Morgunblaðið - 18.07.2018, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2018
Nú finnur þú það
sem þú leitar að á
FINNA.is
»Sýningin Lífsblómið var
opnuð boðsgestum í
Listasafni Íslands í gær. Á
henni er fjallað um fullveldi
Íslands í 100 ár og er sýning-
artitillinn sóttur í skáldsögu
Halldórs Laxness, Sjálfstætt
fólk, sem gerist á þeim tíma
er Ísland varð fullvalda ríki.
Á sýningunni er lögð áhersla
á að tefla saman hinu stóra
og smáa, opinberu lífi og
einkalífi, að því er fram kem-
ur á vef safnsins.
Lífsblómið opnað boðsgestum í Listasafni Íslands
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forsetar Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, og
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands voru við opnunina.
Lífsblómið Sýningin er mjög fjölbreytt og gestir gáfu
sér góðan tíma til að gaumgæfa sýningarmunina.
Hildur Loftsdóttir
hilo@mbl.is
Hrafnhildur Marta Guð-
mundsdóttir sellóleikari hlaut
í gær styrk úr Minningarsjóði
Jean-Pierre Jacquillat, og er
hún 27. ungi tónlistarmað-
urinn sem hlýtur styrkinn.
Sjóðurinn var stofnaður til
minningar um Íslandsvininn
Jacquillat, sem var aðal-
stjórnandi Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands á árunum
1980-86, eða þar til hann lést í
bílslysi 51 árs að aldri.
Með framúrskarandi
einkunnir
Hrafnhildur Marta er 27
ára gömul og árið 2016 út-
skrifaðist hún með BA-gráðu
frá einum virtasta tónlistarhá-
skóla Bandaríkjanna; Jacobs
School of Music, Indiana Uni-
versity, undir handleiðslu hins
virta sellóleikara Brandon Va-
mos. Hrafnhildur lauk þá fjög-
urra ára námi á tveimur og
hálfu ári með framúrskarandi
einkunnir, og mun klára
meistaranám við sama skóla
næsta vor. Áður hafði hún
numið við Listaháskóla Ís-
lands og Konunglega kons-
ervatoríið í Kaupmannahöfn.
„Á þessum tímapunkti í
námi mínu og á ferlinum er
þessi styrkur gífurlega mik-
ilvægur,“ segir Hrafnhildur
Marta. „Bæði er þetta nátt-
úrulega mikill heiður og mjög
gott fyrir mig sem hljóðfæra-
leikara sem eyðir stærsta
hluta allra daga ein í æfinga-
herbergi að fá smá klapp á
bakið. Svo er þetta frábær
fjárhagslegur stuðningur til
að fara á námskeið og svo er
líka dýrt að ferðast í prufuspil
og einkatíma, sérstaklega með
selló.“
Dvaldi í
Beethoven-húsinu
„Undanfarið ár hef ég verið
að sérhæfa mig í strengja-
kvartettsspili. Kennarinn
minn hefur spilað í Pacifica-
strengjakvartettinum í 20 ár
og hlotið Grammy-verðlaun
fyrir. Kvartettinn minn hefur
verið í námskeiði hjá þeim og
við unnum keppni um að vera í
viku í Beethoven-húsinu í
Bonn í Þýskalandi. Þar stúd-
eruðum við handrit og bréf í
eigu Beethovens. Í framhald-
inu hljóðrituðum við litla búta
af verkum eftir hann sem hafa
aldrei verið tekin upp því það
eru ekki heil verk. Naxos mun
senda frá sér viðhafnarútgáfu
af upptökunum í tilefni af 250
ára afmæli hans árið 2020,“
segir Hrafnhildur Marta. „Í
vetur verð ég í svokölluðum
Kuttner-strengjakvartett „in
residence“ og haldnir verða
debut-tónleikar í Chicago á
vormánuðum,“ segir Hrafn-
hildur, sem segist í framtíð-
inni líka vera rosalega spennt
fyrir því að spila í hljómsveit,
auk þess sem henni finnst of-
boðslega gefandi að kenna.
Framtíðin dásamlega opin
- Hvar má hlusta á þig
spila?
„Ég mun spila einleik með
Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands í mars á 25 ára afmæl-
istónleikum hennar. Pabbi
minn, Guðmundur Óli Gunn-
arsson, mun stjórna þeim, en
hann var aðalstjórnandi sveit-
arinnar í 20 ár. Það verða
skemmtilegir feðginatónleikar
og dásamlegt að komast heim,
en ég lærði mest við Tónlistar-
skólann á Akureyri áður en ég
fór í háskóla. En fyrst verð ég
að spila núna 10. ágúst með ís-
lensku kammerhljómsveitinni
Elju sem ég er stofnmeðlimur
í.“
Hrafnhildur Marta veit
ekki alveg hverju svara skal
um hvert hún heldur eftir að
meistaragráðan er í höfn.
„Það er svolítið erfitt að segja
því ég þarf að fara í prufuspil
hvort sem ég fer í skóla eða í
vinnu. Það er því eiginlega allt
opið, sem er auðvitað dásam-
legt,“ segir Hrafnhildur
Marta Guðmundsdóttir að
lokum.
Gott að fá klapp á bakið
Úthlutað úr Minningarsjóði
Jean-Pierre Jacquillat
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Hæfileikarík Hrafnhildur Marta tók við styrknum við hátíðlega athöfn í Marshallhúsinu í gær.