Morgunblaðið - 19.07.2018, Side 29

Morgunblaðið - 19.07.2018, Side 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018 Hlátur hennar er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa um Sossu. Þessi ótrú- lega innilegi, kraftmikli og skemmtilegi hlátur sem hreif alla með sér. Ég man hvað ég óskaði þess að ég gæti hlegið eins og hún. Hlegið jafninnilega og Sossa. Og ég man hvað mér fannst hún flott. Ég var nefnilega svo heppin að vera umkringd frá- bærum kvenfyrirmyndum í æsku og Sossa var svo sannarlega ein af þeim. Við Heiða urðum vin- konur þegar ég var fjögurra ára gömul og Heiðargerði 28 varð fljótlega mitt annað heimili. Sossa setti því mark sitt á líf mitt og hver ég er í dag. Hún sýndi mér og okkur vinkonunum að konur geta allt. Það er ekkert því til fyrirstöðu að drífa sig í nám og verða farsæll framhaldsskóla- kennari meðfram því að reka heimili. Hún sýndi okkur að ekk- ert er ómögulegt. Þetta vega- nesti fékk ég út í lífið frá Sossu, mömmu og öðrum ótrúlega góð- um konum í kringum mig og fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Takk elsku Sossa fyrir allt, takk fyrir alla hlýjuna, leiðsögn- ina og vináttuna. Elskulegasta Heiða mín, Kiddi, Kiddi litli og fjölskyldur. Missir ykkar er mikill og hugur minn er hjá ykkur. Gunnhildur. Allt frá barnæsku hefur Sossa verið fastur punktur í okkar til- veru. Hún og mamma voru perlu- vinkonur frá unga aldri og gengu saman fram hjá helstu vörðum lífsins. Við vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að fljóta með hluta af leið og getum vart þakkað henni nægjanlega fyrir samveruna og vináttuna. Við fundum það öll fljótt af hverju mamma fann í Sossu sinn besta vin. Hún var nefnilega gædd dýrmætasta mannkostin- um af þeim öllum – hún vakti hjá fólki gleði – mikið var hún skemmtileg. Það fór ekki milli mála þegar Sossa var mætt í heimsókn. Með sinni sterku rödd heilsaði hún hátt og snjallt og knús fylgdi yfirleitt í kjölfarið. Mamma og hún hlógu tímunum saman að öllu mögulegu og hún var alltaf til staðar þegar á bját- aði. Sossa var opin og félagslynd, eilítill grallari, kát og skemmti- leg og síðast en ekki síst leift- urskörp. Hjólaferð um Frakkland árið 2014 er okkur systrunum sér- staklega minnisstæð og lýsandi fyrir Sossu. Þar fékk hún okkur ósjaldan til að skella upp úr með skemmtilegum sögum eða uppá- tækjum. Við vorum varla lentar í París þegar hún var byrjuð að blanda geði við heimamenn – „Bonjour“ ómaði gleðilega frá henni á vellinum af mikilli inn- lifun. Í ferðinni áttu hjóladagarn- ir það til að lengjast enda vegv- ísarnir fáir og við vorum oft hálf einar í heiminum. Sossa var þá auðvitað óhrædd við að spjalla við vegfarendur og spyrja til veg- ar. Hún kom okkur stundum í ógöngur með ofurtrú á frönsku- kunnáttu sinni því einhvern veg- inn sneri hún alltaf til baka með þau skilaboð að við ættum að fara til vinstri eða „à gauche“. Króka- leiðirnar hjá okkur urðu þá oft ansi margar en við komumst nú alltaf á leiðarenda að lokum. Mikið var þetta skemmtileg ferð. Soffía Magnúsdóttir ✝ Soffía Magn-úsdóttir fædd- ist 19. apríl 1952. Hún lést 30. júní 2018. Útför hennar fór fram 16. júlí 2018. Stuttu