Morgunblaðið - 08.08.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir passann, ökuskírteinið,
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð
þjónusta
Engar tímapantanir
Góð passamynd
skiptir máli
Fimm nýjum rafmagnsvögnum í eigu
Strætó bs. var ekið frá Selfossi til Reykja-
víkur í gær. Bætast þeir í hóp þeirra
vagna sömu tegundar sem fyrirtækið
hefur nú þegar tekið í notkun á þessu ári.
Fyrirtækið sem flytur vagnana inn er
með starfsstöð á Selfossi og þar eru þeir
standsettir áður en þeim er komið í um-
ferð. Jóhannes Rúnarsson, framkvæmda-
stjóri Strætó, reiknar með því að vagn-
arnir verði teknir í notkun nú í mánuð-
inum.
„Við eigum eftir að setja í þá tækja-
búnað sem tengist leiðakerfinu og það
tekur svona fimm til tíu daga. Það fer eft-
ir stöðunni á verkstæðinu þannig að við
reiknum með að taka þá í notkun í síðari
hluta mánaðarins í síðasta lagi.“ Strætó
ætlar að bæta fimm sambærilegum raf-
magnsvögnum við í lok október og verða
vagnarnir þá orðnir 14 talsins. „Í kerfinu
á höfuðborgarsvæðinu eru rétt rúmlega
150 vagnar þannig þetta fer að nálgast
10%. Það er mjög gott hlutfall,“ segir Jó-
hannes. Hann segir vagnana lækka
eldsneytiskostnað töluvert. „Þetta eru
nokkur þúsund lítrar sem sambærilegir
fimm vagnar nota í eldsneyti og raf-
magnið er töluvert ódýrara þannig að við
bindum vonir við að rekstrarkostnaður-
inn verði töluvert minni.“
Strætó bs. bætir við fleiri rafmagnsvögnum
Rafmögnuð
vagnalest
Morgunblaðið/Valli
Rafmagnsstrætó Rafmagnsstrætisvagnar á höfuðborgarsvæðinu verða 14 talsins í lok árs og verða þannig um 10% af heildarflota Strætó bs.
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Framkvæmdum við nýtt sjúkrahótel
á Landspítalanum við Hringbraut
fer senn að ljúka en nýlega hefur
verið unnið að því að klæða húsið að
utan. Að sögn Gunnars Svavars-
sonar, framkvæmdastjóra Nýs land-
spítala, hefur verkið gengið ágæt-
lega og stefnir verktakinn á að ljúka
verkinu síðar í mánuðinum.
Mikil seinkun hefur verið á bygg-
ingu sjúkrahótelsins sem má að
hluta til rekja til þess að í janúar
2017 var tekin ákvörðun um að end-
urhanna burðarvirkið í ljósi þess að
það stóðst ekki þær kröfur sem sett-
ar eru vegna mögulegra jarðskjálfta.
Samkvæmt lögum ber að eyða 1%
af heildarbyggingarkostnaði opin-
berra bygginga til listskreytinga
þeirra. Í tilfelli sjúkrahótelsins var
ákveðið að ráðstafa fénu í klæðn-
inguna. „Kostnaðarlega uppfyllir
klæðningin alla kríteríu,“ segir
Gunnar.
Myndlistamaðurinn Finnbogi
Pétursson hannaði og teiknaði upp
klæðninguna. Hann segir grunnhug-
myndina að baki verkinu þá að þeir
sem dvelji í húsinu flytji tímabundið
inn í fjallið sitt, en verkið mun sýna
fjall sem sígur í landið. „Hótelið er
hugsað fyrir bæði aðstandendur og
sjúklinga og því er heimkoman vísun
í dvöl þeirra á hótelinu.“ Þá séu fjöll-
in tilvísun í elsta berg á Íslandi, fjöll-
in á Austfjörðum og Vestfjörðum.
Tvær bergtegundir eru notaðar í
klæðninguna, basalt og granít, sem er
frá steinnámum í Portúgal, að sögn
Finnboga. „Eðlilegt hefði verið í
framhaldinu að nota íslenskt efni í
verkið en það hentaði ekki húsinu sem
var þegar búið að byggja þegar ég
kom að verkinu,“ útskýrir Finnbogi.
Liturinn í samræmi
við umhverfið
Ljóst er að um umfangsmikið verk-
efni er að ræða en hver einasti steinn
er merktur og á sér sinn stað sem
Finnbogi hefur fundið honum á hús-
veggnum. „Aðalvinnan hjá mér var að
teikna þetta upp og færa flekana sam-
an þangað til að ég var ánægður með
útkomuna.“ Hann hefur ekki áður
komið að slíkri klæðningarvinnu þó að
hann hafi unnið hugmyndavinnu með
arkitektum. „Ég er vanur að vinna á
þessum skala og hef unnið áður að
hönnun húsa, þetta er eitthvað sem ég
kann vel við.“
Finnbogi segist hafa haft nokkuð
frjálsar hendur þegar kom að verkinu
en eitt af skilyrðunum fyrir klæðn-
inguna var að hún ætti að vera ljós að
hluta. „Það er til að halda samræmi á
svæðinu, sá litur gengur vel upp við
hliðina á Barnaspítalanum. Það er hollt
að hugsa um nágrenni bygginganna.“
Listskreytingasjóður fór í klæðningu
Morgunblaðið/Hari
Verk Nú stendur yfir vinna við klæðningu nýja sjúkrahótelsins við Hringbraut.
Vinnu við klæðningu sjúkrahótelsins fer senn að ljúka Áætla að húsið verði tilbúið í lok ágúst
Finnbogi Pétursson hannaði klæðninguna en teikningin táknar fjöllin austanlands og vestanlands
Nýr landspítali
» Árið 2010 var tillaga SPITAL
samþykkt um hönnun á nýju
heildarskipulagi fyrir Landspít-
alann.
» Stefnt var að því að sjúkra-
hótelið færi í notkun í byrjun
árs 2018.
» Rekstur sjúkrahótelsins hef-
ur ekki enn verið boðinn út til
einkaaðila.
» Í júlí 2018 hófst jarðvinna
vegna meðferðarkjarna sjúkra-
hússins.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Samningurinn verður ekki fram-
lengdur óbreyttur,“ segir Guð-
mundur Baldvin Guðmundsson, for-
maður bæjarráðs Akureyrarbæjar,
í samtali við Morgunblaðið.
Í gildi hefur verið samningur
milli Akureyrarbæjar og Mynd-
listaskólans á Akureyri ehf. um ára-
bil um rekstur Myndlistaskólans.
Samningurinn rennur út í lok skóla-
árs 2018-2019. Formanni bæjarráðs
var falið að ræða við forsvarsmann
skólans og stofnaður verður starfs-
hópur skipaður fulltrúum frístunda-
ráðs, fræðsluráðs og stjórn Akur-
eyrarstofu, sem er ætlað að fjalla
um aðkomu Akureyrarbæjar að
listnámi í bænum.
„Samningurinn við Myndlista-
skólann hefur verið framlengdur
aftur og aftur, og við vorum að spá
í hvort við ættum að vera að styðja
við framhaldsnám í listum sem ætti
að vera á vegum ríkisins. Þegar við
endurnýjuðum samninginn árið
2016 áttu að fara af stað viðræður
um að koma þessu námi upp á há-
skólastig. Mér vitanlega hefur fátt
verið gert og lítið þokast í því, en
það var alveg skýrt að við myndum
ekki halda áfram með þetta að
óbreyttu,“ segir Guðmundur Bald-
vin, sem kveðst munu eiga fund í
vikunni með Helga Vilberg, skóla-
stjóra Myndlistaskólans á Akureyri.
Ekki náðist í Helga við vinnslu
fréttarinnar.
Starfshópur skoðar að-
komu bæjarins að listnámi
Samningur við Myndlistaskólann ekki framlengdur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Samningur við Myndlista-
skólann rennur út næsta vor.