Morgunblaðið - 19.07.2018, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 19.07.2018, Qupperneq 13
DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Landið er sífellt að breyt-ast, rétt eins og ferða-venjur fólks og þjónustansem fólki stendur til boða. Því sendum við frá okkur Vegahandbókina í endurnýjaðri út- gáfu á tveggja ára fresti. Í þeirri sem nú er að koma út hafa um 1.000 atriði verið uppfærð frá þeirri síð- ustu. Þá hefur nýjum efnisþáttum verið bætt við og svo er heilmikill fróðleikur í appútgáfu bókarinnar,“ segir Hálfdan Örlygsson bókaútgef- andi. Aðalagað nýrri útgáfutækni Á dögunum kom út 18. útgáfan af Vegahandbókinni; biblíu þeirra sem um landið aka. Það var Örlygur Hálfdánarson sem hóf útgáfu þessa 1973, árið áður en hringvegurinn var opnaður. Með tilkomu hans – það er að býr yfir árnar á Skeiðar- ársandi voru teknar í notkun – lagð- ist fólk í ferðalög og segja má að þá hafi Austurland komist í þjóðbraut. Mörg ár eftir þetta var vinsælt hjá landanum að aka hringveginn og al- geng spurning í máli fólks var: Ertu búin/n að fara hringinn? Og það gerðu margir og þá var gulls ígildi að hafa í bílnum tiltæka bók með upplýsingum um það helsta sem fyrir augu bar. Þegar hér var komið sögu hafði Örlygur Hálfdánarson um nokkurt skeið gefið út Ferða- handbókina og hélt útgáfa hennar áfram en um 1980 var henni steypt saman við Vegahandbókina. „Örlygur faðir minn var á ár- unum í kringum 1960 erindreki hjá Sambandi íslenskra samvinnu- félaga, fór þá víða um landið og fann þá þörfina fyrir handhæga bók um þá þjónustu sem ferðalögunum stæði til boða. Ferðahandbókin byggðist á þessari hugmynd sem má segja að lifi enn þótt form útgáf- unnar hafi breyst. Og einhvern streng í þjóðarsálinni hefur bókin snert, því hver útgáfa selst vel og svo höfum við líka aðlagað okkur nýrri útgáfutækni í gegnum app og snjallsíma. Sú nýjung skiptir miklu máli,“ segir Hálfdan. Blaðamaður hitti hann fyrir nokkrum dögum norður á Blönduósi þar sem hann var á hringferð um landið með bæk- ur á sölustaði. Bíllinn var vel hlað- inn og sölumaðurinn á hraðferð og því má segja að þarna hafi allt verið eins og það átti að vera. Menn, verur og vættir Í Vegahandbókinni er að finna kort af öllum vegum landsins og sagt er frá markverðum stöðum við þá. Þeir eru alls um 3.000 auk- inheldur sem segir frá 1.000 mönn- um, verum og vættum. Í bókinni eru jafnframt kort af landshlutum og þéttbýlisstöðum, náttúrulaugar, friðuð hús veðurstöðva og svo mætti áfram telja. Þá fylgir bókinni landa- kort í kvarðanum 1:500.000. Í app- inu er svo að finna allt efni bók- arinnar og ýmislegt annað, þar á meðal að hægt er í símanum að hlusta á 41 þjóðsögu sem Arnar Jónsson leikari les. Eru þær margar fólki kunnar, enda sígild menning. Má þarna nefna sögur um Djáknann á Myrká, Gissur í Lækjarbotnum og Bakkabræður svo eitthvað sé nefnt. Þá eru í bókinni fjöldi ljósmynda og fróðleikspistlar um land og þjóð; Ís- land í hnotskurn á 608 blaðsíðum. Farið með svarið Reglan er sú að á sléttu ártali eins og nú, 2018, kemur Vegahand- bókin út á íslensku en á oddatöluári er útgáfan á ensku og stundum þýsku. Erlendi markaðurinn er stór, segir Hálfdan, enda eru á hverjum tíma þúsundir útlendinga akandi og á ferð út um landið sem þurfa örugga leiðsögn hvort heldur er af bók eða í símanum. „Vegahandbókin er þessa dag- ana efst á sölulista Eymundsson og þegar ég fór á aðra sölustaði svo sem bensínstöðvar, ferðamannabúð- ir og víðar sá ég að staðan var góð. Svo er bókin nýkomin í sölu hjá Moggaklúbbnum, svo þetta rúllar ljómandi vel,“ segir Hálfdan og bæt- ir við að síðustu: „Faðir minn kynnti Vegahandbókina á sínum tíma með kjörorðunum; farið með svarið í ferðalagið. Fólk átti með öðrum orð- um sagt að geta í þessari bók fengið svör við þeim spurningum sem vöknuðu á ferð um landið. Sú lýsing stendur alveg fyrir sínu ennþá og sjálfum finnst mér bókin og grunn- hugmynd hennar hafa elst vel og þó eru 45 ár síðan bókin kom fyrst út. Viðtökurnar sem hver útgáfa fær staðfesta í raun og veru að formúlan sem byggt er á virkar vel.“ Vegir og bók Sígild bók á sumarferðum. Vegahandbókin hefur komið út frá árinu 1973 og nú er komin 18. útgáf- an af þessari biblíu þeirra sem um landið aka. Allskonar fróðleikur um alls 3.000 staði á landinu er í bókinni sem nú má nálgast á appinu þar sem þjóðsagnalestur er í kaupbæti. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Útgefandinn Menn geta í þessari bók fengið svör við þeim spurningum sem vöknuðu á ferð um landið, segir Hálfdan Örlygsson, hér með bókina góðu. Norðurland Eitt mesta og söguríkasta höfuðbólið, segir í Vegahandbókinni um þennan bæ, Grund í Eyjafjarðarsveit. Hér er stórbú og vegleg kirkja. Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Flugustangir og fluguhjól í úrvali. Gott úrval af fylgihlutum til veiða stólar, töskur, pilkar til sjóveiða, spúnabox margar stærðir, veiðihnífar og flattningshnífar. Abulon nylon línur. Gott úrval af kaststanga- settum, fyrir veiðimenn á öllum aldri, og úrval af „Combo“ stöng og hjól til silungsveiða, lax veiða og strandveiða. Flugustanga sett stöng hjól og lína uppsett. Kaststangir, flugustangir, kast- hjól, fluguhjól, gott úrval á slóðum til sjóveiða. Lokuð kasthjól. Úrval af flugustöngum, tvíhendur og hjól. Balance Lippa, mjög góður til silungsveiða „Original“ Fireline ofurlína, gerfi- maðkur sem hefur reynst sérstaklega vel, fjölbreitt gerfibeita fyrir sjóveiði og vatnaveiða, Berkley flattnings- hnífar í úrvali og úrval fylgihluta fyrir veiðimenn. Flugnanet, regnslár, tjaldhælar, og úrval af ferðavörum Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Veiðisport Selfossi Þjónustustöðvar N1 um allt land. Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.