Morgunblaðið - 08.08.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.08.2018, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 8. Á G Ú S T 2 0 1 8 Stofnað 1913  184. tölublað  106. árgangur  TILFINNINGA- RÍKIR DJASS- TÓNLEIKAR FLUTTI MINNI ÍSLANDS SKRAUTLEGAR SÖGUR ÚR FORTÍÐINNI ÁHYGGJULAUS ÁR Í WINNIPEG 12 ALLT DAGSATT 33MÖRG JÁRN Í ELDINUM 31 Hörð barátta » 350 veitingastaðir eru skráðir í Reykjavík á ferðaveit- unni TripAdvisor. » Hægt hefur á fjölgun ferða- manna og neysla þeirra er að breytast. Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Veitingahúsamarkaðurinn er ekki galopinn eins og hann var, að mati Óla Más Ólasonar, eiganda nokkurra veitingahúsa í miðbæ Reykjavíkur. Fer fjölgun og fækkun matargesta að miklu leyti eftir sveiflum í ferða- þjónustunni. Telur hann að gestum fari nú fækkandi, en þeim fór ört fjölgandi á árunum 2012-2015. Annar veitingamaður, Ólafur Örn Ólafsson, segir að þeir sem hafi þekkingu á veitingastaðarekstri séu líklegri til að lifa af á markaðnum eins og hann er í dag. Þá geti verðlagning skipt miklu máli. Einnig hafi ferðahegðun breyst að einhverju leyti og finni þeir fyrir því að ferðamenn kaupi í aukn- um mæli ódýrari mat og mat í lág- vöruverslunum. „Bransinn hefur verið að barma sér yfir stöðunni veit ég, markaður- inn er líklegast mettur,“ segir Ólafur. Veitingastöðum hefur fjölgað síð- ustu ár. Fjörutíu veitingahús eru á Laugaveginum, frá Bankastræti upp að Hlemmi, samkvæmt úttekt Morgunblaðsins. Eru þau jafn fjöl- breytileg og þau eru mörg. Þar finnst einnig fjöldi kaffihúsa og bara sem ekki voru taldir með. Veitingamarkaður mettur  Gestum á veitingahúsum fer fækkandi að sögn veitingamanna í Reykjavík  Ferðamenn farnir að spara  Fjörutíu veitingastaðir á Laugavegi einum M Verða að vanda sig meira ... »14 Morgunblaðið/Valli Hjólað Rafhjólin geta hjálpað mikið til í mótvindi og brekkum. Sala rafhjóla hefur farið hægar af stað hér á landi en Jón Pétur Jóns- son, eigandi reiðhjólaverslunarinnar Arnarins, átti von á. Hann segir að sala rafhjóla hafi aukist mikið á meginlandi Evrópu undanfarin þrjú ár, en Íslendingar séu enn nokkuð eftir á í þessum efnum. Jón segir að það hafi tekið Örninn fimm ár að finna réttu hjólin fyrir íslenskar að- stæður, en þau verði að vera í sterk- ari kantinum, og rafhlaðan þurfi að hafa góða endingu. „Íslendingar eru almennt mjög nýjungagjarnir og því hefur það komið mér á óvart hvað þessi tíska fer hægt af stað hér á landi.“ Jón segir að um 100-150 rafhjól seljist í Erninum á ári, sem sé aðeins brot af reiðhjólasölunni almennt. Hann telur að í kringum 1.200-1.500 rafhjól séu flutt inn hingað til lands á ári. IKEA hóf rafhjólasölu í vor, og salan hefur gengið vonum framar að sögn Þórarins Ævarssonar fram- kvæmdastjóra. „Fyrst fengum við 300 hjól, sem seldust upp. Svo höfum við fengið fleiri sendingar. Alls hafa 600 hjól selst nú þegar.“ »16 Rafhjólageirinn enn smár  Mörg ríki í Evrópu eru mörgum árum á undan Íslandi Margir Íslendingar eiga minningar frá gömlu flugstöðinni í Keflavík en þar í gegn fóru milli- landafarþegar áður en Flugstöð Leifs Eiríkssonar var tekin í gagnið árið 1987. Þá var um árabil rek- ið flugvallarhótel í sömu byggingu. Nú hefur hún verið rifin og aðeins rústirnar sýnilegar á flug- vallarsvæðinu. Þar sem byggingin stóð áður stendur til að reisa flugskýli eða annað húsnæði sem hentar þörfum flugvallarstarfseminnar í dag. Gamla flugstöðin á Keflavíkurflugvelli rústir einar Morgunblaðið/Árni Sæberg Bændur á stórum landbúnaðarsvæð- um sem eru innan varnarhólfa vegna riðuveiki geta ekki tekið þátt í út- flutningi á heyi til Noregs og missa því af því að gera sér verðmæti úr heybirgðum. Heilbrigðisreglur eru strangari hér en í Noregi. Kaupend- ur heysins telja vænlegt að kaupa hey hér vegna góðrar sjúkdóma- stöðu og telja reglur hér óþarflega strangar. Mikil þörf er á heykaupum í Nor- egi vegna uppskerubrests þar og vinna margir að útflutningi þangað. Stór norsk samvinnufyrirtæki bænda tilkynntu í gær samkomulag um kaup á 30 þúsund rúllum. Verð- mæti þeirra er rúmar 200 milljónir kr. Veruleg verðmæti liggja í um- framheybirgðum bænda. Þannig getur bóndi sem selur 600 rúllur vænst þess að fá rúmar fjórar millj- ónir fyrir. Ingólfur Helgason, sem vinnur að útflutningi, bendir á að það myndi koma sér vel fyrir sauðfjár- bændur sem séu í vandræðum vegna verðfalls afurðanna. Þarna gætu þeir búið til tekjur úr afurðum búsins sem annars væru verðlausar. Ekki veiti af. »4 Geta fengið fjórar millj- ónir fyrir 600 rúllur „Það kom högg á kerfið svo það er spurning hvort bilunin í spenninum er afleiðing af því,“ segir Halldór Guðmundur Halldórsson, rafvirki hjá Rarik, um rafmagnsleysi sem kom upp í Hveragerði klukkan þrjú í gær og stóð að stærstum hluta enn þegar Morgunblaðið fór í prentun á tólfta tímanum í gærkvöld. Aflspennir í aðalveitustöðinni í Hveragerði bilaði. Ísgerðin Kjörís er með starfsemi í Hveragerði og varð þar mikið tjón. „Þetta er náttúrlega alveg hræði- legt. Við erum búin að vera án raf- magns síðan klukkan þrjú í dag, þá voru allar vélar í gangi og það er allt bara fast í vélunum þannig að það er allt ónýtt,“ sagði Guðrún Hafsteins- dóttir, markaðsstjóri Kjöríss ehf. og formaður Samtaka iðnaðarins, í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. „Auðvitað er þetta mikið tjón og verðmæti farin í vaskinn. Ég verð samt að segja að sem formaður Sam- taka iðnaðarins hugsa ég til fyrir- tækja úti á landsbyggðinni, til dæm- is við Eyjafjörð eða á Vestfjörðum þar sem það er nær daglegt brauð að það sé skortur á rafmagni. Hér á suðvesturhorninu bregður okkur mjög mikið þegar svona gerist og þetta minnir okkur á hversu mikill lúxus það er að hafa greiðan aðgang að rafmagni.“ ragnhildur@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Hveragerði Rafmagnslaust var í bænum í margar klukkustundir. Gríðarlegt tjón hjá Kjörís  Lengi rafmagns- laust í Hveragerði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.