Morgunblaðið - 28.07.2018, Side 14

Morgunblaðið - 28.07.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018 Með sjálfbærni að leiðarljósi Finnsk innanhússhönnun 02.03–02.09.2018 www.norraenahusid.is Innblásið af Aalto sem slíkum. „Frekar eru menn að líta til uppbyggingar í ferðaþjón- ustu, laxveiðiréttinda eða eru jafn- vel að fjárfesta í þágu umhverf- isverndar. Oft eru þessar fjárfestingar að undirlagi Íslendinga og í samstarfi við þá,“ sagði Sigríð- ur. „Ég heyri að menn lýsa áhyggj- um af þessum fjárfestingum útlend- inga án þess þó að skýrt hafi komið fram hvað það er nákvæmlega sem menn óttast. Jafnvel hefur komið fram samhliða þessum áhyggjum að menn hafi bara jákvæða reynslu af fjárfestingunum. Ég skynja það því þannig að þessar áhyggjur séu að nokkru leyti tilfinningalegs eðlis og ótti við að hagsmunir almennings verði mögulega fyrir borð bornir til framtíðar litið. Það er full ástæða til að bregðast við þessum áhyggjum. Ég rifja hins vegar upp að áhyggjur sem þessar hafa líka komið upp í umræðum um kaup rammíslenskra aðila á jörðum í gegnum árin.“ En hafa mikil uppkaup jarða til dæmis í Fljótum og Vopnafirði kom- ið ráðherranum á óvart? „Já, ég les til dæmis að einn aðili eigi um 40 jarðir í einum firði. Það kemur mér á óvart ef satt er.“ Sigríður stefnir að því að leggja fram frumvarp á kjörtímabilinu þar sem settar verði fastmótaðri reglur en nú gilda um jarðakaup útlend- inga á Íslandi. Hvaða breytingar vill ráðherrann sjá í þessum efnum? „Hvað útlendingana varðar þá veitir dómsmálaráðuneytið und- anþágur frá bannákvæðum laga eft- ir viðmiðunarreglum sem í dag taka mið af niðurstöðu þessarar nefnd- ar,“ sagði Sigríður og og vísar til nefndar um heildarendurskoðun laga nr. 19/1966 um eignarrétt og af- notarétt fasteigna. „Ég mun leggja til við þingið að þessar reglur verði færðar inn í lögin og kerfi umsókna og undanþága þannig lagt niður að mestu. Ég tel að best fari á því að kveðið sé á í lögum um eignarheim- ildir útlendinga. Þannig er gagnsæi best tryggt og jafnræði.“ En er ástæða til að setja strang- ari skilyrði en nú eru í lögum vegna kaupa á fasteignum, einkum stórum landareignum eins og bújörðum? „Það fer eftir því hvert markmiðið er. Er nauðsynlegt að halda fleiri jörðum í rækt en nú? Á mat- vælaframleiðsla undir högg að sækja? Eru menn tilbúnir til þess að borga fyrir að halda jörðum í rækt? Eru til menn sem eru tilbúnir til þess að stunda markaðsbúskap á þessum jörðum? Vilja menn kannski frekar takmarka fjárfestingar í hlunnindum jarðanna eins og lax- veiði? Ef þessu er öllu svarað ját- andi þá kann að vera ástæða til þess að setja skilyrði sem þjóna til- teknum tilgangi,“ sagði Sigríður. „Ef þú ert að spyrja um fjárfest- ingar útlendinga sérstaklega þá er það alveg ljóst að skilyrði sem kunna að verða sett munu eiga við gagnvart Íslendingum jafnt sem út- lendingum. Það er við afar takmark- aðar aðstæður sem hægt er með málefnalegum hætti að láta aðrar reglur gilda um EES-borgara en Ís- lendinga.