seinna dundu veikindi hennar yfir og gleðin dofnaði. Úr fjarlægð fylgdumst við með aðstand- endum hennar sýna fádæma styrk og umvefja hana ást og kærleika. Veikindin hafa nú tekið hana frá okkur og við sendum aðstand- endum hennar innilegar samúð- arkveðjur. Það hefur oft verið sagt um sanna vini að þá sé erfitt að finna, erfitt að kveðja en ómögulegt að gleyma. Nú ert þú komin hlæj- andi á leiðarenda í síðasta sinn, Sossa okkar. Framtíðarsýnin er önnur án þín en við skulum halda gleðinni áfram og reyna að fylla í skarðið fyrir mömmu. Þannig munum við heiðra þig og minnast þín. Minningin um hlýja og stór- merkilega konu mun lifa áfram. Takk fyrir gleðina og góða ferð, elsku vinkona. Ágúst, Þuríður, Arna og Vilhjálmur. Kær vinkona okkar er fallin frá eftir erfið veikindi í vel á fjórða ár. Eftir situr minningin um hlýja, skemmtilega og vel gefna konu. Vinkonu sem var einstakur gestgjafi sem og góður gestur að fá í hús og hrífandi ferðafélagi. Aldrei skorti hana umræðuefni og áhugamálin voru víðfeðm. Hún fylgdist vel með bókmennt- um, listum og menningu, sem og því sem var að gerast innanlands og utan hverju sinni. Vinkona okkar hafði ákveðnar skoðanir og tjáði þær af yfirvegun og festu, ef svo bar undir, en hún átti líka gott með að hlusta á og meta andstæð viðhorf. Hún var í senn hrifnæm og raunsæ. Allir sem kynntust henni fengu að njóta hvellandi hlátursins, glitrandi augnaráðsins og brossins sem aldrei virtist fara af andliti henn- ar. Sossa bjó yfir einstökum krafti. Eftir að hún og Kiddi vin- ur okkar stofnuðu heimili og Heiða og Kiddi fæddust ákvað hún að ljúka stúdentsprófi, dreif sig síðan að taka gráðu í íslensku í Háskólanum og hóf að miðla þekkingu sinni í einum virtasta framhaldsskóla landsins. Allt þetta gerði hún eins og ekkert væri sjálfsagðara. Þegar Sossa eignaðist sitt fyrsta barnabarn þá var hún spurð hvernig henni liði. Við gleymum aldrei svarinu þegar hún sagði: „Það sem breyttist er að hjarta mitt hefur stækkað.“ Ekki var hægt að orða það betur. Hún sá líka vel um sitt fólk, þar til heilsan tók að gefa sig og henni varð það um megn. Fyrir um fjórum árum fór að bera á sjúkdómi Sossu og það má segja að sjúkdómurinn hafi yf- irtekið líf hennar síðustu þrjú og hálfa árið. Það var afar sárt að fylgjast úr fjarlægð með þrauta- göngu hennar og hve sjúkdóm- urinn reyndi á hennar nánustu. Við vottum Kidda vini okkar, Heiðu og Kidda yngri og fjöl- skyldum þeirra okkar innileg- ustu samúð. Það er sárt að sjá á eftir svo vandaðri manneskju, en minningarnar um hana eru bjart- ar. Anna og Goði, Ásdís Rósa og Kristján, Carla og Erlendur. Ég var svo heppin að eiga Soffíu Magnúsdóttur fyrir vin- konu til margra ára. Í eldhúsinu mínu er ljósmynd af tveimur skælbrosandi konum einhvers staðar í íslenskri nátt- úru. Þær eru kappklæddar en láta veðrið ekki aftra sér frá því að njóta íslenska sumarsins í óbyggðum. Ég staldra mikið við myndina þessa dagana því nú er elsku vinkona mín öll. Kynni okkar hófust fyrir nokkrum áratugum þegar við hófum kennslu í Verzlunarskól- anum. Við náðum strax vel sam- an og urðum góðar vinkonur. Stuttu síðar tókum við að okkur að kenna á sumarnámskeiðum