Morgunblaðið - 18.07.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.07.2018, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fundur for-seta Banda-ríkjanna og Rússlands var sögulegur. En ekki fyrst og fremst vegna efnis, um- ræðu eða niður- staðna. Það sem var sögulegt var að fundurinn færi fram. Leiðtogafundir stórþjóða, og ekki síst þeirra sem stóðu fyrir öndverða hagsmuni, voru sjald- gæfir fram eftir síðari hluta seinustu aldar. Stalín fór helst ekki út fyrir Rússland enda hafði hann ímugust á flugi. Hann fór þó til fundar með stríðsleiðtogum sem Hitler sam- einaði gegn sér. Churchill var ferðagarpur. Frumstæðar og óþægilegar flugvélar á stríðs- tímum voru engin hindrun. Seinustu áratugi urðu leiðtoga- fundir algengir og sjaldnast nokkurra tíðinda að vænta. Al- menningur hefur því að mestu misst áhuga á þeim, nema at- vinnumótmælendur, sem er gert undarlega hátt undir höfði. Fundir með dularfullum ein- ræðisherrum eins og Kim Jong- un vekja helst athygli. Og nú fundur Bandaríkjanna með Pút- ín. Það undirstrikar mun á stöðu forseta Bandaríkjanna og ann- arra að ekkert var gert með það þótt Merkel eða Macron bæðu Pútín um fund og gengju í kjöl- farið fyrir hann. Ekki varð annað séð en að Trump forseti hefði í Helsinki farið rækilega yfir þau mál sem hafa verið erfiðust í samskiptum Bandaríkjanna og Rússlands og þótt það hafi ekki verið kær- komin umræðuefni fyrir Pútín. Trump stóð á sínu varðandi inn- limun á Krímskaga, sem hann sagði ólögmæta. Í löndum Evr- ópu fjölgar þó þeim leiðtogum ört sem segja upphátt að verði viðskiptaþvinganir áfram tengdar Krím verði þær til ei- lífðar. Þeir leiðtogar sem segja þetta ekki enn upphátt eru fleiri. Trump fór yfir ágrein- ingsefnin varðandi Úkraínu. Hann hefur sem forseti verið miklu öflugri í stuðningi við nú- verandi yfirvöld í Kiev en Obama var. Trump gagnrýndi einnig harðlega náin samskipti Rússa og klerkastjórnarinnar í Íran. Það datt engum í hug að öll þessi mál og önnur sem rædd voru yrðu leyst á þessum fundi. Það stóð aldrei til. En ágrein- ingsmálin voru yfirfarin svo að ríkin eru í betri færum um að sjá hvar lausnirnar liggja. Þetta voru þau mál sem mestu skipta við að koma tengslum kjarn- orkuveldanna í heilbrigðari far- veg. En í framhaldi af fundinum hrukku demókratar af hjör- unum vestra, eins og gerist raunar ótt og títt yfir smáu sem stóru. Þeir, ásamt fjölmiðlum sem standa þétt með þeim, segja að Trump hafi svikið eigin leyniþjónust- ur fyrir vinsemd Pútíns. Ein setning á blaðamannafundi for- setanna var einkum höfð sem tilefni upphlaupsins. Stóryrðin voru út úr korti. Sérstaklega varð Brennan fyrrverandi for- stjóri CIA sér til skammar, en hann hefur áður ítrekað verið staðinn að því að segja þinginu ósatt. Hinn var Schumer, leið- togi demókrata í Öldungadeild- inni, sem hafði uppi fullyrðingar um að Pútín hefði „hreðjatak á Trump“ án þess að hafa nokkuð fyrir sér í því. Hin ömurlega fréttastofa „RÚV“ át alla smekkleysuna upp gagnrýnislaust og hafði ekki fyrir því að setja sig inn í nokkurn hlut. Allt snerist þetta um spurningu fréttamanns sem notaði tilvísun í ákærur Muell- ers, sérstaks saksóknara, sem hann gaf út þremur dögum fyrir fund forsetanna tveggja! For- setinn var spurður hvort hann tryði sínum eigin leyniþjón- ustum (sem voru þá undir stjórn harðlínu demókrata) um meint- ar sakir Rússa. Forsetinn gaf þetta svar: „I have great confi- dence in my intelligence people, but I will tell you that President Putin was extremely strong and powerful in his denial today.