“ EES-fólk nýtur sama réttar Sigríður sagði að borgarar EES- ríkja njóti almennt sama réttar og Íslendingar við kaup á fasteignum. Mögulega sé hægt að setja EES- borgurum þrengri skilyrði en Ís- lendingum við fasteignakaup vegna verulegra almannahagsmuna, skipu- lags tiltekinna svæða eða samfélags- legra markmiða á borð við að halda tilteknum bújörðum í rækt og til- teknum svæðum í byggð allt árið. Einnig vegna umhverfisverndar eða verndar sérstakra menningarsvæða. Byggja verði á þessum sjónarmiðum með málefnalegum hætti og með- alhóf að leiðarljósi. Sýna verði fram á að ekki sé gengið lengra en nauð- syn krefur til að ná þessum mark- miðum. „Eignarrétturinn er varinn af stjórnarskránni og er mannréttindi. Menn geta ekki takmarkað eign- arréttinn nema með mjög málefna- legum sjónarmiðum og þannig að meðalhófs sé gætt,“ sagði Sigríður. Hins vegar sé hægt að setja strang- ari skilyrði gagnvart þeim sem standa utan EES og það sé gert í lögum. Eins og fram hafi komið í Morgunblaðinu í gær hafi umsókn- um um leyfi til að kaupa hér fast- eignir verið hafnað. Búsetuskylda langsótt Fram hefur komið í umfjöllun um þessi mál undanfarið að t.d. Danir og Norðmenn hafa að sumu leyti sett strangari skilyrði fyrir kaupum á bújörðum en við. Kemur til greina að taka upp búsetuskyldu hér eða gera kröfu um nýtingu á ræktuðu landi og að því sé viðhaldið í góðu ástandi til landbúnaðar? „Þær takmarkanir sem í gildi eru í Danmörku og Noregi gilda að mestu gagnvart dönskum og norsk- um borgurum. Búsetuskilyrði á jörðum í Noregi ná jafnt til Norð- manna og útlendinga. Mér þykir af- ar langsótt og óraunhæft að tak- marka aðilaskipti að jörðum á Íslandi með búsetuskyldu. Það væri ansi harkalegt gagnvart núverandi jarðeigendum sem vilja bregða búi,“ sagði Sigríður. Töluvert margar bújarðir eru nú komnar í eigu félaga sem svo eru í eign annarra félaga, oft erlendra, og svo koll af kolli. Sýslumannsemb- ættin og ráðherra eiga að fylgjast með því að skilyrði laganna fyrir eignarhaldi séu uppfyllt. Hvernig er eftirliti háttað með því hvort skilyrði laga eru uppfyllt ef þessi félög ganga kaupum og sölum? „Lagaskilyrði eru könnuð við þinglýsingu og eftir atvikum við um- sókn um undanþágu. Það er útilokað að fylgjast í framhaldinu með við- skiptum með hluti í félögum. Ráð- herra hefur hins vegar heimild til þess að þinglýsa kvöð á eign ef upp- lýst er um að eignarhald hennar sé ekki samræmi við lög nr. 19/1966,“ sagði Sigríður. Hún nefndi til dæmis jörð í eigu íslensks félags sem svo selur jörðina erlendu félagi utan EES-svæðisins. „Nýi eigandinn þyrfti að sækja um leyfi til ráðu- neytisins til að eignast jörðina. Gerði hann það ekki myndi málið stoppa í þinglýsingu,“ sagði Sigríð- ur. En hafa íslensk stjórnvöld burði og ráð til þess að kanna hvort nýir eigendur að hlutafélagi sem á jörð, mögulega erlendir, uppfylla skil- yrðin? „Það eru engin skilyrði um eig- endur hlutafélaga í þessu sambandi. Eina skilyrðið er að eigandi jarð- arinnar sé íslenskur aðili eða EES- aðili. Ef hlutafélagið er íslenskt eða til heimilis á EES-svæðinu þá upp- fyllir það skilyrði laganna. Því flókn- ari sem skilyrðin eru, svo sem kvöð um búsetu, ræktun eða sérstök tengsl við landið og svo framvegis, því erfiðara er að kanna hvort þau eru uppfyllt.“ Gagnsæi á að ríkja Hve mikilvægt er að þínu mati að gegnsæi ríki um eignarhald á ís- lensku landi, t.d. bújörðum? „Ýmis lög krefjast þess að gagnsæi ríki um eignarhald fast- eigna. Það þarf að minnsta kosti að liggja fyrir hver ber ábyrgð á eign- inni og tekur ákvörðun um ráð- stöfun hennar,“ sagði Sigríður. En þarf að setja skýrari reglur um til dæmis fulltrúa eiganda eða tengilið vegna hverrar landareignar? „Ég hef ekki orðið vör við að þetta sér raunverulegt vandamál en það kann að vera,“ sagði Sigríður. Lög mæla svo fyrir að ef ein- staklingur eða félag eignast fasteign án þess að uppfylla skilyrði laga fyr- ir því skuli koma fasteigninni í sölu- ferli. Eru þess dæmi að jörðum hafi verið komið í söluferli af þessari ástæðu? „Nei, ég