Morgunblaðið - 18.07.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.07.2018, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2018 Fátítt er að faldir fjársjóðir úr sögu- sögnum finnist nokkurn tímann en segja má að kvikmyndaunnendur hafi fundið einn slíkan nýverið þegar gamalt handrit eftir kvikmyndaleik- stjórann Stanley Kubrick var upp- götvað. Frá þessu er sagt á fréttavef The Guardian. Stanley Kubrick er gjarnan talinn einn besti og frumlegasti kvik- myndagerðarmaður sögunnar en eftir hann liggja margar frægustu kvikmyndir allra tíma. Má þar nefna The Shining, Dr. Strangelove og 2001: A Space Odyssey meðal ann- arra. Handritið nýfundna er þó eldra en þessar myndir og var skrifað árið 1956 í samstarfi við rithöfundinn Calder Willingham, sem vann einnig með Kubrick að myndinni Paths of Glory. Kubrick, sem enn var ungur og tiltölulega óreyndur, hafði skrifað handritið fyrir kvikmyndaframleið- andann MGM en hætt virðist hafa verið við gerð myndarinnar vegna samningsbrots af hálfu Kubricks. Handritið heitir Burning Secret (Brennandi leyndarmál) og er byggt á smásögunni Brennendes Geheimn- is frá árinu 1911 eftir Stefan Zweig. Saga Zweigs fjallar um barón sem reynir að draga miðaldra konu við austurrísku Alpana á tálar. Konan á fullt í fangi með að annast veikan son sinn svo baróninn reynir að ná til hennar með því að vingast við soninn. Sonurinn telur sig illa svik- inn þegar baróninn beinir athygli sinni að móður hans. Sagan hafði áður verið kvikmynd- uð í Þýskalandi árið 1933 og átti síð- ar eftir að vera endurgerð árið 1988 í Bretlandi. Vel má vera að nú verði sagan brátt kvikmynduð í þriðja sinn því handrit Kubricks er nánast fullbúið og þykir gefa góða sýn á hvernig hann hugsaði sér myndina. thorgrimur@mbl.is Ungur Stanley Kubrick árið 1949, sjö árum áður en hann skrifaði handritið. Týnt handrit eftir Kubrick uppgötvað Mamma Mia! Here We Go Again Framhald söngvamyndarinnar Mamma Mia! sem byggð var á sam- nefndum söngleik sem unninn var upp úr lögum ABBA. Sagan hefst nokkrum árum eftir að fyrri mynd lauk en í henni sagði af mæðgunum Donnu og Sophie, vinkonum Donnu og þremur körlum sem komu til greina sem mögulegir feður Sophie. Nú hefur hún tekið við rekstri gisti- heimilisins af móður sinni og þegar hún verður þunguð fer hún að hugsa til þess hvernig aðstæðurnar voru árið 1979 þegar hún kom undir og móðir hennar var í svipuðum spor- um og hún. Leikstjóri er Ol Parker og með aðal- hlutverk fara Lily James, Colin Firth, Amanda Seyfried, Meryl Streep, Stellan Skarsgård, Pierce Brosnan, Christine Baranski, Andy Garcia, Cher, Dominic Cooper, Jer- emy Irvine og Julie Walters. Rotten Tomatoes: 88% The Equalizer 2 Framhald spennumyndarinnar Equalizer. Sem fyrr er það hinn grjótharði Robert McCall, sjálfskip- aður riddari réttlætisins, sem tekst á við glæpamenn. Þegar náin vinkona hans er myrt einsetur hann sér að finna hina seku og refsa þeim. Leik- stjóri er Antoine Fuqua og með aðal- hlutverk fara Denzel Washington, Pedro Pascal og Bill Pullman. Hereditary Hrollvekja með Toni Collette í aðal- hlutverki. Collette leikur Annie Gra- ham sem missir móður sína og virð- ist andlát hennar leysa úr læðingi álög sem hvílt hafa á Graham- fjölskyldunni lengi vel. Hvorki An- nie né eiginmaður hennar og börn vita hvað eigi til bragðs að taka. Leikstjóri myndarinnar er Ari Aster og með önnur helstu hlutverk fara Alex Wolff, Milly Shapiro, Gabriel Byrne og Ann Dowd. Rotten Tomatoes: 89% Hrollvekjandi Toni Collette viti sínu fjær í hrollvekjunni Hereditary. Gleði, glæpir og gæsahúð Bíófrumsýningar Undir trénu 12 Agnes grípur Atla við að horfa á gamalt kynlífs- myndband og hendir honum út. Atli flytur þá inn á for- eldra sína, sem eiga í deilu við fólkið í næsta húsi. IMDb 7,1/10 Bíó Paradís 22.00 Mýrin 12 Metacritic 75/100 IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 18.00 Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm Bíó Paradís 20.00 You Were Never Really Here 16 Bíó Paradís 18.00 Three Billboards Outside Ebbing, Missouri 16 Metacritic 88/100 IMDb 8,2/10 Bíó Paradís 20.00 Óþekkti hermaðurinn 16 IMDb 8,1/10 Bíó Paradís 22.00 The Florida Project 12 Metacritic 92/100 IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 22.15 The Party 12 Gamanleikur sem snýst upp í harmleik. Metacritic 73/100 IMDb 6,6/10 Bíó Paradís 20.00 Mamma Mia! Here We Go Again Nú hefur Sophie tekið við rekstri gistiheimilisins og lærir um fortíð móður sinn- ar á sama tíma og hún er ófrísk sjálf. Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.00, 19.30, 21.55 Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00, 22.30 Smárabíó 16.30, 16.50, 19.10, 19.40, 22.10 Háskólabíó 18.00, 21.00 Hereditary 16 Eftir að móðir Annie Graham deyr virðist dauði hennar leysa úr læðingi einhvers- konar álög sem hvílt hafa á Grahamfjölskyldunni lengi. Hvorki Annie né eiginmað- ururinn hennar vita hvernig eigi að bregðast við. Metacritic 87/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.30, 22.40 Sambíóin Egilshöll 22.20 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.40 Sambíóin Keflavík 22.30 The Equalizer 2 16 Framhald The Equalizer frá árinu 2014 sem var byggð á samnefndum sjónvarpsþátt- um um fyrrverandi lögreglu- mann sem er nú leigumorð- ingi. Laugarásbíó 19.50, 22.20 Smárabíó 19.30, 21.50, 22.20 Háskólabíó 20.40 Borgarbíó 19.30 Book Club Metacritic 53/100 IMDb 6,3/10 Háskólabíó 20.50 Jurassic World: Fallen Kingdom 12 Þegar eldfjallið á eyjunni vaknar til lífsins þurfa Owen og Claire að bjarga risaeðl- unum frá útrýmingu. Morgunblaðið bbmnn Metacritic 52/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 22.15 Love, Simon Háskólabíó 18.00 Tag 12 Lítill hópur fyrrum bekkjar- félaga skipuleggur flókinn, árlegan „klukk“ leik, sem krefst þess að þátttakendur þurfa sumir að ferðast um landið þvert og endilangt. Metacritic 56/100 IMDb 7,1/10 Sambíóin Álfabakka 15.20, 17.40, 20.00 Ocean’s 8 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 61/100 IMDb 6,3/10 Sambíóin Kringlunni 19.40, 22.10 Hin Ótrúlegu 2 Bob Parr, Hr. Ótrúlegur, þarf að annast Jack-Jack á með- an Helen, Teygjustelpa, fer og bjargar heiminum. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,9/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.00 Sambíóin Akureyri 17.30 Sambíóin Keflavík 17.30 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Mavis kemur Drakúla á óvart með því að skipuleggja fjöl- skylduferð á lúxus skrímsla skemmtiferðaskipi, þannig að hann geti fengið hvíld frá eigin hótelrekstri. Vinir hans og skósveinar fara með. En þegar þau leggja úr höfn, þá verður Drakúla ástfanginn af hinum dularfulla skipstjóra, Ericka. Metacritic 59/100 IMDb 6,7/10 Sambíóin Egilshöll 17.40 Háskólabíó 17.50 Borgarbíó Akureyri 17.30 Paddington 2 Metacritic 88/100 IMDb 7,9/10 Paddington lendir í klemmu þegar þjófur stelur gjöf sem Paddington ætlaði að kaupa til að gefa frænku sinni í af- mælisgjöf. Smárabíó 11.00 Hope van Dyne og Dr. Hank Pym skipuleggja mikilvæga sendiför, þar sem Ant-Man þarf að vinna með The Wasp, til að leiða í ljós leynd- armál úr fortíðinni. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 70/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.00, 19.30, 22.00 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30 Ant-Man and the Wasp 12 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdarverkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Ís- lands þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Morgunblaðið bbbbb Háskólabíó 18.10, 21.10 Bíó Paradís 18.00 Skyscraper 12 Myndin fjallar um fyrrum aðal samningamann alríkis- lögreglunnar í gíslatökumálum, sem Johnson leikur, sem nú vinnur við öryggisgæslu í skýjakljúfum. Metacritic 52/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.