Morgunblaðið - 28.07.2018, Blaðsíða 23
Tekjur Amazon hækkuðu um
39% og voru 52,9 milljarðar dollara.
Það er um 500 milljónum dollara
minna en greiningaraðilar vestan-
hafs bjuggust við en innan skekkju-
marka, að því er fram kemur í Fin-
ancial Times.
Tæknifyrirtæki tóku dýfu
Hlutabréf í Amazon höfðu lækk-
að um 3% á fimmtudaginn í kjölfar
niðursveiflu tæknifyrirtækja á
markaði, sem leidd var af hluta-
bréfum Facebook. Gengi bréfa
Amazon hækkaði hins vegar aftur
um 3% í gær eftir að árshluta-
uppgjör hafði verið birt.
Tæknifyrirtæki vestanhafs hafa
átt erfitt uppdráttar í vikunni, þá
sérstaklega Facebook, sem greindi
óvænt frá því að vöxtur félagsins
væri að dragast saman. Fréttirnar
þurrkuðu út um 100 milljarða doll-
ara af markaðsvirði Facebook, yfir
10 þúsund milljarða íslenskra
króna á gengi gærdagsins. Bréf fé-
lagsins lækkuðu um rétt tæplega
20%.
Facebook gaf út tilkynningu um
að bæði tekjur fyrirtækisins og not-
endafjöldi yxu hægar en spár hefðu
gert ráð fyrir. Á öðrum ársfjórð-
ungi jókst samt sem áður hagnaður
Facebook um 31% og nam 5,1 millj-
arði dollara, tekjur jukust einnig
um 42% og voru 13,2 milljarðar.
Facebook er með um 2,23 milljarða
virkra notenda.
Facebook er ekki eina
tæknifyrirtækið sem átti slæma
viku á hlutabréfamarkaði. Í árs-
hlutauppgjöri Twitter í gær kom
fram að virkum mánaðarlegum not-
endum fækkaði um 1 milljón frá
sama ársfjórðungi í fyrra. Þetta
kemur í kjölfar átaks til þess að
hreinsa út sýndarnotendur og of-
beldisfulla hegðun úr forritinu, að
því er AFP-fréttastofan greinir frá.
Gengi hlutabréfa félagsins lækkaði
um 14% við opnun viðskipta í gær.
Engu að síður skilaði Twitter met-
hagnaði á öðrum ársfjórðungi.
Netflix skilaði uppgjöri annars
ársfjórðungs í síðustu viku. Í frétt
Financial Times kemur fram að
áskrifendum streymisveitunnar
hafi ekki fjölgað í takt við vænt-
ingar greiningaraðila.
Google hækkar
þrátt fyrir sekt
Stórfyrirtækið Alphabet, móður-
félag Google, skilaði hagnaði upp á
3,2 milljarða dollara á öðrum árs-
fjórðungi, sem er samdráttur um
9% frá sama tímabili 2017. Tekjur
félagsins hækkuðu engu að síður
um 26%, eða um 32,7 milljarða
bandaríkjadollara.
Þrátt fyrir samdrátt í hagnaði
félagsins hækkaði gengi hlutabréfa
Alphabet um 3,7% í kjölfar upp-
gjörsins.
Stutt er síðan samkeppniseftirlit
ESB sektaði Google um 4,3 millj-
arða evra eða rúmlega 540 milljarða
íslenskra króna, fyrir að hafa brotið
gegn samkeppnislögum með því að
skilyrða notkun hugbúnaðar fyrir-
tækisins í Android-stýrikerfinu, líkt
og fram kom á mbl.is í síðustu viku.
Þessar fréttir virtust ekki hafa haft
mikil áhrif á gengi hlutabréfa fé-
lagsins, sem hafa hækkað um 15%
síðastliðinn mánuð. Google hefur
tilkynnt að það muni áfrýja sekt
samkeppniseftirlits ESB.
Uppgjörum
stórfyrirtækja
misvel tekið
Methagnaður Amazon Google
hækkar áfram þrátt fyrir sekt ESB
AFP
Tækni Gengi hlutabréfa í Google hefur hækkað umtalsvert undanfarið. Ama-
zon skilaði góðu uppgjöri en önnur tæknifyrirtæki hafa fallið í skuggann.
FRÉTTASKÝRING
Steingrímur Eyjólfsson
steingrimur@mbl.is
Amazon fór fram úr væntingum
greiningaraðila þegar kynnt var
árshlutauppgjör fyrirtækisins í
gær. Í fyrsta skipti í sögu þess fór
hagnaður á fjórðungi yfir tvo millj-
arða dollara, sem má að mestu
rekja til hárrar framlegðar af
skýjaþjónustu fyrirtækisins, sem og
yfirburðastöðu á sviði netverslunar.
Methagnaður Amazon
Hagnaður Amazon á öðrum árs-
fjórðungi var 2,5 milljarðar dollara,
jafngildi um 265 milljarða íslenskra
króna, en félagið fór í fyrsta skipti
yfir eins milljarðs dollara múrinn á
einum fjórðungi í lok síðasta árs.
Hagnaður á hlut var 5,07 dollarar á
þriðja ársfjórðungi. Það er töluvert
yfir spám markaðsgreinenda, sem
að meðaltali gerðu ráð fyrir 2,51
dollara á hlut samkvæmt Financial
Times.
Hagvöxtur í Bandaríkjunum
mældist 4,1% á öðrum ársfjórð-
ungi, samkvæmt hagtölum sem
birtar voru í gær. Þetta er mesti
hagvöxtur sem mælist meðal
iðnríkja, að því er bandaríska
viðskiptaráðuneytið heldur
fram, og mesti hagvöxtur í
Bandaríkjunum á einum árs-
fjórðungi frá þriðja fjórðungi
2014. Hagvöxturinn var í takt
við væntingar markaðarins sem
afleiðing af skattalækkunum
stjórnar Donalds Trump, sem
tóku gildi í upphafi árs. Tíðindin
höfðu því nánast engin áhrif á
fjármálamarkaði.
Mikill vöxtur
á 2. fjórðungi
HAGVÖXTUR VESTANHAFS
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018
Eiginleikar burðarpokans:
• hentar börnum frá 3,5-20 kg
• viðheldur M-stöðu mjaðma
og fóta
• leyfir baki nýbura að vera kúpt
• hægt er að bera barnið á þrjá
vegu, að framan, á baki og
á mjöðm
• dreifir þunga barnsins vel fyrir
þann sem ber barnið
• einfaldur í notkun
• úr lífrænni bómull og hampi
• til í mörgum fallegum litum
Þegar velja á burðarpoka er
mikilvægt að pokinn fari vel með
líkama barnsins.
Manduca burðarpokinn er hann-
aður af þýskum barnaburðarsér-
fræðingum með það markmið að
leiðarljósi að barn geti viðhaldið
M-stellingu fóta og mjaðma.
MANDUCA
BURÐARPOKINN
Kíktu á
netverslun okkar
bambus.is
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14