Morgunblaðið - 28.07.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 28.07.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018 19. OKT. – 1. NÓV. 2018 VERÐ FRÁ 489.900 KR. Verð á mann m.v. 2 fullorðna NÁNAR Á URVALUTSYN.IS EÐA Í SÍMA 585 4000 KAMBÓDÍA & THAILAND DULÚÐLEG & BROSANDI ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Loftrýmisgæsla Atlantshafsbanda- lagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu bandaríska flughers- ins. Að þessu sinni er hún talsvert umfangsmeiri en í fyrra. 300 liðs- menn flughersins og fimmtán F-15 orrustuþotur taka þátt í verkefninu á móti 200 liðsmönnum og sex orrustu- þotum í fyrra. „Ástæða þess að gæslan er nokk- uð umfangsmikil að þessu sinni er sú að bandaríska flugsveitin, sem stað- sett er að staðaldri í Lakenheath í Austur-Englandi, er ekki bundin við nein önnur verkefni í ágústmánuði og því var tækifærið notað til að nota hana alla við æfingar og gæslu á Ís- landi,“ segir María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri upplýsinga- og grein- ingardeildar utanríkisráðuneytisins. Hún segir að koma þessa fjölda í einu lagi sé einnig mikilvægt þjálf- unartækifæri fyrir Landhelgisgæsl- una að taka á móti og sinna slíkum fjölda þó svo að hún hafi áður fengið tækifæri til þess við loftrýmisæf- ingu, sem fram fór 2014. Loftrýmisgæsla við Ísland fer fram þrisvar á ári og stendur hvert sinn yfir í þrjár til átta vikur. Um- fang loftrýmisgæslu er breytilegt bæði varðandi fjölda daga, fjölda liðsmanna og flugvéla en margar þjóðir koma einnig með eldsneytis- flugvélar og björgunarvélar, segir María Mjöll. Lengsta loftrýmisgæslan var árið 2008 þegar franski flugherinn var hér á landi í tæpar átta vikur. Sú um- fangsmesta var í febrúar 2014 þegar norski flugherinn var hér á landi ásamt finnska, sænska og banda- ríska flughernum með nítján orr- ustuþotur, eina eldsneytisbirgða- flugvél og eina ratsjárflugvél. Mikilvægt tækifæri fyrir Landhelgisgæsluna  Umfangsmikil loftrýmisgæsla bandaríska flughersins að hefjast Herflugvél Fimmtán bandarískar F-15 orrustuþotur taka þátt loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hugmyndir um hótel í landi Hálanda við Hlíðarfjall á Akureyri hafa verið settar til hliðar í bili vegna ann- marka í breyttu aðalskipulagi. Rætt var um allt að 250 herbergja hótel. Halldór Jó- hannsson, lands- lagsarkitekt og skipulagsráðgjafi, segir skýringuna liggja í annmörk- um nýs aðalskipu- lags. „Við gerð nýs aðalskipulags Akureyrar er skil- greiningu á svæðinu öllu breytt í frí- stundabyggð. Svo stóð í texta að á miðsvæði væri heimilt að byggja hót- el. Skipulagsstofnun telur hins vegar að þessi skilgreining sé ekki full- nægjandi og sé ekki í takt við núver- andi skipulagslög. Þar af leiðandi þurfi að breyta aðalskipulaginu aftur til fyrra horfs fyrir þetta svæði. Með hliðsjón af því, og að mögulega væru ekki allir á svæðinu sáttir við þessi áform, var ákveðið að taka þennan hluta svæðisins út fyrir sviga, ef svo má segja. Það var því fellt út úr þessu deiliskipulagi og er reiturinn því enn ódeiliskipulagður,“ segir Halldór en stofa hans, Teikn – ráð- gjöf og hönnun, hefur unnið að mál- inu. Hann segir mikinn áhuga á frí- stundahúsum á svæðinu. Öll húsin á efri hluta svæðisins séu seld og nú búið að teikna ný neðar í hlíðinni. Verktakafyrirtækið SS byggir á um- rætt land og byggir húsin. Halldór segir ósamið um hótelrekstur. Staðsetningin einstök Halldór segir svæðið spennandi. Stutt sé t.d. á skíða-, hesta- og skot- svæði og gönguleiðir nærri. Útsýnið yfir Akureyri og út á fjörð sé frá- bært. „Við höfum horft til þess að fella hótelið að landslaginu. Það kom kannski ekki nógu vel fram í skipu- lagslýsingunni á sínum tíma. Það má t.d. nefna að í Færeyjum er skemmtilegt hótel í hlíðinni fyrir ofan Þórshöfn. Við höfum séð sam- bærilega hönnun fyrir okkur. Þarna er enda hæðarmunur til norðurs.