
ar verkstjóri hjá Ásgeiri Péturssyni
kaupmanni og fiskimatsmaður, ætt-
aður úr Vopnafirði, og Kristín Árna-
dóttir, f. 1868, d. 1923, frá Hörgshóli.
Ingvar var elstur átta systkina og
fór á barnsaldri til vandalausra og
ólst upp á ýmsum stöðum í Húna-
vatnsþingi. Hann fór fyrst til sjó-
róðra suður í Hafnir í Gullbringu-
sýslu, er hann var 17 ára og fór
gangandi að norðan. Ingvar hóf for-
mennsku árið 1909 og 1915 tók hann
farmannapróf við Stýrimannaskól-
ann. Árin 1916-1920 rak hann útgerð
í félagi við fyrrnefndan Ásgeir og var
skipstjóri á skipum sem þeir áttu
saman.
Ingvar hóf síldarsöltun árið 1920
og lok 3. áratugarins var hann orðinn
stærsti síldarsaltandi á Norðurlandi.
Ein skýringin er talin vera sú að
hann bjó skip sín betur að veiðar-
færum og öðrum búnaði en flestir
aðrir. Hann fékk því hæfa skip-
stjórnarmenn til liðs við sig og skip
hans voru ætíð meðal þeirra sem
mest öfluðu. Mestur var útflutningur
hans árið 1932, næstum 50.000
tunnur.
Ingvar var þó ekki einungis í síld
því hann sótti einnig þorskveiðar
með góðum árangri. Skip sín bjó
Ingvar frá Akureyri og var þar bú-
settur að mestu en nær allan síld-
arfeng sinn lagði hann upp á Siglu-
firði. Hann stundaði einnig mikla
ræktun á jörðinni sinni, Kaupangi í
Eyjafirði. Ingvar var hjálpsamur og
gaf stórfé til menningarmála, svo
sem barnaheimila og kirkna.
Ingvar kvæntist 1918 Ólafíu Haf-
liðadóttur en þau skildu. Dóttir
þeirra var Kristín, f. 1918. Önnur
börn Ingvars: Björn, f. 1917, Helga,
f. 1924, Hulda, f. 1926, Gunnar, f.
1930, Hjördís, f. 1932, Inga, f. 1933,
og Sigurður, f. 1935, allt hálfsystkin.
Öll eru þau látin nema Inga.
Ingvar lést 8. desember 1943.
Merkir Íslendingar
Ingvar
Guðjónsson
90 ára
Magnús Bjarnason
80 ára
Bragi Kristjónsson
Þorsteinn S. Þorsteinsson
75 ára
Ásgeir Þorvaldsson
Áslaug Garibaldadóttir
Guðmundur F. Jónasson
Guðmundur Pálmar
Ögmundsson
Hjördís Gréta Traustadóttir
Sonja Hulda
Sigurjónsdóttir
Þórhildur Sigurðardóttir
70 ára
Halldóra Magnúsdóttir
Hávarður Sigurjónsson
Hjördís Thors
Kristinn Atlason
Ómar Þröstur Björgólfsson
Rúnar Gunnarsson
Sigríður María
Gunnarsdóttir
Sigrún Guðlaugsdóttir
Sigurjón Helgason
Þór Sævar Sigurðsson
Ögmundur Jónasson
Örn Geir Jensson
60 ára
Birgir Ottósson
Elsa María Jónsdóttir
Gísli Garðarsson
Hólmfríður Á. Í
Sigurpálsdóttir
Piotr Chowaniec
Snjólaug Kristín
Helgadóttir
Súsanna Nellý Blanco
Teresa Kristín
Eymundsdóttir
50 ára
Arnhildur Guðrún Leifsd.
Bogdan Piotr Doktór
Bryndís Björk
Kristjánsdóttir
Haraldur Emilsson
Kristín Anna Björnsdóttir
Kristín Björg Kristjánsdóttir
Linda Mjöll Stefánsdóttir
Magnús Guðmundsson
Ólafur Tryggvi Gíslason
Sigurrós Sveinsdóttir
Víðir Sigrúnarson
40 ára
Andrés Watjanarat
Bjarni Lúðvíksson
Davíð Halldór Marinósson
Elfa María Geirsdóttir
Guðmundur Guðjónsson
Halldór Ingólfsson
Inese Berzina
Kristinn E. Guðmundsson
Micheal Patrick Ryan
Ragnhildur Gunnarsdóttir
Ríkarður Örn Ragnarsson
Rosileide Gomes Costa
Signý Dóra Harðardóttir
Sigurður Ívar Sölvason
Steinþór Jónas Einarsson
Sverrir Steinn Sverrisson
30 ára
Andrius Zelba
Bergdís Arna Guðbjartsd.
Davíð F. Ómarsson Tunmo
Erla Kristín Pétursdóttir
Giedré Albrikaité
Gísli Þorkelsson
Grímur Már Þórólfsson
Hafrún G. Hermóðsdóttir
Hólmfríður Hulda Pétursd.
Jakub Maciej Lenda
Linda Fingere
Maria Frunze
Michael Robert Walker
Mikael Á.B. Þorsteinsson
Til hamingju með daginn
30 ára Bergdís er Reykvík-
ingur, lauk skrifstofunámi
hjá MK og býr í Norðlinga-
holti.
Maki: Gabríel Daði Gunn-
arsson, f. 1983, raungreina-
kennari í FB.
Börn: Daníel Steinn, f.
2015, og Helena Dís, f.
2018.
Foreldrar: Guðbjartur Grét-
ar Gissurarson, f. 1954, sjó-
maður, og Stefanía María
Aradóttir, f. 1953, rekur
Saumastofu Íslands.
Bergdís Arna
Guðbjartsdóttir
30 ára Hólmfríður er Pat-
reksfirðingur en býr í
Reykjavík. Hún er menntuð
í hótelstjórnun frá Cesar
Ritz College í Sviss.
Maki: Úlfar Andri Jónasson,
f. 1985, tölvusérfræðingur
hjá Deloitte.
Börn: Natan Lyngar, f. 2011,
og Hafþór Hrafn, f. 2016.
Foreldrar: Sigurþór Pétur
Þórisson, f. 1962, verktaki á
Patreksfirði, og Inga Fríða
Einarsdóttir, f. 1965, bús. á
Ísafirði.
Hólmfríður H.
Pétursdóttir
40 ára Signý Dóra er
Hafnfirðingur. Hún er
hjúkrunarfræðingur og
ljósmóðir í fósturgrein-
ingu á LSH.
Börn: Anna María, f.
2000, Birna Margrét, f.
2004, og Emelía Guð-
björg, f. 2008.
Foreldrar: Hörður Einars-
son, f. 1952, pípulagn-
ingameistari, og Ólöf Þór-
ólfsdóttir, f. 1955, matar-
tæknir. Þau eru bús. í
Hafnarfirði.
Signý Dóra
Harðardóttir