Morgunblaðið - 28.07.2018, Page 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018
Andstæðurnar í ljósmyndum Ninu
Zurier eru í senn nánar og einlægar.
Þær fanga ljósið í myrkrinu og
myrkrið í ljósinu, segir m.a. í tilkynn-
ingu um Innfædd, ljósmyndasýningu
sem listakonan opnar kl. 17 í dag í
Stúdíói Sól, Vagnhöfða 19. Áhrifin frá
japanska ljósmyndaranum Daido
Moriyama leyna sér ekki í ljós-
myndum hennar, enda hefur Zurier
ekki dregið dul á að vera undir mikl-
um áhrifum frá verkum hans. Ljósið
og myrkrið eru báðum hugleikið við-
fangsefni.
Svo vitnað sé aftur í tilkynningu
segir ennfremur að ljósmyndir Zur-
ier sýni töfrana í myrkri og ljósi, sem
séu eins óumflýjanlegir og samofnir
landi og þjóð eins og ljósmynda-
miðlinum. Og að ljósmyndir hennar
séu skyndimynd af náttúrunni og Ís-
lendingum, hlýlegar og viðkvæmar
en þó samtímis ofsafengnar og kraft-
miklar og með skýr markmið. Hvað
merkir að vera innfædd/ur Íslend-
ingur? er spurning sem ljósmynd-
irnar hverfast leynt og ljóst um.
Sjálf er Zurier frá Bandaríkjunum,
en hefur frá því hún kom fyrst hingað
til lands árið 2002 oft bæði búið hér
og starfað í lengri eða skemmri tíma
ásamt eiginmanni sínum, John Zurier
myndlistarmanni. Fyrir þremur ár-
um kom út bókin Ef ég hefði verið ... -
Reykjavík 1950 -1970 með ljós-
myndum ýmissa ljósmyndara þess
tíma sem og hennar eigin. Í bókinni
segir Zurier ævisögu sína eins og hún
hefði getað orðið hefði hún ekki alist
upp í miðvesturríkjum Bandaríkj-
anna, heldur í Reykjavík.
Innfædd er ekki fyrsta ljósmynda-
sýning Zurier hér á landi. Auk ljós-
myndasýningar árið 2015 í tengslum
við fyrrnefnda ævisögu, hélt hún sýn-
inguna Gefið ljós (það kemur ljós) í
Gallerí Skilti í hittifyrra og Inn og út
um gluggann í Gallerí RAMskram í
fyrra. Á lsýningunni Innfædd getur
m.a. að líta mynd af myrku fótspori í
snjó storka deginum og aðra af
þrjóskri sumarsól, sem brýtur sér
leið gegnum sprungu inn í dimmt
svefnherbergi.
Myrkrið í ljósinu
og ljósið í myrkrinu
Náttúra Ljósmynd eftir Zurier.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Heildarhugmyndin er að sýna fram
á tenginguna á milli samtímalistar og
kvikmynda og tenginguna á milli
samtímalistar og heimildarmynda.
Sömuleiðis viljum við draga fram
tengsl mynda og hljóða,“ segir Pasc-
ale Cassagnau, sem er sýningarstjóri
sýningarinnar Oh, so quiet! ásamt
Gústav Geir Bollasyni.
Sýningin er haldin í Verksmiðj-
unni á Hjalteyri við Eyjafjörð sem
breytt var í sýningarstað fyrir sam-
tímalist fyrir áratug Á sýningunni
mætast verk íslenskra og erlendra
samtímalistamanna en þeir eru Doug
Aitken, Charles de Meaux, Ange
Leccia, Dominique Gonzalez Foers-
ter, Pierre Huyghe, Romain Kronen-
berg, Lorna Simpson, Jean- Luc
Vilmouth, Sigurður Guðjónsson,
Dodda Maggý, Steina og Woody Va-
sulka.
Vídeóverk verða áberandi ásamt
verkum sem unnin eru úr kvikmynd-
um. Úrval verka úr safni Cnap, op-
inberrar miðstöðvar myndlistar í
Frakklandi á vegum franska menn-
ingarmálaráðuneytisins, verður sýnt
á hátíðinni ásamt verkum frá ís-
lensku listafólki.
Safn Cnap samanstendur af rúm-
lega hundrað og tvö þúsund verkum
sem spanna meira en tvær aldir og
eru keypt af þálifandi listamönnum.
„Safnið myndar grunn sem stendur
fyrir og sýnir samtímalistasenuna í
allri sinni margbreytni,“ segir í
fréttatilkynningu frá Verksmiðjunni
um sýninguna.
Pascale bendir á að tengsl kvik-
mynda og samtímalistar séu mikil.
„Samband á milli kvikmynda og list-
ar hefur leikið nauðsynlegt hlutverk
út í gegnum fagurfræðilega sögu
tuttugustu aldarinnar. Þetta sam-
band hefur skapað greiningar á
myndefni og fjölmiðlum og jafnframt
gagnrýni á framsetningu listar.“
Brautryðjendur í vídeólist
Hún segir að margar ástæður séu
fyrir því að ákveðið var að halda sýn-
inguna. „Ég hafði heyrt um Gústav
frá listamönnum í Berlín og Frakk-
landi. List hans vakti áhuga minn
ásamt vinnu hans við að koma upp
listasafni í gömlu verksmiðjunni.
Ísland á mjög flotta vídeólistamenn
og héðan koma brautryðjendur í
þesskonar list eins og Steina og
Woody Vasulka. Mér finnst líka ein-
faldlega mikilvægt að sýna hér
franska og alþjóðlega list úr stóru
safni Cnap.“
Sameiginlegur kunningi þeirra
Gústavs, Jean-Luc Vilmouth, hafði
hvatt Pascale til að halda listsýningu
á Íslandi en verk eftir hann, „Lunch-
time“, verður sýnt á sýningunni.