fyrir Norðurlandabúa í Norræna húsinu. Okkur lét ákaflega vel að vinna saman og aðdáun mín á Soffíu sem kennara var einlæg. Hún var einstaklega skapandi og gefandi, næm á líðan nemenda sinna og umhyggjusöm í þeirra garð. Svo aftur sé vitnað í myndina góðu, tókum við upp þann sið ásamt eiginmönnum okkar að ferðast um Ísland á sumri hverju með tjald, nesti og nýja skó. Við þræddum annes og hálendi. Tjölduðum í náttúrrunni á stöð- um sem við höfðum út af fyrir okkur. Elduðum góðan mat og höfðum það skemmtilegt saman, ræddum um alla heima og geima, fífluðumst, dönsuðum og nutum náttúrunnar. Oft vorum við bún- ar að lesa okkur til um svæðin sem við heimsóttum og bók- menntir þeim tengdar. Þannig lásum við aftur Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson fyrir ferðina á Vestfirði. Þegar við gengum út að Sjöundá endursögðum við eig- inmönnum okkar bókina og hin magnaða saga varð ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Tíminn er sannarlega dýr- mætur og allar góðu minningarn- ar um elsku Soffíu mína munu ávallt lifa með mér. Hún átti auð- velt með að hrífa fólk með sér og var eingöngu búin góðum mann- kostum sem erfitt er að lýsa með fátæklegum orðum. Þegar ég sé hana fyrir mér kemur upp mynd af einstaklega ljúfri og skemmti- legri persónu með góða kímni- gáfu og þetta kankvísa blik í aug- unum sem ég kunni svo vel að meta. Hún auðgaði líf allra sem kynntust henni því það streymdi frá henni mikil hlýja til þeirra sem í kringum hana voru, hvort sem það voru fjölskylda, vinir, samstarfsmenn eða nemendur. Hún dæmdi ekki aðra heldur var alltaf reiðubúin að veita aðstoð þeim sem þurftu á henni að halda. Hún var góð manneskja, glaðlynd, jákvæð og einstaklega lifandi og skemmtileg. Hún hafði afar góða frásagnargáfu og kunni manna best þá list að segja þá út- gáfu af sögunni sem var skemmtilegust og vakti mesta kátínu viðstaddra. Við vorum aldrei í vandræðum með um- ræðuefni þegar við hittumst og öll samskipti ánægjuleg. Soffía hafði mikinn áhuga á bókmenntum og var sílesandi, gjarnan með margar bækur í takinu í einu. Margar umræðurn- ar við eldhúsborðið fóru í að ræða bækur og fyrir tólf árum stofnuðum við ásamt nokkrum öðrum Verzlókennurum bóka- klúbb í stofunni hjá Soffíu. Stórt skarð er höggvið í klúbbinn okk- ar. Það er dýrmætt að eiga góða vini. Við veljum vini okkar, deil- um með þeim gleði og sorgum. Góðir vinir eru gulls ígildi og þannig vinkona var Soffía. Það er með miklum trega í hjarta að ég kveð vinkonu mína. Við Her- mann vottum fjölskyldunni okk- ar dýpstu samúð. Bertha S. Sigurðardóttir. Fljótlega eftir að Soffía kom til okkar í íslenskudeildina fór ég að kalla hana í gamni Áróðurs- meistarann. Ástæðan var sú hversu vel henni gekk að sann- færa okkur um að við þyrftum að breyta um áherslur. Venjulega hafði hún líka rétt fyrir sér og fyrr en varði höfðum við dustað rykið af gömlu kennsluefni og útbúið nýtt. Hún beitti sér af alefli fyrir því að skólinn hæfi markvissa kennslu í tjáningu og hann býr enn að því frumkvæði hennar. Soffía var móðurmáls- kennari af hugsjón, ódeig við að greina kjarnann frá hisminu og ávann sér vinsældir og hylli jafnt nemenda sem