Morgunblaðið - 28.07.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018
lækka upphitunarkostnað
Rafstjórn tekur út og þjónustar
kæli- og loftræstikerfi
Varmadælur
Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is
Verð frá kr.
181.890 m/vsk
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
„Styrkurinn gerir okkur kleift að
láta þetta verða að veruleika,“ segir
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,
fulltrúi í undirbúningsnefnd
Kvennafrís 2018.
Forsætisráðuneytið tilkynnti í
gær að ríkisstjórnin myndi styrkja
Kvennafrí 2018, sem stendur að
kvennafrídeginum, um fimm millj-
ónir króna. „Við fengum hærri styrk
en okkur hafði verið tjáð og það er
bara mjög ánægjulegt.“
Kvennafrídagurinn hefur verið
haldinn nokkrum sinnum áður til að
mótmæla kynbundnum launamun.
„Árið 2010 var kynbundið ofbeldi
líka tekið með í mótmælin og í ár
verður það einnig í brennidepli. Það
sem #metoo-byltingin hefur leitt í
ljós er að kynbundið misrétti birtist
ekki einungis í launamun heldur í
alls konar misrétti á vinnumarkaði,
kynferðislegri og kynbundinni
áreitni og ýmsu öðru sem konur
þurfa að þola,“ segir Steinunn.
Styrkurinn mun nýtast Kvenna-
fríi vel. „Nú getum við fengið ein-
hvern með okkur í lið sem getur
haldið utan um þetta. Styrkurinn
mun einnig nýtast í að setja upp
svið, í leigu á hljóðkerfi og fleira.
Það er náttúrulega heljarinnar
vinna að skipuleggja viðburð sem
þúsundir taka þátt í,“ segir Stein-
unn sem vonast til þess að konur um
allt land geti tekið þátt og að
kvennafrídagurinn verði haldinn
víða um land.
Kvennafrí verður 24. október en
tímasetningin er ákvörðuð út frá
kjaramisrétti „Við munum reikna út
hvert kjaramisréttið er og hvenær
dagsins konur hafa unnið fyrir laun-
um sínum og þá verður gengið út af
vinnustöðum.“ ragnhildur@mbl.is
Kvennafrí fær 5 milljónir
Styrkur frá ríkisstjórninni Skipuleggjandi segir styrk-
inn kærkominn Kynbundið ofbeldi verður í brennidepli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kvennafrídagur Síðast var frídag-
urinn haldinn fyrir tveimur árum.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
„Ég er auðvitað mjög ánægð með að
deilunni er lokið og að ljósmæður hafi
samþykkt miðlunartillögu ríkissátta-
semjara,“ segir Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra og vísar til þess að
miðlunartillaga ríkissáttasemjara í
kjaradeilu ljósmæðra og íslenska rík-
isins hafi verið samþykkt á fundi ljós-
mæðra síðastliðinn miðvikudag.
„Ég hafði lagt áherslu á að gengið
yrði til atkvæða um þessa tillögu og
það má segja að allir hafi lagst á eitt
þegar Landspítalinn kom að málun-
um ásamt heilbrigðisráðherra og
samninganefnd ríkisins undir lokin.
Ég er ánægð að þessu ljúki með þetta
góðri sátt, þetta var samþykkt með
mjög afgerandi stuðningi,“ segir
Katrín, en tillagan var samþykkt með
95,1% atkvæða á fundi ljósmæðra.
Gerðardómur taki nú afstöðu til þess
sem verið hafi deiluefnið, þ.e. mat á
menntun og mismunandi álagi á milli
stofnana.
Stórar áskoranir fram undan
Spurð um áhrif ljósmæðradeilunn-
ar á kjaramálin almennt og þróun
kjaramála fyrir haustið, segir Katrín
stór verkefni fram undan. Stjórnvöld
séu samtalsfús og hafi þegar stigið
mikilvæg skref hvað kjaramálin varði.
„Samningar á almenna markaðn-
um eru lausir um áramót. Við höfum
hafið undirbúning að þeirri vinnu og
ríkisstjórnin byrj-
aði strax á því að
efna til reglu-
bundins samráðs
við alla aðila heild-
arsamtaka á
vinnumarkaði. Ég
tel að þau samtöl
hafi þegar skilað
árangri. Við höf-
um tekið ákvarð-
anir varðandi kjör
æðstu embættismanna ríkisins með
því að leggja niður kjararáð og í haust
fáum við nýtt fyrirkomulag varðandi
það,“ segir Katrín.