„Jean-Luc Vilmouth er mjög þekkt-
ur franskur listamaður sem féll því
miður frá fyrir rúmum tveimur ár-
um. Hann hafði sagt mér að það væri
spennandi að skipuleggja eitthvað á
Íslandi. Mér fannst það góð hug-
mynd enda hef ég komið tvisvar til
landsins og ég er mjög hrifin Ís-
landi.“
Gústav er einn af stofnendum
Verksmiðjunnar og er í raun allt í
öllu þar. Hann segist hafa aðstoðað
við val á listafólki en að Pascale sjái
að mestu um það. „Sýningin byggir á
samspili hljóðs, tónlistar og kvik-
Samtímalist sett framan
við kvikmyndavélina
Úrval úr safni opinberrar miðstöðvar myndlistar í
Frakklandi verður á sýningunni Oh, so quiet! á Hjalteyri
Morgunblaðið/Einar Falur
Sýningarstjóri Gústav Geir Bolla-
son er einn sýningarstjóra.
Cloudspace Verk eftir Lornu Simpsonsem er ein sýnenda á Hjalteyri.
Snjáfjallasetrið og Baskavinafélagið
á Íslandi standa fyrir tónleikum með
Dúó Atlantica kl. 16.30 í dag, laug-
ardag, í Dalbæ á Snæfjallaströnd.
Þar munu Spánverjar og Íslend-
ingar tengjast tónlistarböndum, eins
og segir í tilkynningu. Guðrún Jó-
hanna Ólafsdóttir, messósópran, og
Francisco Javier Jáuregui, gítarleik-
ari, flytja þjóðlög á basknesku,
spænsku og íslensku sem og sönglög
eftir Sigvalda Kaldalóns, eitt ástsæl-
asta tónskáld Íslendinga, sem
tengdist Snæfjallaströnd að því leyti
að hann gegndi þar læknisstörfum
um árabil.
Ísland og Spánn og menning
beggja landa eru um margt ólík en
engu að síður hafa löndin verið
tengd í aldanna rás vegna fiskveiða
Spánverja við Ísland. Fyrr á öldum
áttu löndin það sameiginlegt að vera
einangruð frá öðrum Evrópulöndum
af landfræðilegum ástæðum og því
kann þjóðlagatónlist í ákveðnum stíl
að hafa þróast og varðveist í hvoru
landi fyrir sig. Á 17. öld var gefið út
baskneskt-íslenskt orðasafn, sem
hefur verið talið fyrsti vísir að orða-
bók á Íslandi. Í tilkynningu frá tón-
leikahöldurum er því velt upp hvort
Íslendingar hafi hugsanlega sungið
sum þeirra þjóðlaga, sem Guðrún og
Javier flytja á tónleikunum.
„Á okkar tímum gera Spánverjar
sér ennþá gott af íslenska saltfisk-
inum, eða bacalao, en hann er uppi-
staðan í þjóðarréttum á borð við ajo-
arriero, bacalao al pil pil og
croquetas de bacalao. Allir þessir
réttir eru tilbrigði við íslenska salt-
fiskstefið. Í þeim anda berum við á
borð fyrir ykkur íslensk þjóðlög flutt
við undirleik spænska gítarsins.“
Nokkur lög á tónleikunum til-
heyra safni þjóðlaga sem skáldið Fe-
derico García Lorca og flamenco-
söngkonan „La Argentinita“
söfnuðu í Andalúsíu, en Lorca, sem
var lærður píanóleikari, útsetti lögin
á einfaldan hátt fyrir rödd og píanó.
Tónlistina fluttu þau svo saman og
hljóðrituðu, en Dúó Atlantica flytur
lögin í umskrifun fyrir rödd og gítar
eftir Javier.
Þau Guðrún og Javier komu fyrst
saman árið 2002 þegar bæði stund-
uðu meistaranám í tónlist við Guild-
hall School of Music and Drama í
London. Síðan hafa þau komið fram
saman á tónleikum og tónlist-
arhátíðum og gefið út þrjá geisla-
diska.
Tónleikarnir í Dalbæ eru ókeypis
og styrktir af Uppbyggingarsjóði
Vestfjarða.
Tónlistartilbrigði við
íslenska saltfisksstefið
Dúó Guðrún og Javier.
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Heiðnar grafir í nýju ljósi
– sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð
Iben West og Else Ploug Isaksen – Augnhljóð í Myndasal
Nanna Bisp Büchert – Annarskonar fjölskyldumyndir á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Leitin að klaustrunum í Horni
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga 10-17
LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR – 18.7 - 16.12.2018
Sýningin Lífsblómið fjallar um Ísland sem fullvalda ríki. Hún fjallar um það hversu dýrmætt en um
leið viðkvæmt fullveldið er. Að sýningunni standa Listasafn Íslands, Stofnun Árna Magnússonar
og Þjóðskjalasafn Íslands. Handrit, skjöl og myndlistaverk frá þessum stofnunum mynda
kjarnann í sýningunni, og eru verk eftir fremstu listamenn þjóðarinnar til sýnis.
ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign – 7.4.2017 - 31.12.2019
BÓKFELL Eftir Steinu í Vasulka-stofu 18.5 - 31.12 2018
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 7.10.2018
SUMARTÓNLEIKAR Í LISTASAFNI SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
31.7.2018 - kl. 20:30 - 21:30
Guitar Islancio
Björn Thoroddsen, Gunnar Þórðarson gítarleikarar og Jón Rafnsson bassaleikari, halda sína
fyrstu tónleika áður en haldið er víða um landið til að fagna 20 ára samstarfi þeirra.
Opið alla daga frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR
KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
15.5. - 15.9.2018
Opið alla daga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is