“ Hótel við Hlíðar- fjall var sett á ís  Arkitekt segir annmarka á skipulagi Fyrri drög að deiliskipulagi Hálanda Lóð fyrir hótel Lóð: 18.000 m2. Hótel: 3 hæðir og 2 kjallarar. Allt að 15.000 m2. 250 herb. fyrir 500 gesti. Bílastæði: 116 stæði og 4 rútur. 52 lóðir fyrir frístundahús Lóðir: 1.260-2.160 m2. Hús: 120-150 m2. AKUREYRI Hlíðarendi Heimild: Skipulagsdeild Akureyrarbæjar Skipulag fyrir land Hlíðarenda Halldór Jóhannsson Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Jákvæðar breytingar eru á biðlistum í öllum aðgerðaflokkum eftir tveggja ára biðlistarátak heilbrigðisyfirvalda. Þetta kemur fram í skýrslu frá land- læknisembættinu sem tekur til fjölda þeirra sem eru eða hafa verið á biðlist- um á tímabilinu júní 2015 til júní 2018. Bið eftir skurðaðgerð á augasteini færist nær því að verða ásættanleg, einkum á Landspítala, og það sama má segja um bið eftir kvennaðgerð- um, s.s. aðgerðum á grindarholslíf- færum kvenna og brottnámi legs. Bið eftir hjarta- og eða kransæðamynda- töku er innan ásættanlegra marka sem stendur, segir í skýrslunni en embættið telur ásættanlega biðtíma eftir aðgerð 90 daga, eða þrjá mánuði. Í júní 2018 voru 80 á biðlista eftir hjartaþræðingu eða kransæðavíkkun og 7 einstaklingar, eða 9%, höfðu beð- ið lengur en 3 mánuði. Fyrir þremur árum voru yfir 200 á biðlista og hafði helmingur beðið lengur en 3 mánuði eftir aðgerð. Liðskiptaaðgerðir enn vandi Bið eftir liðskiptaaðgerðum er enn fjarri ásættanlegum mörkum, sér- staklega hvað varðar liðskiptaaðgerð á hné og segir embættið nauðsynlegt að auka afköst enn frekar þar. Heild- arfjöldi þeirra sem eru á biðlista eftir liðskiptaaðgerð á hné hefur þó fækkað mikið á síðustu tveimur árum en alls voru 803 á biðlista í júní 2016 en 653 í byrjun júní 2018. Af þeim 653 sem voru á biðlista í júní 2018 hafa 472 beð- ið lengur en í 3 mánuði eða um 7 af hverjum 10. Embætti landlæknis tek- ur fram að þrátt fyrir fækkun í þess- um hópi er biðtíminn enn langt um- fram viðmiðunarmörk um ásættan- legan biðtíma. Biðlistaátakið hefur einnig ekki náð almennilega að tækla biðlista eftir liðskiptaaðgerðum á mjöðm en í byrjun júní 2018 voru alls 354 á biðlista eftir aðgerð sem er svip- aður fjöldi og í fyrra en þá voru 366 á biðlista. Fyrir tveimur árum voru 492 á biðlista eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm. Þá hafa 6 af hverjum 10 sem nú bíða eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm beðið lengur en 3 mánuði, eða 214 manns. Viðmiðunarmörk embættis- ins er að um 80% komist í aðgerð inn- an þriggja mánaða og því ljóst að af- köst þurfa að aukast til að ná því markmiði. Fækkað hefur þó mjög í þeim hópi sem höfðu verið á biðlista lengur en 9 mánuði eða lengur en 12 mánuði á síð- ustu tveimur árum. Liðskiptaaðgerð- um á mjöðm hefur fjölgað að undan- förnu en 757 aðgerðir voru fram- kvæmdar á síðustu 12 mánuðunum í samanburði við 635 frá júní 2015 til júní 2016. Þá hefur yfir 100 bæklunar- skurðagðerðum verið frestað á Land- spítalanum á síðustu 12 mánuðum, oftast vegna forgangs bráðaaðgerða en einnig vegna skorts á legurýmum á deild. Biðlistar styttast á öllum vígstöðvum  Lengd biðlista eftir liðskiptaaðgerðum enn óviðunandi Morgunblaðið/Eggert Hjartaþræðing Biðlistar eftir hjartaþræðingu eru innan viðmiðunarmarka. Liðskiptaaðgerð á mjöðm Fjöldi sem hefur verið að biðlista lengur en 3 mánuði 300 250 200 150 100 50 0 júní 2014 júní 2015 júní 2016 júní 2017 júní 2018 Heimild: Landlæknir Landspítali Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi Sjúkrahúsið á Akureyri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.