Morgunblaðið - 28.07.2018, Síða 24

Morgunblaðið - 28.07.2018, Síða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is MOVIE STAR hvíldarstóll Verð frá 398.000,- Norður-Kóreumenn hafa skilað lík- amsleifum 55 bandarískra her- manna, sem létu lífið í Kóreustríðinu, til Bandaríkjanna. Frá þessu er sagt á fréttavef Huffington Post. Þetta er í samræmi við loforð sem Kim Jong- un gaf Donald Trump Bandaríkja- forseta á fundi þeirra í júní. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2005 sem stjórnvöld Norður-Kóreu hafa skilað líkamsleifum hermanna til Vesturlanda. Þá skiluðu Norður- Kóreumenn 220 líkum í samstarfi við bandaríska herinn en hættu flutning- unum þegar samband ríkjanna versnaði vegna kjarnaáætlunar rík- isins. Enn eru um 7.700 lík banda- rískra hermanna ófundin á Kór- euskaga. Líkum 55 Banda- ríkjamanna skilað Athöfn Líkum skilað til S-Kóreu. NORÐUR-KÓREA Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Ljóst er að krikket-leikarinn Imran Khan hefur unnið stórsigur í þing- kosningunum sem haldnar voru í Pakistan í fyrradag. Flokkur hans, Pakistan Tehreek-e-Insaf (Réttlæt- ishreyfing Pakistan eða PTI), er stærsti flokkurinn á pakistanska þinginu með 114 þingsæti af 269. Þó mun Khan þurfa að finna sér sam- starfsflokk hyggist hann mynda ríkisstjórn. Sitjandi stjórnvöld hafa vænt Khan um að svindla í kosningunum með aðstoð hersins og annarra ríkis- stofnana en kosninganefndin hefur þvertekið fyrir allt slíkt. Samkvæmt umfjöllun The Guardian um kosn- ingarnar hafa leiðtogar sex stjórn- málaflokka tilkynnt að eftirlits- mönnum þeirra hafi verið vísað frá kjörstöðum. Múslimabandalag Pak- istan (PML-N), stjórnarflokkur Pakistan á nýliðnu kjörtímabili, hef- ur svarið þess eið að fara með málið fyrir rétt. Glaumgosi og krikket-hetja Í vesturheimi er Imran Khan að- allega þekktur sem íþróttahetja sem tryggði Pakistan sigur í heimsmeist- arakeppni í krikket árið 1992. Hann á sér einnig orðspor sem glaumgosi og er þekktur úr vestrænum slúð- urtímaritum vegna níu ára hjóna- bands síns og bresku fjölmiðlakon- unnar Jamimu Goldsmith. Khan er þó enginn nýgræðingur í pakistönskum stjórnmálum. Hann stofnaði Réttlætishreyfinguna árið 1996 en lengst af hefur flokkurinn verið jaðarsettur. Fyrsta áratuginn eftir stofnun hans vann hann aðeins fáein sæti á pakistanska þinginu en vinsældir flokksins fóru á flug árið 2012 þegar ungir kjósendur sem mundu eftir krikket-hetjunni Khan frá æskuárum sínum náðu kosninga- aldri. „Imran er heiðarlegur. Hann er flottur leiðtogi,“ sagði tvítugur Pakistani við blaðamenn AFP eftir að hafa kosið Khan. Khan segir að flokkurinn hafi ver- ið illa undirbúinn fyrir skyndilegar vinsældir sínar og því hafi honum ekki gengið eins vel og hægt var í kosningunum árið 2013. Þetta ár hafi hann hins vegar verið vel undirbúinn og hafi notið góðs af því. Líkt og margir upprennandi stjórnmálaleiðtogar á Vesturlöndum hefur Khan einnig notið góðs af því að vera talinn óspilltur og að standa utan hefðbundinnar valdaklíku í Pakistan. Erfitt er að staðsetja hann á pólitíska litrófinu og hefur hann því sætt ásökunum fyrir hentistefnu. Hann hefur lýst sér sem frjálslynd- ismanni en hefur um leið reynt að höfða til íhaldsmanna, íslamista og til herstéttarinnar. Khan segir markmið sitt vera að gera Pakistan að „íslömsku velferðarríki“. Krikket-hetja stefnir á forsætisráðherrastólinn  Imran Khan stefnir að uppbyggingu „íslamsks velferðarríkis“ í Pakistan AFP Khan Stuðningsmaður Réttlætishreyfingarinnar við hliðina á kosningaplakati Imrans Khan, sem líklega verður næsti forsætisráðherra Pakistan eftir nýliðnar kosningar. Andstæðingar Khan hafa sakað hann um kosningasvindl. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Hitabylgja sem nú geisar um Evr- ópu hefur kveikt ófáa skógarelda undanfarna viku. Frá þessu er sagt á fréttavef AFP. Evrópubúum hefur verið ráðlagt að nýta ekki „góða veðrið“ til að grilla úti af ótta við að enn fleiri eldar gætu kviknað. Jafn- framt hafa stjórnvöld í Hamborg hætt við flugeldasýningar vegna eld- hættunnar. Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, gekkst í gær við „póli- tískri ábyrgð“ á skógareldum sem hafa banað minnst 87 manns austan við Aþenu. „Ég tel það vera skyldu forsætisráðherrans og ríkisstjórn- arinnar,“ sagði hann á fjölmiðlaráð- stefnu. Í Hollandi hafa 1.143 skógareldar verið taldir fyrstu 25 dagana í júlí. Til samanburðar má nefna að aðeins 187 eldar kviknuðu allan júlímánuð í fyrra. Síðustu vikur hafa hitamet verið slegin eða jöfnuð víðs vegar um norðurhvel jarðar og alvarlegir eldsvoðar hafa einnig tröllriðið Kali- forníu í Bandaríkjunum. Loftslags- fræðingar vara við því að hiti sem þessi gæti orðið reglan fremur en undantekningin með áframhaldandi hlýnun jarðar. AFP Hiti Slökkviliðsmaður berst gegn eldhafi í Kineta við Aþenu síðastliðinn mánudag. Svipaðir eldar hafa kviknað víðs vegar um Evrópu og Ameríku. Skógareldar geisa um norðurhvel jarðar Aðdragandinn að forsetakosn- ingum sem haldn- ar verða í Malí á sunnudaginn hef- ur verið blóð- ugur. Ibrahim Boubacar Keïta, sitjandi forseti, sækist eftir endurkjöri en á stjórnartíð hans, sem hófst árið 2013, hefur mikill ófriður ríkt í landinu. Árið 2018 hafa um 300 almennir borgarar látist í átökum milli malískra þjóðarbrota. Í gær var tilkynnt um dauða um 18 manns í miðhluta Malí samkvæmt fréttavef Reuters. Neyðarástand hefur ríkt í rúm þrjú ár vegna upp- reisnar jihadistahreyfinga í norður- hluta Malí en Keïta segir að stríðs- ástandi sé að mestu lokið. Blóðug átök fyrir forsetakosningar Ibrahim Boubacar Keïta MALÍ „Við ætlum að stýra Pakistan eins og því hefur aldrei verið stýrt áður,“ sagði Imran Khan um áætlanir sínar sem verðandi leiðtogi lýðveldisins Pakistan. Allt frá því að Khan sagði skilið við íþróttir og hóf feril sinn í stjórnmálum hefur hann talað gegn spillingu í landinu. Fyrrverandi forsætisráðherra fráfarandi ríkis- stjórnar, Nawaz Sharif, var eitt af fyrstu fórnarlömbum Panama-skjalanna en í þeim var upplýst um eignir upp á marga milljarða króna sem Sharif og fjölskylda hans geymdu í Bretlandi og í aflandsfélögum. Samkvæmt grein The New York Times væna stuðningsmenn Sharifs pakistanska her- inn um að hafa beitt þrýstingi á dómstóla til að víkja Sharif úr embætti vegna málsins. Herinn hefur haft mikil ítök í stjórn Pakistan nánast frá stofnun ríkisins og Khan hefur verið vændur um að vera „þeirra maður“ í kosningabaráttunni. Frambjóðandi hersins? IMRAN KHAN Nawaz Sharif

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.