starfsmanna Verzlunarskólans. Það var alltaf bjart yfir Soffíu og hún var í senn hugprúð og háttvís. Aldrei heyrði ég hana hallmæla okkrum manni. Sam- starf okkar tveggja var farsælt og einlægt og okkur var gjarnt að slá á létta strengi jafnt innan skólans sem utan. Mér fannst ég hafa auðgast er ég fann að í henni átti ég sannan vin og æv- inlega þegar mikið stóð til heima hjá mér var hún mætt með hvers kyns góðgæti sem hæfði tilefninu hverju sinni. Les-píuhópurinn svokallaði varð til á fallegu heimili þeirra Kristins í Heiðargerðinu fyrir um það bil 15 árum. Þá bauð hún upp á kavíar og kampavín og svo var ákveðið að lesa bækur. Við vorum sjö og skiptumst á að halda fundi, sem ævinlega hófust með matarveislu og höfðu á sér menningarlegt yfirbragð þótt stundum slægi í brýnu og konur yrðu hjartanlega ósammála. Sannfæringarkrafturinn sem Soffía beitti í íslenskudeildinni kom að góðum notum þegar henni fannst sumar hálfvolgar í skoðunum eða jafnvel fara með fleipur! Það var skarð fyrir skildi þeg- ar Soffía treysti sér ekki lengur á les-píufundina vegna alvarlegra veikinda. Við fengum iðulega af henni fréttir og vonuðum í ein- lægni að henni auðnaðist að ná bata og koma aftur í hópinn til okkar. Sú von varð að engu þeg- ar við fengum þá sorgarfrétt að hún væri öll. Við kveðjum hana með þökk fyrir ómetanlega sam- veru og óskum henni fararheilla með ljóðinu Náttmyrkrið eftir Sigurð Pálsson. Treystu náttmyrkrinu fyrir ferð þinni heitu ástríku náttmyrkrinu. Þá verður ferð þín full af birtu frá fyrstu línu til þeirrar síðustu. Guðrún Egilson. Oft er fortíðin hulin þoku. Líf- ið rennur fram og amstur dag- anna ræður för. Þegar kveðja skal einstakan vin er tilefni til að staldra við, horfa yfir farinn veg og ýta hulunni til hliðar. Mynd- irnar sem birtast af Sossu eru skýrar og heilar þótt þær liggi djúpt í kistli minninganna. Við Sossa kynntumst fyrst á 8. áratuginum sem flugfreyjur hjá Flugfélagi Íslands og það var til- hlökkunarefni að lenda í áhöfn með henni. Ég var svo heppin að það gerðist oft. Við í rauðum ein- kennisbúningi með hatta, slæður og allt. Hún hlý, glaðleg og nær- gætin við nýliðann, mig. Hún spurði mig oft áhugasöm um nám mitt í íslensku. Það voru ekki orðin tóm, hana sjálfa dreymdi um að læra fagið og það gerði hún. Áratug síðar lágu leiðir okkar aftur saman í Árnagarði þar sem Sossa var komin á kaf í íslensk fræði. Það urðu fagnaðarfundir. Við deildum aðdáun á málinu og bókmenntunum og ekki leið á löngu áður en við stofnuðum les- hring. Þar lásum við allar Íslend- ingasögurnar og tókum í það nokkur ár. Sátum saman nokkr- ar vinkonur og lásum upphátt hver fyrir aðra þessa gömlu texta og veltum þeim fyrir okkur. Sumum fannst það skrítið en okkur þótti það ofsalega gaman. Sossa lauk BA-prófi í íslensku og meistaragráðu kennara og var ráðin sem íslenskukennari í Versló, gamla skólanum sínum. Á þessu skeiði vorum við nánar og áttum margar góðar stundir þar sem lagt var á ráðin um kennslufræðilegar brellur til að vekja áhuga nemenda. Af þessu lærðum við mikið. Við styrktum hvor aðra með því að miðla hug- myndum, aðferðum og reynslu. Sossa var afburðakennari. Hún hafði brennandi