Morgunblaðið - 01.08.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2018
GÖTUSALAN
hefst í dag
Komið og gerið
reyfarakaup
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Mál er varða umsjón með styttum í
eigu ríkisins hafa verið í ólestri, að
sögn starfsmanns menningarráðu-
neytisins. Í sumar hefur víða borið á
kroti á styttum bæjarins, þ. á m.
styttu Jóns Sigurðssonar á Aust-
urvelli og styttu Ingólfs Arnarsonar
við stjórnarráðið.
Listasafn Reykjavíkur fer með
eftirlit og viðhald meirihluta lista-
verka og styttna í Reykjavík. Sig-
urður Trausti Traustason, deildar-
stjóri safneignar og rannsókna hjá
LR, segir að stytturnar á Austur-
velli og við stjórnarráðið séu í eigu
ríkisins og því sé viðhald og þrif á
þeim í verkahring ríkisins. „Við höf-
um tekið eftir kroti og þess háttar á
þessum styttum þegar við sinnum
eftirliti á verkum sem eru í okkar
umsjá. Við höfum t.a.m. boðið fram
krafta okkar þegar kemur að eftirliti
með styttum í eigu ríkisins en það er
enn til umræðu hjá ríkinu.“
Kristrún Heiða Hauksdóttir, upp-
lýsingafulltrúi mennta- og menning-
arráðuneytisins, segir ekki ljóst á
hverra borði viðhald og hreinsun á
þessum styttum ríkisins sé, en telur
það ólíðandi að ekkert sé að gert.
„Sem stendur er ekki skýrt hvar
ábyrgð á styttunum í eigu stjórn-
arráðsins hvílir. Við bíðum þess að
úrskurðað verði um það og þau mál
komist í skýrari farveg. En í millitíð-
inni hefur mennta- og menningar-
málaráðuneytið haft frumkvæði að
því að styttan af Jóni Sigurðssyni
verði hreinsuð.“
Kristrún Heiða segir jafnframt að
þau í ráðuneytinu reyni að bregðast
hratt við ef ábendingar um krot eða
skemmdarverk berist.
Morgunblaðið/Valli
Austurvöllur Ýmsir hafa fengið útrás fyrir listsköpun sína á styttu Jóns.
Stytta Jóns Sig-
urðssonar útkrotuð
Óljóst hver ber ábyrgð á viðhaldi
Fjögur herbergi eru lokuð tímabundið
á Hótel Hellu eftir að eldur kom þar
upp í fyrrakvöld. Full starfsemi er
komin í gang þar en hótelið er upp-
bókað út október.
Hótelstjóri Hótels Hellu slökkti eld-
inn, sem kom upp á salerni í einu hót-
elherbergjanna, með slökkvitæki eftir
að brunaviðvörunarkerfi hótelsins
hafði farið í gang. Skömmu síðar voru
slökkviliðsmenn frá brunavörnum
Rangárvallasýslu mættir á vettvang.
Að sögn Leifs Bjarka Björnssonar
slökkviliðsstjóra bendir allt til þess að
eldsupptök hafi verið í loftræstiviftu á
salerni. Hótelgestir voru í herberginu,
sem er á fyrstu hæð, þegar eldurinn
kom upp.
Rífa þurfti hluta af vegg á salerninu
til að komast að glóð sem hafði komist
þar inn undir. Einnig þurfti að rífa
vegg niður á salerninu í herberginu
fyrir ofan en þar höfðu plaströr bráðn-
að saman og lokast.
Leifur Bjarki sagði í samtali við
Mbl.is eldinn ekki hafa verið mikinn en
reykurinn hefði aftur á móti verið
„gífurlegur“. Vegna þess að útsogið
var í plaströrum var reykurinn meiri
en annars ætti að vera.
Hótelið var rýmt um leið og eldur-
inn kom upp og fékk slökkviliðið afnot
af íþróttahúsi bæjarins sem er aðeins
um 300 metra frá hótelinu.
„Veðrið var það gott að fólk var að
miklum hluta bara úti. Það var 15 stiga
hiti um nóttina og blankalogn. Aðstæð-
ur gátu ekki verið betri hvað það varð-
ar,“ segir Leifur Bjarki.
Hótelstjórinn slökkti eldinn
Fjögur herbergi lokuð á Hótel Hellu eftir að eldur kom upp
Ekkert hefur spurst til Jóhanns
Gíslasonar, íslensks ríkisborgara
sem búsettur er í Reykjavík, síðan
12. júlí síðastliðinn. Jóhann flaug til
Alicante á Spáni 8. júlí án þess að
eiga bókað flug til baka.
„Það er verið að afla gagna og
reyna að staðsetja hann, en við vitum
svo sem ósköp lítið. Menn mega
alveg láta sig hverfa,“ sagði Jón S.
Ólason, yfirlögregluþjónn hjá lög-
reglunni á Vesturlandi, í samtali við
mbl.is, en ættingjar Jóhanns segja
það ólíkt honum að hverfa með þess-
um hætti. Tilkynnti fjölskyldan um
hvarf hans til lögreglu 16. júlí.
Kristján Andri Stefánsson, sendi-
herra Íslands í París sem annast
einnig sendiráðs-
störf á Spáni, seg-
ir að leit hafi eng-
an árangur borið.
„Við erum í
sambandi við
ræðismenn og
lögreglu. Málið er
í eðlilegum far-
vegi en leit hefur
engan árangur
borið enn þá.“
Þá segir Svanhvít Aðalsteinsdótt-
ir, forstöðumaður borgaraþjónustu
hjá utanríkisráðuneytinu, að unnið
sé með fjölskyldu Jóhanns við leitina
að honum, en fyrir leitinni fer fyrst
og fremst lögreglan á Vesturlandi.
Enn ekkert spurst til
Íslendings á Spáni
Heyrðist frá honum síðast 12. júlí
Jóhann
Gíslason