Morgunblaðið - 28.07.2018, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 28.07.2018, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 209. DAGUR ÁRSINS 2018 Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. 25 stig í Reykjavík „ef allt gengur eftir“ 2. Spá 22 stiga hita í dag 3. 18 ára snjóbrettastúlka lést 4. Hetjur úr hellinum björguðu barni  Listahjónin Patty Spyrakos og Baldur Helgason opnuðu í gær sýn- inguna „Skemmtilegs“ í Gallery Porti sem er í porti að Laugavegi 23b. Á henni má sjá olíumálverk og teikn- ingar eftir Baldur og keramik- skúlptúra eftir Patty. Verkin byggjast á sjónrænni skynjun hjónanna á hversdagslegum fyrirbrigðum og óhlutbundnum verum og sækja þau Patty og Baldur innblástur í kvikan skurðpunkt dægurmenningar, félags- og siðfræðistefna, þróunarsálfræði og dulhyggju. Hversdagsleg fyrir- brigði og verur  Tónlistarkonan Bergljót Arnalds heldur tónleika á eyjunni Balí í Indónesíu annað kvöld og mun á þeim flytja frum- samin lög af hljómplötu sinni Heart Beat. Meðal laga sem hún mun flytja er Bæn álf- konunnar og Fiðrildavængir en á Balí má finna garð með heimsins falleg- ustu fiðrildum, að hennar sögn. Berg- ljót er í bænum Ubud sem hún segir aðallistamannabæinn á eyjunni. Bergljót syngur lög af Heart Beat á Balí FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 8-15 m/s, þykknar upp og fer að rigna, fyrst suðaust- anlands en þurrt norðvestan til fram undir kvöld. Talsverð rigning um tíma syðra síðdeg- is, en styttir síðan upp að mestu. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Norðurlandi. Á sunnudag Austlæg átt 8-15 m/s og rigning á köflum. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast suð- vestan til. Á mánudag Austlæg átt 8-15 m/s og víða dálítil rigning. Hiti 8 til 17 stig, sval- ast á Vestfjörðum. Anna Sólveig Snorradóttir úr Keili og Haraldur Franklín Magnús úr GR stálu senunni á öðrum degi Íslands- mótsins í golfi í Vestmannaeyjum í gær. Slógu þau bæði fyrirliggjandi vallarmet en Anna lék á 65 höggum og Haraldur á 62 höggum. Metin höfðu staðið síðan 2012 og 2002. Anna fór upp að hlið Guðrúnar Brár Björgvinsdóttur, einnig úr Keili. »1 Anna og Haraldur stálu senunni á öðrum degi Stjarnan hafði betur gegn Val í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í Garðabæ í gær en leiknum hafði verið frestað fyrr í vikunni. Stjarnan er nú í 4. sæti með 19 stig og er aðeins stigi á eftir Val sem ekki hefur unnið í síðustu fjórum leikj- um sínum. Breiðablik er með 30 stig í efsta sæti eft- ir ellefu umferðir en Þór/KA er með 29. »3 Stjarnan er nú stigi á eftir Val Sverrir Ingi Ingason er einn af fjórum íslenskum landsliðsmönnum í knatt- spyrnu sem leika í rússnesku úrvals- deildinni en þar byrjar nýtt tímabil í dag. Sverrir er bjartsýnn á komandi tímabil og telur að Rostov geti gert betri hluti en síðasta vetur þegar lið- ið endaði í ellefta sæti. „Þetta er hörkudeild og mikið af góðum rússneskum og erlendum leik- mönnum í bestu liðunum,“ segir Sverrir Ingi. »4 Bjartsýnn fyrir nýtt tímabil í Rússlandi  Tríó gítarleikarans Björns Thorodd- sen heldur tónleika í dag á veitinga- húsinu Jómfrúnni, ásamt söngkon- unni Heru Björk Þórhalls- dóttur. Þau munu flytja djassstandarda, íslensk dægurlög, blúsa og nokkur af lögum Björns. Tríó Björns og Hera saman á