“ Það er ekkert að þessu svari. Forsetinn gætir þess að sýna Pútín eðlilega kurteisi á sam- eiginlegum fréttamannafundi. Hann bætti næst við setningu sem var einnig gagnrýnd en var öllu óljósari. Í gær gerðist það svo að Trump dró þau orð til baka, sagðist hafa mismælt sig þannig að merkingin snerist við. Það er hins vegar mikið um- hugsunarefni að hinir 12 Rússar höfðu samkvæmt ákærunni stundað sína iðju í rúmt ár áður en Trump varð forseti. Obama hafði verið upplýstur um slíkar grunsemdir en ekki gefið leyni- þjónustum fyrirmæli um að bregðast við. Kannski vegna þess að ekki er vitað til þess að eitt einasta atkvæði hafi villst af leið vegna meintra aðgerða Rússa. Sérstaklega var tekið fram við útgáfu þessara ákæra að enginn Bandaríkjamaður tengdist þeim beint. Robert Mueller hefur hins vegar enn dregið úr trúverðugleika rann- sókna sinna með því að gefa út þessa ákæru þremur dögum fyrir mikilvægan leiðtogafund. Þessar ákærur hans verða aldrei staðreyndar fyrir dóm- stóli og eru því fyrst og síðast sýndargjörningur. Furðulegt er að ís- lensk fréttastofa lifi sig svo inn í pólitísk- an æsing erlendis að hún haldi ekki þræði} Merkur fundur – ómerkilegur æsingur Í ár fögnum við fullveldinu og í dag eru 100 ár frá því að sambandslagasamn- ingurinn var undirritaður. Baráttan stóð yfir árum og áratugum saman áður en til fullveldis kom 1. desember 1918. Fullveldið kom þannig ekki af sjálfu sér heldur var kafli í langri baráttu sem á end- anum leiddi til stofnunar lýðveldisins 1944. Ísland er ung þjóð þótt Alþingi sé hið elsta. Baráttan sem formæður og -feður okkar háðu fyrir fullveldinu og frelsinu ætti að vera í há- vegum höfð og minna okkur hin á hve verð- mætt það er að ráða sér sjálfur. Við sem höfum fengið að njóta þess að heim- sækja Íslendingabyggðir í Vesturheimi og ræða við frændfólk og aðra sjáum vel hve verðmætt fullveldið og lýðveldið er í augum þessa fólks og hve verðmætt landið var fyrir forfeður og -mæður þeirra sem flýja þurftu hörmungaraðstæður á landinu sem það elskaði svo mikið. Vestur-Íslendingarnir sem við köllum svo hafa varðveitt sín á milli sögu og menningu gamla landsins og enn má finna fólk sem talar tungumálið lýtalaust í ræðu og ritar það betur en margur hér heima. Fullveldið og sjálfstæðið eigum við að verja með öllum tiltækum ráðum því án þess erum við ekki þjóð meðal þjóða. Menning okkar, tungumál, siðir og venjur eru hluti af því sem gerir okkur að íslenskri þjóð. Tungumálið sam- einar fullvalda þjóð og efnahagslegt sjálfstæði er eitt af því sem gerir okkur sjálfstæð. Þjóð getur verið fullvalda og sjálfstæð en um leið tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi og axlað samfélagslega ábyrgð með þjóðum heims. Fullveldið er í raun forsenda þess að Ísland er ábyrgur þátttakandi í samfélagi þjóða, að við séum þjóð meðal þjóða. Gleymum því aldrei að þjóð sem ekki ræður sjálf yfir landi sínu og auðlindum, hvernig það er nýtt og verndað er ekki frjáls og fullvalda. Sjálfstæði hverrar þjóðar byggir á mörgum sjálfstæðum en samverkandi þáttum og einn þeirra er efnahagslegt sjálfstæði. Forskotið sem við höfum t.d. í sjávarútvegi byggir m.a. á því að vel rekin og sterk atvinnu- greinin hefur getað fjárfest í framtíðinni og þann- ig verið skrefi á undan samkeppnisaðilum. Slíkt er ekki sjálfsagt og því afar mikilvægt að atvinnu- greinin sé áfram öflug og búi við sem stöðugast og öruggast umhverfi. Landið okkar megum við ekki missa í hendur erlendra auðkýfinga heldur yrkja það eða nýta með öðrum hætti og sjá til þess að Íslendingar framtíðar geti tekið við því sér til hagsbóta. Undanfarin ár hafa sumir talið að fullveldið og sjálf- stæðið megi skerða með því að undirgangast sífellt meira af lögum og reglum sem aðrir semja og setja. Enn aðrir vilja ganga bandalögum annarra ríkja á hönd og afsala þannig stórum hluta sjálfsákvörðunarréttar fullvalda og frjáls ríkis. Það má aldrei verða. Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Ísland, þjóð meðal þjóða Höfundur er alþingismaður fyrir SV-kjördæmi og varaformaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Ífrumvarpi til nýrra umferðar-laga kemur fram að leyfilegtáfengismagn í blóði fólks und-ir stýri verði lækkað úr 0,5 prómill í 0,2 prómill. Verði frum- varpið að lögum mun það þýða að refsivert verður að drekka lítinn bjór áður en sest er undir stýri, en einn bjór mælist rétt rúmlega 0,2 prómill í blóði ökumanns undir eðlilegum kringumstæðum. Svava Þórðardóttir, lyfjafræð- ingur hjá rannsóknarstofu lyfja- og eiturefnafræða við Háskóla Íslands, segir að í breytingunni felist afdrátt- arlaus stefna yfirvalda að áfengi og akstur vélknúinna ökutækja fari ekki saman. Þá sé verið að gera íslensku lögin líkari því sem þekkist í Noregi og Svíþjóð. „Með því að færa mörkin neðar er í raun verið að segja að eftir einn sopa sértu óökufær. Þetta tíðk- ast í nágrannalöndum okkar, Noregi og Svíþjóð, þar sem stranglega bann- að er að drekka áður en fólk keyrir. Ég þekki til dæmis vel til mála í Nor- egi, en þar getur þú farið í fangelsi ef þú ert yfir ákveðnum mörkum. Með lagabreytingunni hér á landi er verið að færa þetta nær lögum þessara landa,“ segir Svava, en að hennar sögn hefur breytingin staðið til í fjölda ára. Nú séu hins vegar líkur á því að hún verði að veruleika. „Þetta hefur staðið til í mörg ár og ég held að þetta hafi komið fram á svipuðum tíma og tillagan um hækk- un bílprófsaldursins í átján ár kom fram. Það hefur alltaf komið skýrt fram í umferðarlögum að það sé bannað að aka undir áhrifum áfengis en það hefur bara ekki verið refsi- vert fyrr en fólk mældist yfir 0,5 pró- mill. Þessi lög munu líklega breytast, sem þýðir að það þarf enn minna til að fá sekt og sviptingu ökuleyfis,“ segir Svava. Hefur litla þýðingu hér á landi Í skýrslu frá 2006, sem gefin var út á vegum Evrópusambandsins og varðar áfengisneyslu í Evrópu (Alco- hol in Europe), kemur fram yfirlýs- ing þess efnis að þjóðir skuli stefna að því að hafa refsimörk 0,5 prómill eða lægri. Ástæðan er m.a. sögð sú að ökumenn sem mælast í kringum 0,3 prómill eru í um þrefalt meiri slysahættu auk þess sem líkur á banaslysi margfaldast. Spurð hvaða þýðingu hún telji breytinguna geta haft segir Svava að hún muni litlu breyta. Einungis sé verið að breyta því hvaða viðmið telj- ist refsivert. „Akstur undir áhrifum hefur alltaf verið bannaður og slíkur akstur getur alltaf komið þér í koll þó að þú hljótir ekki sekt frá lögreglu. Þú eykur til að mynda líkur á tjóni. Breytingin snýr hins vegar eingöngu að því hvenær hægt er að sekta fólk fyrir að keyra undir áhrifum,“ segir Svava. Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig- enda (FÍB), segir að frumvarpið hafi ekki verið tekið fyrir hjá félaginu. Hann ráðgeri þó að breytingin sé af hinu góða og muni litlu sem engu breyta. „Við höfum ekki tekið al- mennilega afstöðu í þessu máli enda engin beiðni komið frá stjórninni að taka þetta fyrir. Ég held samt að þetta breyti litlu enda hefur lyfja- akstur kannski verið meira vanda- mál síðustu ár. Markmiðið með breytingunni er samt auðvitað að koma í veg fyrir að fólk með skerta dómgreind og getu eftir neyslu áfengis fari út í umferðina. Þetta þýðir í raun að ef þú hefur svo mikið sem smakkað áfengi eigir þú ekki að halda út í umferðina. Ég tel því að þetta sé af hinu góða,“ segir Run- ólfur. Einn lítill bjór gerir ökumenn brotlega Hversu mikið áfengi má drekka Fjöldi bjóra sem þarf til að ná mörkum um vínandamagn í blóði Hlutfall vínanda í blóði er mismunandi eftir kyni Karlmaður 80 kg, 180 cm 0,5 prómill mörk 2,3 bjórar* 0,2 prómill mörk 0,9 bjórar* Kona 60 kg, 165 cm 0,5 prómill mörk 1,4 bjórar* 0,2 prómill mörk 0,6 bjórar* Heimild: ANT-kursus *33 cl, 4,6% alkóhól Vínandamagn í blóði eftir að hafa drukkið einn 33 cl, 4,6% bjór: Karlmaður, 70 kg: 0,25‰ Kona, 70 kg: 0,31‰ „Það er auðvitað mjög ein- staklingsbundið hvað fólk getur drukkið. Þess utan geta þættir eins og mataræði yfir daginn spilað inn í hversu mikið fólk finnur á sér. Verði frumvarpið að lögum þarf hins vegar mjög lítið magn til að teljast sekur,“ segir Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Vísar hann í máli sínu til frumvarps til nýrra umferðarlaga. Hann segir að lög- reglan mæli ávallt gegn því að bragða áfengi fyrir akstur. Fólk þolir mismikið MISJÖFN ÁHRIF ÁFENGIS Morgunblaðið/Ómar Bjór Fólk er misviðkvæmt fyr- ir áhrifum áfengra drykkja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.