Morgunblaðið - 17.07.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.07.2018, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018 Hildur Loftsdóttir hilo@mbl.is Brasilíski söngvarinn og gítarleik- arinn Ife Tolentino og Óskar Guð- jónsson saxófónleikari halda tón- leika í Mengi í kvöld og annað kvöld, sem hefjast kl. 21. Árið 2012 gáfu þeir út diskinn Você Passou Aqui, og ætla nú á tónleikunum að taka upp nýja plötu. Ife er ein stór sól „Það má eiginlega segja að þetta sé þriðja platan, en samt er önnur platan ekki komin út ennþá. Við tókum hana upp fyrir þremur árum og nú er Ife kominn hingað til lands til að klára hana,“ segir Óskar. „Matthías Hemstock trommuleik- ari kom síðan á tónleika hjá okkur í apríl og hann var alveg heillaður. Ife er náttúrulega alveg einstakur maður, músíkin einstök og nálg- unin líka. Matthías vildi endilega taka okkur upp og gerir það á þess- um tónleikum og það verður vænt- anlega þriðja plata okkar. Á síðustu plötu voru hinir og þessir standardar og eitt Gershwin- lag en á nýju plötunni eru öll lögin eftir Ife. Ég dró þau upp úr skúff- unni hjá honum og það var smá erfitt. Í hans ególausu tilveru ef- aðist hann um að þetta væri nógu gott, en mér fannst þetta svo fallegt og lögin standast algjörlega saman- burð við einn besta lagahöfund í heimi, sem er Antonio Carlos Jobim. Nú ætlum við að hljóðblanda plötuna með Ívari Ragnarssyni upptökumanni, og hlustum svo á þriðju plötuna og sjáum hvort við viljum gefa hana út.“ - Hvernig finnst Brasilíubúanum að koma hingað í sólarleysið? „Hann er bara ein stór sól sjálfur. Ein fallegasta mannvera sem ég hef kynnst.“ Flókin og lagræn mýkt - Hvað heillar þig við þessa tón- list? „Það er einhver fegurð í harm- óníunni, í melódíunni og ryþman- um. Það er einhver fegurð sem er svo mikil mýkt í sem á við mig. Ég held t.d. að #metoo-byltingin muni hafa gífurleg áhrif á músíkbrans- ann, vegna þess að svo mikið af músík er keyrt áfram af karllægri spennu. Það á ekki við um brasil- ísku tónlistina, og sérstaklega ekki þá sem á rætur að rekja til bossa- nova-byltingarinnar frá sjöunda áratugnum. Hún er harmónískt mjög tengd sönglagahefð Ameríku, en hefur líka harmóníu sem er enn útpældari en nokkur djassharm- ónía. Ef maður skoðar þessa músík á nótum virðist hún svo flókin að maður heldur að maður geti aldrei spilað þetta, en þegar maður hlust- ar á hana rennur hún svo mjúkt. Það er mýkt í tónlistinni, en samt er hún svo flókin. Og fyrir mig er auð- velt að spila flókna tónlist, ef hún er öll á mýktina, í stað þess að vera keyrð áfram á testósteróni. Því þá er eins og flæðið í sköpuninni lokist hjá mér í öllum látunum. Persónu- leiki minn virkar bara þannig.“ Samspil og töfrar - Fara íslenskir tónsköpunar- kraftar og brasilískir vel saman? „Já, Ife finnst langskemmtilegast að spila með Íslendingum því þeir hafa eitthvað nýtt og öðruvísi að koma með inn í þessa músík. Og þá verður þetta að einhverju öðru og tónlistin eignast sitt eigið einstaka líf. Það verður til blanda af sköp- unarkraftinum sem er hér og hugs- unarhættinum að kýla á það og láta ekkert stoppa sig, og svo þessari mýkt og yfirlegu. Ife situr hérna inni í stofu hjá mér fjóra klukku- tíma á dag að leita að réttu nálgun- inni í einhverjum hljómum í sömu lögunum endalaust!“ - Hvert er þitt framlag sem djass- ari? „Þetta er alltaf samspil. Í fyrsta lagi þarf maður að bera mikla virð- ingu fyrir tónlistinni, fara algjör- lega inn undir skinnið á henni og vera hún. En að sama skapi koma með sitt eigið og sinn persónuleika inn í þetta, og það er einhver blanda sem er kannski svolítið flók- in. Því það sem þú spilar hefur áhrif á það sem hinir tónlistamennirnir gera, og getur breytt því hvað og hvernig þeir leika. Þú þarft að treysta þeim sem þú ert að spila með eða í rauninni elska hann. Þið togið eitthvað út úr hvor öðrum og þá verða til þessir töfrar.“ Nálgast tónlist eins - Hvar eruð þið að músísera? „Þetta er áreiðanlega 17. árið sem Ife kemur hingað. Við höfum mest verið heima hjá mér, en svo alltaf skroppið í hringferð og spilað hér og þar, en ferðaþjónustan hefur breytt þessu og þetta er aðeins flóknara en það var. Núna ætlum við því að einbeita okkur að því að klára plötuna, og sjá til með frek- ara tónleikahald.