Jómfrúnni Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Mikil stemning var á alþjóðlegu knattspyrnuhátíðinni Rey Cup þeg- ar blaðamaður Morgunblaðsins átti leið um Laugardalinn í gær. Mótið í ár er eitt það stærsta frá upphafi en fjölmörg erlend lið hafa skráð sig til leiks, m.a. frá Englandi, Bandaríkj- unum, Síle og Færeyjum. Nú hafa ríflega 50 erlend lið frá ýmsum lönd- um tekið þátt í Rey Cup í gegnum árin, þar á meðal lið á borð við ensku stórliðin Fulham og Burnley. Sam- tals eru keppendur á mótinu í ár um 1.500 talsins á aldrinum 13-16 ára sem gerir hátíðina að langstærsta knattspyrnumóti landsins fyrir ung- linga á þessum aldri. Mótið í ár hófst formlega í fyrradag með fjölda leikja og mun standa yfir allt fram á sunnudag þegar síðustu úrslitaleikj- unum lýkur. Mótið er hápunktur sumarsins Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við krakka á svæðinu í gær en mikil gleði var meðal þeirra þrátt fyrir misjafnt gengi á mótinu hingað til. Þá voru flestir unglinganna mættir eldsnemma í gærmorgun en stíf dagskrá er frá morgni til kvölds meðan á mótinu stendur. Arnar Freyr Sigurðsson, mark- maður 4. flokks Fjarðabyggðar, seg- ir að mótið sé hápunktur sumarsins fyrir alla krakka á aldrinum 13-16 ára. „Þetta er aðalmótið fyrir krakka á okkar aldri. Þetta er í raun miklu stærra en Íslandsmótið þrátt fyrir að það mót sé í gangi yfir allt sumarið. Þetta er alveg ótrúlega gaman enda í raun hápunktur sumarsins hjá okkur strákunum,“ segir Arnar og bætir við að fátt sé skemmtilegra en keppn- isferðalag í góðra vina hópi. Spurður um hvernig mótið hafi gengið hingað til segir hann að erfitt sé að dæma um það enda einungis einum leik lokið. „Við töpuðum fyrsta leiknum en það er nóg eftir af mótinu. Við látum það samt ekki hafa áhrif á okkur og njótum þess að taka þátt í þessu,“ segir Arnar. Fótboltinn skiptir ekki öllu máli Svipaða sögu var að segja af krökkum í öðrum liðum en öll sam- mæltust þau um að mótið væri há- punktur sumarsins hjá þeim. Ernir Tumi Sveinbjörnsson, varnarmaður 4. flokks Fjölnis, segir að mótið sé án efa það skemmtilegasta hér á landi. Þá skipti mestu máli að njóta þess að leika knattspyrnu með vin- um sínum. „Maður vill auðvitað vinna en þetta snýst fyrst og fremst um að hafa gaman. Mótið er mjög stórt og maður reynir að njóta þess að fá að taka þátt í því,“ segir Ernir við mikl- ar undirtektir frá stelpum í fjórða flokki Vals sem gengu syngjandi og trallandi fram hjá á leið sinni að keppnisvelli dagsins. Gleðin í fyrirrúmi á Rey Cup  Samtals um 1.500 keppendur á aldr- inum 13-16 ára taka þátt í mótinu í ár Rey Cup Mikil gleði og stemning ríkti meðal þátttakenda á mótinu sem hófst nú á fimmtudag og lýkur með pompi og prakt síðdegis á sunnudag. Alls verða um hundrað dómarar að störfum á Rey Cup í dag en meðan á mótinu stendur verða átján dómarar úti á velli á hverj- um tíma. Þá eru nokkur hundr- uð sjálboðaliðar sem gefa vinnu sína í kringum mótið. Þetta staðfesti Þorsteinn Þór- steinsson, staðgengill dóm- arastjóra á Rey Cup, í samtali við Morgunblaðið í gær. Rey Cup er ein helsta fjár- öflun knatt- spyrnufélags- ins Þróttar og stærsti einstaki viðburður á vegum félagsins á hverju ári. Mikill fjöldi sjálfboðaliða FJÖLMARGIR DÓMARAR Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.