Morgunblaðið - 08.08.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 08.08.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin 1988 - 2018 Sumarbolir Kvartbuxur • Peysur Leggings • Kjólar Ponsjó • Töskur ÚTSALA 30-70% afsláttur „Þetta hefur gengið vel hingað til og ég held að krafturinn eigi bara eftir að aukast,“ segir Anna Lilja Sigurðardóttir, upplýsinga- og samskiptastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur, um skráningar í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer 18. ágúst. Nú þegar hafa ríflega 9.000 manns skráð sig til leiks, þar af 3.000 erlendir kepp- endur. Að sögn Önnu er ráðgert að heildarfjöldi þátttakenda í hlaupinu verði í kringum 15.000 manns. „Staðan eins og hún er núna er á pari við sama tíma í fyrra. Þetta hefur verið svipaður fjöldi síðustu ár og ég á ekki von á öðru en að það haldist óbreytt í ár,“ segir Anna. Í fyrra söfnuðust ríflega 100 milljónir króna í áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþonsins, en það var í fyrsta sinn sem það tókst. Öll renna áheitin til góðgerðarmála en nú þegar hafa safnast um 35 millj- ónir króna í tengslum við hlaupið í ár. „Við rufum 100 milljóna króna múrinn í fyrsta skipti í fyrra. Það væri náttúrulega mjög gaman að halda því og fara lengra. Þetta hef- ur gengið alveg ótrúlega vel í ár og það hefur gengið vel að safna og skal engan undra enda ein stærsta fjáröflun á Íslandi,“ segir Anna og bætir við að í Reykjavíkurmara- þoninu sé hægt að vekja athygli á ýmsum góðum málum. „Þetta er gott svið fyrir einstaklinga sem eru að hlaupa auk þess sem félögin geta líka látið vita af sér,“ segir Anna. Langvinsælast að hlaupa 10 km Á síðustu árum hafa 10 kílómetr- ar verið sú vegalengd sem notið hefur mestra vinsælda meðal þátt- takenda í hlaupinu. Anna segist ekki eiga von á öðru en að það hald- ist óbreytt. „Það eru yfirleitt um 7.000 manns sem taka þátt í því. Það er skemmtileg hlaupaleið auk þess sem fólk í mjög mismunandi formi getur farið þessa leið. Fólk er stutt vel á leiðinni og upplifunin er ólík öllu öðru,“ segir Anna. Spurð hvort Reykjavíkur- maraþonið muni stækka áfram á næstu árum segir Anna að erfitt sé að spá fyrir um það. „Þetta er ekki alveg orðið troðfullt þó að það sé orðið svolítið þröngt í miðbænum. Það er mögulega hægt að bæta við fólki í þessar styttri vegalengdir,“ segir Anna. Skráning hefur gengið mjög vel  9.000 skráðir í Reykjavíkurmaraþon Morgunblaðið/Árni Sæberg Góðgerðamál Í fyrra söfnuðust yfir 100 milljónir króna til góðgerðamála. Í ár hefur söfnunin nú þegar náð 35 milljónum og hækkar sú upphæð enn. Ekki er vitað hvaðan olíuflekkur skammt frá Hrísey kemur. Tilkynnt var um hann á sunnudagsmorgun og var hann áætlaður um 1,6 km að lengd og um þrjú til fjögur hundruð metrar á breidd. „Það er búið að útiloka flest þau skip sem sigldu þarna um en ekki öll. Það er enn þá í rannsókn,“ sagði Ólafur A. Jónsson, sviðsstjóri Umhverfisstofnunar, í samtali við mbl.is í gær. Til rannsóknar er hvort lekinn gæti hafa komið úr skipsflaki á hafsbotni. „Það hefur alveg gerst, það liggja víða skip á hafs- botni með olíu um borð,“ segir Ólafur. Hann tekur þó fram að það sé einungis kenning og telur líklegra að um óhapp eða einhvers konar leka sé að ræða. Seinna á sunnudeginum sást flekkurinn ekki, hvorki úr bát né flugvél. Á mánudagsmorgun barst svo til- kynning um talsvert minni olíuflekk suðvestur af Hrís- ey. „Þegar farið var á staðinn í annað skiptið fannst hann ekki heldur og hefur ekki sést til hans eftir það. Það hefur ekki verið hægt að fljúga yfir svæðið vegna veð- urs,“ útskýrir Ólafur sem telur miklar líkur á því að stóri flekkurinn sem tilkynnt var um í fyrstu hafi brotn- að niður að einhverju leyti í sjónum og færst með haf- straumum. Það hafi svo sést til hans að nýju en hann hafi brotnað niður að öllu leyti áður en hægt var að kanna hann frekar og taka úr honum sýni. thor@mbl.is Talsverð mengun í Eyjafirði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hrísey Tilkynnt hefur verið um tvo olíuflekki nærri eynni á síðustu dögum. Flekkirnir hafa ekki enn fundist en líklega er um leka eða óhapp að ræða.  Tilkynnt um tvo olíuflekki við Hrísey  Upptök ókunn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.