Morgunblaðið - 18.07.2018, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2018 25
Raðauglýsingar
Þingeyjarsveit
Skógar í Fnjóskadal – Breyting á deiliskipulagi
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann 27. júní 2018 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi
frístundabyggðar í landi Skóga í Fnjóskadal í Þingeyjarsveit skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Helstu breytingar frá gildandi deiliskipulagi eru eftirfarandi
• Byggingarreitir eru stækkaðir verulega til að auðvelda aðlögun að landi.
• Gerðar eru óverulegar breytingar á lóðarstærðum til að þær falli betur að landi.
• Skilgreindar eru þrjár nýjar íbúðarhúsalóðir í suðurjaðri svæðisins skv. heimild í Aðalskipulagi
Þingeyjarsveitar 2010-2022.
• Hámarks grunnflötur allra bygginga á skipulagssvæðinu verður 140 m² en á lóðum 5-9 við Skógarhlíð var
hámarks grunnflötur 90 m².
• Skilgreint er nýtt gámasvæði til sorplosunar vestan þjóðvegar fyrir allt skipulagssvæðið
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð munu liggja frammi á skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar, frá
og með miðvikudeginum 18. júlí 2018 með athugasemdarfresti til og með miðvikudeginum 29. ágúst 2018.
Þá eru upplýsingar einnig aðgengilegar á heimasíðu Þingeyjarsveitar:
https://www.thingeyjarsveit.is/is/stjornsysla/skipulagsmal/deiliskipulag/tillogur-i-auglysingu.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til
að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 29. ágúst 2018. Skila skal athugasemdum skriflega til
skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar og/eða í tölvupósti á netfangið: bjarni@thingeyjarsveit.is.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast henni samþykkir.
Bjarni Reykjalín
skipulags- og byggingarfulltrúi
Þingeyjarsveitar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16. Opið fyrir úti- og
innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á
könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar.
Hádegisverður frá kl. 11.30-12.30 og kaffisala alla virka daga frá 14.30-
15.30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi í júlí og ágúst. Úti boccia
völlur verður á torginu í sumar og við minnum á skemmtilega
viðburði í hverfinu, Qigong á Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga
kl. 11 og sund dans í Sundhöllinni alla miðvikudaga í júlí kl. 13.
Vitatorg sími: 411-9450
Gjábakki kl. 9 Handavinna, kl. 13 Félagsvist.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
pútt kl. 10.30, hádegismatur kl. 11.30, handavinnuhópur kl. 13,
stólaleikfimi og slökun kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl. 9-16, ganga kl.10, síðdegis-
kaffi kl. 14.30, allir velkomnir óháð aldri upplýsingar í síma 411-2790.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, botsía í salnum á
Skólabraut kl. 11, Nikkuball við smábátahöfnina milli kl. 16-18, vatns-
leikfimi í Sundlaug Seltjarnarness. Vonumst til þess að sjá sem flesta
á Nikkuballinu boðið verður upp á veitingar gegn vægu gjaldi og Vita-
torgsbandið mun spila undir dansi.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur
hittist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir
velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristni-
boðssalnum. Ræðumaður
Ragnar Gunnarsson. Allir vel-
komnir.
Smáauglýsingar 569 1100
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Sambyggð trésmíðavél: Felder. CF
741 3f.
Hjólsög: fræsari og hefill, afréttari
og þykktarhefill.
Hjólsagarblað 315 mm, sleði 2m
með gangsetningu á enda.
Armur fyrir plötusögun
Hefill: breidd 40 cm 4 blöð í hjólinu
Fræsari 30 mm. Hallanlegur spindill.
Frammdrif.
Spónsuga 2 pokar.
Nánari upplýsingar í síma
894 4818 Til sýnis í Kópavogi.
Olíuskiljur - fituskiljur
- einagrunarplast
CE vottaðar vörur.
Efni til fráveitulagna.
Vatnsgeymar 100-50.000 lítra.
Borgarplast.is,
sími 5612211, Mosfellsbæ.
ÝmislegtBílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Helgi bróðir er fall-
inn frá 75 ára að aldri.
Við minnumst hans
með söknuði, elsku-
legur bróðir og vinur.
Helgi var glaðlyndur, traustur
og duglegur, handlaginn og hjálp-
samur. Hann var mjög barngóður
og mikill dýravinur og áhugamað-
ur um bíla, hann eignaðist þá
nokkra um ævina og hugsaði mjög
vel um þá.
Þegar hann var um tvítugt lenti
hann í alvarlegu umferðarslysi og
setti það mark sitt á hann alla tíð
síðan.
