Morgunblaðið - 28.07.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018
Hljómsveitin Guns N’ Roses lék ívikunni á Laugardalsvelli fyrir
um 25 þúsund manns sem skemmtu
sér vel. Snemma á ferlinum gerði
sveitin lagið „One in a Million“ eða
„Einn af milljón“. Í texta lagsins er
talað niður til lögreglu, svartra, inn-
flytjenda og samkynhneigðra. Orð-
bragðið er þannig að ekki er ástæða
til að hafa það eftir.
Lagið var umdeilt á sínum tímaog var fjarlægt af endurútgáfu
plötunnar. Ekki er hægt að fullyrða
að lagið endurspegli viðhorf hljóm-
sveitarinnar, en ekkert í textanum
gefur til kynna að um sé að ræða öf-
ugmæli frekar en fúlustu alvöru.
Höfundur textans segir að hannbotni ekki í innflytjendum og
samkynhneigðum, þeir komi til
lands hans og haldi að þeir geti gert
það sem þeim sýnist, stofnað ör-
útgáfu af Íran, eða dreift ein-
hverjum fjandans sjúkdómi.
Þessi texti var ekki dreginn fram íaðdraganda komu sveitarinnar
til landsins. Ef til vill gerðu fæstir
sér grein fyrir því að þessi texti væri
til, eða áttuðu sig á orðanna hljóðan
þekktu þeir lagið.
Netverji einn tók sig þó til ogbenti á inntak textans á einum
félagsvefnum og spurði hvort ekki
væri rétt að velta þeim aðeins fyrir
sér, ekki síst í ljósi umræðu um mál-
flutning annars gests í vikunni á
undan. Uppskar hann einkum skít
og skömm fyrir uppátækið og fúk-
yrðin ekki frekar eftir hafandi en
orðbragðið í texta Guns N’ Roses.
Axl Rose og Slash.
Hvenær mega
fúkyrði fjúka?
STAKSTEINAR
Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is
Sími: 535 9000 | bilanaust.is
Gæði, reynsla og gott verð
Vottaðir hágæða
VARAHLUTIR
í flestar gerðir bifreiða
Siðan 1962
Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum
Veður víða um heim 27.7., kl. 18.00
Reykjavík 16 léttskýjað
Bolungarvík 10 skýjað
Akureyri 14 léttskýjað
Nuuk 7 alskýjað
Þórshöfn 16 alskýjað
Ósló 33 heiðskírt
Kaupmannahöfn 27 heiðskírt
Stokkhólmur 28 heiðskírt
Helsinki 27 léttskýjað
Lúxemborg 33 léttskýjað
Brussel 30 þrumuveður
Dublin 19 skýjað
Glasgow 24 léttskýjað
London 26 skúrir
París 32 þrumuveður
Amsterdam 34 heiðskírt
Hamborg 30 heiðskírt
Berlín 30 léttskýjað
Vín 29 skýjað
Moskva 26 heiðskírt
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 33 heiðskírt
Barcelona 30 heiðskírt
Mallorca 30 heiðskírt
Róm 29 þrumuveður
Aþena 29 léttskýjað
Winnipeg 18 léttskýjað
Montreal 25 skýjað
New York 27 þoka
Chicago 21 skýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:23 22:47
ÍSAFJÖRÐUR 4:03 23:16
SIGLUFJÖRÐUR 3:45 23:00
DJÚPIVOGUR 3:46 22:22
„Þetta er gríðarlega góð reynsla fyr-
ir okkur og mun koma til með að
nýtast okkur í framtíðinni,“ segir
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri
KSÍ. Vísar hún í máli sínu til tón-
leika hljómsveitarinnar Guns N’
Roses sem haldnir voru á Laug-
ardalsvelli á þriðjudag. Klara segir
að fjölmargir starfsmenn KSÍ hafi
komið að uppsetningu og vinnu við
tónleikana. „Það voru nokkrir frá
okkur sem voru í mikilli vinnu í
kringum þetta. Þess utan var mikið
álag á skrifstofunni hjá okkur,“ segir
Klara.
Spurð um hversu mikið KSÍ fékk
greitt fyrir tónleikahaldið segist
Klara ekki vilja gefa það upp. Hún
tekur þó fram að KSÍ hefði ekki tek-
ið að sér að halda tónleikana nema
að í því fælust góðar tekjur. „Þetta
er samningur sem við gerðum við
tónleikahaldara og getum því ekki
verið að gefa einhliða upp innihald
hans. Auðvitað tökum við svona
verkefni að okkur til að hljóta af því
tekjur. Við eigum síðan eftir að
skoða, með tilliti til álags á starfsfólk
sambandsins, hvort þetta borgi sig,“
segir Klara og bætir við að kanna
verði hvernig gras vallarins kemur
undan tónleikunum. „Ef grasið jafn-
ar sig fljótt er alveg möguleiki á því
að við höldum sambærilega skemmt-
un síðar meir,“ segir Klara.
aronthordur@mbl.is
Reynsla sem mun nýtast síðar meir
KSÍ vill ekki gefa upp greiðslu til sambandsins vegna tónleika Guns N’ Roses
Morgunblaðið/Valli
Tónleikar Axl Rose á vellinum.
Miðbæjarfélagið í Reykjavík hefur
fært rekstraðilum í miðbænum
strákústa, en slík hefð hefur skap-
ast á undanförnum árum til að
stuðla að betri umgengni í bænum.
„Við höfum gefið kústa áður til þess
að minna fólk á að það getur stund-
um sópað stéttina sína sjálft. Okkur
finnst borgin vera illa sópuð,“ segir
Bolli Ófeigsson, gull- og silfur-
smíðameistari og félagi í Miðbæj-
arfélaginu, í samtali við Morgun-
blaðið. Segir hann framtakið sýna
hvernig aðilar í miðbænum geti
lagt sitt af mörkum til þess að hafa
miðbæinn fallegan. Að auki er
framtakið gert til að hvetja borg-
aryfirvöld til að standa með rekstr-
araðilum í miðbænum fyrir bættri
umhirðu miðbæjarins og til að auð-
velda landsmönnum að sækja þjón-
ustu og verslun á svæðinu.
Stuðla að
hreinni borg
Kústar Björn Jón Bragason og Bolli
Ófeigsson með strákústana í hönd.