„Við höfum líka tekið ákvarðanir
varðandi atvinnuleysisbætur og ann-
að, eftir kröfum sem verkalýðshreyf-
ingin hefur haft lengi. Ég held að
þessi samskipti hafi strax skilað
ákveðnum árangri fyrir verkalýðs-
hreyfinguna,“ segir hún.
Katrín nefnir að stór heildarsam-
tök launafólks, ASÍ og BSRB, haldi
bæði þing sín í haust og að í báðum til-
vikum verði kosin ný forysta.
„Næsti fundur stjórnvalda og aðila
vinnumarkaðarins er boðaður í ágúst
og við verðum áfram með reglu-
bundna fundi. Ég á von á því að meiri
þungi færist í fundina að loknum
þessum þingum í haust,“ segir Katr-
ín.
Munu ákvarðanir kjararáðs ekki
óhjákvæmilega hafa áhrif á samn-
ingaviðræðurnar?
„Það þarf að horfa til þess sem
stjórnvöld hafa gert. Það var gerð
skýrsla sem var sameiginlegt verk-
efni aðila vinnumarkaðarins og
stjórnvalda. Niðurstaðan þar var að
leggja niður kjararáð og búa til nýtt
fyrirkomulag sem kemst á í haust,“
svarar Katrín.
„Þar kemur líka fram að ef við tök-
um saman meðaltalsþróun launa
þeirra sem heyra undir kjararáð og
miðum við að engar frekari breyting-
ar verði á henni út þetta ár, þá er sá
hópur í takt við launaþróun á almenn-
um markaði, þó að það sé dálítill mun-
ur á milli ólíkra hópa sem heyra undir
kjararáð. Þessar tölur liggja allar fyr-
ir og það eru ekki fyrirliggjandi
breytingar á kjörum þeirra sem
heyra undir kjararáð.“
Katrín ánægð með lok deilunnar
Ljósmæðradeilunni við ríkið er lokið en stór verkefni fram undan í kjaramálum Horfa þurfi til þess
sem ríkið hafi nú þegar gert Ákvarðanir þegar teknar um atvinnuleysisbætur og kjararáð lagt niður
Katrín
Jakobsdóttir
„Við fórum tveir vinirnir ásamt leiðsögumanni í
blíðviðri á svæði 2. Fljótlega fundum við hjörð á
Fljótsdalsheiði og náðum að fella tvo stærstu
tarfana,“ segir Ólafur Vigfússon, sem hér sést
með bráð sinni. Þar sem um sérlega höfuð-
prúðan tarf er að ræða ætlar Ólafur að láta
stoppa hausinn upp og halda flauelinu á horn-
unum, en vanalega fellur það af á haustin. Kjötið
fer í dýrindismáltíðir handa fjölskyldunni.
Búið er að fella 40 tarfa síðan veiðitímabilið
hófst 15. júlí sl. á öllum svæðum nema 8 og 9 skv.
Jóhanni Guttormi Gunnarssyni hjá Umhverfis-
stofnun. „Ég vona að veiðimenn nýti sér gott
veður þessa dagana til að fara á veiðar og muni
eftir að hafa öll tilskilin leyfi meðferðis.“
Ljósmynd/Úr einkasafni
Höfuðprúður tarfur felldur í björtu veðri fyrir austan
„Það er enn allt
óbreytt varðandi
ákvörðunina, en
við erum að skoða
málið og munum
líkast til komast
að niðurstöðu á
næstu tveimur til
þremur vikum,“
segir Auðunn
Freyr Krist-
insson, fram-
kvæmdastjóri aðgerðasviðs Land-
helgisgæslunnar, í samtali við
Morgunblaðið, um þyrlur af gerðinni
Airbus H225 Super Puma, sem
Landhelgisgæslan hyggst leigja í
stað þyrlna sem komnar eru til ára
sinna. Ákvörðunin hefur verið gagn-
rýnd þar sem spaðar þessarar þyrlu-
tegundar eiga það til að losna frá
þyrlunni á flugi.
„Flugöryggisstofnun Evrópu seg-
ir þessar þyrlur vera með lofthæfi.
Það er búið að gera breytingar á
þeim til að uppfylla öryggiskröfur.
Við munum fara yfir gögn sem við
höfum fengið og ef okkur líst ekki á
þetta þá munum við endurskoða
ákvörðunina. Við ætlum engum að
fljúga tækjum sem ekki eru örugg.“
ernayr@mbl.is
Málið til
skoðunar
hjá LHG
Niðurstöðu að
vænta á næstu vikum
Þyrla Airbus Su-
per Puma H225.