áhuga og miðlaði honum til nemenda sinna. Hún leiddi þá gegnum töfra bók- menntanna, benti á hvar þyrfti að lesa milli lína og góna inn í hina myrkari kima gömlu text- anna sem eru mörgum nútíma- manninum vandrataður vegur. Gleði og hlátur voru henni leið- arljós í kennarastarfinu en hún var líka afar næm á að finna ef eitthvað bjátaði á. Þá reyndist hún nemendum sínum vel. Þeir nutu nærgætni hennar og hlýju. Ef henni datt í hug að hún gæti veitt þeim styrk þótt það næði út fyrir stundatöfluna þá gerði hún það. Við vinir Sossu, sem eftir sitj- um nú vanmegnug og sorgmædd, kunnum öll ótal sögur af ein- stakri vinkonu. Hún var gleði- gjafi, hláturmild og oft ærslafull. Hún var örlát og ósérhlífin og þess nutum við ómælt. Hún kom, sagði og gerði allt þetta rétta þegar á móti blés í lífi okkar. Trú, von og kærleikur eru lyk- ilþættir í lífinu. Sossa átti allt þetta. Hún var umvafin kærleik fjölskyldu sinnar og vina. Hún leitaði sér styrks í trú og þegar hún veiktist alvarlega fyrir nokkrum árum lifði vonin um bata lengi, en vonin brást. Vilji guð láta mann lifa verður hann að leggja manni nokkuð til, er haft eftir gamalli konu en án von- ar er ekkert líf. Nú er Sossa end- anlega horfin á braut en eftir lifa fallegar minningar um einstaka konu sem lagði mikið af mörkum. Elsku Kiddi, Magnús afi, Heiða, Kiddi yngri og fjölskyld- ur. Við Dagur færum ykkur okk- ar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum góðan guð að styrkja ykkur í sorginni. Guðlaug Guðmundsdóttir. Þegar við kveðjum okkar kæru vinkonu sem hefur leikið með okkur golf í rúman áratug er þakklæti og hlýja efst í huga. Sossa hafði ljúfa og þægilega nærveru, var alltaf hress og kát og náði vel til allra í hópnum. Golfhópurinn hittist vikulega yfir sumarið til að spila golf og eiga frábærar samverustundir í kjöl- farið. Þá höfum við einnig farið í nokkrar golfferðir til útlanda sem allar hafa verið stórkostleg- ar og ýmislegt gerst. Það sem er þó minnisstæðast er að í einni af ferðum okkar til Spánar kom Sossa með gamlan pútter frá St. Andrews sem hún gaf hópnum. Þetta reyndist vera forláta grip- ur og til margs nytsamlegur. Augljóslega er hægt að pútta með honum en það sem vakti mesta lukku er leynihólf sem inniheldur lítinn viskípela. Síðast en ekki síst má nota hann sem göngustaf ef sjússarnir verða of margir. Hún kom því á að halda púttmót einu sinni á sumri og sigurvegari þess fengi St. And- rews-pútterinn til varðveislu í eitt ár. Við höfum haldið nokkur mót og kallað þau „Sossu pútter- inn“ og munum við halda áfram að keppa um pútterinn í minn- ingu hennar. Við þökkum sam- fylgdina og sendum Kidda og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Hvíl í friði, elsku Sossa, þín verður sárt saknað. Anna, Björg, Kristbjörg, Sigríður, Vigdís, golfhópnum Nalúk. Við, samstarfsfólk Soffíu Magnúsdóttur í íslenskudeild Verzlunarskóla Íslands, viljum minnast hennar í fáeinum orðum. Hún kveður okkur langt um ald- ur fram og harmur býr í hjarta. Soffía byrjaði að kenna við skólann fyrir rúmum tuttugu ár- um og við fundum strax að okkur hafði bæst góður og áhugasamur liðsmaður. Kennsluhættir og kennsluefni hafði verið