Morgunblaðið - 18.07.2018, Blaðsíða 8
Þessa dagana rignir yfir netnot-endur póstum og tilkynningum
þar sem netverslanir, fjölmiðlar og
fleiri vilja endurnýja skilmála um
notkun persónuupplýsinga. Til-
efnið er gildistaka nýrra persónu-
verndarlaga sem tekin eru inn í ís-
lenskan rétt frá Evrópusamband-
inu. Markmiðið er að koma böndum
á notkun fyrirtækja á persónu-
upplýsingum. En munu nýju lögin
breyta einhverju? Ekki er víst að
þessi lög skipti miklu fyrir almenn-
ing. Flestir hafa í það minnsta hing-
að til kosið að þægindin vegi
þyngra en persónuupplýsingarnar
sem þau kosta.
Þegar hafist var handa við aðkynna og undirbúa innleiðingu
laganna fyrir tveimur árum voru
sérfræðingar um persónuvernd
fáir. Með hinum nýju lögum þurfa
allar opinberar stofnanir, ráðu-
neyti og sveitarfélög að ráða per-
sónuverndarfulltrúa. Í frétt í
Morgunblaðinu á mánudag segir
Vigdís Eva Líndal, skrifstofustjóri
upplýsingaöryggis hjá Persónu-
vernd, að í liðinni viku hafi tilkynn-
ingar um ráðningu persónuvernd-
arfulltrúa frá stjórnvöldum verið
komnar í 41.
Hjá Persónuvernd hefur veriðfjölgað um fimm starfsmenn
til viðbótar við þá sjö sem fyrir voru
og gert er ráð fyrir fjárheimildum
til að fjölga stöðugildum enn frekar
hjá stofnuninni.
Það er því ljóst að lögin eru at-vinnuskapandi hvað sem öðru
líður.
Uppgrip í
einkamálum
STAKSTEINAR
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2018
Á Skálholtshátíð sunnudaginn 22. júlí
nk. vígir Agnes M. Sigurðardóttir,
biskup Íslands, sr. Kristján Björns-
son, nýkjörinn vígslubiskup í Skál-
holti, og setur hann í embætti við
messu í Skálholtsdómkirkju.
Messan hefst kl. 13.30 og er fólk
hvatt til að koma tímanlega á staðinn,
segir í frétt á heimasíðu biskups.
Prestar og biskupar ganga hempu-
klæddir og skrýddir úr skóla til kirkju
með öðrum vígsluvottum og gestum
og pílagrímar ljúka göngu sinni úr
Strandarkirkju
og ofan úr Borg-
arfirði með þess-
ari kirkjugöngu.
Eftir vígslu-
messuna, sem er
opin öllum, býð-
ur biskup Ís-
lands til kaffi-
veitinga í Skál-
holtsskóla.
Skálholtshátíð er haldin þessa helgi
vegna Þorláksmessu á sumri. Þá er
minnst Þorláks helga Þórhallssonar,
verndardýrlings Íslendinga. Hátíðin
hefst fimmtudaginn 19. júlí kl. 20 með
tónleikum Metropolitan Flute Orc-
hestra, sem er hluti af Sumartónleik-
um í Skálholti.
Föstudaginn 20. júlí kl. 12, á sjálfri
Þorláksmessu á sumri, verður úti-
messa við Þorlákssæti sem fráfarandi
vígslubiskup, sr. Kristján Valur Ing-
ólfsson, stýrir. Hefst hún á tröppum
Skálholtsdómkirkju með söng og
klukknahringingu og verður gengið
þaðan yfir kirkjuhlaðið að sætinu. Há-
tíðin heldur svo áfram með tónleikum
laugardaginn 21. júlí kl. 16. Þar syng-
ur Skálholtskórinn undir stjórn Jóns
Bjarnasonar og er einsöngvari Bene-
dikt Kristjánsson.
