Morgunblaðið - 28.07.2018, Page 29

Morgunblaðið - 28.07.2018, Page 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018 Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrirVOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Framtak-Blossi kappkostar að bjóða góða þjónustu og sanngjarnt verð á varahlutum. Hafið samband við Hafþór í síma 895-3144 eða hafthor@blossi.is Xtracon-mótið sem stenduryfir þessa dagana áHelsingjaeyri í Danmörkuer að mörgu leyti byggt upp á svipaðan hátt og síðustu Reykjavíkurskákmót. Þátttakendur eru um 400 talsins, þar af nokkrir nafntogaðir stórmeistarar, og er mikill stigamunur á keppendum. Það er einmitt í viðureignum þar sem stigabil er mikið að gengi manna ræðst; að vinna stigalægri andstæðinga sína er krafa dagsins og ekki verður annað sagt en að sterkasta fulltrúa okkar, Jóhanni Hjartarsyni, hafi gengið vel í því verkefni. Fyrir sjöundu umferð, sem fram fór á fimmtudag, hafði hann unnið fimm skákir gegn stigalægri andstæðingum en tapað fyrir einum stigahærri og í þeirri sjöundu átti hann góða stöðu lengst af gegn rúss- neska stórmeistaranum Vitiugov, en lagði út í mannsfórn sem ekki gekk upp þó hann hafi á ákveðnum tíma- punkti eftir fórnina verið búinn að snúa taflinu sér í vil. Jóhann hefur gefið kost á sér í lið Íslands sem tefl- ir á Ólympíumótinu í Batumi í Georgíu í september nk. Aðrir íslenskir skákmenn sem tefla þarna eru Hilmir Freyr Heim- isson sem var eftir sjöundu umferð með 4 ½ vinning, Aron Thor Mai og Örn Leó Jóhannsson báðir með 4 vinninga og einnig Alexander Oliver Mai, Jóhann Ingvason og Hafsteinn Ágústsson allir með 3 ½ v. og Ólafur Gísli Jónsson með 2 ½ vinning. Bræðurnir Aron Thor og Alex- ander Mai hafa báðir teflt við Jan Timman og sá fyrrnefndi var með unnið tafl gegn Hollendingnum á löngum kafla skákar þeirra í 6. um- ferð. Alexander Oliver tefldi í 1. um- ferð við sigurvegarann frá því í fyrra, Baadur Jobava. Hilmir Freyr Heimisson átti unnið tafl gegn búlg- arska stórmeistaranum Grigorov í 7. umferð en varð að sætta sig við jafn- tefli. Norðmennirnir Simen Agdestein og Jon Ludwig Hammer voru efstir með 6 ½ vinning af sjö mögulegum en þeir mættust í 7. umferð og missti Simen unna stöðu niður í jafntefli. Tefldar verða tíu umferðir og lýkur mótinu á morgun. Margar skemmtilegar skákir hafa verið tefldar á mótinu og bar- áttugleðin í öndvegi sem sést á fjölda jafntefla í skákum okkar manna en þau eru fimm talsins í 56 skákum! Lítum á gott handbragð Arons Thors Mai úr fimmtu umferð: Xtracon cup 2018: Matthias Unnenland (Noregi) – Aron Thor Mai Kóngsindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. f4 Fjögurra peða árásin er eitt skemmtilegasta afbrigði kóngs- indversku varnarinnar. 5. ... c5 6. d5 O-O 7. Rf3 e6 8. Be2 exd5 9. cxd5 Rbd7 10. O-O He8 11. Rd2 c4! Skemmtileg stunga sem Tal m.a. beitti á góðu skákári 1979 og best er að svara með 12. a4 eða 12. Kh1. 