Morgunblaðið - 19.07.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
U
Sumarútsalan
hafin í Kaiu
Opið virka daga kl. 11-18, lokað laugardaga í sumarListhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
30-70%af öllum
vörum
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Ég lít svo á að nú sé sveppatíminn skollinn á.
Jibbí!“ Þetta segir Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir,
sveppafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Ís-
lands (NÍ) á Akureyri, á Facebook-síðu sinni.
Morgunblaðið hafði samband
við hana til að spyrja hvort
með þessu væri búið að gefa
það út að sveppatínslutíminn
væri formlega byrjaður.
„Það er alltaf gott að byrja
snemma að tína matsveppi,
það er aldrei að vita hvenær
kemur næturfrost, og það er
best að ná þeim þegar þeir
eru nýsprottnir, því að
sveppamýið kemur og verpir í
sveppaldinið og þá verða þeir
fljótt maðkétnir,“ segir Guðríður Gyða.
Af nýjungum og óvenjulegum sveppum
kvaðst hún hafa fengið senda jarðtungu, en hún
innir fólk gjarnan eftir skemmtilegum sveppum
sem það finnur.
„Það er svartur sveppur sem er eins og kylfa
sem stendur upp úr grasinu. Ég held ég hafi
sjálf ekki séð hann úti í náttúrunni, hann er
annaðhvort sjaldgæfur eða fólk tekur ekki oft
eftir honum.“
Um matsveppi segir hún að hún mæli með því
að fólk skeri svepphattinn á matsveppum til að
gá að möðkum, sérstaklega kúalubbann, sem
vex með birki, þar sem mýið á auðvelt með að
verpa í hann. Lerkisveppur ætti að vera gulleit-
ur að neðan en verður rauðleitari ef mikið af
sveppamýi hefur verpt í hann.
„Lerkisveppur er líklega algengari hérna fyr-
ir norðan, þar sem minna er af lerki fyrir sunn-
an. Hann fannst á Siglufirði um þarsíðustu
helgi. Furusveppur ætti að vera algengur fyrir
sunnan, en hann og kóngsveppurinn koma að-
eins seinna,“ segir Guðríður Gyða.
Hún hafi frétt af furusveppnum í nágrenni
Reykjavíkur nýlega, en t.d. Heiðmörk, skóg-
ræktin við Mógilsá og Hólmsheiði séu líklegir
staðir til að finna sveppi á höfuðborgarsvæðinu.
Hún hvetur fólk til að greina matsveppina vel,
því ekki séu allir sveppir ætir.
„Að tína sveppi er prýðisaðferð til að njóta
náttúrunnar og átta sig á tengslum umhverf-
isins. Það er gaman að skoða, teikna eða ljós-
mynda þá, þeir geta verið fallegir og skemmti-
legir þó að þeir séu alls ekki allir ætir.
Sveppatínsla er skemmtilegt tómstunda-
gaman.“
Sveppatíminn er skollinn á
Morgunblaðið/Golli
Ólíkir sveppir Sjaldgæf jarðtunga og algengur
gulltoppur en báðir óætir.
Kúalubbi, lerkisveppur og furusveppur skjóta upp kollinum Betra að ná mat-
sveppum á undan sveppamýinu Sveppatínsla er prýðileg náttúruskoðun
Guðríður Gyða
Eyjólfsdóttir
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Við gerum ráð fyrir því að taka þátt
í þessu útboði enda séð um þessar
siglingar undanfarin ár,“ segir
Gunnlaugur Grettisson, fram-
kvæmdastjóri Sæferða, um útboð á
vegum Vegagerðarinnar. Þar er ósk-
að eftir tilboðum í siglingar með fólk
og vörur á Breiðafirði næstu fjögur
árin. Frestur til að senda inn tilboð
rennur út um næstu mánaðamót.
Ólíkt ferjuleiðum annars staðar á
landinu þarf sá sem sér um siglingar
á Breiðafirði að leggja til skip.
„Ríkið sér ekki um að leggja til
skip eins og tíðkast í öðrum lands-
hlutum. Tilboðið sem lagt er inn þarf
því að taka mið af bæði kostnaði
vegna reksturs og skipsins sjálfs,“
segir Gunnlaugur.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur enginn lagt inn tilboð
í verkið. Þá óttast Vegagerðin að fáir
muni taka þátt í útboðinu, sem geri
það að verkum að borga þurfi meira
fyrir þjónustuna en áður. Aðspurður
segist Gunnlaugur ekki vita til þess
að aðrir en Sæferðir hafi sýnt útboð-
inu áhuga.„Það er auðvitað ekki
hver sem er sem getur lagt til skip.
Við eigum auðvitað skipið, Baldur,
sem er í notkun á þessari leið og við
vonumst til að halda áfram að nýta
það í þetta verkefni,“ segir Gunn-
laugur og bætir við að vel komi til
greina að sigla áfram á Breiðafirði
jafnvel þó að Sæferðir verði ekki
hlutskarpastar í útboðinu.
„Við myndum alveg skoða það að
sigla á firðinum þó að aðrir fengju
þetta. Til að reka svona verkefni á
heilsársgrunni er hins vegar al-
gjörlega nauðsynlegt að vera með
umboð frá ríkinu,“ segir hann.
Ólíklegt að marg-
ir leggi inn tilboð
Sæferðir vilja áfram sjá um verkið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Baldur Skip Sæferða siglir nú með
fólk og vörur á Breiðafirði.
Björgólfur Jó-
hannsson, for-
stjóri Icelandair
Group, segir
markmiðið með
nýjum breyt-
ingum á skipu-
lagi félagsins
vera að skerpa á
áherslum í sölu-
og markaðs-
málum og þjón-
ustu við viðskiptavini.
Félagið kynnti í gær nýtt svið,
Þjónustuupplifun, sem mun taka
við þáttum sem snúa að þjónustu-
upplifun viðskiptavina Icelandair.
Birna Ósk Einarsdóttir, sem
gekk til liðs við félagið í ársbyrjun
sem framkvæmdastjóri stefnumót-
unar- og viðskiptaþróunarsviðs,
verður framkvæmdastjóri sviðsins.
Við breytingarnar fækkar um
eina stöðu hjá félaginu, en starf-
semi sölu- og markaðssviðs Ice-
landair og starfsemi Icelandair
Cargo munu heyra undir einn
framkvæmdastjóra.
Skerpt á
áherslum í
sölumálum
Björgólfur
Jóhannsson