Hans stærsta gæfa í lífinu var
að kynnast konunni sinni henni
Kristínu. Við sendum henni okkar
innilegustu samúðarkveðjur og
þökkum fyrir hversu yndisleg hún
var alla tíð við hann. Þau áttu gott
líf saman, ferðuðust bæði innan-
og utanlands, og fóru á hverju ári í
35 ár, meðan Helgi hélt heilsu, í
heimsókn að Skarði í Landsveit
um verslunarmannahelgi. Dóra
frænka okkar og hennar fólk tók
þar á móti þeim og sýndi þeim
mikla hlýju og gestrisni.
Helgi Þór
Magnússon
✝ Helgi Þór Magn-ússon fæddist 21.
desember 1942.
Hann lést 4. júlí 2018.
Útför hans var
gerð frá Grindavík-
urkirkju 16. júlí
2018.
Helgi var ákaf-
lega vinnusamur og
vandvirkur og dugn-
aðarforkur til allra
verka. Hann hafði
yndi af garðyrkju og
kom það meðal ann-
ars að góðum notum
þegar hann vann hjá
Grindavíkurbæ.
Síðustu 6 ár dvaldi
Helgi á hjúkrunar-
heimilinu Víðihlíð í
Grindavík þar sem fór ákaflega
vel um hann. Við þökkum starfs-
fólkinu þar fyrir frábæra umönn-
un og elskulegheit. Einnig þökk-
um við starfsfólkinu á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
sem annaðist hann síðustu sólar-
hringana sem hann lifði.
Hvíl í friði, elsku bróðir, og takk
fyrir allt. Við trúum því að þeir
sem á undan eru gengnir taki vel á
móti þér.
Okkur langar að kveðja með
sálmi sem Þuríður móðuramma
okkar kenndi okkur:
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þínar systur,
Elín Magnúsdóttir og
Þuríður Magnúsdóttir.
Elsku afi minn,
þín er og verður sárt
saknað en minnst
með miklu þakklæti
og hlýju. Ég tel mig
vera svo ótrúlega heppna að hafa
fengið að kynnast þér, eyða með
þér dýrmætum stundum og fá yf-
ir mig ausið úr þínum einstaka
viskubrunni. Þegar ég var lítil
fékk ég stundum að koma til þín í
vinnuna, í Seðlabankann. Þetta
þótti mér mjög spennandi. Þú
áttir stóra hornskrifstofu með
fínum húsgögnum og til að kom-
ast þangað þurfti að fara upp með
lyftunni. Þú leyfðir mér að lita á
skrifstofunni og svo gengum við
um og heilsuðum vinnufélögun-
um og þú bauðst mér upp á kakó
úr sjálfsalanum. Þarna fannst
mér þú mjög merkilegur maður,
svona eins og forsetinn. Þá og nú
þykir mér einnig merkilegt hvað
þú varst víðförull bæði sem ungur
maður og á fullorðinsárum. Sem
unglingur átti ég það til að monta
mig yfir því að afi minn hefði búið
og gengið í háskóla erlendis. Þeg-
ar við vorum því saman í Cam-
bridge að skoða Kings College,
heyrandi sögur frá þér og ömmu,
fylltist ég enn og aftur stolti og
aðdáun. Við gengum um bæinn
Bjarni Bragi
Jónsson
✝ Bjarni BragiJónsson fædd-
ist 8. júlí 1928.
Hann lést 1. júlí
2018. Útför Bjarna
fór fram 13. júlí
2018.
og þú sagðir okkur
frá pontinu á ánni
Cam, söngnum í
skólakórnum, kirkj-
unni og lífinu á
skólaárunum. Eftir
gönguna fórum við
svo á ekta enskan
pöbb og fengum
okkur „fish and
chips“ og bjór. Síðar
hittumst við svo í
Vín. Þar var ég við
nám og þið amma að ferðast og
átti þá auðvitað tónlistin hug þinn
allan. Við gengum saman um göt-
ur Vínarborgar og ræddum tón-
skáldin Mozart og Schubert. Við
fórum saman og skoðuðum
fæðingarheimili Schuberts, sem
þér þótti nú merkilegri en Moz-
art, og svo buðuð þið amma mér
út að borða. Það var alltaf borðað
í lokin. Ófáar stundirnar voru
einnig hér heima á Íslandi þar
sem við borðuðum saman, við ým-
is tilefni enda þótti þér það gott
eins og okkur hinum í fjölskyld-
unni. Margar af stundunum dýr-
mætu voru á Seljum í hlýjunni við
arininn en líka í Lindarhvamm-
inum góða.
Nú síðasta árið er ég einstak-
lega þakklát að hafa fengið að
kynna þig og son minn hvorn fyr-
ir öðrum. Ég minnist þess hvað
þú varst hlýr og góður við hann,
eins og alltaf við mig. Ég hlakka
til þess þegar hann verður eldri
að segja honum sögur af þér og
okkur á heimshornaflakki.
Kristín Erla.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi lið-
ur, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr. Þar sem pláss er
takmarkað getur birting dreg-
ist, enda þótt grein berist áður
en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar