Morgunblaðið - 28.07.2018, Blaðsíða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018
Söngkonan Diddú mun ásamt Helgu
Bryndísi Magnúsdóttur píanóleik-
ara heiðra minningu Auðar Laxness,
sem hefði orðið 100 ára í ár, á næstu
stofutónleikum Gljúfrasteins, á
morgun, 29. júlí, kl. 16.
Á tónleikunum munu Diddú og
Helga Bryndís fara með áhorfendur
í ferðalag tengt utanlandsreisum
hjónanna á Gljúfrasteini. Á efnis-
skránni má meðal annars finna
sönglög eftir Alabieff, Rossini, Sibe-
lius og Jerome Kern.
„Auður ferðaðist mikið og á tón-
leikunum verður stiklað á stóru á
lífsferðalagi hennar með Halldóri,
og ég valdi lögin út frá því,“ segir
Diddú sem er fyrrverandi nágranna-
kona Auðar og saumaklúbbsvin-
kona. „Ég valdi það sem mér fannst
áhugaverðast í upplifun hennar á
ferðalögunum með Halldóri. Hvað
heillaði hana og hvað heillaði hann.
Hann söng stundum fyrir hana það
sem hann hreifst af og upplifði tón-
listarlega. Hann raulaði m.a.s. amer-
íska slagara sem ég ætla að taka,“
segir Diddú sem mun syngja bæði
klassísk sönglög og söngleikjalög.
„Ég flyt líka negrasálm, sem Hall-
dór heyrði söngvarann Paul Robe-
son syngja á ferð um Moskvu, og
heillaðist upp úr skónum. Þannig að
það gætir þarna ýmissa laga og á
ýmsum tungumálum.“
Diddú ætlar að syngja um tíu lög
og tónleikarnir verða klukkutíma
langir.
„Vanalega eru þeir í hálftíma, en
ég bara komst ekki af með minna,“
segir söngkonan sem hefur oft sung-
ið í stofunni á Gljúfrasteini þar sem
tónleikarnir verða haldnir.
„Það voru alltaf ekta stofutón-
leikar hjá Auði og Halldóri. Nánast
allir listamenn sem stigu fæti á Ís-
land voru sendir upp að Gljúfrasteini
að spila. Sálin í stofunni er alveg
óborganleg, maður skynjar alveg
söguna. Hljómburðurinn er líka al-
veg einstakur,“ segir Diddú sem
hlakkar til að leiða okkur í gegnum
lífsferðalag vinkonu sinnar.
hilo@mbl.is
Vinkonur Diddú og Helga Bryndís.
Lífsferðalag Auðar
með Halldóri
Bandarísku leik-
konurnar Dolly
Parton, Jane
Fonda og Lily
Tomlin munu
koma fram í
nýrri útgáfu af
gamanmyndinni
9 to 5. Frétta-
stöðin Today
greinir frá
þessu. 9 to 5 var
frumsýnd árið 1980 og léku Par-
ton, Tomlin og Fonda allar stór
hlutverk í kvikmyndinni. Hún
fjallar um þrjár konur sem starfa
á skrifstofu undir harðstjórn karl-
kyns yfirmanns. Parton hefur sagt
að hún sé tilbúin í að endurgera
myndina og að það sé vit í því
vegna #MeToo-byltingarinnar sem
fór af stað fyrir um ári og varð til
þess að fólk opnaði sig um kyn-
ferðisofbeldi.
Endurgerð vegna
#Metoo-byltingar
Jane Fonda
Nýjasta skáld-
saga eins þekkt-
asta rithöfundar
Japana, Haruki
Murakami, var
fjarlægð af
bókamessu í
Hong Kong ný-
verið þar sem
hún þótti smekk-
laus. Vegna
þessa má einungis selja bókina í
Hong Kong með viðvörun á kápu
hennar um að bókin innihaldi
ósæmilegt efni og sé ekki fyrir
yngri en átján ára. Bókin ber tit-
ilinn Killing Commendatore og í
henni eru lýsingar á kynlífi sem
þykja ekki við hæfi. 2.000 manns
hafa skrifað undir áskorun þess
efnis að ákvörðunin verði dregin
til baka.