12. Bxc4?! Rc5 13. Df3 Bg4 14. Dg3 Rcxe4 15. Rcxe4 Rxe4 16. Rxe4 16. Dxg4 er svarað með 16. .... Db6+ 17. Kh1 Rf2+ 18. Hxf2 Dxf2 sem hótar 19. ... He1+. Eftir t.d. 19. Df3 kemur 19. ... He1+ 20. Rf1 Dxf3 21. gxf3 Hc8 og vinnur mann. 16. ... Hxe4 17. Dd3 Db6+ 18. Kh1 Hae8 Nú hefur svartur alla þræði í hendi sér. 19. Db3 Da5 20. h3 Hxc4 21. hxg4 Hce4 22. Hd1 He2 23. a3 H8e4 24. Kh2 Bd4 25. Dxb7 Dd8 26. g5 h6 27. Da6 Bb6 28. Bd2 hxg5 29. Hac1 Bc5 30. fxg5 Hvítur gat enga björg sér veitt í þessari stöðu en nú gerir Aron út um taflið. 30. ... Hxd2! 31. Hxd2 Hh4+ 32. Kg3 Dxg5+ 33. Kf3 - og hvítur gafst upp áður en Aron gat leikið 33. ... De3 mát! Átta Íslendingar á Xtracon- mótinu á Helsingjaeyri Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Einbeittur Alexander Oliver Mai stefnir á 2000 elo-stig. Hér teflir hann við Baadur Jobava á Xtracon cup. Árið 2011 var Reykjavík útnefnd bókmenntaborg UNESCO. Þessari út- nefningu var að vonum tekið fagnandi og ákváðu borgaryfirvöld í Reykjavík af þessu tilefni að gera skáldum borgarinnar hátt undir höfði með marg- víslegum hætti. Ein þeirra framkvæmda sem ákveðið var að ráðast í var að tryggja almenningi göngurétt um svonefndan „Skáldastíg“ í Grjóta- þorpinu sér til hugarljómunar. En sitt er hvað orð og efndir. Nú, sjö ár- um seinna, er heldur dapurlegt, þrátt fyrir fjölmenna stjórn bók- menntaborgarinnar okkar og verk- efna- og viðburðastjóra að horfa upp á innlenda sem erlenda þátttak- endur í skipulögðum „bókmennta- göngum“ klöngrast um þetta svæði og reyna að troða sér í gegnum hlið og það illgresi sem nú vex að hluta á „Skáldastíg.“ Nú kann einhver að spyrja hvað hafi eiginlega orðið af íslenskum kraftaskáldum? Ætli allur kraftur sé úr þeim dottinn – eða orka þau ekki að yrkja bæði sér og öðrum velunnurum bókmennta göngufæra leið eftir „skáldastíg“ höfuðborgarinnar okk- ar? Hvað með öll áhrín- isorðin sem orðlist- armenn fyrri tíma kunnu að beita til að hreyfa himin, haf og jörð? Er þetta allt graf- ið og gleymt í lágkúru samtímans? Vonandi finnur ein- hver þeirra sem feta skáldastíg framtíðarinnar hjá sér næga rím- snilld til þess að opna gestum og gangandi á nýjan leik þennan gamla göngustíg íslenskra ungskálda og annarra borgarbúa. Hvar eru núna krafta- skáldin okkar? Eftir Gest Ólafsson Gestur Ólafsson » Þátttakendur í skipulögðum „bók- menntagöngum“ borg- arinnar klöngrast nú eftir „Skáldastíg“ og þurfa að troða sér í gegnum hlið og illgresi. Höfundur er íbúi í Grjótaþorpi. Ljósmynd/GÓ Vanhirða Skáldastígur má muna sinn fífil fegurri. Skrifað í tilefni af ágætri grein um þessi mál eftir Ögmund Jón- asson í Morgunblaðinu 22. júlí. Ferðalög eru hluti hins daglega lífs hjá Ís- lendingum og lítt frá- sagnarverð. Meirihluti þjóðarinnar sækir í or- lofsferðir, oft í fjarlæg heimshorn. Þotuveldið Ísland er risi á heimahögum, mann- að af flugliðum og flugþjónum og öðru starfsliði sem sennilega er í þúsundum. Það þarf ekki að fara lengra en til Keflavíkur til að upplifa kaos á alþjóðaflugvelli. Eru Íslendingar svo ónæmir fyrir