Morgunblaðið - 28.07.2018, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018
JÓN BERGSSON EHF
Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is
GARÐSKÁLAR Á HJÓLUM
Hentar þetta þínum garði, svölum,
rekstri eða sumarbústað?
Vogir sem sýna verð
á vörum eftir þyngd
Löggiltar fyrir Ísland og
tilbúnar til notkunar
ELTAK sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
VERSLUNAR-
VOGIR
Framkvæmdum við Vesturbæjar-
skóla fer senn að ljúka en unnið
hefur verið að viðbyggingu við
skólann í rúmt ár. Töluvert rask
hefur orðið á umferð í Vestur-
bænum vegna framkvæmdanna og í
maí var Framnesvegi lokað frá
Hringbraut. Á sú lokun að gilda út
verktímann.
Í ágúst 2015 var tekin skóflu-
stunga að viðbyggingu við skólann
en framkvæmdir hófust í mars
2017, er Reykjavíkurborg greinir
frá á vefsíðu sinni. Verktakafyr-
irtækið Munck Íslandi ehf. sá um
framkvæmdina en samþykkt tilboð
þeirra hljóðaði upp á rúmar 633
milljónir. Viðbyggingin verður á
þremur hæðum; á fyrstu tveimur
hæðunum er gert ráð fyrir al-
mennri kennslu og samkomusal. Á
þriðju hæð er áætlað að hafa gróð-
urhús og þakgarð. Stefnt er að því
að viðbyggingin verði tilbúin til
notkunar í byrjun skólaárs 2018.
ninag@mbl.is
Framkvæmdum að
ljúka í Vesturbæ
Framnesvegur Gatan hefur verið lokuð í
nokkra mánuði vegna framkvæmda.
til austurs meðfram Hafnartorginu
verði opnuð fyrir umferð um miðjan
ágúst, samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg.
Lækjargatan, milli Hverfisgötu
og Geirsgötu, verður áfram ein ak-
rein í hvora átt fram eftir hausti.
Vinna stendur yfir við að endurgera
kaflann sem nú er lokaður. Þegar
því verki lýkur verður umferðin
færð yfir á þær tvær akreinar en í
framhaldinu verða þær tvær akrein-
arnar sem nú eru notaðar end-
urgerðar.
Framkvæmdir við endurgerð
Tryggvagötu, frá Pósthússtræti að
Lækjartorgi, hófust í byrjun júní.
Lokað var fyrir umferð um
Tryggvagötu á þessum kafla og
stefnt er að því að hleypa umferð á
hann að nýju þegar verki lýkur í
byrjun október.
Áætlanir gera ráð fyrir endurgerð
Hverfisgötu frá Smiðjustíg að Lækj-
argötu árið 2019. Hverfisgatan hefur
verið endurnýjuð í áföngum á und-
anförnum árum. Segja má að þessi
áður drungalega gata hafi gengið í
endurnýjun lífdaga við þessar fram-
kvæmdir.
Umferðartafir í miðbænum
vegna byggingarframkvæmda
Geirsgatan klárast í næsta mánuði Þrenging í Lækjargötu næstu tvö árin
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Geirsgata Vegna byggingarframkvæmda á Hafnartorgi hefur Geirsgatan aðeins verið ein akrein í austurátt. Gríð-
arlegar bílaraðir hafa oft myndast á svæðinu á álagstímum og umferðin hefur silast áfram með hraða snigilsins.
Lækjargata Vestari hluta götunnar hefur verið lokað vegna byggingar nýs
hótels, þar sem Íslandsbankahúsið stóð áður. Gatan verður lokuð í tvö ár.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Miklar byggingarframkvæmdir
standa yfir í miðborg Reykjavíkur,
þær mestu í sögunni. Af þeim sökum
hefur verið þrengt að bílaumferð á
nokkrum stöðum og hafa myndast
langar bílaraðir, sérstaklega á há-
annatímum. Jafnframt var hámarks-
hraði víða lækkaður í 30 km á
klukkustund sem jók enn á tafirnar.
Hefur þetta ástand óneitanlega
valdið pirringi hjá ökumönnum.
Á næstu mánuðum mun ástandið
lagast til muna.
Nýjasta þrengingin er á Lækjar-
götu, milli Skólabrúar og Vonar-
strætis. Þar hefur tveimur akreinum
verið lokað vegna framkvæmda við
hótel á hornlóðinni þar sem Íslands-
banki var áður. Nú er bílaumferð að-
eins um eina akrein í hvora átt á
þessum kafla. Verktakinn, TVT ehf.,
hefur fengið útgefið leyfi til lokunar
götunnar til loka maí 2019. Búast má
við að afnotaheimildin verði fram-
lengd því gert er ráð fyrir að umferð
í Lækjargötu/Vonarstræti verði með
þessum hætti, eða svipuðum, fram á
sumar 2020.
Ný umferðarljós hafa verið sett
upp á gatnamótum Lækjargötu og
Vonarstrætis, vegna þessara fram-
kvæmda.
Vestari akbraut lokuð
Milli Skólabrúar og Vonarstrætis
fer umferð nú eftir Lækjargötu um
eystri akbraut þar sem vestari ak-
braut verður notuð undir gönguleið
og vinnuaðstöðu verktaka. Af þess-
um sökum lokast um helmingur
safnstæðis hópbifreiða við Mæðra-
garð.
Einungis strætisvögnum verður
heimilt að aka vestur Vonarstræti
meðan á framkvæmdum stendur og
þá aðeins ef þeir koma eftir Lækj-
argötu úr norðri (hægri beygja inn í
Vonarstræti). Allri annarri umferð
að Vonarstræti er beint um
Skólabrú.
Miklar framkvæmdir hafa staðið
yfir á Geirsgötu og gatnamót við
Lækjargötu og Kalkofnsveg. Búið er
að hleypa umferð á allar fjórar ak-
reinar Kalkofnsvegar, auk þess sem
ný umferðarljós á gatnamótunum
hafa verið virkjuð.
Aðeins ein akrein hefur verið í
notkun á Geirsgötu til austurs. Af
þeim sökum hafa myndast gríð-
arlangar bílaraðir á götunni á álags-
tímum. Hafa þær á stundum náð
langleiðina að Ánanaustum. Vinna
stendur yfir við að endurgera kafl-
ann og er gert ráð fyrir að Geirsgata
Bæjartorg, þar sem Bæjarins
bestu hafa verið með pylsu-
vagn, hefur verið endurgert
samtímis og er verkið langt
komið. Litaðir steinar munu
prýða torgið.
Bæjarins bestu fá framtíð-
arstað á Bæjartorgi að fram-
kvæmdum loknum, en á þessum
stað hefur þessi heimsþekkti
pylsuvagn staðið um áratuga
skeið. Pylsuvagninn hefur verið
til bráðabirgða við hlið Eim-
skipafélagshússins, gegnt Bæj-
artorgi.
Á Bæjartorgi hefur risið ný
spennistöð Veitna og setur hún
svip sinn á torgið.
Flytja á sinn
gamla stað
BÆJARINS BESTU
Morgunblaðið/Árni Sæberg