Morgunblaðið - 18.07.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2018
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Þingmenn úr röðum repúblikana í
Bandaríkjunum hafa gagnrýnt harð-
lega framgöngu Donalds Trumps for-
seta á fundi hans með Vladimír Pútín
Rússlandsforseta í Helsinki í fyrra-
dag. Bandaríkjaforseti hefur einkum
verið gagnrýndur fyrir að taka af-
stöðu með Pútín í deilu við bandarísk
yfirvöld og draga í efa þá niðurstöðu
leyniþjónustofnana landsins að Rúss-
ar hafi haft afskipti af forsetakosn-
ingunum árið 2016.
Einn þingmannanna sem gagn-
rýndu framgöngu Trumps er öld-
ungadeildarþingmaðurinn Lindsey
Graham, sem hefur oft beitt sér fyrir
stefnu forsetans á þinginu. Hann
sagði að Trump hefði misst af tæki-
færi til að draga Rússa til ábyrgðar
fyrir að hafa afskipti af kosningunum
í nóvember 2016 og vara þá við því að
halda áfram að reyna að hafa áhrif á
kosningar í Bandaríkjunum. „Rússar
líta á þetta svar Trumps sem merki
um veikleika og það skapar miklu
fleiri vandamál en það leysir,“ sagði
Graham.
Á blaðamannafundi með Pútín eft-
ir fjögurra klukkustunda viðræður
þeirra í Helsinki var Trump spurður
hvort hann styddi þá niðurstöðu
leyniþjónustofnana Bandaríkjanna
að Rússar hefðu haft afskipti af kosn-
ingunum í nóvember 2016 þegar
hann sigraði Hillary Clinton, forseta-
efni demókrata. Forsetinn svaraði að
Dan Coats, yfirmaður bandarísku
leyniþjónustunnar, hefði sagt að
stofnanirnar teldu þetta en Pútín
segði að Rússar hefðu ekki haft af-
skipti af kosningunum. Trump bætti
við að hann sæi enga ástæðu til að
rengja Pútín. „Ég ber mikið traust til
leyniþjónustumanna minna en ég
segi ykkur að Pútín forseti var mjög
sterkur og öflugur þegar hann neit-
aði þessu í dag,“ sagði Bandaríkja-
forseti enn fremur.
Dan Coats áréttaði í fyrrakvöld að
leyniþjónustustofnanir Bandaríkj-
anna væru skýrar í þeirri niðurstöðu
sinni að Rússar hefðu haft afskipti af
kosningunum 2016 og héldu áfram að
reyna að grafa undan lýðræðinu í
Bandaríkjunum. Coats er repúblik-
ani og Trump gerði hann að yfir-
manni bandarísku leyniþjónustunnar
á síðasta ári.
„Bandaríkin hafa verið
heimskuleg“
Forsetinn gagnrýndi einnig dóms-
málaráðuneyti Bandaríkjanna og al-
ríkislögregluna FBI vegna rann-
sóknar Roberts Muellers, sérstaks
saksóknara, sem rannsakar afskipti
Rússa af kosningunum. Trump sagði
að rannsóknin væri „stórslys fyrir
landið“ og spillti sambandi þess við
stjórnvöld í Rússlandi.
Fyrir fundinn sagði Trump á
Twitter að Bandaríkin ættu sök á því
að samskipti landsins við Rússland
versnuðu. „Tengsl okkar við Rúss-
land hafa ALDREI verið verri vegna
margra ára flónsku og heimsku
Bandaríkjanna og núna vegna hag-
ræddu nornaveiðanna!“ Þessi gagn-
rýni beindist ekki aðeins að forverum
Trumps í forsetaembættinu, heldur
einnig að sitjandi þingi í Washington
og ríkisstjórn hans sjálfs sem hefur
hert refsiaðgerðirnar gegn Rússlandi
vegna afskiptanna af kosningunum
og fleiri mála.
Þegar Trump var spurður á blaða-
mannafundinum hvers vegna hann
teldi að Bandaríkin ættu sök á versn-
andi samskiptum landanna svaraði
hann að báðum löndunum væri um að
kenna. „Bandaríkin hafa verið
heimskuleg. Við höfum öll verið
heimskuleg,“ sagði hann. „Okkur
báðum hafa orðið á einhver mistök.“
Repúblikaninn og öldungadeildar-
þingmaðurinn Jeff Flake sagði að
framganga Trumps í viðræðunum við
Pútín og á blaðamannafundinum
væri „skammarleg“. „Ég hef aldrei
talið að ég ætti eftir að lifa þann dag
að sjá forseta Bandaríkjanna standa
á sviðinu með forseta Rússlands og
kenna Bandaríkjunum um yfirgang
Rússa,“ sagði Flake á Twitter.