“ - Þú hefur sagt að það hafi verið ást við fyrsta tón hjá ykkur Ife. „Já, hann talaði um það. Þótt við þekktumst ekki neitt var strax eitt- hvað svo auðvelt á milli okkar frá fyrsta lagi. Hann setti nótnablað fyrir framan mig og svo þegar hann leit upp á mig var ég löngu búinn að loka augunum og byrjaður að spila. Það er líka hvernig hann spilar og nálgast tónlist sem er mjög nálægt því hvernig ég sjálfur heyri músík þannig að þetta er ofsalega gefandi og áreynslulaust,“ segir Óskar Guð- jónsson saxófónleikari að lokum. Áreynslulaus brasilísk fegurð  Ife og Óskar spila saman í Mengi Mýkt Óskar og Ife Tolentino taka upp þriðju plötuna saman. Ljósmynd/Spessi Svanurinn 12 Afvegaleidd níu ára stúlka er send í sveit um sumar til að vinna og þroskast. Morgunblaðið bbbmn IMDb 6,6/10 Bíó Paradís 18.00 Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm Bíó Paradís 20.00 101 Reykjavík Metacritic 68/100 IMDb 6,9/10 Bíó Paradís 22.00 You Were Never Really Here 16 Metacritic 84/100 IMDb 6,9/10 Bíó Paradís 22.30 Three Billboards Outside Ebbing, Missouri 16 Metacritic 88/100 IMDb 8,2/10 Bíó Paradís 17.45 Óþekkti hermaðurinn 16 IMDb 8,1/10 Bíó Paradís 17.30 The Florida Project 12 Metacritic 92/100 IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 22.00 BPM (120 Beats Per Minute) 12 Bíó Paradís 20.00 Skyscraper 12 Myndin fjallar um fyrrum aðal samningamann alríkis- lögreglunnar í gíslatöku- málum, sem Johnson leikur, sem nú vinnur við öryggis- gæslu í skýjakljúfum. Metacritic 52/100 IMDb 6,8/10 Laugarásbíó 20.00, 22.15 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.40, 20.00, 22.20, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.20 Smárabíó 17.00, 17.10, 19.30, 19.50, 22.00, 22.20 Háskólabíó 18.00, 20.50 Borgarbíó Akureyri 19.30, 21.30 Jurassic World: Fallen Kingdom 12 Þegar eldfjallið á eyjunni vaknar til lífsins þurfa Owen og Claire að bjarga risaeðl- unum frá útrýmingu. Morgunblaðið bbmnn Metacritic 52/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 22.15 Sambíóin Egilshöll 20.00 Borgarbíó Akureyri 21.40 Ævintýraferð fakírsins Háskólabíó 18.30, 20.40 Adrift 12 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 56/100 IMDb 6,7/10 Laugarásbíó 22.20 Love, Simon Smárabíó 17.20, 19.50, 22.30 Book Club Metacritic 53/100 IMDb 6,3/10 Smárabíó 15.10, 17.30, 20.00 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.30 Tag 12 Lítill hópur fyrrum bekkjar- félaga skipuleggur flókinn, árlegan „klukk“ leik, sem krefst þess að þátttakendur þurfa sumir að ferðast um landið þvert og endilangt. Metacritic 56/100 IMDb 7,1/10 Sambíóin Álfabakka 15.20, 17.40, 20.00 Sambíóin Egilshöll 22.40 Sambíóin Kringlunni 22.00 Sambíóin Akureyri 22.30 Ocean’s 8 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 61/100 IMDb 6,3/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Kringlunni 17.00, 21.00 Solo: A Star Wars Story 12 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 62/100 IMDb 7,2/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Deadpool 2 16 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 66/100 IMDb 8,1/10 Smárabíó 22.20 Hin Ótrúlegu 2 Bob Parr, Hr. Ótrúlegur, þarf að annast Jack-Jack á með- an Helen, Teygjustelpa, fer og bjargar heiminum. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,9/10 Laugarásbíó 16.00 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 16.00, 18.30, 19.30 Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00 Sambíóin Keflavík 17.30 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Mavis kemur Drakúla á óvart með því að skipuleggja fjöl- skylduferð á lúxus skrímsla skemmtiferðaskipi, þannig að hann geti fengið hvíld frá eigin hótelrekstri. Metacritic 59/100 IMDb 6,7/10 Sambíóin Egilshöll 17.40 Smárabíó 14.50, 15.00, 17.20 Háskólabíó 18.10 Borgarbíó Akureyri 17.30 Draumur Myndin skoðar ósagða sögu Mjallhvítar, Öskubusku og Þyrnirósar, sem komast að því að þær eru allar trúlof- aðar sama draumaprins- inum. Prinsinn upplifir þær breytingar að verða talinn ómótstæðilegur af flestum eftir að álfadís hellir á hann töfradufti í miklu magni. Smárabíó 15.00 Hope van Dyne og Dr. Hank Pym skipuleggja mikilvæga sendiför, þar sem Ant-Man þarf að vinna með The Wasp, til að leiða í ljós leynd- armál úr fortíðinni. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 70/100 IMDb 7,6/10 Laugarásbíó 19.50, 22.20 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.30, 22.00 Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00, 22.30 Ant-Man and the Wasp 12 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdarverkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Ís- lands þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Morgunblaðið bbbbb Háskólabíó 18.10 Bíó Paradís 20.00 Sicario: Day of the Soldado 16 Barátta Bandaríkjamanna við eiturlyfjabaróna í Mexíkó tekur á sig jafnvel alvarlegri mynd þegar hryðjuverka- mönnum er smyglað yfir landamærin. Metacritic 60/100 IMDb 7,4/10 Smárabíó 19.40, 22.10 Háskólabíó 21.10 Borgarbíó Akureyri 19.30 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.