Morgunblaðið - 18.07.2018, Side 22

Morgunblaðið - 18.07.2018, Side 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2018 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is KælingHiti HreinleikiLoftraki fyrir heimilið Við gerum við bremsur í ÖLLUM BIFREIÐUM Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is 20% afsláttur af bremsuvarahlutum* TILBOÐ Í JÚLÍ ÐU SAMBAN D og bókað u tíma fyrir bílin n þinn * Gildir einungis með bremsuviðgerðum HAF ÞV O TT A VÉ LA R KÆ LI SK Á PA R ÞUR SMÁTÆKI U PPÞVO TTA VÉLA R OFNAR RYKSUGUR VIFTUR OG HÁFAR TILBOÐSDAGAR 20-40% Gerðu góð kaup! FYRIR HEIMILIN Í LANDINU LágMúLA 8 · sÍMI 530 2800 HELLUBORÐ RKARAR LO KA DA GA R Kosningar að baki, þar sem við háttvirtir kjósendur vonuðumst til að geta losnað við Dag og kó með því að styrkja Sjálfstæðis- flokkinn og Miðflokk- inn til þess að ná völdunum, – en nei, ekki varð af því. Dag- ur fagnaði kosning- unum sem tækifæri til þess að ná sér í annan samstarfsaðila í stað BF, og það varð Viðreisn. Með því hagaði hann sér eins og forseti í ein- hverju Afríkulýðveldinu, sem vill heldur láta bera sig út úr skrif- stofunni en viðurkenna ósigur. Það orð virðist ekki vera til í hans orðabók, svo sjálfumglaður sem hann er. Hann virðist líka álíta okkur borgarbúa hafa svo gaman af jóla- sveinum og álfum út úr hól og þeirra uppátækjum, að við eigum slíka borgar- stjórn skilið áfram. Þar fer hann villur vegar, eins og í fleiri málum, þótt valda- frekja Samfylking- arinnar sé orðin með eindæmum. Hins veg- ar velti ég því fyrir mér, hvar þessi Þór- dís hefur alið aldur sinn síðustu átta árin fyrst hún sagði, að það væri verið að mynda nýjan meirihluta (!), og þau séu ekki að ganga til samstarfs við gamla meirihlutann eða sitjandi meirihluta. Hún hlýtur ann- aðhvort að hafa verið erlendis eða þess vegna á tunglinu, þar sem hún hefur ekki haft aðgang að ís- lenskum fjölmiðlum eða haft nein fréttatengd tæki með sér, fyrst hún virðist ekki vita, hver hefur setið í borgarstjórastólnum síð- ustu átta árin, og heldur því greinilega, að hann sé að setjast í þann stól í fyrsta skipti, eftir að hún hefur gengið til liðs við hann ásamt félaga sínum. Furðulegast er að hún gengur til þessa sam- starfs, þrátt fyrir að stofnandi flokksins, Benedikt Jóhannesson, væri búinn að lýsa því opinber- lega yfir að Dagur sé ósamstarfs- hæfur með öllu. Núverandi for- maður lét þess svo getið að flokkurinn mundi selja sig dýrt í samstarfi, hvað sem það nú þýðir, en það á kannski bara við um Sjálfstæðisflokkinn og Miðflokk- inn, en ekki vinstri flokkana, enda vitað mál að hún er að upplagi krati enda af krötum komin. Við- reisn verður sjálfsagt ekkert nema lítilþægðin í samstarfi við Dag og kó. Við borgarbúar eigum víst von á góðu eða hitt þó heldur, þegar þetta samstarf er orðið að veruleika, en hlökkum síður en svo til þess að þurfa að hafa þetta lið áfram yfir okkur til að eyði- leggja borgina og gera hana óbyggilega fyrir allt venjulegt fólk, sem heldur þá áfram að flýja hana unnvörpum. Svo virðist líka vera, að þetta lið geri sér enga grein fyrir á hvaða breiddargráðu Reykjavík er. Í þeirra huga búum við víst fyrir sunnan miðbaug, þar sem snjóar sjaldan ef nokkurn tíma, fyrst fólkið staglast alltaf á að gera Laugaveginn að göngu- götu og það allan ársins hring, sem gerði út af við hann sem verslunargötu. Það virðist ekkert hreyfa við Degi og kó, sem sitja föst við sama heygarðshornið, enda held ég, að hægt sé að segja um þetta lið, eins og Guðrún Á. Símonar sagði um hundana sína og ketti, að þetta fólk er eins og Rússarnir, skilja bara það sem þeir vilja skilja sjálfir, sjá bara það sem þeir vilja sjá sjálfir, og ansa engu nema því sem þeim sýnist sjálfum. Þannig hefur þetta lið hagað sér til þessa, og ég á ekki von á að verði nein breyting þar á. Nema síður sé. Ég skil full- trúa Sósíalistaflokksins vel að vilja ekki taka þátt í þessu leik- húsi fáránleikans sem hefur við- gengist hérna í þessi átta ár og ég býst ekki við að breytist neitt, enda hefur hann greinilega séð í gegnum fingur við þá. Ég leyfi mér líka að vona að þessi meirihluti endist ekki nema í eins og hálft kjörtímabil. Borg- arbúar eru búnir á fá sig full- sadda af þessari vitleysu Dags og kó, og sendu þau skilaboð í kosn- ingunum, þótt hann kysi í sinni valdagræðgi og þvermóðsku að ansa því engu, og tekur greinilega orð Jóns Loptssonar og gerir að sínum: „Heyra má ég erkibiskups boðskap, en er ráðinn í að hafa hann að engu.“ Það er þó bót í máli að nú er kominn sálfræð- ingur inn í borgarstjórnina, sem getur brugðið ljósi á andlegt ástand og hæfni þessa liðs til að stjórna borginni. Ég óska svo þeim Eyþóri og Vigdísi velfarnaðar í sínum störf- um, þótt þau séu ekki öfundsverð að reyna að hafa vit fyrir þessum vonlausu jólasveinum og álfum út úr hól, en veitir ekki af, þótt erfitt verði að tala sífellt fyrir daufum eyrum, eins og ég veit að muni verða, og hefur verið til þessa, eða leggja fram tillögur sem dag- ar uppi niðri í skúffu eða eru sett- ar undir stól, þar sem þær verða, þangað til Sjálfstæðisflokknum tekst að ná völdunum í Ráðhús- inu, en það er ömurlegt að þurfa að hafa þessa þverhausa áfram í valdastólunum þar til hins enda- lausa, og það gagnstætt vilja kjós- enda, og skýr skilaboð um meiri- háttar breytingar og borgarstjórn sem Sjálfstæðisflokkurinn leiðir, þrátt fyrir alltof mörg framboð í nýliðnum kosningum sem gerðu það erfiðara, enda veitti ekki af að ríkisstjórnin tæki sig nú til og setti það inn í kosningalöggjöfina að ekki megi fleiri bjóða sig fram til Alþingis og sveitarstjórna en tíu, líkt og finnska ríkisstjórnin gerði um árið, þegar henni ofbauð fjöldi framboða í einum kosning- unum þar í landi. Ég hvet líka hæstvirta ríkisstjórn eindregið til þess. Eftir Guðbjörgu Snót Jónsdóttur » Við borgarbúar eig-um víst von á góðu eða hitt þó heldur. Guðbjörg Snót Jónsdóttir Höfundur er guðfræðingur og fræðimaður. Sínum augum lítur hver á silfrið Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.