Sunnudaginn 22. júlí kl. 11 heldur
Jón Bjarnason orgeltónleika í kirkj-
unni. Eftir vígslumessuna og kaffi-
veitingar verður boðið til hátíðarsam-
komu í Skálholtsdómkirkju með
ávörpum, erindi, einsöng og hljóð-
færaleik. sisi@mbl.is
Vígslubiskup settur í embætti
Kristján
Björnsson
Á næstu tveimur áratugum mun
fjöldi flugvéla meira en tvöfaldast
samkvæmt nýrri skýrslu Airbus um
framtíð flugvélamarkaðarins. Airbus
telur að á árinu 2037 verði tæplega
48 þúsund flugvélar í háloftunum en
það eru um 123% fleiri flugvélar en í
dag. Þá segir skýrslan líka að Kefla-
víkurflugvöllur verði einn af 19 mik-
ilvægustu flugvöllum Evrópu árið
2027.
Aukning um 4,4% á hverju ári
Í fyrra ferðaðist 4,1 milljarður far-
þega með flugi en talið er að far-
þegafjöldi muni aukast um 4,4% á
hverju ári á heimsvísu. Íslendingar
hafa þó verið duglegri að fara til út-
landa í ár, en 14,4% fleiri Íslend-
ingar fóru til útlanda í júní í ár miðað
við í fyrra, samkvæmt tölum frá
Ferðamálastofu og Isavia.
Talsverð endurnýjun er talin
nauðsynleg á flugflota flugfyrirtækj-
anna en flugvélar á borð við Boeing
737, Airbus A320 eða aðrar sam-
bærilegar vélar sem eru með færri
en 230 sæti fyrir farþega eru taldar
líklegastar fyrir fyrirtækin að
kaupa. Ef framleiðsla á Boeing 737
heldur áfram næstu tuttugu árin
verður hún sú tegund flugvéla sem
hefur hvað lengst þjónustað flug-
farþega eða í um sjö áratugi.
Fjöldi flug-
véla mun
tvöfaldast
Eitt best geymda
leyndarmálið á markaðnum
Weleda Skin Food er í miklu uppáhaldi hjá þekktum tískufyrirsætum og förðunarfræðingum um
allan heim. Skin Food er 100% lífrænt árangursríkt alhliða krem sem nærir þurra og viðkvæma húð
og kemur jafnvægi á húðina. Skin Food kom fyrst á markað fyrir meira en 80 árum síðan og hefur
uppskriftin verið óbreytt síðan. Kremið er unnið úr lífrænt ræktuðum Stjúpum, Baldursbrá, Morgunfrú
og Rósmarín, gott krem fyrir alla fj ölskylduna – Í samhljómi við mann og náttúru.
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/WeledaIceland
Veður víða um heim 17.7., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 10 léttskýjað
Akureyri 13 léttskýjað
Nuuk 6 súld
Þórshöfn 11 léttskýjað
Ósló 30 heiðskírt
Kaupmannahöfn 23 rigning
Stokkhólmur 30 heiðskírt
Helsinki 30 heiðskírt
Lúxemborg 26 skýjað
Brussel 23 heiðskírt
Dublin 19 skýjað
Glasgow 18 léttskýjað
London 22 léttskýjað
París 25 heiðskírt
Amsterdam 20 léttskýjað
Hamborg 28 heiðskírt
Berlín 27 heiðskírt
Vín 22 skýjað
Moskva 27 heiðskírt
Algarve 28 heiðskírt
Madríd 31 heiðskírt
Barcelona 29 léttskýjað
Mallorca 29 léttskýjað
Róm 28 léttskýjað
Aþena 32 heiðskírt
Winnipeg 20 léttskýjað
Montreal 26 rigning
New York 25 þoka
Chicago 26 léttskýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:51 23:18
ÍSAFJÖRÐUR 3:21 23:58
SIGLUFJÖRÐUR 3:03 23:42
DJÚPIVOGUR 3:13 22:55