Morgunblaðið - 01.08.2018, Síða 19

Morgunblaðið - 01.08.2018, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2018 Bátnum komið á réttan kjöl Þessi vösku og hugprúðu börn úr tíunda bekk grunnskóla eru þaulvön siglingum á seglbátum. Hér eru þau að æfa sig í að rétta seglbát sinn við úti á Fossvogi. Ómar EES-samningurinn er einn besti við- skiptasamningur sem Ísland hefur gert en sá böggull fylgir skammrifi að okkur ber að taka upp regl- ur ESB sem ekki eru allar jafn góðar. Nú síðast ber okkur að samþykkja þriðja orkupakkann og þar með að stofnun ESB, ACER, sjái um að reglugerðir okkar um raf- orkugeirann séu í samræmi við reglugerðir innan ESB og það án þess að athuga afleiðingarnar, til dæmis á frelsi okkar til að haga vinnslu úr tveim af mikilvægustu auðlindum okkar eins og best hentar. Ekki er heldur minnst á hvort sú aðferð sem þarna er not- uð sé fordæmisgefandi fyrir sjáv- arauðlindina, sem ESB vill gjarn- an hafa putta í. Að undanförnu hefur mikið ver- ið fjallað um sölu á landi til bresks auðmanns sem virðist kaupa upp lönd svo hann hafi næði til lax- veiða hér á landi. Allt er þetta lög- legt og fínt vegna þeirra reglna ESB sem við höfum undirgengist vegna EES-samningsins. Annað dæmi er kaup Kanadamannsins Ross Beaty á HS Orku. Stofnaði hann fyrirtæki í skúffu í Svíþjóð. Þar með gat hann keypt sér orku- fyrirtæki suður með sjó og það sem hann gerir með fyrirtækið, eins og að virkja vatnsafl vestur á Ströndum er innan regluverks ESB. Eitthvað hefur ver- ið fjallað um ACER- samninginn, það er þriðji orkupakki ESB. Þar eigum við að undirgangast reglur sam- bandsins um skipulag og eftirlit á orkusölu. Pakki tvö var án nokk- urrar umræðu innleiddur með lög- um og telja margir að það hafi verið mistök á sínum tíma. Breyt- ingin nú felur í sér að sett verði á fót embætti „landsreglara“ sem fylgist með verðlagningu, og hefur eftirlit með viðskiptum á raf- orkumarkaði. Eftirlitið á fylgjast með spotmarkaði með rafmagn og öðrum viðskiptum óháð íslenskum aðstæðum. Skulu markaðs- sjónarmið ráða eins og þau best gerast í ESB-löndum. Raforkuframleiðsla á ESB- markaði er að ráðandi hluta keyrð á kolum og jarðgasi. Hér er allt keyrt á vatni og jarðhita. Mark- aðsaðstæður á jarðefnum stjórna því verðinu í ESB-löndum en hér sveiflast ekkert nema rigningin. Þar eru framleiðendur fjölmargir en hér örfáir. Þar er eignarhaldið eins fjölbreytt og mannlífið, en hér í höndum ríkis og sveitarfélaga nær eingöngu. Undantekningin er skúffan í Svíþjóð. Kaupendur hér eru að megni til þrír stórir. Þeirra kaup hafa leitt til þess að virkjanir hér eru stórar og almennir notendur njóta stærð- arhagkvæmninnar með ódýrri orku frá sjálfbærum auðlindum sem ekki stjórnast af sveiflum á jarðefnaeldsneyti. Heildarnotkun Íslands af rafmagni er 17 Twh (Terawattstundir). Í Bretlandi er rafmagnsnotkunin 304 TWh og í ESB er hún um 2.786 TWh sam- kvæmt tölum frá Eurostat. Einnig notar Evrópa gríðarlegt magn jarðefna beint við hitun húsa og í efnaiðnaði sem ekki eru inni í þessum tölum. Hér á landi gætir þessa lítið. Fiskimjölsverksmiðjur hér á landi eru meira að segja hættar að brenna olíu til þurrk- unnar. Sú orka sem er ekki bundin í langtímasamningum og flokkast sem almenn notkun fyrirtækja og almennings hér á landi er um 3 TWh samanborið við 2.786 TWh ESB eða 0,1%. ESB er að fást við allt önnur vandamál og mörg umhverfis- tengd. Þeir þurfa að spara orku og jafna aðgengi orku á sínum mark- aði. Við eigum ekki við þeirra vandamál að etja en eigum samt að taka upp þeirra reglur. – Regl- ur sem ekki eiga við okkar markað sem er annars eðlis og ótengdur Evrópu. Menn hafa sagt að upptaka ACER hafi lítil áhrif hér á landi til að byrja með en viðurkenna einnig að lagabreytingin 2003 hafi verið mistök. Einnig viðurkenna þeir sem ég hef rætt við að þeir viti ekki hvaða áhrif fyrirhuguð laga- breyting nú kemur til með að hafa á markaðinn hér heima til lengri tíma litið. Ætla menn virkilega að innleiða ný lög án þess að vita með vissu hver áhrifin verða? Hvers vegna vinna menn ekki heimavinn- una sína og laga það sem var breytt með lögunum 2003. Þá var Landsvirkjun framleiðandi til þrautavara en ekki lengur. Það er ekki lengur á ábyrgð eins né neins ef orku vantar í landinu. Þetta þarf að ræða og einnig það hvort við viljum að orkufyrirtækin séu rekin með auknum hagnaði og greiði arð til þeirra sem varðveita hlutabréfin, eða láti eigandann njóta ávaxtanna með ódýrri orku til heimilanna? Við getum notað okkar sérstöðu, sérstaklega ef við erum ekki undir regluverki ESB um skipulag og eftirlit á orkusölu. Við eigum að hætta verslun með upprunavottorð sem leiðir til þess að framleið- endur hér á fiski, kjöti eða græn- meti eru skráðir sem notendur á kjarnorku eða kolum sem uppruna orku við sína framleiðslu. Við eig- um að nota vörumerkið Icelandic fyrir íslenska framleiðslu og ferða- þjónustu. Merki fyrir hreinleika og sjálfstæði. Hef ég heyrt þau rök fyrir upp- töku ACER, að við séum svo vit- laus að við getum ekki stjórnað okkur sjálf. Það er ekki farsælt hugarfar frjálsrar þjóðar. Nú mun frumvarp um þetta efni verða lagt fram á þingi og þingmenn ákveða hvort við ætlum að stjórna okkar auðlindum sjálf eða treysta á ESB. Þá kemur í ljós hvort rökin um heimsku landans halda velli á Al- þingi Íslands. Eftir Svan Guðmundsson »Raforkuframleiðsla á ESB-markaði er að ráðandi hluta keyrð á kolum og jarðgasi. Hér er allt keyrt á vatni og jarðhita. Svanur Guðmundsson Höfundur er sjálfstæðissinni. svanur@husaleiga.is Landasala og raforkusala

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.