í býsna föstum skorðum í deildinni um alllangt skeið en Soffía var nýj- ungagjörn og vildi taka upp ýmis nýmæli eins og aukna kennslu í framsögn og tjáningu. Það var gert og mæltist vel fyrir meðal nemenda. Soffía vildi einnig sýna nemendum eitt og annað sem væri áhugavert utan kennslu- stofunnar og einn þáttur í því voru gönguferðir á skáldaslóðir í Reykjavík þar sem ljóð skáld- anna voru lesin á viðeigandi stöð- um. Hún lét sér annt um nem- endur og brann af eldmóði. Soffía var mjög næm og ekkert mann- legt var henni óviðkomandi. Í augum margra yngri kennara var hún sterk og áhrifamikil fyr- irmynd, einatt glöð og brosmild. Hún talaði um gildi þess að sá fræjum í huga nemenda, hvort sem það sneri að náminu sjálfu eða hugleiðingum um lífið og til- veruna. Soffía var sjálf ljóðelsk og átti auðvelt með að opna augu nemenda sinna fyrir gildi ljóða. Það duldist manni ekki að hún tók starf sitt alvarlega og gekk að því heils hugar enda uppskar hún samkvæmt því. Við minnumst þess með þakk- læti hve vel Soffía tók á móti okk- ur á sínu fallega heimili þegar við héldum þar fundi starfsins vegna sem oft bar við. Hún naut þess að taka á móti gestum sínum og þeir skynjuðu hlýju og sanna vináttu í móttökum hennar og fasi. Mikill metnaður einkenndi vinkonu okkar og um góðvild hennar og mannkosti efaðist enginn. Við, samkennarar Soffíu og fé- lagar, vottum aðstandendum hennar okkar dýpstu og innileg- ustu samúð. Fyrir hönd íslenskukennara: Guðrún Ingibjörg Karlsdóttir. Það var þungbært að fregna að Soffía Magnúsdóttir væri látin svo langt fyrir aldur fram. Eng- inn sá það fyrir þegar hún hætti störfum fyrir fimm árum til þess að hafa meiri tíma fyrir sjálfa sig og fjölskylduna sem skipti hana mestu máli. Það var strax mikil eftirsjá að Soffíu á kennarastof- unni þar sem Soffía naut sín vel enda hafði hún góðan húmor og alltaf stutt í brosið og hláturinn. Það var gaman að vinna með Soffíu og hún reyndist mér ein- staklega vel þegar ég hóf kennsluferil minn við skólann. Það var alltaf gott að leita til hennar og ræða við hana um kennsluna eða bara hvað sem var. Hún var fús að deila upplifun sinni á því sem hún var sjálf að gera í kennslustofunni og deildi óhikað því hvernig síðasta kennslustund hafði gengið fyrir sig og oftast var hláturinn ekki langt undan. Hún virtist alltaf geta séð broslega hlið á þeim að- stæðum sem upp komu og naut þess að prófa eitthvað nýtt í kennslustofunni. Soffía hafði alla eiginleika sem prýða góðan kennara. Hún bar mikla virðingu fyrir starfi sínu og var einlæglega alltaf að leita leiða til þess að gera hlutina öðruvísi og betur með hag nem- enda að leiðarljósi. Hún var skapandi í sinni kennslu og nem- endur hennar nutu þess að vera með kennara sem gat sífellt kom- ið þeim á óvart í kennslustofunni. Hún gaf mikið af sér í kennslunni og var að sama skapi dáður kenn- ari sem nemendur báru mikla virðingu fyrir. Við erum þakklát fyrir þau ár sem Soffía starfaði við skólann og sendum samúðarkveðjur til fjölskyldu hennar. Fyrir hönd Verzlunarskólans, Þorkell H. Diego, yfirkennari.  Fleiri minningargreinar um Soffíu Magnúsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.