„Hörmuleg mistök“
John McCain, repúblikani í öld-
ungadeildinni, tók enn dýpra í árinni í
gagnrýni sinni á Trump og sagði að
framganga hans á blaðamannafund-
inum hefði verið forsetaembættinu til
skammar. „Enginn forseti Banda-
ríkjanna hefur auðmýkt sjálfan sig
með auvirðilegri hætti fyrir framan
harðstjóra,“ sagði McCain, sem var
forsetaefni repúblikana í kosningun-
um árið 2008 og beið þá ósigur fyrir
Barack Obama. „Erfitt er að meta
skaðann sem Trump forseti hefur
valdið með einfeldni sinni, sjálfsdýrk-
un, rangri samsemd sinni og stuðn-
ingi sínum við einræðisherra. Ljóst
er að leiðtogafundurinn í Helsinki var
hörmuleg mistök.“
Jeff Flake og John McCain hafa
verið gagnrýnir á stefnu Trumps en
framganga hans í Helsinki fór fyrir
brjóstið á fleiri þingmönnum repú-
blikana.
„Það er engum vafa undirorpið að
Rússar höfðu afskipti af kosningum
okkar og halda áfram að reyna að
grafa undan lýðræðinu hér og víðar í
heiminum,“ sagði Paul Ryan, forseti
fulltrúadeildarinnar og einn repú-
blikana sem hafa verið tregir til að
gagnrýna Trump.
„Rússar eru ekki vinir okkar og ég
trúi heilshugar mati leyniþjónustu-
stofnana okkar,“ sagði Mitch McCon-
nell, leiðtogi repúblikana í öldunga-
deildinni.
Repúblikaninn Bob Corker, for-
maður utanríkismálanefndar öld-
ungadeildarinnar, kvaðst hafa orðið
fyrir miklum vonbrigðum með um-
mæli Trumps í Helsinki og sagði þau
geta orðið til þess að Rússar litu á
Bandaríkin sem „auðsigraðan and-
stæðing“. „Þetta var mjög góður dag-
ur fyrir Pútín forseta,“ sagði hann og
kvaðst hafa hrokkið við þegar Trump
hefði ekki viljað verja leyniþjónustu-
stofnanir sem starfa fyrir hann.
„Menn geta verið hlynntir bættum
tengslum við Rússland, hlynntir
fundi með Pútín og samt talið að það
sé eitthvað bogið við þetta,“ sagði
repúblikaninn og fulltrúadeildar-
þingmaðurinn Justin Amash um þau
ummæli Trumps að bæði ríkin ættu
sök á versnandi samskiptum þeirra.
Einn helstu stuðningsmanna
Trumps, Newt Gingrich, fyrrverandi
forseti fulltrúadeildarinnar, viður-
kenndi að forsetanum hefðu orðið á
mistök. „Trump forseti verður að út-
skýra yfirlýsingar sínar í Helsinki um
leyniþjónustukerfi okkar og Pútín,“
sagði hann. „Þetta eru alvarlegustu
mistök hans í forsetaembættinu og
bæta þarf úr þeim þegar í stað.“
Nokkrir þingmenn repúblikana
vörðu þó forsetann og sögðu að ekki
væri alltaf hægt að treysta niður-
stöðum leyniþjónustustofnana
Bandaríkjanna. „Ég tel að það hafi
verið við hæfi að forsetinn léti í ljós
efasemdir,“ sagði fulltrúadeildar-
þingmaðurinn Darrell Issa um yfir-
lýsingar Trumps um rannsóknina á
afskiptum Rússa af kosningunum.
„Að því sögðu er Pútín illmenni sem
hefur drepið marga í landi sínu og
það leikur enginn vafi á því að Rúss-
land er enn óvinveitt Bandaríkjun-
um.“
Ummæli Trumps virtust jafnvel
fara fyrir brjóstið á álitsgjöfum Fox
News, sem hefur yfirleitt stutt for-
setann. Einn þáttastjórnenda sjón-
varpsins, Neil Cavato, sagði að fram-
ganga Trumps hefði verið „skamm-
arleg“. „Það er vaxandi samstaða í
öllu landinu um … að forsetinn hafi
kastað Bandaríkjunum undir stræt-
isvagninn,“ sagði John Roberts,
fréttamaður Fox News.
Trump og Pútín sögðust telja að
fundur þeirra í Helsinki væri aðeins
sá fyrsti af mörgum í þeirri viðleitni
að bæta samskipti landanna. Hörð
gagnrýni repúblikana á framgöngu
Donalds Trumps bendir þó til þess
að mjög erfitt verði fyrir hann að
halda viðræðunum áfram og reyna
að aflétta refsiaðgerðunum gegn
Rússlandi.