þessu að láta sér fátt um finnast af- leiðingar þess að hingað koma nú ár- lega meira en tvær milljónir er- lendra túrista? Á að láta sem ekkert sé vegna hættuástands umferðar á vegum landsins og óboðlegrar að- stöðu við náttúruperlur eða á há- lendinu? Slys á þessu fólki eru næst- um daglegt brauð og björgunarsveitir mega vinna hetju- verk á fjöllum og firnindum. Finnst Reykvíkingum það ekki merkilegt að vera næstum bolað burtu úr sín- um eigin góða, gamla miðbæ og að enska sé samskiptamál á veitinga- húsum? Því skal vissulega ekki neitað að einmitt nú er ferðamennska sá þátt- ur erlendra tekna, sem okkur er afar þýðingarmikill. En þess sjást að vísu teikn að hátt gengi krónunnar boði samdrátt ferðafólks frá nágranna- löndum þar sem markaðsöfl ráða eftirspurn. Þetta á þó væntanlega ekki við um Kínverja, sem birst hafa í hópi Íslandsfara en kínversk stjórnvöld hafa stjórn á því hvert ferðamannastraum- urinn beinist. Und- irstöðuatriði er að við- komandi erlent ríki hafi „Approved Dest- ination Status“ en að- eins þá er heimilt að kynna og selja þangað hópferðir, sem rík- isreknar ferðaskrifstofur sjá um En ferðir Kínverjanna, arðsamar vegna fjöldans, gætu aukist, minnk- að eða horfið eftir geðþótta ráða- manna einræðisríkis. Dæmi um það eru refsiaðgerðir Kína gegn Suður- Kóreu vegna varnarmála en fjöldi kínverskra ferðamanna féll að sögn úr 7 millj. í 3 millj. Búist hafði verið við 200.000 Kínverjum á Ólympíu- leikana í Seoul en þangað komu 20.000 Kínverjar telja sig eiga heima í norðurskautsráði og vilja nýting- arrétt auðæfa á hafsbotni samfara miklum kaupsiglingum í ísleysi norðurpólsins. Eru Þingeyingar enn að ráðgast um risahöfn m.m. þeim til handa í Finnafirði? Kínverjar vilja byggja þrjá flugvelli á Grænlandi og liggur það fyrir grænlensku heima- stjórninni. Nú á dögum eru hernaðaraðgerðir að falla í skuggann af efnahags- þvingunum, vopnavæðingu tölvuald- arinnar með árásum á heil tölvukerfi eða hluta þeirra, þ.m.t. dreifingu falsupplýsinga á netinu. Það kostar ekki aukningu ríkisútgjalda að hefja umræðu um öryggi þjóðarinnar og hverja þá nýju þróun sem ógnar. Svo gott sem alþjóðasamstarf kann að vera höfum við í eigin hendi að sinna varnaðarorðum Ögmundar Jón- assonar að ekki skuli „ grimm mark- aðssetning og gróðahyggja ráða ferðinni í ferðamennsku“. Sé streymi ferðamanna til landsins komið úr böndum, þarf við ein- hverjar almennar takmarkanir á komu farþegaflugvéla á Keflavík- urflugvöll. Umræðan um að Kínverj- ar skyldu slá eign sinni á Grímsstaði á Fjöllum tilheyrir leikhúsi fárán- leikans. Það er sömuleiðis hrollvekj- andi að einhver breskur milljóner hafi komist upp með kaup á 40 bú- jörðum nyrðra. Við þessu verður að reisa rönd með lagasetningu. Eftir Einar Benediktsson »Umræðan um að Kínverjar skyldu slá eign sinni á Grímsstaði á Fjöllum tilheyrir leik- húsi fáránleikans. Einar Benediktsson Höfundur er fyrrverandi sendiherra. Ferðamál Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.