þekki ekki dæmi þess. En það er rétt að hafa í huga að þegar synjað er um leyfi til kaupa á fasteign eftir gerð kaupsamnings þá teljast fasteignakaupin ógild sam- kvæmt 2. grein laga númer 19 frá 1966. Þetta gerist nokkrum sinnum á ári,“ sagði Sigríður. Full ástæða til að bregðast við  Ef takmarka á eignarhald á jörðum verður að gera það með lögum og fylgja því svo eftir  Fagnaðarefni ef útlendingar vilja fjárfesta hér og fjárfestingin fellur að hagsmunum Íslendinga Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Dómsmálaráðherra „Það felst í fullveldisrétti Íslands að löggjafinn getur alltaf sett eignarhaldi skorður til að ná einhverjum samfélagslegum markmiðum,“ sagði Sigríður Á. Andersen. Sigríður Á. Andersen tók við embætti dómsmálaráðherra 11. janúar 2017. Áður hafði hún starfað sem héraðs- dómslögmaður og verið al- þingismaður. Sigríður þekkir vel til laga- umhverfisins varðandi fast- eignir og afnotarétt þeirra. Hún átti m.a. sæti í nefnd um heildarendurskoðun laga nr. 19/1966 um eignarrétt og afnotarétt fasteigna. Nefndin skilaði skýrslu 30. maí 2014 og var m.a. stuðst við tillögur nefndarinnar við samningu viðmiðunarreglna sem stuðst er við þegar um- sóknir útlendinga um kaup á fasteign á Íslandi eru af- greiddar í dómsmálaráðu- neytinu. Sigríður Á. Andersen DÓMSMÁLARÁÐHERRAVIÐTAL Guðni Einarsson gudni@mbl.is Full ástæða er til að bregðast við áhyggjum fólks af jarðakaupum er- lendra aðila hér á landi, að mati Sig- ríðar Á. Andersen dómsmálaráð- herra. Hún minnti á að einnig hafi orðið vart við áhyggjur vegna kaupa rammíslenskra aðila á jörðum í gegnum árin. Sigríður benti á að það séu um 7.700 jarðir skráðar á Íslandi og af þeim séu 6.600 lögbýli. Eins og kom- ið hafi fram í Morgunblaðinu séu 384 jarðir að hluta eða í heild í eigu aðila með lögheimili erlendis, þar af séu 62 jarðir að fullu í eigu aðila með lögheimili erlendis. Þar á meðal séu trúlega Íslendingar. Eignarhald sé ljóst „Ég veit að margir, þar á meðal erlendir aðilar, hafa keypt jarðir í gegnum félög eða með því að kaupa hluti í félögum sem eiga jarðir. Lög- in heimila það. Það væri mögulegt að kveða á um það í lögum að það yrði að liggja fyrir hvaða ein- staklingar eiga félögin, telji menn að það skipti máli í sjálfu sér. Fyrir því eru fordæmi eins og varðandi eign- arhald á flugfélögum, en það er mjög sérstakt fordæmi. Hafi menn áhuga á að takmarka eignarhald á jörðum með einhverjum hætti verð- ur að gera það með lögum og fylgja því svo eftir. Það má draga í efa að það sé framkvæmanlegt að fylgjast með því með góðu móti. Það vill líka oft gleymast í þessu samhengi að það felst í fullveld- isrétti Íslands að löggjafinn getur alltaf sett eignarhaldi skorður til að ná einhverjum samfélagslegum markmiðum. Menn þurfa svo að komast að niðurstöðu um hvert hið samfélagslega markmið er. Við Ís- lendingar förum alltaf með skipu- lagsvaldið. Það má ekki gleyma því. Í þessu sambandi skiptir ekki máli hvort jarðeigendurnir eru Íslend- ingar eða útlendingar, eitt verður yfir alla að ganga. Hins vegar er það fagnaðarefni í sjálfu sér að útlendingar hafi áhuga á að fjárfesta hér á landi, þar með talið í jarðnæði ef tilgangurinn fellur að hagsmunum okkar Íslendinga,“ sagði Sigríður. Hún sagði að ekki megi gleyma því að Íslendingar geri kröfu um að eiga þennan rétt er- lendis. Íslendingar hafi keypt bæði húsnæði og jarðir í EES-löndunum og víðar. Hún sagði að sér virtist áhugi út- lendinga ekki beinast að bújörðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.