Murakami bann-
aður í Hong Kong
Haruki Murakami
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Daði hefur verið á heljar-innar flakki undanfarinmisseri, hefur verið í
Kambódíu og Berlín en blaðamað-
ur hitti á hann á Kex, þar sem
hann kom fram á nýrri tónleika-
röð, Kexpakk, ásamt Bríeti og Hr.
Hnetusmjöri. Við höfðum lengi
ætlað að ná saman og spjalla,
fyrst í Berlín, svo á Íslandi, og
þarna greip ég hann loksins glóð-
volgan og við áttum ánægjulegt
spjall á veröndinni eftir vel lukk-
aða tónleika. Sýnileiki Daða hefur
verið allnokkur, hann er orðinn
giska þekktur á Íslandi, en blaða-
manni lék mest forvitni á að vita
hvað hann væri að sýsla í tónlist-
inni í dag og hvernig næstu skref
yrðu, svo vísað sé á hnyttinn hátt í
fimm laga stuttskífu sem kom út á
síðasta ári.
Berlín er heimaborg Daða
eins og stendur. Eins og svo
margir nýtur hann hins styrkjandi
anda sem leikur um borgina, eitt-
hvað sem blaðamaður hefur sjálf-
ur haft kynni af. En hvað er að
heilla Daða þar? Tengingar? Bara
þægilegur andi? Blanda af hvoru-
tveggja?
„Ég flutti til Berlínar upp-
runalega til þess að fara í tónlist-
arskólann dBs music Berlin,“ lýsir
Daði. „Þar kynntist ég mörgum
flottum tónlistarmönnum sem
urðu síðan góðir vinir mínir. Að
vera umkringdur fólki sem er í
sömu pælingum og maður sjálfur
alla daga gefur rosalega mikið, ég
lærði miklu meira af skóla-
félögum mínum en af skólanum
sjálfum. Það er ódýrara að búa í
Berlín og ég get því einbeitt mér
frekar að því að gera tónlistina
mína betri þar sem ég þarf ekki
að vinna mér inn alveg jafn mik-
inn pening. Auk þess er ég af-
„Ég vil helst bara gera allt“
Einstakur Daði Freyr hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir tónlist sína.
slappaðri í Berlín, ég er aðeins
minna meðvitaður um sjálfan
mig.“
Daði hefur lýst því yfir að
hann ætli sér að starfa við tónlist
og hefur hann þegar snert á ýms-
um þáttum þess.
„Mér finnst skemmtilegast að
gera popptónlist akkúrat núna en
auglýsingatónlistin finnst mér
skemmtileg líka, því þá geri ég
tónlist eftir pöntun og get ýmist
leyft mér að fara klisjukenndar
leiðir eða stíga eitthvert lengst út
fyrir rammann. Mér finnst kvik-
myndatónlistin spennandi þar sem
það er krefjandi að reyna að ýta
undir tilfinningar einhvers ann-
ars. Tilfinningar sem maður hefur
ekki endilega fundið sjálfur,
reyna að túlka það sem leikstjór-
inn vill. Ég hef gert nokkrar stutt-
myndir hingað til, en mig langar
að gera mynd í fullri lengd, eða
þá sjónvarpsþáttaröð. En svo er
ég líka til í að færa mig eitthvað í
leiklistina. Kannski talsetningar
eða eitthvað. Ég hef líka gaman af
myndlist og hef verið að gera svo-
lítið af myndböndum. Ég vil helst
bara gera allt.“
Daði er þá að vinna að breið-
skífu, sem verður klár næsta sum-
ar og lagið „Skiptir ekki máli“ er
þegar komið út af þeirri plötu.
»Mér finnst kvik-myndatónlistin
spennandi þar sem það
er krefjandi að reyna að
ýta undir tilfinningar
einhvers annars.
Tónlistarmaðurinn Daði Freyr sló óforvarandis í gegn í Söngvakeppninni í fyrra og hnykkti enn
frekar á vinsældum sínum í síðasta áramótaskaupi. Pistilritari hitti á Daða á Kex hosteli fyrir stuttu
og spjallaði við hann um framtíðaráformin í tónlistinni og ýmislegt fleira.
ICQC 2018-20
/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////