Repúblikanar deila hart á Trump
Bandaríkjaforseti gagnrýndur fyrir að taka afstöðu með Rússum í deilu við bandarísk yfirvöld og
draga niðurstöður leyniþjónustustofnana landsins í efa Framganga Trumps sögð skammarleg
Neyddist til að segja
af sér í ágúst 2016 eftir
fréttir um að hann sætti
rannsókn vegna greiðslna
sem hann fékk frá
fyrrv. forseta Úkraínu,
bandamanni Rússa
Ákærður ásamt Manafort
fyrir að hafa reynt að leyna
greiðslum frá fyrrverandi
forseta Úkraínu, Viktor
Janúkóvítsj, og flokki
hans sem styður
rússnesk stjórnvöld
Viðurkenndi að hafa reynt
að leyna samskiptum við
mann sem er bendlaður
við stjórnvöld í Moskvu.
Reyndi að koma aðstoðar-
mönnumTrumps í
tengsl við Rússa
Sagði af sér í febrúar
2016. James Comey,
fyrrv. yfirmaður FBI,
hefur sagt að Trump
hafi beðið um að hann
stöðvaði rannsókn
á þætti Flynns
Kosningastjóri Trumps
frá mars til ágúst 2016
Aðstoðarmaður Manaforts
í kosningabaráttunni
Paul Manafort Rick GatesGeorge Papadopoulos
Ákærður 30. október.
Lýsti sig saklausan af
ákæru um samsæri
gegn Bandaríkjunum,
peningaþvætti og fleira.
Ákærður 30. október.
Lýsti sig saklausan af
ákæru um samsæri
gegn Bandaríkjunum,
meinsæri í tengslum
við rannsóknina
og fleiri
lögbrot
Ráðgjafi Trumps í utanríkis-
málum fyrir kosningarnar
Handtekinn 27. júlí 2017,
játaði sig sekan 5. október
um að hafa logið að
FBI um samskipti við
mann sem er talinn
tengjast rússneskum
stjórnvöldum
Michael Flynn
Fyrrverandi þjóðar-
öryggisráðgafi Trumps
Var ákærður og játaði
sig sekan 1. des. 2017
um að hafa logið að
FBI um viðræður sínar
við þáverandi sendi-
herra Rússlands, Sergej
Kísljak
Ákærður 8. júní ásamt
samstarfsmanni og
meintum njósnara Rússa
fyrir tilraun til að hindra
framgang réttvísinnar
Talinn hafa vitað um
samskipti milli rússneskra
leyniþjónustumanna og
hátt setts aðstoðar-
manns Trumps í
kosningabaráttunni
Hjálpaði viðskiptavinum
að sneiða hjá öryggis-
ráðstöfunum greiðslu-
miðlunarfyrirtækja.
Nokkrir þeirra eru taldir
hafa reynt að hafa áhrif
á kosningarnar 2016
Ákærðir 16. febrúar,
sakaðir um að hafa
háð„upplýsingastríð“
til að grafa undan
trausti á bandarískum
stofnunum
Sögð hafa það að
markmiði að ala á
sundurlyndi í banda-
ríska stjórnkerfinu í
því skyni að veikja það
Lögfræðingur sem
tengist Gates og Manafort
Rak netþjónustufyrir-
tækið Auction Essistance
12 þeirra störfuðu fyrir
rússneskt netrannsókna-
fyrirtæki
Alex van der Zwaan Richard Pinedo
3 rússnesk fyrirtæki
13 rússneskir
einstaklingar
Dæmdur 3. apríl sl.
í 30 daga fangelsi eftir
að hafa játað sig sekan
um að hafa logið um
samskipti sín við Gates
og fyrrverandi leyni-
þjónustumann Rússa
Játaði sig sekan af
ákæru um auðkennis-
svik 12. febrúr sl. en
verjendur hans segja
hann ekki hafa vitað
af meintum lögbrotum
viðskiptavinanna
12 rússneskir
leyniþjónustumenn
Ákærðir 13. júlí sl.
fyrir stórfelldar
netnjósnir til að
stela tölvupóstum
landsnefndar
Demókrataflokksins
og kosningastjóra
Hillary Clinton og
lekið þeim í því skyni
að koma höggi á hana
í kosningabaráttunni
árið 2016
Starfa fyrir leyni-
þjónustu rússneska
hersins, GRU
Heimildir: Fjölmiðlar í Bandaríkjunum/Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna/Ljósmyndir: AFP
Rannsókn Roberts Muellers, sérstaks saksóknara, beinist m.a. að meintum samskiptummanna Trumps við Rússa
Ákærurnar í rannsókninni á Rússlandsmálinu
Reyktur lax
í brunchinn
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland verslanir,
Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup,
Sunnubúðin, Pure Food Hall flug-
stöðinni Keflavík.
Með því að velja
hráefnið af kostgæfni,
nota engin aukaefni og
hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
segist hafa mismælt sig á fundi
sínum með Vladimír Pútín Rúss-
landsforseta er hann var spurð-
ur hvort hann styddi þá niður-
stöðu leyniþjónustustofnana að
Rússar hefðu haft áhrif á for-
setakosningar vestanhafs. Seg-
ist Trump hafa ætlað að segja
að hann sæi ekkert sem útilok-
aði að Rússar hefðu haft af-
skipti.
Mismælti sig
BANDARÍKJAFORSETI